Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 Allt fyrir gluggana á einum stað Mikið úrval af veggfóðri Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is Úrval - gæði - þjónusta Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Líklegt er að einhver uppsjávarskip- anna reyni fyrir sér á loðnuveiðum síðar í þessum mánuði, jafnvel þegar í næstu viku, þegar síldarvertíð þeirra í Breiðafirði lýkur. Gefinn hefur verið út 300 þúsund tonna upphafskvóti á vetrarvertíðinni og koma um 210 þúsund tonn í hlut ís- lenskra skipa. Vonir standa til að meira finnist af loðnu í leiðangri upp úr áramótum, en á síðustu vertíð var heimilt að veiða 765 þúsund tonn og þá eins og núna var óvissa fram eftir vetri um hver endanlegur kvóti yrði. Samkvæmt aflareglu í loðnu er ávallt miðað við að 400 þúsund tonn komi til hrygningar. Greint er frá fyrirkomulagi loðnu- rannsókna í síðustu „ástandsskýrslu“ Hafrannsóknastofnunar: „Frá því um 1980 hefur verið farið árlega í berg- málsleiðangra til þess að kanna út- breiðslu og magn loðnu. Leiðangrar sem beinast að ungloðnu hafa verið farnir á tímabilinu október til desem- ber. Niðurstöður úr þeim leiðöngrum hafa verið notaðar til þess að reikna upphafsaflamark næstu vertíðar. Leiðangrar sem beinast að fullorð- inni loðnu, þ.e. veiðistofninum, eru yf- irleitt farnir að vetri á tímabilinu jan- úar til febrúar. Tilgangur þeirra er að mæla stærð veiðistofnsins og ákvarða endanlegt aflamark fyrir yfirstand- andi vertíð.“ Lítið fannst af ungloðnu Þar er jafnframt vitnað til þeirrar kenningar að síðan í byrjun fyrsta áratugar þessarar aldar hafi út- breiðslusvæði ungloðnu verið vestar en það var fyrir þann tíma. Í rann- sóknum í byrjun síðasta mánaðar fannst lítið af ungloðnu og er óvissa um hvort og þá hve mikið verður heimilað að veiða á vertíðinni sem ætti að hefjast eftir eitt ár. Í Morgunblaðinu á mánudag var eftirfarandi haft eftir Þorsteini Sig- urðssyni fiskifræðingi og sviðsstjóra á Hafrannsóknastofnun: „Afleiðing hlýnunar er að kaldsjávarfiskur leitar norðar og vestar. Sjórinn á þessum slóðum hefur hlýnað um meira en 2 gráður síðan 1996 og það hefur haft þær afleiðingar að sumar fiskteg- undir hafa fært sig norðar. Loðnan hefur hrakist frá kantinum norðan við Ísland og er meira í kantinum við Austur-Grænland. Við höfum búið við það síðustu tíu árin að loðnan sé nær Austur-Grænlandi og því átt í erf- iðleikum með að mæla hana á haust- in. Þess vegna fórum við nú í ung- loðnumælingar í október en ekki í nóvember eða í desember eins og við gerðum.“ Huga að loðnu að lokinni síldarvertíð Loðnuafli Júní-sept. Október-des. Janúar-mars Þú s. to nn 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 2000/2001 2011/2012 Eins árs Tveggja ára Smáloðna M ill ja rð ar fis ka 150 100 50 0 2000 2012 Afli Skipting á sumar, haust og vet- ur, vertíðar 2000/01 til 2011/12. Fjöldi Mældur fjöldi ókynþroska eins og tveggja ára loðnu að hausti.  Breytt hegðun  Kaldsjávarfiskur leitar norðar og vestar Einhverjir stóru síldarbát- anna hafa fengið afla á Breiðafirði eftir að óveðr- inu slotaði. Svo virðist sem síldin hafi fengist á stærra svæði en áður og magnið hafi aukist. Enn sem komið er virðist ís- lenska sumargotssíldin þó ekki vera komin í venjulegt vetrarástand. Heimilt er að veiða 64 þúsund tonn á vertíðinni. Betur veiðist eftir bræluna HEIMILT AÐ VEIÐA 64 ÞÚSUND TONN AF SUMARGOTSSÍLD Á síld Ásgrímur Halldórsson SF 250 á miðunum. FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Fresta hefði átt byggingu öryggis- íbúða hjúkrunarheimilisins Eirar í kjölfar bankahrunsins að sögn Sig- urðar Rúnars Sigurjónssonar, fram- kvæmdastjóra heimilisins. Hann lét stöðva allar greiðslur þegar honum varð ljóst að viðskiptamódelið á bak við öryggisíbúðirnar gekk ekki upp. Eir skuldar samtals átta milljarða króna eins og sagt hefur verið frá í fréttum undanfarna daga. Óljóst er hvernig heimilið á að geta staðið við skuldbindingar sínar gangvart þeim sem hafa keypt búseturétt í öryggis- íbúðunum. Skuldbindingar þess vegna búseturéttarins nema tveimur milljörðum króna. Héldu áfram að byggja Fjárhagsvandræði Eirar má rekja til slæmra ákvarðana í kjölfar bankahrunsins. Þegar það reið yfir árið 2008 höfðu stjórnendur heim- ilisins tekið ákvörðun um að hefja byggingu á 111 nýjum öryggis- íbúðum við Fróðengi í Grafarvogi. Öryggisíbúðirnar eru reknar af Húsrekstrarsjóði Eirar sem er á sömu kennitölu og hjúkrunarheim- ilið. Búið var að leggja grunn að þeim og ráðast í undirbúningskostnað. Á meðan aðrir sem stóðu í bygginga- framkvæmdum stöðvuðu þær og sáu til eftir hrunið, ákváðu stjórnendur Eirar að halda byggingunni áfram. Til að fjármagna framkvæmdir voru peningar íbúðarétthafa notaðir og hjúkrunarheimilið var veðsett fyrir nýju láni. Eir taldi sig á þessum tíma hafa fyrirheit um að Reykjavík- urborg myndi samhliða hefja bygg- ingu á þjónustumiðstöð, en borgin ákvað hins vegar að fresta fram- kvæmdum og byggingunni mun ekki ljúka fyrr en 2014. Rekið á sömu kennitölu Eftirspurnin eftir öryggisíbúð- unum reyndist svo mun minni en gert hafði verið ráð fyrir. Nú eru til dæmis þrjátíu íbúðir enn tómar. Við bættist að skuldir heimilisins jukust eins og annarra við hrunið en íbúðarétturinn hækkaði hins vegar þar sem hann er verðtryggður. Eir er skuldbundið til þess að greiða íbú- um í öryggisíbúðunum þegar þeir kjósa að fara úr þeim og nema þær skuldbindingar tveimur milljörðum króna eins og áður segir. Þar sem Húsrekstrarsjóðurinn og hjúkr- unarheimilið er rekið á sömu kenni- tölunni ógna vandræðin með örygg- isíbúðirnar allri starfseminni. Sigurður framkvæmdastjóri segir að þegar ákveðið hafi verið að hætta að greiða alla reikninga í september hafi öll lán verið í skilum og lánalín- ur tryggar til að halda rekstrinum áfram. Það hafi hins vegar ekki verið réttlætanlegt að taka við fé frá öðr- um án þess að tryggt væri að félagið gæti staðið við skuldbindingar sínar. Sigurður segir að það verði miklu dýrari kostur fyrir samfélagið að setja Eir í þrot en að leysa vandann með samkomulagi kröfuhafa. Hann segist telja að allir hagsmunaaðilar sjái að menn verði að leysa þetta. Ef kemur til gjaldþrots verða kröfur íbúa sem eiga íbúðarétt í öryggis- íbúðunum flokkaðar sem almennar kröfur og fullyrða má að lítið fáist upp í þær. „Við erum í viðræðum við kröfu- hafa. Áður en lengra er haldið þarf að finna lausn á þessu þannig að það sé hægt að réttlæta að menn séu yf- irleitt í þessari starfsemi. Það liggur í augum uppi að menn geta ekki haldið þessu áfram með óbreyttum hætti,“ segir hann. Ekki réttlætanlegt að taka við fé  Stjórnendur Eirar tóku slæmar ákvarðanir í kjölfar bankahrunsins  Hefðu átt að gera hlé á framkvæmdum við nýjar öryggisíbúðir  Óvíst hvort félagið getur staðið við skuldbindingar sínar Morgunblaðið/Ómar Mannlausar Öryggisíbúðir Eirar við Fróðengi í Grafarvogi. Þar eru þrjátíu íbúðir enn tómar en eftirspurn hefur reynst minni en búist var við. Sveinn Arason, ríkisendurskoð- andi, hefur hafnað beiðni stjórnenda hjúkrunarheimilisins Eirar um að stofnunin geri út- tekt á starfsemi þess. Sr. Sigurður Helgi Guð- mundsson var framkvæmda- stjóri Eirar fram í byrjun árs 2011. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tók tímabundið við stöðunni til áramóta. Vilhjálmur er formað- ur stjórnar Eirar, en meðan hann gegndi stöðu fram- kvæmdastjóra var Magnús L. Sveinsson stjórnarformaður, en hann er varaformaður. Aðrir í stjórn eru Hafsteinn Pálsson, Stefán Benediktsson, Helga Ey- steinsdóttir, Fanney Proppé Ei- ríksdóttir og Þórunn Svein- björnsdóttir. Sigurður Rúnar Guðjónsson tók við sem framkvæmdastjóri um síðustu áramót og í ágúst tók hann við Húsrekstrar- sjóðnum af Vilhjálmi. Gerir ekki úttekt á Eir RÍKISENDURSKOÐUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.