Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 4
Sala áfengis Raunbreyting eftir flokkum 4% 3% 2% 1% 0% -1% -2% -3% -4% -5% -6% -0,1% 2,9% -5,5% 0,2% Bjór Létt Sterkt Samtals Sala áfengis jókst um 0,2% í lítrum fyrstu tíu mánuði ársins í saman- burði við árið í fyrra. Sala rauðvíns er nánast sú sama og í fyrra en aukning er í sölu hvítvíns um 2,1%. Alls hafa verið seldir 15,1 milljón lítra það sem af er ári, þar af er sala á lagerbjór 9,6 milljón lítra, að því er kemur fram á heimasíðu Vín- búðanna. Sérstaka athygli vekur að sala á ávaxtavínum („ciderum“) hefur auk- ist um 60% á milli ára. Fyrstu 10 mánuði ársins seldust 148 þúsund lítrar af ávaxtavínum, á móti 92 þús- und lítrum í fyrra. Af ávaxtavínum hefur í ár selst talsvert meira en af blönduðum drykkjum („breez- erum“), en af þeim seldust 122 þús- und lítrar fyrstu 10 mánuði ársins. Sterkt áfengi dalar en bjórinn stendur í stað Ef sala áfengis í lítrum er skoðuð eftir söluflokkum, þ.e. bjór, léttvín og sterkt, sést að talsverður munur er á milli flokka. Þannig stendur sala á bjór nánast í stað en sala á léttvíni er 2,9% meiri en á sama tíma í fyrra. Hins vegar hefur sala á sterku áfengi dregist saman um 5,5%. Salan í október er nánast sú sama og í október fyrir ári en í heildina var októbersalan 0,5% minni í ár en í fyrra. Í samanburði við árið í fyrra er samdráttur í sölu vindlinga um 3,4%. Fyrstu tíu mánuði ársins seldust 984.495 karton af vindlingum, en á sama tímabili í fyrra voru sígarettu- kartonin 1.027.742. Þá hefur sala á vindlum dregist saman um 3,4% í ár. Sala á neftóbaki dróst saman um 1,9% fyrstu tíu mánuði þessa árs. Hins vegar hefur sala á reyktóbaki aukist mikið eða um tæp 14% á milli ára. aij@mbl.is Ávaxtavín hástökkv- arar í sölu  Minni sala á vind- lingum á árinu 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 Tvö skaðabótamál í tengslum við hið svokallaða olíusam- ráð voru tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær- morgun. Annars vegar er um að ræða mál íslenska rík- isins gegn Olís, Skeljungi hf. og hinsvegar mál fjármálaráðuneytisins gegn Keri, Olís og Skeljungi hf. Að sögn Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hæstaréttarlög- manns, sem fer með bæði málin fyrir hönd íslenska rík- isins og fjármálaráðuneytisins, fjalla þessi mál um sam- ráð sem olíufélögin höfðu með sér í útboði árið 1996. Að sögn Vilhjálms nema skaðabótakröfur fjármála- ráðuneytisins á hendur Keri, Olíuverslun Íslands og Skeljungi samtals 24,6 milljónum króna og skaðabóta- kröfur íslenska ríkisins á hendur Olíuverslun Íslands og Skeljungi nema 39,9 milljónum króna. Vilhjálmur segir þetta svipuð mál og hjá Reykjavík- urborg gegn olíufélögunum. „Munurinn er einn og hann er verulegur. Ríkið samdi ekki við neinn, það var svo lítill munur á tilboðunum að ríkið samdi ekki við neinn bjóð- anda,“ segir Vilhjálmur og bætir við: „Ríkið telur sig hafa orðið fyrir því tjóni að samráðið kom í veg fyrir að það yrðu samkeppnisútboð. Það er að segja ríkið missti hugsanlega af þeim afslætti sem það hefði fengið af þessum viðskiptum í samkeppnisútboði þar sem menn hefðu boðið á móti hver öðrum en ekki með hver öðrum.“ skulih@mbl.is Krefja olíufélögin um tugmilljóna skaðabætur Morgunblaðið/Sverrir Olíufélög Íslenska ríkið og fjármálaráðuneytið krefja olíufélögin skaðabóta vegna samráðs þeirra.  Ríkið og fjármálaráðuneytið vilja bætur vegna útboðs Polarolje Við Hárlosi Mýkir liðina Betri næringarupptaka Fyrirbyggir exem Betri og sterkari fætur Pöntunarsímar 698 7999 og 699 7887 „Hundurinn minn var búinn að vera í meðferðum hjá dýralækni í heilt ár vegna húðvandamála og kláða, þessu fylgdi mikið hárlos. Hann var búinn að vera á sterum án árangus. Reynt var að skipta um fæði sem bar heldur ekki árangur. Eina sem hefur dugað er Polarolje fyrir hunda. Eftir að hann byrjaði að taka Polarolje fyrir hunda hefur heilsa hans tekið stakkaskiptum. Einkennin eru horfin og hann er laus við kláðann og feldurinn orðinn fallegur.“ Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi Yfir eitt þúsund nemendur og starfsmenn í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði settu í gær Ís- landsmet í hópdansi við lagið „Gangnam Style“, sem hinn suðurkóreski Psy gerði vinsælt um heim allan. Nokkrir krakkar úr unglingadeild- inni stýrðu upphituninni og því næst tók hers- ingin sig til og dansaði „hestinn“, eins og þessi þekkti dans Psy hefur stundum verið kallaður. Var uppákoman liður í vinaviku í skólanum. Yfir þúsund manns dönsuðu „hestinn“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Nemendur og starfsfólk í Hraunvallaskóla dönsuðu við Gangnam Style Guðni Einarsson gudni@mbl.is Miklar hækkanir á opinberum gjöld- um vegna innanlandsflugs og ný gjöld hafa valdið fækkun farþega, að sögn Árna Gunnarssonar, framkvæmda- stjóra Flugfélags Íslands. Hann sagði að innanlandsflugið væri rekið með tapi og ef ekkert breyttist þyrfti fé- lagið að draga verulega úr ferðafram- boði hér innanlands. Árni mætti á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í fyrra- dag og kynnti áhrif hækkunar gjald- anna á flugið. „Árið 2009 borguðum við um 200 milljónir í sértæk opinber gjöld vegna flugsins,“ sagði Árni í samtali við Morgunblaðið. Þar á meðal voru far- þegagjöld og lendingargjöld. Árið 2010 bættust við leiðarflugsgjald og kolefnisgjald sem lagt er á innan- landsflug en ekki millilandaflug. „Á þessu ári erum við að áætla rúmlega 400 milljónir í þessa sömu liði. Ef fram fer sem horfir miðað við fjárlagafrumvarpið og samgöngu- áætlun stefna þessi gjöld yfir 600 milljónir á næsta ári.“ Í apríl síðast- liðnum hækkuðu lendingargjöld um 72%, farþegagjöld um 71% og flug- leiðsögugjöld um 22%. Hækkanirnar lenti á farþegum af fullum þunga. Farþegum fækkar „Síðan þá hefur farþegum fækkað. Farþegum fjölgaði í fyrra og fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Við héldum að við værum að komast á eðlilegt ról eftir hrunið. En frá 1. apríl hefur þeim fækkað,“ sagði Árni. Fækkunin nemur 4%. Hann sagði hætt við að áætlanir yfirvalda um tekjur af sér- tækum flugsköttum á þessu ári gengju ekki eftir vegna fækkunar far- þega. Árni taldi fækkun farþega sýna að álögurnar á flugið væru komnar yfir þolmörk neytenda. Hann benti á að 60% farþega í innanlandsflugi greiddu fargjaldið úr eigin vasa, þetta væru því almenningssamgöngur. Árni benti einnig á það á fundinum í fyrradag að stöðugt aukinn niður- skurður á framlögum til innviða inn- anlandsflugsins, þrátt fyrir aðvaranir flugrekenda, jaðraði við aðför ríkisins að þessum mikilvæga þætti í almenn- ingssamgöngum landsins. Hann benti á að fjárveitingar hins opinbera til flugvalla innanlands hefðu lækkað að nafnvirði um 343 milljónir króna frá 2007 til 2012. Hefði fjárveiting til flugvallanna fylgt verðlagsþróun ætti hún að vera um 1,2 milljörðum hærri nú en hún væri í raun. Þess í stað hefðu notendagjöld verið hækkuð verulega frá árinu 2009 til þess að mæta þessum mikla niðurskurði í framlögum ríkisins. Flugfélag Íslands hefur ekki verið með neina þjónustusamninga vegna flugs hér innanlands í nokkur ár. Seinasta leiðin sem var með þjón- ustusamning var leiðin til Vest- mannaeyja. Honum lauk þegar Land- eyjahöfn var opnuð. Árni sagði að það ætti eftir að koma í ljós hvort eitthvert tillit yrði tekið til sjónarmiða flugrekenda í endanlegri útgáfu fjárlaga fyrir næsta ár. Flugfarþegum fækkar  Gjaldahækkanir í innanlandsfluginu eru komnar yfir þolmörk almennings, að mati Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands Morgunblaðið/Ernir Flug Gjöldin hafa hækkað mikið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.