Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 35
hann fyrir dansi í Templaranum á Fáskrúðsfirði. Hann lék með EF Kvintettinum 1952-58 sem lék mikið fyrir dansi á Skaganum og í fé- lagsheimilum í Borgarfirði, s.s. í Logalandi, á Brú í Bæjarsveit og í Brautartungu í Lundareykjardal. Hljómsveitin lék gömlu dansana, swing-tónlist og tjútt og jafnvel fyrstu rokklögin. Hljóðfæraskip- anin var píanó, harmonikka, tromm- ur, saxófónn og klarinett. Þá lék Óðinn með hljómsveitinni GÓBÍ á Fáskrúðsfirði á síldarár- unum 1965-68, og var organisti við kirkjuna á Fáskrúðsfirði 1977-82. Nú liggur vel á mér Óðinn var tónlistarkennari á Fá- skrúðsfirði og Akranesi, lengst af frá 1970. Hann hóf að semja lög upp úr 1950. Hann tók þátt í danslaga- keppni SKT með laginu Síðasti dansinn, 1954 við texta Lofts Guð- mundssonar og lenti lagið í þriðja sæti. Ári síðar sendi hann inn lagið Heillandi vor með texta eftir Þor- stein Sveinsson og lenti þá í fyrsta sæti. Þá sigraði hann í keppni Fé- lags íslenskra dægurlagahöfunda, 1958, er hann sendi inn lagið Nú liggur vel á mér. Meðal annarra laga Óðins sem náðu miklum vinsældum má nefna Blíðasta blæ; Kominn heim; Ingu Stínu og Haust fyrir austan. Árið 1996 kom út diskur með lög- um Óðins, Við tónanna klið, sem- seldist upp á skömmum tíma. Fjölskylda Eiginkona Óðins er Jónína Árna- dóttir, f. 19.12. 1933, en hún sinnti lengst af verslunarstörfum og síðar umönnun á Fáskrúðsfirði. For- eldrar Jónínu: Árni Helgason, skipasmiður hjá Haraldi Böðv- arssyni á Akranesi, og Jóhanna Sig- ríður Tómasdóttir húsfreyja. Sonur Óðins frá því fyrir hjóna- band er Pétur, f. 17.12. 1951, húsa- smiður á Akranesi en kona hans er Laufey Skúladóttir. Börn Óðins og Jónínu eru Þór- arinn, f. 18.5. 1953, starfsmaður við ALCOA Fjarðaál, búsettur á Fá- skrúðsfirði en kona hans er Eygló Aðalsteinsdóttir; Óðinn Gunnar, f. 2.11. 1958, mannfræðingur og starfsmaður hjá Fljótsdalshéraði en kona hans er Steinrún Ótta Stef- ánsdóttir; Árni Jóhann, f. 3.4. 1961, líffræðingur hjá Landsvirkjun á Egilsstöðum en kona hans er Erla Jónsdóttir; Helga Jóna, f. 23.7. 1963, starfsmaður hjá EFLU Verk- fræðistofu í Reykjavík; Grétar Mar, f. 28.9. 1973, flugstjóri hjá Ice- landair, búsettur á Akranesi en kona hans er Kristín Siggeirsdóttir. Albróðir Óðins er Þráinn Þór- arinsson, f. 28.12. 1930, fyrrv. hús- vörður við grunnskólann á Fáskrúðsfirði. Hálfsystkini Óðins eru Jón Ein- arsson, f. 27.11. 1920, húsasmiður á Neskaupstað,og Helga Einars- dóttir, f. 6.12. 1922, búsett í Reykja- vík. Uppeldissystir Óðins er Edda Þórarinsdóttir, f. 28.5. 1939, búsett í Skagafirði. Foreldrar Óðins voru Halldór Þórarinn Guðmundsson, f. 27.5. 1904, d. 5.6. 1965, vélstjóri og versl- unarmaður, og k.h., Margrét Jónína Jónsdóttir, f. 22.3. 1900, d. 19.9. 1979, ljósmóðir. Úr frændgarði Óðins G. Þórarinssonar Óðinn G. Þórarinsson Jón Oddsson b. í Hólakoti Margrét Einarsdóttir húsfr í Hólakoti Jón Jónsson verkam. í Rvík Helga Óladóttir húsfr. í Rvík Margrét Jónsdóttir ljósm. á Fáskrúðsfirði og Akranesi Una Kristín Árnadóttir húsfr. Óli Þ. Finnbogason b. í Stóru-Breiðavíkurhjáleigu Guðný Kristjánsdóttir húsfr. Jón Guðmundsson b. á Viðborði Guðrún Jónsdóttir húsfr. á Fáskrúðsfirði Guðmundur Stefánsson járnsm. á Fáskrúðsfirði Þórarinn Guðmundsson vélstj. og verslunarm. á Fáskrúðsf. og Akranesi Guðný Guðmundsdóttir húsfr. á Gestsstöðum Stefán Guðmundsson b. á Gestsstöðum á Fáskrúðsfirði Árni Stefánsson trésmíðameistari á Akureyri Ingólfur Árnason rafveitustj. á Akureyri Stefán Svardal Árnason starfsm. RARIK á Akureyri Sigrún Stefánsdóttir fyrrv. dag- skrárstj. RÚV Hljóðfæraleikarinn Óðinn þenur harmonikkuna. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 skóla-ogskjalaskápar Skjala-hjólaskápar, þegar þú þarft að nýta plássið betur Pétur fæddist í Reykjavík 7.11.1917. Foreldrar hans voruHannes Hafstein, skáld og fyrsti ráðherra Íslands, og Katrín Thorsteinsson húsfreyja. Systkini Péturs, sammæðra: Ingi- björg Briem húsfreyja: Sverrir Briem verslunarmaður; Gyða hús- freyja; Ragnhildur Briem húsfreyja, og Eiríkur Briem rafmagnsverk- fræðingur. Móðurbróðir Péturs var Muggur myndlistarmaður en móð- urforeldrar Péturs voru Pétur Jens Thorsteinsson, kaupmaður og út- gerðarmaður á Bíldudal, og Ásthild- ur Jóhanna Guðmundsdóttir. Meðal tíu systkina Péturs, sam- feðra, voru Ástríður, móðir Hann- esar Þórarinssonar, yfirlæknis og prófessors; Sigríður, móðir Krist- jönu Millu viðskiptafræðings; Soffía Lára, amma Péturs Hafsteins, fyrrv. hæstaréttardómara; Elín, amma Ás- geirs Hannesar Eiríkssonar, fyrrv. alþm., Ragnheiður, amma Ragnheið- ar Erlu Bjarnadóttur, líffræðings og prests, og Sigurður Tryggvi, faðir Hannesar sendiherra. Hannes ráðherra var sonur Pét- urs Havstein, alþm. og amtmanns, og Kristjönu, dóttur Gunnars, pr. í Laufási Gunnarssonar og Jóhönnu Gunnlaugsdóttur Briem, sýslu- manns á Grund í Eyjafirði, ættföður Briemsættar. Pétur sendiherra kvæntist Odd- nýju Elísabetu Lúðvíksdóttur við- skiptafræðingi og eignuðust þau þrjá syni. Pétur lauk prófi í viðskiptafræð- um frá HÍ 1941 og embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1944. Pétur var starfsmaður utanríkis- þjónustu Íslands frá 1944 og einn þekktasti sendiherra þjóðarinnar á síðustu öld. Hann var sendiherra Ís- lands í fjölda ríkja og oft í mörgum ríkjum samtímis. Hann var þó lengst af sendiherra í Moskvu, 1953-61, sendiherra í París og í Washington. Auk þess var hann fastafulltrúi Ís- lands hjá NATÓ, OECD og sendi- herra hjá Evrópusambandinu. Hann var ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu- neytinu 1969-76. Pétur var í forseta- framboði 1980. Hann lést 12.4. 1995. Merkir Íslendingar Pétur Jens Thorsteinsson 90 ára Ragnhildur Einarsdóttir Þorgerður Jóhannesdóttir 85 ára Þorfinnur Jónsson 80 ára Ásta Hallgrímsdóttir Eggert Ingimundarson Friðrik Stefánsson Hallgrímur Matthíasson Ólafur Stephensen Stefánsson Sólberg Björnsson 75 ára Gísli Kristinn Lórenzson Gunnar Magnús Jónasson Margrét Jónsdóttir Sigrún Gísladóttir Þórhalla Bragadóttir 70 ára Guðmundur R. Jónsson Guðríður Svala Haraldsdóttir Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson Íris Bryndís Guðnadóttir Margrét Johnsen Skúli Guðlaugsson 60 ára Eygló Harðardóttir Friðþjófur Karl Eyjólfsson Gunnar Blöndal Jóhanna Sigríður Pálsdóttir Margrét Nueva Ólafur Guðmundsson Sigríður Lóa Jónsdóttir Þórður K. Guðmundsson 50 ára Arndís Lára Jónsdóttir Arnfinnur Róbert Einarsson Brynjar Örn Gunnarsson Guðmundur Guðmundsson Helga Hrönn Stefnisdóttir Jónas Jóhannsson Kristín Sigríður Baldursdóttir María Jónsdóttir Októ Einarsson Ólöf Finnsdóttir Sigurður Emil Ævarsson Smári Baldursson Steinunn Jónsdóttir Vigfús Baldursson Vilberg Jóhann Þorvaldsson 40 ára Anna Sigríður Ásgeirsdóttir Evald Ægir Hansen Gísli Jón Bjarnason Guðrún María Vöggsdóttir Hanna Mjöll Ólafsdóttir Heiðdís Lilja Magnúsdóttir Helga Vestmann Hildur Björk Sigbjörnsdóttir Hrönn Ingólfsdóttir Ingibjörg Kristinsdóttir Jón Hálfdán Jónasson Manuela Antonia Reimus Stefán Þór Benediktsson Trausti Heiðar Haraldsson 30 ára Anna Margrét Jónsdóttir Ásgrímur Már Friðriksson Ásmundur Steinþórsson Birna Kristín Einarsdóttir Eggert Thorberg Sverrisson Eydís Ósk Indriðadóttir Jonathan Augustine Kelly Jónína de la Rosa Justyna Witkowska Sólborg Indíana Guðjónsdóttir Unnur Diljá Teitsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Tinna ólst upp í Þorlákshöfn, lauk hjúkr- unarfræðiprófi frá HÍ og starfar við LSH. Kærasti: Magnús Joac- him, f. 1983, húsasmiður. Systkin: Karen Ýr Sæ- mundsdóttir, f. 1987; Axel Örn Sæmundsson, f. 1997. Foreldrar: Sæmundur Steingrímsson, f. 1958, vöruflutningabílstjóri, og Bryndís Hafsteinsdóttir, f. 1960, sjúkraliði. Tinna Dröfn Sæmundsdóttir 40 ára Vilborg hefur ver- ið starfsmaður við Grunn- skóla Njarðvíkur frá 2002. Maki: Garðar Einarsson, f. 1972, smiður og hús- vörður við Akurskóla. Börn: Sigurbjörg Magn- úsdóttir, f. 1993; Einar Garðarsson, f. 1998; Haf- dís H. Garðarsdóttir, f. 2000, og Heiðdís Hekla Garðarsdóttir, f. 2006. Foreldrar: Sigurbjörg Guðmundsd., f, 1948, og Sævar Kjartanss., f. 1945. Vilborg Sævarsdóttir 40 ára Silja er hár- snyrtimeistari og hár- snyrtikennari að mennt, er verslunarstjóri á Sel- fossi og rekur Dansspor. Maki: Lúðvig Þorfinns- son, f. 1964, þjónustustj. Börn: Margrét, f. 1995; Steinunn, f. 1997, og Þor- finnur, f. 2003. Foreldrar: Þorsteinn Guðmundsson, (Steini spil) f. 1933, d. 2011, og Unnur G. Jónasdóttir, f. 1943, húsfreyja. Silja Sigríður Þorsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.