Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
GJÖRIÐ
SVO VEL!HÁDEGISMATUR
TIL FYRIRTÆKJA
HAFÐU SAMBAND
OG FÁÐU TILBOÐ!
HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
HEITT OG KALT býður fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu
heimsendingu á hollum og kjarngóðum hádegismat.
Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari
og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta
matreiðslukeppni heims.
Birgir Ármannsson spurði for-sætisráðherra út í fjölgun
starfa í fyrirspurnartíma á Alþingi í
gær og benti á að þótt fólki fækkaði
á atvinnuleysisskrá þá fjölgaði störf-
um ekki.
Hann benti jafn-framt á að at-
vinnumálin og fjölg-
un starfa hefðu að
sögn ríkisstjórnar-
innar sjálfrar verið
meðal helstu verk-
efna hennar.
Jóhanna Sigurðar-dóttir hóf svar
sitt með þessum orð-
um: „Ég held það sé
nauðsynlegt að gera
sér grein fyrir af hverju það er að
störfum sé að fækka.“
Þetta var út af fyrir sig mikilvægviðurkenning á vandanum en
hefur svo sem lítið gildi því að í
svarinu hafði forsætisráðherra að
öðru leyti ekkert fram að færa sem
gæti stuðlað að fjölgun starfa.
Ekki bætir heldur úr skák að ístefnuræðu sinni talaði for-
sætisráðherra á allt annan veg, eins
og Birgir benti á:
„Hæstvirtur forsætisráðherra
sagði í stefnuræðu sinni hér í síðustu
viku að það hefðu orðið 4.600 ný
störf til á þessu ári. Það kann að
vera, en þá hafa einhver 4.600 störf
glatast á móti, því niðurstöður Hag-
stofunnar benda ekki til þess að
störfum í landinu hafi fjölgað neitt.
Fólki á atvinnuleysisskrá hefur
fækkað en því miður er það ekki
vegna þess að störfum í landinu hafi
fjölgað.“
Við þessu átti forsætisráðherraekkert svar, enda var ekkert
um þetta í handriti spunameistar-
anna.
Birgir
Ármannsson
Engin fjölgun
starfa
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Veður víða um heim 20.9., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 8 alskýjað
Akureyri 10 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 9 heiðskírt
Vestmannaeyjar 8 heiðskírt
Nuuk 8 léttskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 11 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Stokkhólmur 11 heiðskírt
Helsinki 12 léttskýjað
Lúxemborg 15 heiðskírt
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 12 skúrir
Glasgow 8 skúrir
London 17 léttskýjað
París 17 heiðskírt
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 13 skýjað
Berlín 15 heiðskírt
Vín 15 léttskýjað
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 25 léttskýjað
Madríd 28 léttskýjað
Barcelona 22 skýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 13 skýjað
Montreal 16 léttskýjað
New York 18 skýjað
Chicago 20 léttskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:10 19:32
ÍSAFJÖRÐUR 7:14 19:38
SIGLUFJÖRÐUR 6:57 19:21
DJÚPIVOGUR 6:39 19:02
Loftorka Reykjavík ehf. átti lægsta
tilboð í gerð Álftanesvegar, sem
lagður verður milli Hafnarfjarðar-
vegar og Bessastaðavegar. Tilboð
voru opnuð hjá Vegagerðinni í vik-
unni. Nýi vegurinn mun leysa af
hólmi núverandi veg.
Tilboð Loftorku nam tæpum 660
milljónum króna og var 76% af áætl-
uðum verktakakostnaði sem var upp
á 865 milljónir króna. ÍAV hf. átti
næstlægsta boð upp á 746 milljónir
króna, Urð og Grjót ehf. bauð tæpar
800 milljónir, Ístak hf. 844 milljónir
og Suðurverk hf. 844 milljónir.
Hætt við verkið árið 2009
Þetta er í annað sinn sem þetta
verk er boðið út. Það var fyrst boðið
út fyrri hluta árs 2009 og bárust þá
19 tilboð. Loftorka átti þá einnig
lægsta tilboðið, 561 milljón. Þá var
áætlaður verktakakostnaður 825
milljónir. Vegna bágrar stöðu ríkis-
sjóðs á þeim tíma var hætt við verk-
ið.
Lagning Álftanesvegar skiptist í
þrjá verkáfanga en skal verkinu að
fullu lokið eigi síðar en 1. júlí 2014.
Verkið felst í því að leggja nýjan
fjögurra kílómetra langan veg frá
Engidal að Fógetatorgi við Bessa-
staðaveg. Gera skal mislæg gatna-
mót ásamt að- og fráreinum við
Hraunsholt í Engidal og byggja
tvenn göng fyrir gangandi umferð.
Breyta skal legu strengja, vatns- og
hitaveitulagna. Þá á að leggja nýja
háspennu- og rafdreifistrengi, síma-,
vatns- og hitaveitulagnir. Einnig
fylgir með í verkinu landmótun, sán-
ing og yfirborðsjöfnun hrauns innan
verksvæðisins. sisi@mbl.is
Loftorka bauð lægst í annað sinn
Morgunblaðið/Þorkell
Lægsta tilboð í nýjan Álftanesveg var tæpar 660 milljónir króna
Engin efnisbreyting er gerð frá nú-
verandi stefnu Íslands í hvalveiðum í
samningsafstöðu landsins í aðildar-
viðræðunum við Evrópusambandið.
Þetta kemur fram í samningsafstöðu
Íslands varðandi umhverfismál sem
birt var 18. september s.l. Lesa má
kaflann í heild á vefnum (www.vidra-
edur.is).
„Af hálfu Íslands er lögð áhersla á
rétt Íslands til að taka sjálft ákvarð-
anir um nýtinguna með það í huga
að núverandi löggjöf heimilar ein-
ungis nýtingu á tveimur tegundum,
langreyði og hrefnu, í takmörkuðu
magni,“ segir í kafla um hvali.
Þar kemur ennfremur fram að nú-
verandi stefna Íslendinga í hval-
veiðimálum byggist á ályktun Al-
þingis um hvalveiðar frá 10. mars
1999 sem byggist á meginreglunni
um verndun og sjálfbæra nýtingu.
Einnig að hvalveiðum Íslendinga sé
stjórnað á vísindalegum grunni og í
samræmi við alþjóðlegar skuldbind-
ingar Íslands. Veiðarnar fari alfarið
fram innan 200 mílna sérefnahags-
lögsögunnar, að undanteknum
tveimur hvalaskoðunarsvæðum.
Þá falli hvalveiðar Íslendinga und-
ir alþjóðlegar reglur um rannsóknir
og eftirlit á vettvangi Alþjóðahval-
veiðiráðsins og Norður-Atlantshafs-
sjávarspendýraráðsins. Ísland beiti
sér samkvæmt stefnu þess í hval-
veiðimálum á alþjóðavettvangi.
gudni@mbl.is
Hvalveiðar
óbreyttar