Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Síðustu ár hef ég ekki skipulagt daginn, allavega ekki á þannhátt sem ég ætti. En ég held ég fari í það minnsta eitthvað útað borða og kannski eitthvað smá eftir það. Það er ekki á
hverju ári sem dagurinn hittir á föstudag,“ segir Friðrik Sigurbjörn
Sigurbjörnsson tónlistarmaður, sem fagnar 26 ára afmæli sínu í
dag.
Það er annars nóg um að vera hjá Friðriki en hann spilar á bassa í
þremur hljómsveitum sem allar koma fram á Iceland Airwaves-
tónlistarhátíðinni í næsta mánuði og gefa út plötur á næstunni. Það
eru sveitirnar Japanese Super Shift and the Future Band, Sindri
Eldon & the Ways og Dream Central Station. Friðrik hefur þó ekki
áhyggjur af því að það komi til árekstra að leika með þremur sveit-
um á hátíðinni. „Ég spilaði á tólf tónleikum „on“ og „off venue“ í
fyrra. Þetta verður ekkert mál og æðislega gaman,“ segir hann.
Fyrir utan spilamennskuna stundar Friðrik nám í Keili í Reykja-
nesbæ og hefur hug á að læra sagnfræði, hvort sem er innanlands
eða utan, þegar því lýkur.
Ein eftirminnilegasta afmælisgjöfin sem Friðrik man eftir að hafa
fengið er máluð mynd af uppáhaldsrithöfundi hans, Bretanum
Christopher Hitchens heitnum. „Ég bað vinkonu mína að mála „trú-
leysi“ og hún málaði Hitchens. Mér þykir mjög vænt um að hafa ver-
ið gefin hún,“ segir hann. kjartan@mbl.is
Friðrik Sigurbjörn Friðriksson er 26 ára
Fingrafimur Friðrik hefur plokkað bassann í um tíu ár. Hann var
meðal annars í hljómsveitinni Lödu Sport á árum áður.
Fékk mynd af
Hitchens að gjöf
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Dalbrún 5 Sveinbjörn Sölvi Krist-
mundsson fæddist 2. desember kl.
16.36. Hann vó 4040 g og var 50 cm
langur. Foreldrar hans eru Halla Sigrún
Sveinbjörnsdóttir og Kristmundur
Magnússon.
Nýir borgarar
Selfoss Kolbrún María fæddist 25.
desember kl. 5.08. Hún vó 2.900 g og
var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru
Fjóla María Helgadóttir og Ívar Guð-
mundsson.
E
rna fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp við
Reynimelinn í Vest-
urbænum. Hún var í
Melaskóla og Haga-
skóla. Erna starfaði við Verslunar-
banka Íslands 1959-63, var flugfreyja
hjá Flugfélagi Íslands 1963-65,
stundaði verslunarrekstur hjá Hirti
Nielsen hf. 1975-83, var áskrift-
arstjóri hjá Frjálsu framtaki 1984-86,
starfsmaður hjá Ísól og ferða-
málanefnd Reykjavíkur 1988-91, leið-
beinandi við handavinnu í félagsstarfi
aldraðra á Seltjarnarnesi á árunum
1995-2007 og síðan á vegum Reykja-
víkurborgar 2008-2011, og starfs-
maður kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi
1997-2001.
Erna var varabæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins á Seltjarnarnesi
1982-86, bæjarfulltrúi þar 1990-2002,
Erna Nielsen, fyrrv. forseti bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi – 70 ára
Hjónin og barnabörn Erna og maður hennar, Björn Jónsson, ásamt fjórum af fimm barnabörnunum.
Ræktar skóg og mannlíf
Systur og bróðir Börn Ernu og Björns: Laila, Bryndís Jenný og Jón.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Brúðkaup 2012
Persónuleg þjónusta
og mikið úrval
Íslensk hönnun
og handverk
Salattöng 13.900.-
Eilífðarrósin, skúlptúr til í tveimur stærðum
lítil rós 41.500.-
stór rós 44.800.-
Úrval morgungjafa
Handsmíðaðir hringar
úr 14 karata gulli með
hvítagullshúðaðri rönd
149.900.- parið
Settu upp óskalista
hjá okkur og fáðu
15% af andvirði
þess sem verslað er
fyrir í brúðkaupsgjöf
frá Jens!
Borðbúnaður og
skúlptúrar
úr eðalstáli, skreytt
íslenskum steinum
Ostahnífur
7.900.-
Smjörhnífur
7.900.-