Morgunblaðið - 21.09.2012, Side 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Veitingastaðir
HUMARHLAÐBORÐ -
HAFIÐ BLÁA - VELKOMIN!
Humar, humar, humar, humar, lamb ...
Aðeins 35 mín frá Rvk. Frábært útsýni
- Veitingastaðurinn Hafið bláa - uppl.-
sími 483 1000 - www.hafidblaa.is
Snyrting
Babaria-snyrtivörur loksins á
Íslandi.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem er
unnin úr náttúrulegum hráefnum og
hentar þörfum allrar fjölskyldunnar
fyrir alla daglega umhirðu húðar.
Vörurnar fást í netversluninni
www.babaria.is
Húsnæði íboði
Til leigu með húsgögnum
við Kringlusvæðið: 11 fermetra her-
bergi fyrir reglusaman einstakling.
Því fylgir einkatölva, 26 t. sjónvarp og
dvd, aðgengi að eldhúsi, baði og
þvottavél. Allt innifalið fyrir aðeins
40 þús. á mán. Email / netpóstur:
kaffikanna11@hotmail.com, Jón.
Húsnæði óskast
Reglusamur karlmaður óskar
eftir 2 herb. íbúð sem næst miðbæ
Reykjavíkur
Uppl. í síma: 551 7276 / 821 7276
Geymslur
Bíla & Húsvagnageymsla
Gónhól Eyrarbakka
skráning og pantanir
gonholl.is
Símar 899 5466 og 771 1936
Skemmtanir
Til sölu
Útsala á kristal-ljósakrónum, kristal-
glösum og vösum.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
TILBOÐ - TILBOÐ -TILBOÐ
Dömuskór úr leðri, stakar stærðir
- Tilboðsverð: 3.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Verð kr. 2.995
198
7 - 2012
25 ár
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bæðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi. fannar@fannar.is
s. 551-6488
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
Nú er rétti tíminn fyrir
trjáklippingar og fellingar
Látið fagmenn okkar nostra við
garðinn þinn. Öll almenn
garðþjónusta á einum stað.
577 4444
www.gardalfar.is
Veiði
Sjóbirtingsveiði í Þverá, Borgar-
firði. Fluguveiði frá 18.-30. septem-
ber. Upplýsingar í síma 848 2304.
Bílar
Nýr Subaru Impreza 2,0 B3 Sport
Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn.
Áætlað listaverð 5.500 þús.
Útsala 3.990 þús. og er með Xenon-
ljós í kaupbæti. 1 bíll eftir.
.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Opið 12-18 virka daga.
Bílar óskast
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólbarðar
RÝMINGARSALA Á
VÖRUBÍLADEKKJUM
315/80 R 22.5 68.000 + vsk.
13 R 22.5 kr. 39.500 + vsk.
12 R 22.5 kr. 39.500 + vsk.
11 R 22.5 kr. 36.600 + vsk.
425/65 R 22.5 kr.78.885 + vsk.
1100 R 20 kr. 39.500 + vsk.
1200 R 20 kr. 39.500 + vsk.
205/75 R 17 kr. 23.745 + vsk.
8.5 R 17.5 kr. 34.900 + vsk.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
sími 544 4333.
Kebek-Nama-heilsársdekk
165 R 13 kr. 6.900
195/65 R 15 kr. 13.600
205/55 R 16 kr. 15.900
225/55 R 16 kr. 19.750
205/50 R 17 kr. 18.900
215/55 R 17 kr. 20.600
235/55 R 17 kr. 24.900
225/55 R 17 kr. 23.900
225/65 R 17 kr. 24.290
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 544 4333.
Húsviðhald
Laga ryðbletti á þökum,
hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk-
efni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Byssur
GÆSASKOT, 42 gr MAGNUM
Frábær gæði, hóflegt verð. Byssu-
smiðja Agnars, s. 891 8113. Dreifing:
Sportvörugerðin, s. 660 8383.
www.sportveidi.is
✝ Gunnar A. Ingi-marsson fædd-
ist í Reykjavík þann
2. desember 1923.
Hann andaðist á
Borgarspítalanum
14. september 2012.
Móðir hans var
Herborg Guð-
mundsdóttir, fædd
6. febrúar 1900, hún
lést 5. desember
1996. Faðir Her-
borgar var Guðmundur Jónsson,
verslunarmaður í Stykkishólmi,
og móðir hennar Ólöf Helgadótt-
ir, húsmóðir. Faðir Gunnars var
Ingimar Brynjólfsson, stór-
kaupmaður í Reykjavík, fæddur
19. ágúst 1892, hann lést 25. des-
ember 1976. Faðir hans var
Brynjólfur Jónsson, prestur á
Ólafsvöllum á Skeiðum, og móðir
hans Ingunn Eyjólfsdóttir, hús-
freyja. Bræður Gunnars voru
Ingimar flugumsjónarmaður og
Bogi hæstaréttarlögmaður.
Gunnar ólst upp i Reykjavík.
Gunnar kvæntist 3. maí 1947
Kirsten Larsen ættaðri frá Tvö-
royri í Færeyjum. Kirsten fædd-
ist 20. september 1922 og lést 30.
mars 2011. Foreldrar hennar
voru hjónin Maria Larsen, fædd,
7.5. 1897, dáin 24.6. 1978 og
Christian A. Larsen, sýslumaður
á Vogey í Færeyjum, fæddur
24.3. 1900, dáinn
24.05. 1969. Börn
Kirstenar og Gunn-
ars eru: 1) Kristján,
f. 4.9. 1947, börn
hans Páll, f. 1978,
og Helgi, f. 1985, 2)
Gunnar, f. 3.5. 1951,
d. 28.7. 1966, 3) tví-
burabróðir hans
Helgi, f. 3.5. 1951.
Kona Helga er Mar-
grét Irene Schwab,
f. 1951. Börn þeirra eru Erna
Lilja, f. 1977 og Marta Sóley, f.
1983. 4) Ása Rakel, f. 6.9. 1959,
gift Carsten Olesen, f. 1961. Börn
þeirra eru Christian, f. 1986, og
Victoria, f. 1994.
Gunnar lauk verslunarskóla-
prófi 1941 og starfaði mestan
hluta ævi sinnar í heildversl-
uninni I. Brynjólfsson og Kvar-
an, þar sem hann rak vefn-
aðarvörudeild fyirtækisins. Eftir
að fyrirtækinu var skipt upp
1985 rak Gunnar heildverslunina
I. Brynjólfsson og Co til áttræð-
isaldurs eða til ársins 2004.
Gunnar var virkur í Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna og sat
m.a. í stjórn Verslunarráðs Ís-
lands.
Gunnar verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju í dag, 21.
september 2012, og hefst athöfn-
in kl. 13.
Hvernig hefur hún Kolla
það? Þessa spurningu bar
Gunnar upp við dóttur sína Ásu
Rakel í hvert skipti sem hún
kom í heimsókn til Íslands.
Einnig þegar þau feðgin ræddu
saman í síma var munað eftir að
spyrja um líðan mína og minna,
slík umhyggja hlýjar manni
óneitanlega um hjartarætur.
Við Ása Rakel höfum verið
æskuvinkonur síðan við munum
eftir okkur og hef ég alla tíð
verið eins og stjúpdóttir for-
eldra hennar. Í barnæsku
dvaldi ég löngum í Blönduhlíð-
inni hjá ömmu og afa og þar
sem Ása vinkona bjó beint á
móti var samgangurinn mikill
milli okkar og ýmis prakkara-
strik höfð í frammi. Alltaf var
Gunnar glettinn og í góðu skapi
hvað sem á gekk. Í mínum aug-
um var hann einstakur heið-
ursmaður sem ekki mátti vamm
sitt vita.
Það var afar ánægjulegt að
koma í heimsókn á skrifstofuna
í heildversluninni hjá I. Brynj-
ólfsson og Kvaran í Pósthús-
stræti. Þar gat að líta mikið úr-
val ýmissa vörutegunda, m.a.
fatnað af ýmsu tagi, sykur, töl-
ur og margt, margt fleira. Alltaf
tók Gunnar á móti okkur Ásu
Rakel með bros á vör, gam-
anyrðum og stríðnisglampa í
augum. Örlögin höguðu því
þannig að við vinkonurnar báð-
ar fluttum til Danmerkur fyrir
um 25 árum. Ég hef verið svo
lánsöm að geta hitt þau bæði
hjónin Gunnar og Kirsten þegar
þau voru í heimsókn hjá dóttur
sinni í Danmörku. Þegar ég hef
verið stödd á Íslandi var oft
komið við á Barðaströndinni en
þangað flutti fjölskyldan fyrir
rúmlega 40 árum og hefur
Gunnar búið þar allar götur síð-
an en Kirsten, kona hans, and-
aðist á síðasta ári. Heimili fjöl-
skyldunnar á Nesinu er sérlega
glæsilegt og smekklegt og alltaf
voru móttökur höfðinglegar. Ég
tel mig vera mjög lánsama að
hafa kynnst jafn indælum hjón-
um og Gunnari og Kirsten og
hafa notið vináttu þeirra á lífs-
leiðinni.
Minningu þeirra mun ég
varðveita um ókomna daga.
Að endingu færi ég börnum
og öðrum aðstandendum inni-
legar samúðarkveðjur.
Ása Kolbrún O’Hara.
Gunnar A.
Ingimarsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má
finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má
smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeig-
andi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin
að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt
grein hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Minningargreinar
Þýtur í stráum þeyrinn hljótt,
þagnar kliður dagsins.
Guð er að bjóða góða nótt
í geislum sólarlagsins.
(Trausti Á. Reykdal.)
Það var árið 1971 sem ég
kynntist og venzlaðist fjölskyldu
Ástmundar Guðmundssonar að
Grenimel 1. Ég hafði gert hosur
mínar grænar fyrir Guðlaugu
dóttur hans. Mikið líf var á
þessu heimili, ys og þys frá
morgni til kvölds. Mörgum
kynntist ég þar á skömmum
tíma, og einhvern veginn allir í
flugír. Þarna hitti ég óvenju
hlýjan og rólyndan mann sem
ég laðaðist strax að. Hann var
ræðinn og glaðvær, og virtist
vera heima í hverju umræðuefni
sem bryddað var upp á. Gat
jafnvel farið með langt mál sem
hann taldi þó aðeins vera
grundvallaratriði til glöggvunar.
Þetta var Agnar Norland. Fimm
árum áður hafði hann eignast
son með Írisi dóttur tengdafor-
eldra minna, glaðlyndan fjörkálf
sem var hvers manns hugljúfi.
Samhugur þeirra um uppeldi
Agnar Norland
✝ Agnar GauturÞór Norland
fæddist í Háram-
arsey (Haramsöy) í
Noregi 16. apríl
1924. Hann lést 19.
ágúst 2012.
Útför Agnars fór
fram í kyrrþey frá
Dómkirkjunni í
Reykjavík 31. ágúst
2012
drengsins var ein-
stakur, og bar þeim
öllum fagurt vitni.
Ekkert var svo tor-
velt eða lítilfjörlegt
að Agnar legði sig
ekki eftir því, ef
það gæti komið
drengnum, Tobba,
til góða.
Birna fósturdótt-
ir mín var 4 árum
eldri en Tobbi og
bjó með móður sinni á heimilinu
þegar ég kynntist þeim. Þau
voru því sem systkini á þessum
árum og lengi síðan. Því var tíð-
ur samgangur okkar Agnars, og
nærvera hans ævinlega
skemmtileg og gefandi.
Dregið hefur úr fundum okk-
ar eftir því sem árin hafa liðið. Í
síðasta fjölskylduboðinu sem við
hittumst, fyrir um tveimur ár-
um, ræddum við af einhverjum
ástæðum tímana í Mið-Evrópu
millistríðsáranna, og þá sögu
þekkti Agnar vel. Vitnaði hann í
Stefan Zweig og sjálfsævisögu
hans „Veröld sem var“. Ekki
mun ég hafa tekið nægilega
undir hvað stóð í þeirri góðu
bók því örfáum dögum síðar lá
lítill pakki á forstofugólfinu
heima, merktur mér. Rithönd
Agnars þekkti ég strax. Þar var
komin sjálfsævisaga Stefans
Zweig, með vinarkveðju frá
Agnari. Þetta er aðeins ein af
mörgum minningum um þann
góða og gjöfula mann sem Agn-
ar var.
Blessuð sé minning Agnars
Norland.
Níels Indriðason.