Morgunblaðið - 21.09.2012, Page 24

Morgunblaðið - 21.09.2012, Page 24
FRÉTTASKÝRING Rúnar Pálmason runarp@mbl.is S amkvæmt nýjustu taln- ingu stefna 13 stjórn- málaflokkar og stjórn- málasamtök að því að bjóða fram lista í næstu alþingiskosningum. Það er þó ekki öruggt að öllum þessum flokkum takist að bjóða fram lista. Það er nefnilega mun auðveldara að stofna flokk en að bjóða hann fram. Á Íslandi er félagafrelsi og allir geta stofnað félag um hvað sem er án þess að sækja um leyfi. Hver sem er getur stofnað félag og kallað það stjórnmálaflokk, nú eða siglinga- klúbb og ekki verður séð að það sé skilyrði fyrir stofnun félags að hafa aflað sér kennitölu. Ekki eru heldur í lögum neinar kröfur um lágmarksfélagafjölda í stjórnmálaflokki, um að hann þurfi að halda aðalfund eða hvernig skuli kosið til formanns. Í raun og veru getur því einn einstakur maður stofnað stjórnmálaflokk og titlað sig formann hans, það er a.m.k. ekkert í lögum eða reglum sem kemur í veg fyrir það. Lítið fjör ef ekki er siglt En alveg eins og það er lítið varið í að vera í siglingaklúbbi sem ekki stundar siglingar, þá er lítið spunnið í stjórnmálaflokk sem býður ekki fram lista til kosninga. Um leið og hugað er að framboði þarf að byrja að uppfylla ákveðnar kröfur sem setttar eru í lögum. Í lögum um fjármál stjórn- málaflokka og frambjóðanda og um upplýsingaskyldu þeirra frá árinu 2006 eru stjórnmálasamtök skil- greind sem „flokkar eða samtök sem bjóða fram í kosningum til Alþingis eða sveitarstjórna.“ Það nægir væntanlega að bjóða fram í einni sveitastjórn eða einu kjördæmi til að falla í þennan flokk. Frumforsenda þess að bjóða fram er að hafa listabókstaf, við eitt- hvað þarf jú að merkja á kjördag. Til að fá listabókstaf til þingkosninga þarf undirskrift a.m.k. 300 kjósenda og skiptir ekki máli úr hvaða kjör- dæmi þeir koma. Þeir geta þess vegna allir komið úr einu og sama kjördæminu eða hafa átt leið um sömu verslunarmiðstöðina þegar undirskriftunum var safnað. Þegar sótt er um listabókstaf- inn vill innanríkisráðuneytið reynd- ar fá að vita hver sé kennitala flokksins en hana má fá fyrir 5.000 krónur hjá fyrirtækjaskrá. Á viðeig- andi eyðublaði er jafnframt krafist ljósrita af samþykktum félagsins og nafna stjórnarmanna og þarf stjórn- in að vera skipuð í samræmi við sam- þykktir félagsins. Þegar listabókstafur er kominn í hús tekur erfiðari hjalli við; koma saman framboðslista. Á lista til alþingiskosninga þurfa að vera tvöfalt fleiri frambjóð- endur en sem nemur þing- mannafjölda í kjördæminu, þ.e. 20- 22, eftir því hvaða kjördæmi er um að ræða. Einnig þarf að skila lista með meðmælendum og eiga þeir að vera margfeldi af þingsætatölu kjör- dæmisins og talnanna 30 að lág- marki og 40 að hámarki. Því þurfa meðmælendur að vera að lágmarki 300-330, eftir því hvað þingmenn kjördæmisins eru margir. Auðveldara er að bjóða fram til sveitastjórna. Fjöldi meðmælenda fer eftir íbúafjölda í sveitarfélaginu og er á bilinu 10 í þeim smæstu og 160 í því stærsta. Á framboðslista í sveitarfélagi eiga að vera a.m.k. jafn margir frambjóðendur og kjósa á sem aðalmenn í sveita- stjórn í hvert skipti. Auðvelt að stofna eigin stjórnmálaflokk Nægur tími Tilkynna þarf framboð til alþingiskosninga eigi síðar en á há- degi 15 dögum fyrir kjördag. Svo þarf að hefja kosningabaráttu. 24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ígærkvöldivoru sagðaraf því fréttir að Evrópusam- bandið ætti í við- ræðum á bak við tjöldin til að hægt yrði að fara út í björgunaraðgerðir gagnvart Spáni. Spánn er sem kunnugt er eitt þeirra ríkja sem orðið hafa evrunni að bráð og það þessara vandamálaríkja sem forystumenn Evrópusam- bandsins eru hvað hrædd- astir við að falli, enda ekki hlaupið að því að rétta það við aftur. Sú mögulega lausn sem rædd er að tjaldabaki og mun eiga að birtast í næstu viku eru ótakmörkuð skulda- bréfakaup seðlabanka evr- unnar. Miklar vonir hafa ver- ið bundnar við ótakmörkuð inngrip seðlabanka evrunnar í skuldabréfamarkað evru- svæðisins en þau áform hafa hingað til ekki dugað til að lagfæra veilurnar í efnahags- kerfi evruríkjanna. Í gær var sagt frá sam- drætti í einkageiranum á evrusvæðinu sem hefur ekki verið meiri í rúm þrjú ár og fátt bendir til að bati sé í nánd. Þessar tölur um einka- geirann benda til að lands- framleiðsla evrusvæðisins muni dragast saman annan ársfjórðunginn í röð á þessu ári, að því er segir í Fin- ancial Times, og þannig verði svæðið lent í þriðja sam- dráttarskeiðinu á þremur ár- um. Í þessum samanburði má segja að ástandið hér á landi sé bærilegt, enda hefur helsta röksemd stjórnarliða fyrir því hve vel gangi í efna- hagsmálum á Íslandi, eins og þeir halda stöðugt fram, ver- ið sú að ástandið sé enn verra annars staðar og vísa þá yfirleitt til ríkja Evrópu- sambandsins. Sem dæmi um þetta voru orð forsætisráð- herra á Alþingi í gær, þar sem hún taldi atvinnu- ástandið hér alveg prýðilegt þar sem hér væri miklu minna atvinnuleysi en úti í Evrópu. Menn eru vissulega langt leiddir þegar þeir sjá von í því að bera eigin atvinnuleys- istölur saman við þær evr- ópsku, en það má til sanns vegar færa að þegar horft er til evrusvæðisins lítur ís- lenskur efnahagur mun betur út en ella. Af einhverjum ástæðum eru þau sömu ís- lensku stjórnvöld og benda á að ástandið sé verra á evru- svæðinu þó afar áhugasöm um að koma Ís- landi inn á þetta svæði. Í þessum efnum eru íslensk stjórnvöld líka staðföst svo undr- un sætir. Össur Skarphéðinsson utanrík- isráðherra svaraði til að mynda fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um aðild- arumsóknina á Alþingi í gær í ljósi vandræðanna á evru- svæðinu og tilhneigingar til aukins samruna og sá enga ástæðu til að hætta við aðild- arumsóknina enda væri þá verið að „svipta Íslendinga þeim möguleika að taka upp evruna“, rétt eins og það sé raunhæfur möguleiki. Össur vísaði til yfirlýsingar Marios Draghi, seðla- bankastjóra evrunnar, um ótakmörkuð skuldabréfakaup og taldi þetta sýna „að leið- togar Evrópu eru í fyrsta skipti að manna sig upp í að rífa upp úr sjálfum sér það sem þarf til að koma evrunni aftur á kjöl“, eins og utanrík- isráðherra orðaði það. Og þessi mikli spámaður bætti því við að hann væri þeirrar skoðunar að núna horfði tölu- vert betur um framtíð evr- unnar en áður. Hingað til hafa sanntrúaðir samfylkingarmenn reyndar ekki viðurkennt að neitt telj- andi sé að evrunni og alltaf talað eins og vandamálin séu í mesta lagi smávægileg og orðum aukin. Nú, þegar búið er að gefa yfirlýsingar um hugsanlegar gríðarlegar björgunaraðgerðir má allt í einu viðurkenna að evran hefur verið í algeru ólagi en að aðgerðirnar gætu komið henni „aftur á kjöl“. Fyrstu vísbendingar, eins og nefnt var hér í upphafi, gefa ekki til kynna að yfirlýs- ingar seðlabankastjóra evr- unnar hafi rétt evruna við, enda vandamálin flóknari og djúpstæðari en svo að yfirlýs- ing um aukin inngrip dugi. Þetta ætti utanrík- isráðherra umsóknarríkis að vita. Hann ætti til að mynda að þekkja umræðuna um auk- inn efnahagslegan samruna og ætti að taka þá umræðu alvarlega í stað þess að gera lítið úr henni. Tilraun til blekkingar gagnvart Alþingi og almenningi hér á landi um stöðu og horfur á evrusvæð- inu geta tæpast talist hluti af þeirri upplýstu umræðu sem ríkisstjórnin lofaði lands- mönnum þegar hún þvingaði aðildarumsóknina í gegnum þingið. Stórkarlalegar björgunaraðgerðir í Evrópu hafa kallað á stórkarlalegar yf- irlýsingar á Alþingi} Á röngum kili B andaríkjamenn kjósa sér forseta eftir nokkrar vikur. Það gerðum við líka í sumar. Áhugavert er að bera saman áherslur í kosninga- baráttunni vestra og hér. Auðvit- að er ólíku saman að jafna, forseta Bandaríkj- anna eru tryggð talsvert meiri pólitísk völd en forseta Íslands og átakamálin okkur framandi; fóstureyðingar, hjónabönd fólks af sama kyni og jafn aðgangur allra landsmanna að heil- brigðisþjónustu. Í þessari baráttu er öllum brögðum beitt og einskis svifist. Bæði Obama og Romney hafa orðið uppvísir að því að fara frjálslega með staðreyndir, ekki síst hvað varðar efnahagsmál og atvinnuleysi. Þá eru sjónvarpsauglýsingar frambjóðendanna kapítuli út af fyrir sig, en þar virðist ekkert tiltökumál að halda röngum staðreyndum á lofti. Fyrir utan það eru sumar þeirra stórskrýtnar, svo vægt sé til orða tekið. Til dæmis má í einni auglýsingu Repúblikana sjá konu nokkra segja gríð- arstórri dúkkulísu í líki Obama til syndanna. Ekki eru auglýsingar demókrata skárri, en þeir birtu nýlega sjón- varpsauglýsingu þar sem rammfalskur söngur Romneys, þar sem hann kyrjar America the Beautiful af miklum móð, hljómar undir ýmsum stríðsfyrirsögnum sem eiga að sýna fram á vanhæfni hans til að gegna forsetaemb- ættinu. Það er örugglega margt skemmtilegra en að þurfa að sitja undir svona boðskap nótt sem nýtan dag svo mán- uðum skiptir. Enda er mörgum kjósendum í Bandaríkjunum einfaldlega nóg boðið. Þeim þykir nóg um þann neikvæða tón sem farinn er að einkenna kosningabaráttuna og því hafa margir í hyggju að sitja sem fastast heima 6. nóvember, á kjördag, samkvæmt áhugaverðri úttekt breska dagblaðsins The Guardian á kosningabaráttunni vestanhafs. Þar kemur meðal annars fram að baráttan um forseta- stólinn í Bandaríkjunum hafi líklega aldrei verið á jafn neikvæðum nótum, hvorki fyrr né síðar. Hér verða svo þingkosningar næsta vor. Nú veit ég ekki hvort einhver hefur rannsakað hlutfall skemmtilegheita og velgengni í stjórn- málum. Reyndar virðist stundum lítil fylgni vera þar á milli, en væri ekki gott að fá vænan skammt af skemmtilegu fólki á næsta þing? Hér er ekki verið að gera lítið úr þeim verkefnum sem þarf að leysa. Því síður er verið að óska léttúðugum gár- ungum, sem snúa háðslega út úr öllu, brautargengis. Heldur er hér verið að ræða um fólk sem getur talað um mikilvæg og brýn málefni án þess að murka líftóruna úr þeim sem á hlýða sökum leiðinda. Fólk sem getur att kappi við annað fólk á vettvangi stjórnmálanna án þess að draga aðra (og sjálft sig með) niður í svaðið. Fólk sem getur talað skýrt um flókin mál þannig að við hin, sem ekki erum í hringiðu stjórnmálanna, verðum einhvers vís- ar. Væruð þið til í að hafa þetta í huga, kæru tilvonandi frambjóðendur? annalilja@mbl.is Pistill Kæru tilvonandi frambjóðendur… Anna Lilja Þórisdóttir STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Auk lista Framsóknarflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna, gætu níu aðrir listar verið í boði í næstu alþingiskosningum. Þetta eru Samstaða, Björt framtíð og Dögun, Húman- istaflokkurinn, Píratapartíið, Lýðfrelsisflokkurin, Bjartsýnis- flokkurinn og Hægri grænir. B, D, S og V eru löngu frá- teknir. Einnig hefur stöfunum C, E og G verið úthlutað. Heiti stjórnmálasamtaka má ekki vera þannig að hætta sé á ruglingi við önnur félög. Sama gildir um listabókstafi, t.d. þurftu VG að bíða lengi eftir V- inu sem Kvennalistinn hafði áð- ur notað. Varla er þó þörf á að örvænta því jafnvel þegar þessi samtök hafa fengið listabók- staf verða enn 23 stafir lausir í ís- lenska stafrófinu Nóg eftir í stafrófinu FRAMBOÐ 2013 A-Ö

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.