Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Ertu að taka til …
… á vinnustaðnum
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is… í bíls umkúrn
32 ára dóttir soldánsins í Brúnei, eins af auð-
ugustu mönnum heims, og 29 ára unnusti
hennar ganga í hjónaband með mikilli viðhöfn
í 1.700 herbergja höll soldánsins á sunnudag-
inn kemur. Þar með lýkur vikulöngum
hátíðarhöldum í tilefni af brúðkaupinu. Brúð-
guminn ber hér mauk á hendur brúðarinnar
samkvæmt gamalli hefð við athöfn í gær.
Brúnei er á Borneó-eyju í Suðvestur-Asíu,
með um 400.000 íbúa og tekjurnar á hvern
landsmann eru meiri þar en í flestum öðrum
Asíulöndum vegna mikilla gas- og olíulinda.
Brúnei fékk fullt sjálfstæði frá Bretlandi árið
1984 eftir að hafa verið soldánsdæmi frá
fimmtándu öld.
Gleði og fögnuður í glæsihöllinni
AFP
Dóttir soldánsins í Brúnei gengur í hjónaband
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Lögreglan í Danmörku hefur gripið
til aðgerða gegn félögum í vélhjóla-
samtökunum Vítisenglum og Bandi-
dos til að koma í veg fyrir að nýtt
gengjastríð blossi upp líkt og á ár-
unum 2008-2010, að sögn danskra
fjölmiðla.
Lögreglan réðst inn í húsnæði
Vítisengla á sautján stöðum í Kaup-
mannahöfn og þremur bæjum á Sjá-
landi í fyrradag. Alls voru 114 fé-
lagar í samtökunum handteknir, auk
þess sem lögreglan lagði hald á
skammbyssur, hnífa, hnúajárn, axir,
barefli, fíkniefni og stera. Lögreglu-
yfirvöld sögðu að aðgerðunum gegn
vélhjólasamtökunum væri ekki lokið.
Aðgerðir lögreglunnar benda til
þess að hún hafi tekið upp nýjar að-
ferðir til að fyrirbyggja átök milli
vélhjólasamtakanna, að því er frétta-
vefur danska blaðsins Politiken hef-
ur eftir Michael Hviid Jacobsen, pró-
fessor í félagsfræði við Álaborgar-
háskóla, en hann hefur sérhæft sig í
rannsóknum á starfsemi glæpasam-
taka. Lögreglan hefur haft áhyggjur
af vaxandi spennu milli Vítisengla og
Bandidos og Michael Hviid Jacobsen
segir að með aðgerðunum hafi hún
sent vélhjólasamtökunum skýr skila-
boð að um að hún sé staðráðin í að
koma í veg fyrir að nýtt gengjastríð
blossi upp.
Alltaf hætta á gengjastríði
„Auðvitað getur nýtt gengjastríð
hafist,“ hafði Politiken eftir Michael
Hviid Jacobsen. „Við vitum að það
þarf ekki mikið til að púðurtunnan
springi. Þess vegna segi ég að auð-
vitað geti blossað upp nýtt stríð. Við
getum aldrei útilokað það. Ógjörn-
ingur er að spá um hvort það gerist.“
Að sögn prófessorsins hafa fleiri
hópar fengið að kenna á nýjum fyrir-
byggjandi aðferðum lögreglunnar.
Síðustu daga hefur lögreglan meðal
annars handtekið fjórtán vinstri-
öfgamenn fyrir að áforma
skemmdarverk á eigum danska
ríkisins í pólitískum tilgangi og átta
Kúrda sem grunaðir eru um að hafa
safnað fé fyrir Verkamannaflokk
Kúrdistans sem er skilgreindur sem
hryðjuverkasamtök.
Leiðtogi Bandidos handtekinn
Á meðal þeirra sem voru hand-
teknir í fyrradag var Michael Rosen-
vold, leiðtogi Bandidos í Danmörku
og fleiri löndum Evrópu, en hann er
þekktur undir nafninu „Kokkurinn“.
Yfirmaður dönsku rannsóknarlög-
reglunnar staðfesti þetta í gær.
Óttast nýtt gengjastríð
Lögreglan í Danmörku grípur til fyrirbyggjandi aðgerða gegn félögum í Vítis-
englum og Bandidos Sögð hafa tekið upp nýjar aðferðir gegn samtökunum
AFP
Spenna Vítisenglar frá Sviss og
Svíþjóð í Kaupmannahöfn.
Listakonan Yoko
Ono, ekkja Bítils-
ins Johns Lenn-
ons, hyggst veita
rússnesku
kvennahljóm-
sveitinni Pussy
Riot friðar-
verðlaun Lenn-
on-Ono við at-
höfn í New York
í dag. Konurnar í hljómsveitinni af-
plána nú tveggja ára fangelsisdóma
fyrir óspektir í kirkju í Moskvu í
febrúar þegar þær efndu til mót-
mæla gegn Vladímír Pútín Rúss-
landsforseta. Eiginmaður einnar
þeirra tekur við verðlaununum.
Verðlaunahafarnir verða heiðraðir
við athöfn sem fram fer í Reykjavík
9. október, að sögn fréttaveitunnar
AFP.
Yoko Ono veitir
Pussy Riot
friðarverðlaun
Yoko Ono
BANDARÍKIN
Töluverður viðbúnaður er hjá lög-
reglunni í hollenska bænum Haren
vegna þess að von er á þúsundum
gesta í bæinn í kvöld. Ástæðan er sú
að stúlka í bænum bauð óvart
24.000 manns í 16 ára afmælið sitt á
Facebook. Stúlkan sendi út
afmælisboðið á Facebook en fyrir
mistök voru skilaboðin send á stór-
an hóp fólks. Margir þeirra sem
fengu boðið sendu það síðan áfram
til vina sinna og koll af kolli. Alls
hafa á þriðja þúsund staðfest komu
sína í afmælið, en íbúar bæjarins
eru um 18.000.
Bauð þúsundum
manna í afmælið
HOLLAND
Breskur her-
maður eignaðist
barn í Bastion-
herstöðinni í
Helmand-héraði
í Afganistan á
þriðjudag. Svo
virðist sem kon-
an hafi ekki vit-
að að hún væri
barnshafandi en
þetta er í fyrsta
skipti sem breskur hermaður í
fremstu víglínu eignast barn í her-
stöð. Móður og barni heilsast
þokkalega, að sögn breska hers-
ins, en barnið, sem er drengur,
fæddist fimm vikum fyrir tímann.
Konan taldi sig þjást af maga-
kveisu er hríðirnar hófust. Ekki er
heimilt að senda konur í breska
hernum í fremstu víglínu séu þær
þungaðar.
Vissi ekki að hún
var þunguð og ól
barn í herstöð
Frá Bastion-
herstöðinni.
AFGANISTAN