Morgunblaðið - 21.09.2012, Side 44

Morgunblaðið - 21.09.2012, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Söngvarinn Helgi Björnsson og hljómsveitin Reiðmenn vindanna hafa átt góðu gengi að fagna á ís- lenska plötulistanum. Skífur þeirra hafa selst í bílförmum og eru nú orðnar fjórar talsins. Reiðmenn- irnir sækja í íslenska sönglaga- arfinn í lagavali sínu, flytja útilegu- söngva og dægurlagaperlur með sínu lagi og þjóðin kann greinilega að meta þann flutning. Reiðmennirnir hafa aldrei haldið tónleika í Kópavogi og ætla að gera bragarbót á því á morgun með tón- leikahaldi í Salnum í Kópavogi. Tónleikarnir hefjast kl. 19. Reið- mennirnir munu að sjálfsögðu koma ríðandi að tónleikahúsinu og ætlar hinn knái rappari Erpur Ey- vindarson að fylgja þeim þangað frá bæjarmörkunum. En hvaðan verður riðið og hvaða leið verður farin? „Við erum að skipuleggja þetta ásamt honum Póra í Laxnesi og þurfum að fá leyfi frá viðkomandi yfirvöldum, þannig að á þessari stundu hef ég ekki nákvæmari svör við þessari spurningu,“ svarar Helgi Björnsson. Óopinber bæjarstjóri Erpur Eyvindar tekur á móti ykkur við bæjarmörkin og fylgir ykkur að Salnum. Hvers vegna? „Við Erpur hittumst um daginn í viðtali á Rás 2 þar sem það kom fram að við værum á leiðinni í Kópavog og hann tók það upp hjá sjálfum sér sem óopinber bæjar- stjóri að taka á móti okkur með viðhöfn er við kæmum að bæjar- mörkunum. Ég hef hinsvegar ekki heyrt nánari útfærslu á þessu atriði frá honum eða hans fólki,“ svarar Helgi. „Við förum yfir öll okkar helst lög sem við höfum gefið út á síðustu fjórum plötum Helga Björns og Reiðmanna vindanna,“ segir hann um efnisskrá tón- leikanna. Nú hafa plöturnar ykkar selst eins og heitar lummur, hvað veld- ur? „Við höfum greinilega snert ein- hvern streng í þjóðarsálinni, ég held að fólki þyki vænt um þessi lög og við höfum verið lagnir við að gefa þeim nýja áferð og nýtt líf. Annars held ég að það væri gaman að fá einhvern annan til að reyna að komast að því af hverju plöt- urnar eru svona vinsælar,“ segir Helgi að lokum. Miðasala á tónleikana fer fram á midi.is. Reiðmaður Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna munu berast á fákum fráum að Salnum í Kópavogi á morgun. Þeir hafa ekki spilað áður í bænum. Riðið inn í Kópavog  Reiðmenn vindanna halda tónleika í Salnum  Erpur Eyvindarson fylgir þeim frá bæjarmörkum Kópavogs Tríó Reykjavíkur leikur á hádegis- tónleikum á Kjarvalsstöðum í dag kl. 12.15. Á efnisskránni er píanó- tríó í H-dúr op. 8 eftir Johannes Brahms. Tríó Reykjavíkur skipa Guðný Guðmundsdóttir fiðluleik- ari, Gunnar Kvaran sellóleikari og Peter Maté píanóleikari. Tónleik- arnir eru um 45 mínútur að lengd og eru allir velkomnir enda er að- gangur ókeypis. Þetta er fjórða ár- ið sem Listasafn Reykjavíkur og Tríóið bjóða upp á ókeypis hádegis- tónleikaröð á Kjarvalsstöðum. Tríó Peter, Guðný og Gunnar. Ókeypis hádegis- tónleikar Atli Ingólfsson tónskáld flytur hádegisfyrir- lestur í Sölvhóli, tónleikasal tón- listardeildar, að Sölvhólsgötu 13 í dag kl. 12.30. Atli lauk tón- smíðaprófi og burtfararprófi í gítarleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og BA-prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands. Hann nam síðan tónsmíðar við Konservatoríið í Mílanó. Hann hefur samið fjölda tónverka af ýmsu taki, en í samvinnu við Cinno- ber Teater í Gautaborg hefur hann sett á svið tvö tónleikrit. Í erindi sínu fjallar Atli um við- horf sitt til tónleikhúss og nokkrar aðferðir sem hann notar í verkum sínum. Aðgangur er ókeypis og all- ir eru velkomnir. Fjallar um sýn sína á tónleikhúsið Atli Ingólfsson Hápunktur átaksins „Þróunar- samvinna ber ávöxt“ verður á Café Rosenberg annað kvöld kl. 22, þar sem fram koma Jón Jónsson, Frið- rik Dór, Magni Ásgeirsson, Ragn- heiður Gröndal, Védís Hervör og Varsjárbandalagið. Tónleikarnir eru hluti af átaki frjálsra félaga- samtaka í samstarfi við Þróunar- samvinnustofnun Íslands um gildi og mikilvægi þróunarsamvinnu. Undirtitill átaksins í ár var „Komum heiminum í lag“ en fé- lagasamtökin fengu landsþekkta tónlistarmenn til að leggja málefn- inu lið og koma skilaboðum átaks- ins í „lag“. Tónlistarmennirnir sömdu fimm mismunandi lög við texta Sævars Sigurgeirssonar og hefur eitt lag verið frumflutt á dag á Rás 2 og netinu sl. viku. Þessir tónlistarmenn koma fram á tónleik- unum á Rosenberg. Komum heiminum í lag Listakona Ragnheiður Gröndal.  Tónleikar á Café Rosenberg Þóra Sigurðardóttir sýningarhöfundur leiðir gesti um sýninguna Teikning - þvert á tíma og tækni sem nú stendur yfir í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands nk. sunnudag kl. 14. Leiðsögnin er ókeypis og allir vel- komnir. Á sýningunni eru teikningar fjögurra teikn- ara frá ólíkum tímum. „Annars vegar frá ári frönsku byltingarinnar, 1789, og hins vegar frá tímum staf- rænnar upplýsingatækni, 21. öld. Þrátt fyrir tímana tvenna heldur teikningin gildi sínu sem grundvall- artæki til greiningar og miðlunar upplýsinga og hug- mynda. Teikningin hefur þá sérstöðu að hún opnar áhorfandanum milliliðalausan aðgang að hugsun og tilfinningu teiknarans,“ segir m.a. í tilkynningu. Leiðsögn um teikningar í Bogasalnum Þóra Sigurðardóttir. DJÚPIÐ Sýnd kl. 4 - 6 - 8 - 10 DREDD 3D - ÓTEXTUÐ Sýnd kl. 6 - 8 - 10 THE BOURNE LEGACY Sýnd kl. 10:15 ÁVAXTAKARFAN Sýnd kl. 4 INTOUCHABLES Sýnd kl. 5:50 - 8 PARANORMAN 3D Sýnd kl. 4 LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarÍSL TEXTI 60.000 MANNS! HHHH -Þórarinn Þórarinsson, Fréttatíminn HHHHH - Júlíus Ingason, Eyjafréttir.is HHHH - Kristjana Guðbrandsdóttir, DV -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU 10 7 12 16 HÖRKU SPENNUMYND L 16 TRYGGÐU Þ ÉR MIÐA Á SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS DJÚPIÐ KL. 3.40 - 5 - 5.50 - 8 - 10.10 10 DJÚPIÐ LÚXUS KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 10 DREDD 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 - 10.10 16 RESIDENT EVIL KL. 8 16 RESIDENT EVIL 3D ÓTEXTUÐ KL. 10.10 16 ÁVAXTAKARFAN KL. 4 - 6 L THE EXPENDABLES 2 KL. 8 - 10.20 16 THE WATCH KL. 5.40 12 ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L DJÚPIÐ KL. 5.50 - 7 - 8 - 9.10 - 10.10 10 THE DEEP ÍSL.TAL – ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10 RESIDENT EVIL KL. 8 - 10.10 16 INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 L DÓMSDAGUR NÁLGAST! DJÚPIÐ KL. 6 - 8 - 10 10 DREDD 3D KL. 8 16 RESIDENT EVIL KL. 6 16 BOURNE LEGACY KL. 10 16 „Mjög raunsæ mynd.það hefði enginn getað gert þetta eins vel og Baltasar. Hann nálgast þetta af mikilli virðingu. Ótrúlega vel gerð mynd, heiðarleg og raunsæ." - Júlíus Ingason, Eyjafrettir.is „Í Djúpinu smellur einfaldlega allt saman og ekkert klikkar. Leikur, kvikmyndataka, klipping, sagan sjálf, efnistökin og nálgun handristhöfunda og leikstjóra miða öll að því að hámarka áhrif þessarar mögnuðu myndar." - Þórarinn Þórainsson, Fréttatíminn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.