Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
www.evropustofa.is
Evrópusambandið
fjármagnar starfsemi
Evrópustofu.
Takk fyrir!
Ef Ísland gengur í ESB falla niður tollar á vörum sem
pantaðar eru á netinu frá Evrópusambandslöndum.
Rétt Rangt
ESB krefst þess að togarasjómenn noti hárnet við veiðar.
Rétt Rangt
Gangi Ísland í ESB þarf að breyta merkingum á öllum
innlendum vörum og merkja þær, bæði á ensku og
íslensku, með „framleitt í ESB.“
Rétt Rangt
Íslendingar munu þurfa að flagga ESB fánanum til jafns
við hinn íslenska gangi landið til liðs við ESB.
Rétt Rangt
Þegar Króatía gerist aðili að Evrópusambandinu á næsta
ári þarf ESB að innkalla alla fána sambandins til að
bæta við 28. stjörnunni.
Rétt Rangt
Bannað er að veiða lunda innan ESB.
Rétt Rangt
1
2
3
4
5
6
Evrópustofa þakkar öllum þeim sem tóku þátt í
sumarleiknum Hvað veistu? Rétt eða rangt um ESB
og létu reyna á þekkingu sína í Evrópumálum!
1. verðlaun, helgarferð fyrir tvo til Brussel (flug og
gisting) hreppti Sólrún Einarsdóttir í Reykjavík.
2. - 3. verðlaun, gjafabréf út að borða og leikhúsmiðar
fyrir tvo, komu í hlut Róberts Tómassonar í
Reykjanesbæ og Agnesar Árnadóttur á Húsavík.
Við óskum vinningshöfunum til hamingju!
Rétt eða rangt um ESB?
Lj
ós
m
yn
d:
Ei
na
r
Ó
la
so
n
Suðurgötu 10 - Reykjavík
Kaupvangsstræti 23 -Akureyri
Réttsvör1)rétt,2)rangt,3)rangt,4)rangt,5)rangt,6)rétt.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g hef verið að teikna
frá því ég man eftir
mér. En þegar ég var í
áttunda bekk fór ég að
teikna japanskar
myndir með vinkonu minni og í
framhaldi af því fór ég að teikna í of-
urraunsæjum stíl. Ég hef fundið
mig vel í því,“ segir Helena Reynis-
dóttir, 18 ára listakona sem er með
sína aðra einkasýningu í Galleríi
Tukt um þessar mundir. Yfirskrift
sýningarinnar er Umhverfa/
Aroundness og hefur hún hangið
uppi frá því skömmu fyrir Menning-
arnótt og vakið verðskuldaða at-
hygli. Í sýningarsalnum eru þrjár
mjög stórar portrettmyndir sem eru
rúmir tveir metrar á hæð og tæpir
tveir metrar á breidd. Þetta eru
kola- og blýantsteikningar af andliti
Önnu Láru vinkonu Helenu og eru
þær í ofurraunsæisstíl, nánast eins
og ljósmyndir. Tvær ljósmyndaraðir
af andliti vinkonunnar frá mörgum
ólíkum sjónarhornum tilheyra einn-
ig sýningunni og sama er að segja
um myndbandsverk þar sem töku-
vél fer hringinn í kringum Önnu
Láru, aftur og aftur.
Teiknar eftir pöntun
„Mér finnst gaman að stúdera
andlit og sjá hvernig ein manneskja
getur verið mismunandi frá ólíkum
hliðum. Ég legg mig fram um að ná
fram hverju smáatriði nákvæmlega
eins og það er í raunveruleikanum.
Svona ofurraunsæisstíll er víst ekki
mjög algengur núna í myndlistar-
sköpun og ekki beinlínis í tísku. En
ég hef fengið mjög góð viðbrögð og
fólk kemur til mín og biður mig um
að teikna myndir af börnunum sín-
um eða öðrum fjölskyldumeðlimum.
Sem ég geri með glöðu geði,“ segir
Helena og bætir við að hún hafa
verið í hálft ár að vinna stóru mynd-
irnar þrjár. „Ég lagði undir mig
stofuna heima hjá mér og þurfti stól
til að standa upp á þegar ég var að
teikna efst á myndflötinn.“
Mamma sýnir skilning
Helena á ekki langt að sækja
hinn listræna áhuga því margir
Mér finnst gaman
að stúdera andlit
Það tók hana hálft ár að vinna myndirnar þrjár sem eru á sýningunni í Galleríi
Tukt. Hún lagði undir sig stofuna heima hjá sér og þurfti stól til að standa upp á
þegar hún var að teikna efst á myndflötinn. Helena Reynis er aðeins átján ára en
heldur nú sína aðra einkasýningu.
Barn Ein af þeim myndum sem Helena hefur teiknað fyrir fólk af börnum.
Stolt Helena hengir upp teikningu sína af Jóni Gnarr á fyrstu einkasýning-
unni, í fyrra á kaffihúsinu Energia þegar hún var aðeins 17 ára.
Vefsíðan www.margret.is er flott síða
um tísku og hönnun. Að baki vefsíð-
unni standa Margrét R. Jónasar, sem
stofnaði Make Up Store á Íslandi árið
2006, Steinunn Edda Steingríms-
dóttir, verslunarstjóri í Make Up
Store, Thelma Björk Steinmann sem
nýverið lauk förðunarnámi hjá Fas-
hion Academy Reykjavík og Sara
Dögg Johansen naglafræðingur sem
starfar hjá Make Up Store.
Þær stöllur blogga á vefsíðunni sín
í hvoru lagi um fallega hluti sama
hvort þeir eru skart, heimilisprýði
eða snyrtivörur. Á vefsíðunni má líka
sjá kennslumyndband um létta förð-
un. Skemmtileg síða til að fá góðar
og flottar hugmyndir hjá þeim sem
eru með puttann á púlsinum.
Vefsíðan www.margret.is
Morgunblaðið/Ómar
Förðun Glaðlegir litir sem þessir frá Make Up Store lífga upp á útlitið.
Tískubloggarar sameinast
Hópur myndlistarmanna gengst fyrir
listviðburði á Óðinstorgi, millum Óð-
ins- og Týsgötu í miðbæ Reykjavíkur,
föstudaginn 21. september nk. undir
merkjum PARK(ing) DAY. Viðburðurinn
er öllum opinn og stendur frá kl. 14 og
fram eftir kvöldi. Á Óðinstorgi verður
hægt að njóta myndlistar af öllu tagi,
fylgjast með listinni verða til, hitta
listamenn og velta í leiðinni fyrir sér
hvaða möguleikar felast í nýtingu bíla-
stæðanna í borginni og víðar.
PARK(ing) DAY er fagnað um allan
heim þennan dag. Hvarvetna er bíla-
stæðum breytt í almenningsrými og
garða á alla mögulega vegu. Í fyrra
voru settir upp 975 slíkir „garðar“ í
162 borgum út um allar þorpagrundir
veraldarinnar. Það eru aðallega mynd-
listarmenn og hönnuðir sem taka þátt
í þessum viðburðum en einnig al-
mennir borgarar.
Markmiðið dagsins er að gæða ný
svæði lífi, fagna hinu óvænta og skapa
umræðu um borgarlandslagið. Heið-
urinn af fyrstu framkvæmd dagsins og
útbreiðslu hans á hönnunarstofan
Rebar í San Fransisco.
Tuttugu og tveir myndlistarmenn,
þrjár hljómsveitir og einn plötusnúður
munu taka þátt í viðburðinum á Óðins-
torgi auk hóps nemenda Brekkubæjar-
skóla sem flytja tvö atriði undir stjórn
Þóreyjar Jónsdóttur.
Endilega …
… komið við á PARK(ing) Day
PARK(ing) DAY Víða er bílastæðum breytt í almenningsrými og garða.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.