Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 um að umferðarafköst geti ekki aukist nema um 10-20% en hins veg- ar geri deiliskipulagið ráð fyrir að umferð um Miklubraut verði um 67 þúsund bílar á sólarhring árið 2017, þegar 1. áfanga nýja sjúkrahússins verði lokið. Steinunn segir samtökin leggja til að skoðuð verði svokölluð „stokka- lausn“ samráðshóps frá 2008, þ.e. að umferð um Hringbraut, frá Land- spítala, austur fyrir Lönguhlíð og jafnvel að Grensás, verði lögð í stokk en það sé eina lausnin til að sjúkra- bifreiðar komist að og frá svæðinu og til að lífvænlegt verði í Hlíðunum. Svifryks- og hávaðamengun séu einnig áhyggjuefni en þar sé þegar brotið gegn gildandi reglugerðum. „Það er til reglugerð um loft- mengun sem segir hversu oft svif- ryksmengun í borginni má fara yfir heilsuverndarmörk og skiptin sem hún fer yfir þessi mörk á hverju ári eru margfalt það,“ segir Steinunn. Hún segir hverfin kringum spít- alasvæðið margskorin af stórum um- ferðaræðum og því fylgi vandamál sem íbúarnir þurfi að takast á við á hverjum degi. Athugasemdir sam- takanna hafi ekki vakið mikil við- brögð á fyrri stigum en íbúarnir vilji vera með í ráðum. „Í stað þess að kvarta bara og kveina viljum við vera með í lausn- inni. Við viljum að lagning umferð- arinnar í stokk verði bundin fram- kvæmdinni við nýjan Landspítala, ef það á á annað borð að byggja hann á þessum stað,“ segir Steinunn. Hafa áhyggjur af umferðarmagninu  Íbúasamtök uggandi um deiliskipulag nýs Landspítala Samráð Íbúasamtökin boðuðu til fundar í gær þar sem umhverfisáhrif nýs Landspítala voru í brennidepli. FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Íbúasamtök Hlíða, Holta og Norð- urmýrar gera miklar athugasemdir við tillögu að deiliskipulagi fyrir Landspítala - háskólasjúkrahús við Hringbraut og gagnrýna sérstak- lega umhverfismatið sem liggur þar til grundvallar. Steinunn Þórhalls- dóttir, formaður samtakanna, segir ljóst að ekkert tillit hafi verið tekið til athugasemda sem samtökin gerðu við drög að skipulaginu í sept- ember í fyrra og að fórna eigi hags- munum íbúa fyrir nýjan Landspít- ala. Samtökin hafa ritað Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra, Svandísi Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra og Jóni Gnarr borgarstjóra opið bréf þar sem helstu áhyggjuefni íbúasamtakanna eru rakin en aukin umferð um Miklubraut er meðal þeirra. „Skipulagsyfirvöld hafa sjálf sagt að það standi ekki til að auka umferð um Miklubraut, enda þoli hún ekki meiri umferð, en samt á að setja spítalann þarna án þess að taka á því máli,“ segir Steinunn. Í athugasemdum íbúasamtakanna kemur fram að samkvæmt nýjustu umferðartalningum sé umferð um Miklubrautina um 45 þúsund bílar á sólarhring. Í greinargerð frá borg- inni komi fram að staðbundin vanda- mál á Miklubraut geri það að verk- Guðni Einarsson gudni@mbl.is Milljónatjón varð hjá fiskþurrkun Útgerðarfélags Akureyringa (ÚA) á Laugum í Reykjadal, á laugardaginn var. Rafbúnaður skemmdist þegar spennutoppur kom í rafkerfið. „Það varð töluvert tjón, en það er ekki enn séð fyrir endann á því,“ sagði Gestur Geirsson, fram- kvæmdastjóri landvinnslu Sam- herja. Hann sagði að allur viðkvæm- ari rafbúnaður hefði skemmst og þurrkunin stöðvast. Viðkvæmur búnaður á borð við iðntölvur og stýr- ingar skemmdist sem olli því að blás- arar og færibönd stoppuðu. Starfs- menn brugðust skjótt við og tengdu framhjá til þess að forða því að hrá- efni sem var í þurrkun skemmdist. Ekki eru öll kurl komin til grafar hvað tjónið varðar en ljóst er að það hleypur á einhverjum milljónum, að sögn Gests. Enn er verið að afla varahluta í stað þess sem skemmd- ist. Sumt er ekki til hér á landi og þarf að panta það að utan. „Það má segja að það sé vinnslu- stopp og mjög lítil framleiðsla,“ sagði Gestur. Það tekur 2-3 daga að fullþurrka vöruna og eru unnin um 200 tonn af hráefni á viku í verk- smiðjunni. Gestur kvaðst vona að það tækist að ljúka viðgerðum í þess- ari viku og að verksmiðjan verði komin í full afköst í næstu viku. Tjónstilkynningar berast Ekki lá fyrir í gær hvað spennu- toppurinn var hár sem fór inn á raf- kerfið í Þingeyjarsýslu frá Laxár- virkjun á laugardag, að sögn Péturs Vopna Sigurðssonar, deildarstjóra rekstrarsviðs RARIK á Norður- landi. Hann sagði ljóst að of há spenna hefði farið inn á 11.000 volta dreifikerfið frá flutningskerfi Lands- nets. Pétur sagði að toppurinn hafi verið töluvert hærri en 11.000 volt en ekki væri vitað hvað toppurinn var hár sem fór til neytenda. Pétur sagði að tjónstilkynningar væru enn að berast. Ekki fengust upplýsingar um hve margar tilkynn- ingar höfðu borist í gær. Pétur sagði að aðallega væri um að ræða stök raftæki hjá einstaklingum auk þess sem vitað væri af einu tjóni sem telja megi stórt. Það mun vera hjá fisk- þurrkun Útgerðarfélags Akureyr- inga. Eftir að funda um bótaskyldu Ekki var orðið ljóst í gær hver teldist vera bótaskyldur vegna tjóns- ins sem varð. Pétur sagði að þeir hjá RARIK ættu eftir að eiga fund með Landsneti um málið. Eftir þann fund gæti bótaskyldan skýrst. Ekki var búið að ákveða í gær hvenær fund- urinn yrði haldinn. Töluvert tjón varð í fisk- þurrkun ÚA  Eftir að ræða hver ber ábyrgð á tjóni Morgunblaðið/Helgi Mar Fiskþurrkun Á Laugum í Reykjadal hefur lengi verið þurrkaður fiskur. Flökt í rafmagninu » Skammhlaup varð í aðveitu- stöð Laxárvirkjunar á laug- ardag, líklega vegna seltu. » Kópaskerslína 1 og vélar í Laxárvirkjun slógu út. Þegar vélarnar voru gangsettar á ný virðist hafa orðið skammæ spennuhækkun í kerfinu. » Víða urðu truflanir á dreif- ingu rafmagns í óveðrinu fyrir síðustu helgi, bæði sunnan lands og norðan. Fleiri kaupa nagladekk núna heldur en áður að sögn Gunnars Gunn- arssonar, framkvæmdastjóra dekkjaverkstæðisins Sólning hf. Gunnar segir dekk af gerðinni Cont- inental, sem Sólning flytur inn, fara mun hraðar út negld en ónegld. „Ég hugsa að það sé að það var harður vetur í fyrra, mikill snjór og margir lentu í vandræðum á ónegld- um dekkjum, sérstaklega fólk sem var kannski snemma á ferðinni,“ segir Gunnar, aðspurður hvers vegna fólk vilji nagladekk í meiri mæli núna en áður, og bætir við: „Svo var nú náttúrlega ekki mikið mokað í fyrra. Borgin var ekki mikið í því að hreinsa göturnar.“ Þá bendir Gunnar á að nagladekk hafi mun betra grip en önnur dekk í hálku, einkum ef keyrt er á ís. Að sögn Ásgeirs Gíslasonar, eig- anda Hjólbarðaverkstæðis Sig- urjóns, skiptist salan á vetr- ardekkjum nokkurn veginn til helminga, þ.e. annar helmingurinn nagladekk og hinn ekki. Aðspurður segir hann söluna á nagladekkjum vera á svipuðu róli og undanfarin ár. Ásgeir bendir einnig á að fólk hafi verið með fyrra fallinu í ár varðandi kaup nagladekkjum. „Óvenju- snemma miðað við veður á þessum hluta landsins,“ segir Ásgeir. skulih@mbl.is Segir fleira fólk kaupa nagladekk núna en áður Morgunblaðið/RAX Nagladekk Að sögn framkvæmdastjóra Sólningar kaupa fleiri nagladekk núna en áður. Þá segir hann mun betra grip í nagladekkjum í hálku.  Fólk óvenju- snemma á ferðinni Alls skiluðu 817 aðilar inn at- hugasemdum við tillögu um deiliskipulag nýja Landspít- alans við Hringbraut. Íbúasamtök Hlíða, Holta og Norðurmýrar gagnrýna m.a. að ekki hafi verið litið til athugasemda hags- munaaðila en slíkt samráð hafi verið ein af forsendum umhverfismatsins. Þau gagnrýna einnig að deiliskipulagstillagan gangi þvert á eigin markmið um að byggð Landspítala verði í sátt við umhverfið en fulltrúi skipulagsstjóra hafi m.a. sagt í bréfi frá því í júlí síð- astliðnum: „Ekki er hægt að gera kröfu um að byggingar á lóð spítalans séu í sama kvarða og fíngert byggðamynstur Þingholtsins.“ Þá segir í athugasemdum íbúasamtakanna að ljúka þurfi nýju aðalskipulagi áður en deiliskipulag fyrir nýjan Landspítala hljóti samþykki. 817 athuga- semdir bárust DEILISKIPULAG Erlendir ferðamenn sem heimsóttu Ísland í október voru um sex þúsund fleiri en í sama mánuði í fyrra. Sam- kvæmt talningu Ferðamálastofu fóru 44.994 erlendir ferðamenn frá landinu í mánuðinum. Það er fjölgun um 15,9% frá fyrra ári. Flestir ferðamennirnir voru Bret- ar eða rúmlega fimmtungur. Banda- ríkjamenn og Norðmenn voru næst- fjölmennastir á meðal þeirra sem sóttu landið heim í október. Bretum og Norðmönnum fjölgar mest en þannig komu um 1.800 fleiri Bretar og 1.300 fleiri Norðmenn nú en í fyrra. Raunar nær fjölgunin til allra markaðssvæða samkvæmt tölum Ferðamálastofu nema Bandaríkj- anna þar sem fjöldinn stendur í stað. Það sem af er ári hefur 581.961 er- lendur ferðamaður farið frá landinu en það er fjölgun um rúmlega 85.000. Það gerir 17,1% fjölgun á milli ára. Þá fjölgaði Íslendingum sem voru á faraldsfæti í október um 10,4% frá sama mánuði í fyrra. Alls fóru 35.000 landsmenn utan í mánuðinum. Frá áramótum hafa rúmlega 310.000 manns ferðast utan landsteinanna. Rúm hálf milljón ferðamanna í ár  Fjölgun frá sama mánuði í fyrra Morgunblaðið/Eggert Fjölgun Ferðamenn í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.