Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Hvernig liðirithöfundisem segði sínum útgefanda og lesendum að hann hefði nú hamrað lyklaborðið í þrjú ár rúm og lagt sig allan fram. Sjálfsagt mjög vel, ef það væri allt bæði satt og rétt. En væri hann að segja viðmælendum sínum ósatt og hefði í rauninni ekki skrifað staf frá eigin brjósti allan þenn- an tíma væri upplitið annað. Þá liði honum eins og iðnaðarmanni í akkorði eða uppmælingu sem ekki hefði annað afrekað en að senda reikning fyrir ímyndaða þjónustu. Þegar Steingrímur J. og Ög- mundur gengu til stjórnarmynd- unar við Össur og Samfylk- inguna sömdu þeir um að farið skyldi í „samningaviðræður við ESB“. Þetta gerðu þeir þótt nú- gildandi reglur ESB kveði skýrt á um að land sem óskar eftir að- ild að sambandinu fer ekki í samningaviðræður um þann gjörning. Það var vissulega gert áður. En slíkur þáttur var bein- línis afnuminn af ESB, sem sí- fellt bendir á að sambandið hafi ekki óskað eftir aðild Íslands að ESB. Og það gengur lengra. Það gefur út og ítrekar yfirlýsingar um að land sem óskar eftir aðild að ESB megi ekki og eigi ekki að láta þá þjóð sem landið byggir halda að um þá aðild verði samið. Það standi ekki til. Regluverk ESB liggur fyrir. Samtöl um að- ild á milli aðila ganga eingöngu út á að þjóð sannfæri stækk- unarstjóra ESB og stækk- unarmenn hans um að viðkom- andi land uppfylli allar reglur með fullnægjandi hætti. Pakk- inn, sem sumir þykjast ætla að „kíkja í“ liggur fyrir frá fyrsta degi. Hann er álíka spennandi og jólapakki sem legið hefur undir tré í stofu óinnpakkaður í ára- tug. Margt misjafnt má segja um ESB og sannleiksást þess og orðheldni. En í þessum efnum hafa æðstu menn á þeim bæ ver- ið heiðarlegir, þótt Ísland eigi enga sérstaka kröfu til þess heiðarleika. En sama verður ekki sagt um þá sem slík krafa stendur með fullum þunga á. Íslensk yfirvöld láta eins og þau séu á fullri ferð í samninga- viðræðum við ESB, þrátt fyrir beiðni sambandsins um að þjóð sé upplýst um að slíkur leik- araskapur fari ekki fram. Þau hafa sérstaka „samninganefnd“ og einn embættismaður utanrík- isráðuneytisins hefur verið dubbaður upp sem „aðalsamn- ingamaður.“ Þessir aðilar hafa hvað eftir annað verið op- inberlega beðnir um að segja frá einhverju sem þeir hafi „samið“ um á þessum langa tíma. Þeir hafa ekki getað bent á eitt einasta atriði! Aðalhlutverk „að- alsamningamanns“ virðist vera að fara um sem áróð- ursmaður Samfylk- ingar, en ekki emb- ættismaður og reyna að vinna aðildarhugmynd- inni fylgi. Embættismaðurinn er kominn langt út fyrir sitt hlut- verk og hlýtur að gera sér grein fyrir því. En það er ekki nóg með að ekki sé hægt að nefna eitt ein- asta dæmi um árangur „samn- ingaviðræðna“ sem Ísland stendur eitt í (ESB neitar því að það sé í samningaviðræðum. Það sé eingöngu að reka íslensku trippin í aðlögun, í samræmi við þær reglur sem gilda um aðild- arferli). Við þetta allt bætist að ríkisvaldið hefur sveipað allt bröltið leyndarhjúpi og jafnvel stjórnarandstæðingar virðast falla næsta auðmjúkir undir hann. Það er óskiljanlegt með öllu. Árni Þór, formaður utanrík- ismálanefndar, hastar á þing- menn stjórnarandstöðunnar, ef þeir leyfa sér að fjalla um mál sem hann lítur á að sé einkamál þeirra Steingríms, Össurar og ESB. Þessir kumpánar virðast telja það forsendu þess að halda megi lífinu í aðildarviðræðunum eitthvað lengur, að leyna al- menning hver undirlægju- viðbrögð íslenskra yfirvalda hafa verið gagnvart aðlög- unarkröfum Evrópusambands- ins. Nýjasta dæmið snýr að því að því er haldið fram í fullri alvöru í þingsal að rík trúnaðarskylda gildi um allar vangaveltur um hvort Ísland eigi að fallast á óhindraðan innflutning lifandi dýra og ófrosinna matvæla, eins og allar aðrar aðlögunarkröfur ESB. Hvernig getur það verið að afstaða stjórnmálamanna sem þykjast vera í samninga- viðræðum við aðila, sem segist á hinn bóginn ekki taka þátt í slíku, sé leyndarmál? Árum saman var fullyrt af hálfu ákafamanna um aðild að ESB, að „ákvörðun um samn- ingsmarkmið“ yrði að taka ÁÐ- UR en ákveðið yrði hvort sótt væri um slíka aðild. Engin slík markmið liggja enn fyrir, svo þjóðin viti, þótt ríkisstjórnin þykist hafa verið á fjórða ár í samningum. Þvert á móti blasir við að jafnvel vangaveltur um eitt pínulítið slíkt „samnings- markmið,“ tæpum fjórum árum eftir að sótt var um, þolir ekki dagsins ljós. Og höfuðið er bitið af skömminni þegar maður, sem lærður er úr áróðursskóla í gamla sovétinu, reigir sig í þjóð- þinginu og þykist hafa vald á því að skammta alþingismönnum hvað megi ræða! Allir vita um lýðræð- ishalla og pukur inn- an ESB. En Árni Þór vill ekki bíða aðildar til að njóta þess} Leyndarhjúpur og pukur forsenda aðildar? É g átti fund með blaðamönnum fyr- ir stuttu þar sem fjölmiðlun fram- tíðarinnar var meðal umræðu- efna. Eitt af því sem ég velti upp var að svo hlyti fara á endanum að hætt yrði að prenta dagblöð á pappír, það væri svo dýrt og óhagkvæmt að dreifa upplýs- ingum á þann hátt, efniskostnaður mikill, prent- un kostnaðarsöm og kostar skildinginn að bera blaðið út til áskrifenda. Sérstaklega hlyti blaða- prentun að fara halloka fyrir stafrænni dreifingu sem væri svo ódýr að segja mætti að hún væri nánast ókeypis. Þegar hér var komið sögu í fabúleríngum mínum var sumum áheyrenda greinilega nóg boðið og einn blaðamaðurinn varpaði fram spurningu sem kom mér eiginlega í opna skjöldu: En hvað verður þá um okkur? Á fjölmiðlaráðstefnu sem haldin var í Svíþjóð fyrir stuttu ræddu menn meðal annars sænsk dagblöð og framtíð þeirra í ljósi þess hve þau hafa farið halloka þar í landi líkt og víðast hvar á Vesturlöndum. Fjölmiðladagurinn í Svíþjóð er áþekkur og á undanförnum áratugum, hefur reyndar lengst um 22 mínútur frá 1980, en sveiflur á honum eru ann- ars mjög litlar. Lestur á pappírsdagblöðum hefur dregist verulega saman, sérstaklega þó á síðustu fimm árum, og er svo komið að því er spáð að ekkert dagblað verði prentað í Svíþjóð eftir árið 2025. Þróunin hér á landi hlýtur að verða áþekk og það kemur líklega að því að hætt verði að prenta þetta blað, sem á hundrað ára afmæli eftir rétt tæpt ár, 2. nóvember næstkomandi. Hvort það verði árið 2025 er ekki gott að segja, kannski ekki fyrr en 2027, eða um það leyti sem ég fer á eftirlaun. Þó að slökkt verði á prentsmiðju Morg- unblaðsins í fyllingu tímans þýðir það þó varla endalok Morgunblaðsins; blaðið hættir ekki að koma út, þó að það hætti að vera á blaði. Hugs- anlega verður það á spjaldtölvu, en þúsundir áskrifenda hafa nú aðgang að blaði í gegnum spjaldtölvuforrit, eða í síma eða í einhverju tæki sem við höfum ekki hugmynd um í dag. Svar við spurningu blaðamannsins sem ég nefni hér að ofan er því einfalt í sjálfu sér: Ekkert, því blaða- menn hætta ekki að verða til þó að dag- blaðapappír hverfi. Þeir gegna mikilvægu hlut- verki, og þá er ég ekki að vísa til þess sem ég pára, það er sjálfsagt lítil eftirsjá í því. Því hefur verið slegið fram að ef farsíminn hefði verið fundinn upp á undan landlínusímanum hefði aldrei nokkr- um manni dottið í hug að nota símalínur og sama má segja um dagblöðin; ef spjaldtölvan hefði komið á undan prentvél- inni hefði engum dottið í hug að gefa dagblað út á pappír. Morgunblaðið er fáanlegt á pappír og á þrennskonar staf- rænu sniði því til viðbótar. Vel má vera að stafrænu snið- unum eigi eftir að fjölga, tíminn mun leiða það í ljós en það er engin ástæða til að syrgja pappírinn, frekar en við syrgj- um pergamentið. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Pappírsblæti STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Ö gmundur Jónasson inn- anríkisráðherra vonast til þess að strandsigl- ingar umhverfis landið hefjist í mars eða apríl á næsta ári. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Ásmundar Ein- ars Daðasonar, þingmanns Fram- sóknarflokksins, í fyrirspurnartíma á Alþingi á mánudag. Í svari ráð- herra kom fram að um yrði að ræða vikulegar siglingar með viðkomu á höfuðborgarsvæðinu, Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum. Eim- skip var síðast skipafélaga með skipulagðar strandsiglingar en þær lögðust af árið 2004. Þá flutti félagið um 160 þúsund tonn árlega en í til- lögum starfshóps um strandsigl- ingar kemur fram að flytja megi um 70 þúsund tonn á ári samkvæmt markaðsrannsóknum. Í byrjun ársins skilaði starfshópur um málið af sér skýrslu en þar er lagt til að leitað verði tilboða í sigl- ingarnar þar sem boðið verði í með- gjöf ríkisins í nokkur ár en að þeim tíma loknum er miðað við að sigling- arnar standi undir sér. Ásmundur Einar segir að um mikla hagsmuni sé að ræða, bæði til lengri og skemmri tíma fyrir atvinnusvæði sem eru fjarri Reykjavík. „Ég held að það sé gríðarlega brýnt að koma siglingum á til lengri tíma litið og jafna með því samkeppnisstöðu at- vinnuuppbyggingar á landsbyggð- inni gagnvart höfuðborgarsvæðinu,“ segir Ásmundur. „Það eru að byggj- ast upp stór iðnaðarfyrirtæki á landsbyggðinni, í umræðunum á þinginu nefndi ég Steinullarverk- smiðjuna á Sauðárkróki auk kalk- þörungaverksmiðju og laxeldisfyr- irtækisins Fjarðalax á Vestfjörðum. Þetta eru fyrirtæki sem kaupa til sín aðföng og selja síðan frá sér vörur svo tonnum skiptir. Einnig erum við að horfa upp á að alls staðar á lands- byggðinni eru að byggjast upp sprotar í atvinnulífinu, uppbygging á atvinnutækifærum sem byggist m.a. á nýtingu auðlinda og komi þessi stoð (strandsiglingar) til held ég að hún muni bæta rekstrarmódel fyrir marga aðila sem standa í atvinnu- uppbyggingu á landsbyggðinni,“ segir Ásmundur. Í svari Ögmundar Jónassonar á mánudag kom fram að hann telji að þverpólitískur vilji sé fyrir málinu og fulltrúar allra flokka hafi talað fyrir þessu „þjóðþrifamáli“. Fram hefur komið að siglingarnar verða ríkisstyrktar fyrst um sinn. Í ræðu Ögmundar á mánudag minnti hann á að á sínum tíma þegar strandsigl- ingar voru lagðar af hefðu margir haft þung orð um að ekki gengi að ríkið skyldi styðja slíka starfsemi. Hann sagði að sömu gagnrýnendur hefðu gleymt því að í raun séu land- flutningar niðurgreiddir með vega- framkvæmdum og viðhaldi. Erlendir aðilar hafa sýnt áhuga Guðmundur Kristjánsson, for- maður starfshóps um strandsigl- ingar, segir að innlend skipafélög hafi fylgst með þróun mála og starfshópurinn hafi verið í sambandi við þau í sínu starfi. Hann telur tölu- verðar líkur á því að stóru skipa- félögin tvö, Samskip og Eimskip, taki þátt í útboði á strandsiglingum þegar að því komi. Jafnframt segir Guðmundur að fyrirspurnir hafi borist erlendis frá. „Þrjú skandinavísk skipafélög hafa óskað eftir því að fá að fylgjast með gangi mála. Við sendum ekki út neinar fyrirspurnir til þeirra heldur óskuðu þau sjálf eftir því að vera lát- in vita um framgang málsins,“ segir Guðmundur. Allt stefnir í strand- siglingar á næsta ári Morgunblaðið/Árni Sæberg Flutningar Allt útlit er fyrir að strandsiglingar hefjist að nýju kringum landið næsta vor. Siglingarnar lögðust af árið 2004. „Við höfum ekki séð nein gögn ennþá og getum þar af leiðandi ekki tjáð okk- ar nánar á þessu stigi málsins. En við munum að sjálfsögðu skoða þetta nánar þegar þar að kemur,“ segir Anna Guðný Aradóttir, upplýs- ingafulltrúi hjá Samskip, að- spurð um hvort fyrirtækið muni taka þátt í útboði á strandsigl- ingum. Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri innanlands- sviðs hjá Eimskip, segir málið verða skoðað þegar að því kem- ur. „Það hefur lengi verið talað um málið en við höfum ekki séð nein gögn. Við skoðum málið þegar við sjáum gögnin eins og öll önnur verkefni sem verið er að bjóða út á sviði flutninga,“ segir Guðmundur. Munu skoða málið STÓRU SKIPAFÉLÖGIN Guðmundur Nikulásson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.