Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012 Baldur Guðlaugsson, lögfræðingur, sendi í gær frá sér athugasemd vegna fréttar í Kastljósi Sjón- varpsins á miðvikudagskvöld þar sem fjallað var um sölu Baldurs á íbúðabréfum í mars sl. Athugasemdin er eftirfaramdi: „Í Kastljósi Ríkissjónvarps- ins í gærkvöldi var fjallað um það að undirrit- aður hefði selt íbúðabréf í mars sl., nokkrum dögum áður en gerðar voru breytingar á lögum um gjald- eyrismál sem þrengdu heimildir erlendra eigenda slíkra bréfa til að fá gjaldeyrisyfirfærslu fyrir af- borgunum og vöxtum af bréfunum. Var látið að því liggja að undirrit- aður hefði vegna fyrri starfa í stjórnarráðinu haft vitneskju um að umræddar lagabreytingar væru í farvatninu. Af þessu tilefni skal eftirfarandi tekið fram : 1. Ég lét af störfum í stjórn- arráðinu á árinu 2009 og hef ekki frá þeim tíma haft neinn aðgang að upplýsingum um þau mál sem á hverjum tíma eru til vinnslu í stjórnarráðinu eða annars staðar í stjórnsýslunni. Hef ég hvorki leit- að eftir slíkum upplýsingum né þær verið látnar mér í té. Gildir það jafnt um breytingar á lögum um gjaldeyrismál sem önnur mál. Mér var því með öllu ókunnugt um að til stæði að leggja fram frum- varp til breytinga á lögum sem þrengdu gjaldeyrisyfirfærsluheim- ildir erlendra eigenda íbúðabréfa. 2. Ástæða þess að ég ákvað að selja íbúðabréf sem ég átti í flokki HFF 14 var ósköp einföld. Þessi bréf höfðu hækkað mjög í verði á fyrstu mánuðum þessa árs, að því er fram hafði komið vegna áhuga erlendra krónueigenda á að eign- ast þau af þeim ástæðum sem að framan greinir. Umrædd íbúða- bréf eru með afborgunum tvisvar á ári og lokagjalddaga á árinu 2014. Segir sig sjálft að eft- irstöðvar bréfanna – og þar með andlag viðskipta með bréfin – lækkar eftir því sem búið er að greiða fleiri afborganir af bréf- unum og nær dregur loka- gjalddaga þeirra. Ég ákvað því að selja íbúðabréf sem ég átti í flokki HFF 14. Þar sem fyrir lá að ég myndi hefja nýjan kafla í lífinu sunnudaginn 11. mars sl. lagði ég áherslu á að ljúka sölunni fyrir þann tíma. Hafði ég fyrst samband við verðbréfafyrirtæki um söluna um miðbik vikunnar á undan. Við- skipti komust síðan á föstudaginn 9. mars. Tímasetning tilkynningar verðbréfafyrirtækisins sem ann- aðist viðskipin til Kauphallar þann dag um viðskiptin er mér hins veg- ar með öllu óviðkomandi. Rétt er að taka fram að það sem fram kom í umfjöllun Kastljóss um söluverð umræddra bréfa er rangt. Sölu- verð bréfanna var miklum mun lægra. 3. Mér er ekki kunnugt um að umrædd viðskipti eða önnur sem fram fóru á þessum tíma sæti sér- stakri rannsókn. Það á hins vegar að vera sjálfsagður hluti af verk- efnum Kauphallar og Fjármálaeft- irlits að kanna hvort eitthvað telst óeðlilegt við viðskipti á verð- bréfamarkaði sem eiga sér stað í aðdraganda lagabreytinga sem áhrif geta haft á verðmyndun á markaði. Vonandi hefur það verið gert í þessu tilviki sem öðrum. Ég mun ekki tjá mig frekar um þetta mál.“ Segist engar upp- lýsingar hafa haft um lagabreytingar Baldur Guðlaugsson  Íbúðabréf höfðu hækkað mjög í verði á fyrstu mánuðum ársins Tvær í einni Verð 7.900 kr. Str. M-XXXL Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Ríta tískuverslun Viltu laga og fyrirbyggja eyrnabólgur? Undirþrýstingur í miðeyra með vökva. Viðurkennd meðferð - engar aukaverkanir Eftir þrýstingsjöfnun með Otoventblöðru, miðeyrað opið og engin vökvi. Otovent meðferðin er til að létta á undirþrýsting í miðeyra. Getur fyrirbyggt og unnið á eyrnabólgu og vanlíðan með því að tryggja að loftflæði og vökvi eigi greiða leið frá miðeyra. Meðferð sem getur dregið úr eyrnabólgum, sýklalyfjanotkun, ástungum og rörísetningum. 70% árangur af notkun. Klínískar rannsóknir sýna gagnsemi við lokun í miðeyra, skertri heyrn eftir eyrnabólgur, óþægindum í eyrum við flug, sundferðir eða köfun. Otovent er einfalt og þægilegt fyrir börn og fullorðna. Læknar mæla með Otovent. Otovent er CE merkt. Umboð Celsus ehf Fæst í apótekum Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Full búð af flottum fötum fyrir flottar konur Stærðir 40-58 Allur ágóði af sölunni rennur til Krabbameinsfélags Íslands www.faerid.com Sölustaðir: N1, Pósturinn, Skeljungur, Nettó, Olís og Bónus. Laugavegi 54, sími 552 5201 Glæsileg kjólasending ótrúlegt úrval Fyrir árshátíðina og brúðkaupin Náttúrustofu Vesturlands barst ný- lega máttfarinn fálki sem fannst í Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Fálkinn var settur í búr og gefið að éta og drekka. Hann hresstist heldur og virtist vera að styrkjast en nokkrum dögum seinna var hann dauður í búrinu, segir í frétt á vef Náttúrustofunnar. Hræið var sent til nánari skoðunar á Náttúrufræðistofnun Íslands. Þar var fálkinn gegnumlýstur og komu þá í ljós 9 högl sem dreifð voru um skrokkinn, þar af eitt í höfðinu. Ljóst er því að skotið hefur verið á hann með haglabyssu og drógu áverk- arnir hann til dauða, segir á vefnum. Fálkastofninn er fremur lítill, að- eins 300-400 pör og eru þeir strang- friðaðir allt árið skv. lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Engu að síður fann Náttúrufræðistofnun högl í um fjórðungi þeirra fálka sem henni bárust á árunum 2005-2009. Haglaskot drógu fálka til dauða Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.