Morgunblaðið - 21.09.2012, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Vörukarfa ASÍ hefur almennt
hækkað frá árinu 2008 um 21-55%
samkvæmt vörukönnun sem birt
var í mars á þessu ári. Nú hefur
vörukarfan hins vegar lækkað tölu-
vert samkvæmt nýjustu vörukönn-
un ASÍ sem gerð var núna í sept-
ember. Mest lækkun varð í
verslunum Krónunnar en þar
mældist vörukarfan 5,5% lægri en í
júní á þessu ári. Næst á eftir kem-
ur Hagkaup með 3,7% lækkun og
Samkaup-Úrval með 2,6% lækkun
en Bónus rekur lestina í lækkun á
vöruverði með 1,5% lækkun. Hjá
Nettó, Nóatúni, Tíu-ellefu, Sam-
kaupum-Strax og Víði hefur vöru-
karfan hins vegar hækkað frá því í
júní. Mest hækkun varð í versl-
unum Tíu-ellefu eða um 2% hækk-
un en minnst hjá Nóatúni þar sem
karfan hækkaði einungis um 0,1%.
Kristjana Birgisdóttir, sem sér
um verðlagseftirlit ASÍ, segir að al-
mennt hafi verðlag hækkað frá
árinu 2008 en árstíðabundnar
sveiflur geti haft áhrif á mælingar.
„Það er erfitt að segja nákvæmlega
hvað veldur því að lækkunin er
svona mikil núna. Grænmeti og
ávextir eru t.d. ódýrari á haustin og
að jafnaði er kjötverð eitthvað
lægra á haustin þegar skipt er um
árgang og nýtt kjöt kemur inn á
markaðinn. Það hefur eflaust ein-
hver áhrif.“
Mest lækkun á mat í Krónunni
Á næsta ári verða 30 ár frá því að flúðasiglingar hófust
á Hvítá en Torfi G. Yngvason, annar eigenda Arctic Ad-
ventures, segir að alls hafi um 200 þúsund manns farið
niður hluta árinnar á þeim tíma. Fyrirtækið fer árlega
með 10-12 þúsund manns í siglingar á Hvítá frá apríl og
út september. Erlendir ferðamenn eru í meirihluta í
þessum hópi en flúðasiglingar eru einnig afar vinsælar
meðal útskriftarnema grunnskólanna, að sögn Torfa.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Fjöldi og fjör í flúðasiglingum
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Það er ljóst að við höfum orðið fyrir
beinum kostnaði af þessu máli. Við
munum skoða hvort það séu forsend-
ur fyrir því að reka skaðabótamál
eða þá að semja beint við Kaupþing
ef þeim þykir það betra,“ segir Elliði
Vignisson, bæjarstjóri Vestmanna-
eyjabæjar.
Slitastjórn Kaupþings tilkynnti
bænum í vikunni að hún hefði ákveð-
ið að falla frá málshöfðun á hendur
honum til að rifta greiðslu gamla
bankans á innláni í peningamarkaðs-
sjóði til bæjarfélagsins upp á rúman
milljarð króna í september árið 2008.
Slitastjórnin hafði ennfremur krafið
bæinn um endurgreiðslu á fénu.
Málið var eitt fimmtíu riftunar-
mála sem Kaupþing höfðaði í sumar
vegna ríflega 180 milljarða króna.
Engar forsendur fyrir stefnu
Að sögn Elliða hefur bæjarfélagið
ekki enn lagt mat á það fjárhagstjón
sem hann hefur orðið fyrir en það sé
þó verulegt. Stefna Kaupþings upp á
milljarð króna hafi haft áhrif á alla
fjárhagsgjörninga þess, sérstaklega
samskipti við Fasteign hf. um endur-
kaup á eignum.
„Mjög sennilega værum við komn-
ir lengra í því samningaferli og ef til
vill búnir að kaupa eignir til baka ef
þetta hefði ekki komið upp á. Svo
þarf ekki annað en að skoða gengi
krónunnar frá því að Kaupþing
stefndi okkur til dagsins í dag til að
sjá af hvaða tækifærum við höfum
misst,“ segir bæjarstjórinn.
Ljóst sé að aldrei hafi verið grund-
völlur fyrir málshöfðun slitastjórn-
arinnar. Elliði segir það ekki eðlileg-
an feril mála að hún stefni fyrr-
verandi viðskiptaaðila fyrir jafnháa
fjárhæð þegar svo komi í ljós að ekki
hafi verið neinar forsendur fyrir því.
„Við höfum engar frekari skýring-
ar fengið. Frá okkar bæjardyrum
séð lítur helst út fyrir að slitastjórnin
hafi verið að fiska í gruggugum
polli,“ segir Elliði.
Verulegt tjón
fyrir bæinn
Vestmannaeyjabær skoðar skaða-
bótamál gegn slitastjórn Kaupþings
Riftunarmál
» Slitastjórn gamla Lands-
bankans höfðaði 50-60 rift-
unarmál vegna greiðslna
skömmu fyrir fall bankans.
Skv. upplýsingum slitastjórnar
hefur ekki verið hætt við nein
þeirra mála.
» Slitastjórn Glitnis segist
heldur ekki hafa hætt við nein
þeirra um 30 riftunarmála sem
hún hefur höfðað.
SIMPLY CLEVER
Umboðsmenn
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · Hekla Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
ŠKODA Fabia er byggð á einfaldri hugmynd: Það á að vera skemmtilegt að
keyra. Þess vegna er bíllinn svo nettur að utan en rúmgóður fyrir fólk og
farangur að innan. ŠKODA Fabia er nýr og frábær bíll sem þú einfaldlega
verður að prófa!
ŠKODA Fabia
ŠKODA Fabia kostar aðeins frá:*
2.140.000,-
*Skoda Fabia Classic 1.2 beinskiptur
70 hestöfl. Eyðsla: 5,5 l/100 bl. akstur, CO2 : 128 g/km