Morgunblaðið - 21.09.2012, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Opið hús verður hjá fjórum héraðs-
dómstólum landsins laugardaginn
22. september nk. milli klukkan 11
og 14 í tilefni af 20 ára afmæli dóm-
stólanna.
Dómstólar sem eru með opin hús
eru: Héraðsdómur Reykjavíkur við
Austurstræti, Héraðsdómur Aust-
urlands við Lyngás 15, Egils-
stöðum, Héraðsdómur Suðurlands
við Austurveg 4, Selfossi, og Hér-
aðsdómur Reykjaness við Fjarðar-
götu 9, Hafnarfirði. Þar gefst al-
menningi kostur á að kynna sér
starfsemi dómstólanna, fara í skoð-
unarferðir um dómhúsin og sitja
sýndarréttarhöld í Héraðsdómi
Reykjavíkur sem Háskólinn í
Reykjavík mun leiða. Þá gefst gest-
um tækifæri til að koma með nyt-
samlegar ábendingar í „skilaboða-
skjóðu“. Nánari upplýsingar má
finna á www.domstolar.is.
Morgunblaðið/Þorkell
Opið hús Héraðsdómur Reykjavíkur.
Fjórir dómstólar
með opið hús
Varðberg og
Rannsókn-
arsetur um ný-
sköpun og hag-
vöxt (RNH)
boða til hádeg-
isfundar föstu-
daginn 21. sept-
ember kl. 12-13
á Háskólatorgi,
Háskóla Ís-
lands, í stofu
HT-102.
Norski prófessorinn Øystein
Sørensen ræðir um alræðishug-
arfar fjöldamorðingjans Anders
Behrings Breiviks.
Øystein Sørensen fæddist 1954
í Noregi. Hann lauk kandídats-
prófi og síðar doktorsprófi í
sagnfræði og er prófessor í
sagnfræði í Óslóarháskóla. Hann
hefur samið ævisögur Friðþjófs
Nansens og Bjørnstjernes Bjørn-
sons og skrifað margt um vakn-
andi þjóðarvitund Norðmanna á
19. öld og margvísleg önnur
efni, þar á meðal ýmsar samsær-
iskenningar um sögulega fram-
vindu. Nýjasta verk hans er rit-
gerð um alræðishugarfar
fjöldamorðingjans Anders Brei-
viks.
Formaður Varðbergs, Björn
Bjarnason, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, verður fundar-
stjóri. Fundurinn er öllum opinn.
Fjallar um alræðis-
hugarfar Breiviks
fjöldamorðingja
Øystein
Sørensen
STUTT
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Það þarf ekki að vera flókið að inn-
heimta aðgangseyri að ferðamanna-
perlum Mývatnssveitar, að mati
Ólafs H. Jónssonar, formanns Land-
eigendafélags Reykjahlíðar. Hann
vill að tekið verði upp hóflegt gjald
sem ferðamenn greiði fyrir aðgang
að náttúruperlum Mývatnssveitar.
Ólafur nefndir t.d. fimm evra (800
kr.) heildargjald fyrir aðgang að öll-
um ferðamannastöðunum í sveitinni.
Auk þess gæti
verið ódýrara inn
á einstaka staði.
Þá legði ríkið jafn
háa upphæð á
móti til viðhalds
ferðamannastaða,
en Ólafur segir að
það yrði örlítið
brot af þeim virð-
isauka sem ferða-
mannaperlurnar í
sveitinni skapi.
Hann áætlar að tekjurnar af að-
gangsgjaldinu í Mývatnssveit gætu
verið a.m.k. 100 milljónir króna á ári
og annað eins frá ríkinu.
Aðstaða til frambúðar
„Með þessu væri hægt að útbúa
salernisaðstöðu á öllum stöðunum og
og þá meina ég salerni til framtíðar
en ekki ferðaklósett úr plasti eða í
gámum. Göngupallar yrðu byggðir
og gerðir varanlegir göngustígar þar
sem við á og hinum haldið við. Hver
ferðamaður fengi bækling um Mý-
vatnssveit auk þess sem góðar upp-
lýsingar yrðu um hvern viðkomustað
fyrir sig. Allt öryggi yrði bætt á
svæðum sem í dag eru stórhættuleg
eins og í kringum hveri og víðar. Ég
áætla að hægt yrði að skapa 60 ný
störf frá 1. júní og fram í september,
síðan tækju við hlutastörf yfir
vetrartímann. Þetta myndi auka
tekjur hins opinbera en náttúran
myndi græða mest.“
Ólafur telur víst að ferða-
mannastraumurinn í Mývatnssveit
hafi skilað miklum tekjum án þess að
svæðið fái neitt sem nemur af því.
Hann nefnir t.d. að ferðamenn á
skemmtiferðaskipum sleppi við gisti-
náttagjaldið. Nú hafi komið 62
skemmtiferðaskip til Akureyrar og
langflestir farþeganna, líklega 40-50
þúsund manns, hafi heimsótt Mý-
vatnssveit. Allt þetta fólk fari um
ferðamannastaðina og þurfi salernis-
aðstöðu og aðra þjónustu. Það skili
engum tekjum fyrir svæðið nema
þeir sem kaupi sér mat eða kaffi því
varla sé tími til að kaupa minjagripi!
Furðar sig á orðum ráðherra
Þá segir Ólafur að sér hafi þótt orð
Svandísar Svavarsdóttur,
umhverfisráðherra, um að ríkinu
einu sé treystandi til gjaldtöku á
náttúrusvæðum ótrúleg. Ráð-
herrann hafi goldið varhug við því að
einkaaðilar, eigendur ferða-
mannastaða, færu að innheimta
gjald því þá sé hætt við að það verði
frekar gróðastarfsemi en til þess að
gera landinu til góða.
„Hvaða viska er nú þetta,“ spyr
Ólafur. „Það er greinilegt að ráð-
herrann er illa upplýstur eða veit
ekki um hvað málið snýst. Heldur
ráðherrann virkilega að eigendum
náttúruundra í Mývatnssveit sé ekki
annt um að gæta þeirra? Mjög marg-
ir landeigendur, þó ekki allir, eru í
ferðaþjónustu og er alls ekki sama
um hvernig farið er með slík nátt-
úruundur sem í sveitinni eru. Það er
mikill hroki og þekkingarleysi í
svona framsetningu. Slíkt kemur
ekki á óvart miðað við fyrri sam-
skipti aðila í Mývatnssveit við emb-
ættið sem og undirstofnanir þess.“
Innheimta aðgangseyris er ekki flókin
Morgunblaðið/RAX
Þörf á betri aðbúnaði Mikil þörf er á að bæta aðstöðu til móttöku ferðamanna og viðhald vinsælla ferðamannastaða í Mývatnssveit, að mati formanns
Landeigendafélags Reykjahlíðar. Hann vill að landeigendur sameinist um að innheimta hóflegt gjald til að standa undir viðhaldi og aukinni þjónustu.
Formaður Landeigendafélags Reykjahlíðar leggur til að ferðamenn verði látnir borga fimm evrur
(800 kr.) fyrir aðgang að öllum náttúruperlum Mývatnssveitar Ríkið leggi svo annað eins á móti
Ólafur H.
Jónsson
Ólafur H. Jónsson telur að
fyrirkomulag gistináttagjalds-
ins sé út í hött og innheimtan
ómarkviss og óréttlát.
„Hvaða viska er það að sá
sem leigir tjaldstæði á 1.200
kr. fyrir nóttina greiði 100 kr.
í gistináttagjald og sá sem
sefur í hótelherbergi fyrir
25.000 kr. greiði líka 100 kr.?
Ef leigð er út heil íbúð eða
hús þá er 100 kr. gistinátta-
gjald greitt á nótt. Hver fann
upp þessa steypu,“ spyr Ólaf-
ur. Hann segir að peningarnir
sem gistináttagjaldið skilar
fari að langmestu til ríkisins.
„Opinber verkefni fá 71% en
einkaaðilar 20%. Og hvað fór
mikið á allt Norðausturland af
samtals 69 milljónum í ár? Jú,
13% eða níu milljónir. Ég giska
á að kannski þrjár milljónir
hafi komið í Mývatnssveit og
hvað er hægt að gera fyrir
það?“
Hver fann upp þessa steypu?
TELUR GISTINÁTTAGJALDIÐ VERA ÚT Í HÖTT
Ketilbjöllutímar
þri. og fim., kl 12.00 og 17.15
lau., kl. 10.00
Komdu með í gott form
Ketilbjöllur gætu verið
málið fyrir þig
Styrkir alla vöðva líkamans
Komdu
og prófaðu
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is