Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu verða að taka pólitíska ákvörð-
un um það hvernig þau vilja haga
rekstri og þjónustu skíðasvæð-
anna, segir Magnús Árnason,
framkvæmdastjóri skíðasvæðanna.
Núgildandi þjón-
ustusamningur
um rekstur
svæðanna renn-
ur út um ára-
mótin en á gild-
istíma hans
hefur orðið um
21% niður-
skurður á
rekstrarframlagi
sveitarfélaganna.
Framlagið var 129,5 milljónir
króna árið 2008 en átti samkvæmt
samningnum að hækka í takt við
vísitölu og ætti því að standa í um
180 milljónum í dag, að sögn
Magnúsar. Það hefur hins vegar
lækkað um rúm 20% á síðustu
fjórum árum og stendur nú í um
102 milljónum króna. Þá hefur
framlag sveitarfélaganna til ný-
framkvæmda verið lækkað úr 100
milljónum, samkvæmt samningi, í
25-50 milljónir, eftir árum.
Magnús segir niðurskurðinn
vissulega hafa komið niður á skíða-
iðkendum og þjónustunni á svæð-
unum en til að fjárhagsáætlun sem
hann hefur skilað inn til Reykja-
víkurborgar fái staðist þarf fram-
lag borgarinnar til rekstrarins að
aukast um 20 milljónir á ári.
Gera meiri kröfur
„Reykjavík þarf að bæta 20
milljónum við sitt framlag til að
við getum haft opið um helgar í
Skálafelli og haft almennilega opið
í Bláfjöllum,“ segir Magnús.
Reykjavík greiðir um 70% rekstr-
arframlagsins en hin sveitarfélögin
skipta restinni með sér út frá íbúa-
fjölda. Framkvæmdaframlagið,
sem er eyrnamerkt nýfram-
kvæmdum, skiptist hins vegar
jafnt milli allra sveitafélaganna út
frá íbúafjölda og þar er hlutdeild
borgarinnar um 60%.
Magnús segist ekki hafa orðið
var við að skíðaiðkun almennings
hafi minnkað en hins vegar geri
fólk meiri kröfur um gott veður og
aðstæður en áður. „Það er í raun
bara einn vetur síðastliðin fimm ár
sem hefur verið léleg-
ur og hann var ekki
bara lélegur, heldur
var hann hörmuleg-
ur,“ segir Magnús og
á þar við veturinn
2009-2010, þegar að-
eins var opið í fimm
daga í Bláfjöllum.
Hann segir forgangs-
röðunina hafa verið á
þann veg að fyrst sé lögð
áhersla á að undirbúa svæði fyrir
almenning. Reyndir skíðamenn
hafi e.t.v. orðið helst fyrir barðinu
á niðurskurðinum en aftur sé það
ákvörðun stjórnvalda að
ákveða hvort þau vilji gera
meira fyrir þann hóp.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á skíðum skemmti ég mér Magnús segir almenning gera meiri kröfur um gott veður og góðar aðstæður til skíðaiðkunar en áður.
Þarf bæði fjármagn og snjó til
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taki pólitíska ákvörðun um rekstur og þjónustu á skíðasvæð-
unum Þjónustusamningur rennur út um áramót Skorið niður um 21% á síðastliðnum árum
Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins
*opið fyrir tilstilli KR-inga sem gáfu vinnu til að halda svæðinu opnu
2008-2009 2009-2010 2010-2011 2011-2012
Opið Gestir Opið Gestir Opið Gestir Opið Gestir
Bláfjöll 56 84.500 5 10.000 63 46.000 78 58.000
dagar dagar dagar dagar
Skálafell 30 8.300 Lokað vegna Lokað vegna 9 3.100
dagar veðurs/aðstæðna niðurskurðar dagar*
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Þrátt fyrir niðurskurð hefur ým-
islegt verið framkvæmt í Bláfjöll-
um í sumar og von er á nýjung á
svæðið í haust.
„Við náðum því í gegn að fá
færiband eins og er á Akureyri,
nema þetta verður aðeins lengra.
Það er í raun bara bylting fyrir
byrjendur að hafa það. Krakkar
hafa verið í kennslu hjá okkur frá
fjögurra ára aldri en núna verður
auðveldlega hægt að byrja með
þau enn yngri,“ segir
Magnús.
Færibandið hefur verið
kallað töfrateppi á íslensku
en því verður komið fyrir
milli Bláfjallaskála og
skemmunnar og mun það
liggja samsíða kað-
allyftunni.
Gamli Blá-
fjallaskáli,
eða Borgarskáli eins og hann er
kallaður, verður færður.
Færibandið verður sett upp í lok
október en það mun taka einhvern
tíma að fá það að utan, segir
Magnús. Hann segir að markmiðið
sé að fjárfesta í framtíðar
byrjendaaðstöðu á þessu svæði.
Einnig hefur verið unnið að því að
breikka og stækka brettasvæðið,
þannig að hægt verði að auka fjöl-
breytni í pöllum og slám.
Afgangshey hefur einnig verið
notað á skemmtilegan hátt í
brekkunum, í því skyni að bæta að-
stæður fyrir skíðaunnendur.
„Við megum ekki setja niður
neinn áburð þar sem þetta er
vatnsverndarsvæði, þannig að við
dreifum bara heyi sem við fáum í
rúllum og tókum þannig fyrir tvær
brekkur. Þetta breytir ásýnd svæð-
isins þannig að það verður fallegra
og svo er þetta líka gert vegna
þess að það þarf þá ekki eins mik-
inn snjó til að geta byrjað,“ út-
skýrir Magnús.
Dreifðu heyi í brekkurnar og
opna töfrateppi fyrir börnin
BREYTT OG BÆTT Í BLÁFJÖLLUM
Magnús
Árnason
STOFNAÐ 1987
M
ál
ve
rk
:
Si
g
rí
ð
u
r
A
n
n
a
Úrval einstakra málverka og listmuna eftir íslenska listamenn | Skipholt 50a | Sími 581 4020 | www.galleri l ist. is
einstakt
eitthvað alveg