Morgunblaðið - 21.09.2012, Side 42

Morgunblaðið - 21.09.2012, Side 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012 við: „En þetta er líka leikrit um vin- áttuna, því í verkinu tengjast Rothko og aðstoðarmaður hans, Ken, djúp- stæðum böndum meistara og læri- sveins. Þeir takast á um skoðanir sínar og koma báðir nokkuð sárir út úr þeim átökum, en hafa samt gefið hvor öðrum mjög mikið og standa sterkari eftir þegar upp er staðið,“ Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þegar mér barst sms frá Magnúsi Geir [Þórðarsyni borgarleikhús- stjóra] þar sem hann bauð mér þetta leikstjórnarverkefni, vildi þannig til að ég stóð fyrir framan hárautt verk eftir Mark Rothko á stórri myndlist- arsýningu í Berlín. Ég leit á þetta sem meiriháttar teikn um að mér væri hreinlega ætlað að setja upp þetta leikrit,“ segir Kristín Jóhann- esdóttir sem leikstýrir leikritinu Rautt eftir John Logan sem frum- sýnt er á litla sviði Borgarleikhúss- ins í kvöld kl. 20. Að sögn Kristínar hefur hún um árabil verið mikill aðdáandi Rothkos og séð fjölda mynda hans víða um heim, m.a. í Tate Modern í London þar sem sjá má hluta þeirra verka sem fjallað er um í Rauðu. Að sögn Kristínar vissi Magnús Geir hins vegar ekkert af þessari aðdáun hennar á myndlistarmanninum þeg- ar hann bauð henni leikstjórnar- verkefnið. „Þetta er magnað verk sem fjallar um myndlistarmanninn sjálfan og sýn hans á listina,“ segir Kristín og tekur fram að hún kannist sjálf mjög vel við þá sýn sem Rothko er látinn tjá í verkinu og það hvernig hann vilji að fólk upplifi verkin sín. „Sé maður staddur í sal með mörgum verka hans þá er eins og rýmið breytist í andlega kapellu. Og opni maður sig fyrir verkum hans er líkt og myndflöturinn byrji að anda og hreyfast með þeim afleiðingum að raunveruleikatengslin fara að brenglast,“ segir Kristín og bætir segir Kristín. Með hlutverk þeirra Rothkos og Kens fara Jóhann Sig- urðarson og Hilmar Guðjónsson. Rautt gerist undir lok sjötta ára- tugar síðustu aldar. „Leikritið fjallar um það tímabil í lífi Rothkos þegar hann tók að sér eitt stærsta verkefni listasögunnar fyrir áður óþekkta upphæð,“ segir Kristín og rifjar upp að Rothko hafi þá tekið að sér að mála veggmyndaröð fyrir veitinga- staðinn Árstíðirnar fjórar í New York. „Á sínum tíma furðuðu margir sig á því að hann skyldi taka að sér þetta verkefni og gefast þannig markaðsöflunum á hönd, því hann hafði sjálfur barist ötullega gegn markaðsvæðingunni. Rothko var bú- inn að mála yfir þrjátíu risavaxin verk fyrir veitingastaðinn þegar hon- um snerist hugur og hann skilaði vinnulaunum sínum, sem námu kvartmilljarði króna á núvirði, sem hefur vafalítið verið erfið ákvörðun. Ein af lykilspurningunum í leikritinu snýr þannig að þessu samspili listar og markaðarins, en Rothko taldi framan af að verk sín hefðu vald til þess að breyta veitingastaðnum í musteri. Í leikritinu sjáum við hvern- ig hann kemst að annarri niðurstöðu eftir mikla innri togstreitu.“ Ekki er hægt að sleppa Kristínu án þess að forvitnast um hvort mikið sé málað í uppsetningunni sjálfri. „Það magnaða við þessa sýningu er að hún gerist öll inni í vinnustofu listamannsins og persónur verksins eru allan tímann að undirbúa það að mála. Þetta gerir það að verkum að maður kemst inn í starfsvettvang myndlistarmannsins og fer að horfa á myndlistina innan frá.“ „Mér var ætlað að setja þetta upp“  Borgarleikhúsið frumsýnir Rautt í kvöld kl. 20  Magnað verk um vináttuna, listina og markaðs- öflin, segir Kristín Jóhannesdóttir, leikstjóri verksins, sem lengi hefur verið mikill aðdáandi Rothkos Ljósmynd/Grímur Bjarnason Átök Jóhann Sigurðarson og Hilmar Guðjónsson í hlutverkum sínum sem Rothko og Ken í Rauðu eftir John Logan. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja- vík verður haldin í níunda sinn í ár, 27. september til 7. október, og að vanda verður mikill fjöldi kvik- mynda á dagskrá. Sérstök áhersla er lögð á að sýna nýjar myndir eftir unga leikstjóra á hátíðinni og alls verða sýndar myndir frá 41 landi. Á annað hundrað aðstandenda mynda munu sækja hátíðina heim og svara spurningum áhorfenda. Þetta er meðal þess sem kom fram á blaða- mannafundi sem skipuleggjendur hátíðarinnar héldu í gær. Fundurinn hófst með því að tón- listarmaðurinn Páll Óskar Hjálm- týsson keypti fyrsta miðann á vef hátíðarinnar, riff.is, og fyrir valinu varð miði á Suspiria, kvikmynd eins heiðursgesta RIFF, Darios Argent- os. Var þar með vígð stafræn miða- sala hátíðarinnar sem er ný af nál- inni. Einnig telst það til nýmæla að hægt verður að kaupa miða á stakar sýningar hátíðarinnar á vefnum en miðasala fer einnig fram í versl- unum Eymundsson í Austurstræti og Kringlunni, í Bíó Paradís, Háskólabíói og Norræna húsinu. Á vefnum getur fólk einnig skrifað athugasemdir við myndirnar en það hefur ekki verið hægt áður. Sérstakt „app“ hátíðarinnar, þ.e. smáforrit fyrir farsíma, verður einnig kynnt til sögunnar á næstu dögum. 16 alþjóðlegar frumsýningar Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, sagði dagskrá hátíðarinnar með hefðbundnu sniði. Sýndar yrðu glænýjar kvikmyndir eftir unga leikstjóra og frá virtum kvik- myndahátíðum á borð við þær sem haldnar eru í Toronto og Feneyjum og boðið yrði upp á góða blöndu mynda sem gengið hefðu vel á er- lendum kvikmyndahátíðum undan- farna mánuði. Hrönn sagði að boðið yrði upp á 16 alþjóðlegar frumsýningar á hátíð- inni, þ.e. fyrstu sýningar á myndum utan heimalands síns og þrjár heimsfrumsýningar, níu Evrópu- frumsýningar og 50 Norðurlanda- frumsýningar. Þá væri það sérstak- lega ánægjulegt hversu margar konur væru meðal leikstjóra mynda á hátíðinni. „Það ber greinilega vott um það að konur eru að sækja í sig veðrið á þessu sviði,“ sagði hún. Spurð hvort það hefði verið sérstakt markmið hjá henni að hafa hlutfall kvenleikstjóra sem hæst á hátíðinni sagði Hrönn svo vera. Það hefði aldrei verið jafnhátt og nú. Heimildarmyndir fleiri en áður Verðlaun í sjö flokkum verða veitt á RIFF en aðalverðlaunin, Gullni lundinn, eru veitt fyrir uppgötvun ársins, kvikmynd úr flokknum Vitr- anir. Í þeim flokki eru 12 myndir og þá annaðhvort fyrsta eða önnur mynd leikstjóra. Atli Bollason, rit- stjóri hátíðarinnar, sagði á fund- inum í gær að sá flokkur væri „rósin í hnappagatinu“, í honum væri bíó- gestum boðið upp á það ferskasta sem völ væri á. Atli sagði að heimild- armyndadagskráin hefði farið vax- andi, skipuleggjendur hefðu fundið fyrir auknum áhuga hátíðargesta fyrir heimildarmyndum og því væru þær stærri hluti af kökunni en áður. Ekki má svo gleyma heiðursgestum hátíðarinnar að þessu sinni, leik- stjórunum Dario Argento, Suzanne Bier og Marjane Satrapi, en valdar kvikmyndir eftir þá verða á dagskrá RIFF. Sérviðburðir verða nokkrir á RIFF og má af þeim nefna Comic Con-búningasýningu og teiti, í tengslum við nýjustu kvikmynd Morgans Spurlocks um þá teikni- myndaráðstefnu sem haldin er ár- lega í San Diego í Bandaríkjunum. Eru bíógestir hvattir til að mæta í búningum tengdum teiknimynda- sögum. Að lokinni sýningu á mynd- inni í Bíó Paradís verður blásið til teiti á Sólon á vegum verslunarinnar Nexus og RIFF og verða veitt verð- laun fyrir bestu búningana. 37% kvikmynda á RIFF í ár eftir konur  Hægt að kaupa miða á stakar sýningar á netinu Morgunblaðið/Golli Fyrstur Páll Óskar keypti fyrsta bíómiðann á vef RIFF og var hæstánægður með kaupin, eins og sjá má. Skipuleggjendur RIFF glöddust með honum. www.riff.is. Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is Það eru alltaf þjálfarar þér til aðstoðar … Heilsurækt fyrir konur Nýtt! bjóðum nú einnig upp á tri mform Ég vinn á hjúkrunarheimili sem félagsliði. Ég byrjaði að æfa í Curves fyrir ári síðan, af því ég vildi léttast og styrkja mig. Ég hef æft ca. 3x í viku og líkar rosalega vel. Á þessum tíma hef ég losnað við 10 kg og er miklu hressari núna. Curves er frábær staður með frábæru starfsfólki. Ég þarf ekki að panta tíma, kem að æfa þegar það passar mér best. Paula HolmPaula Holm, 40 ára Æfingin hjá okkur tekur aðeins 30 mínútur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.