Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 Kastanía Höfðatorgi, Höfðatúni 2, 105 Reykjavík, sími 577 5570 Arna Verslun Grímsbæ, Efstalandi 27, 108 Reykjavík, sími 527 1999 Junik Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, sími 571 7700 Sirka Skipagötu 6, 600 Akureyri, sími 461 3606 Paloma Víkurbraut 62, 240 Grindarvík, sími 426 8711 Gallerí Keflavík, Hafnargötu 32, 230 Keflavík, S: 421 7300 Cleopatra Austurvegi 4, 800 Selfossi, sími 482 2144 Heildsöludreifing: Óm Snyrtivörur ehf, Tunguvegi 19, 108 Rvík. sími 568 0829, om@om.is Útsölustaðir Stöndum saman gegn einelti og sýnum stuðning með GOOD WORK(s) leðurarmböndunum Falleg áminning um trú, ást og kærleika Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert draumastarfsmaðurinn sem hefur það eitt að leiðarljósi að sjá áætlanir verða að veruleika. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú munt sennilega eiga áhugaverðar samræður við systkini þín og vini í dag. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það væri rangt af þér að svara ekki beiðni gamals vinar um aðstoð. Sam- ræður við yfirmann þinn eða annan áhrifa- mann geta einnig haft hvetjandi áhrif á þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Láttu ekkert koma þér á óvart og ekki búast við ást og viðurkenningu í dag. Það hefur ekkert upp á sig að stinga höfð- inu í sandinn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ekki er víst að þú sjáir árangur erfiðis þíns strax, en vertu viss, hann er á næsta leiti. Þú ert sáttari við ástandið á heimilinu en þú hefur verið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert til í að leggja mikið á þig til þess að ná settu marki núna, hvort sem er heima fyrir eða í vinnunni. Leyfðu fólki að dást að þér og njóttu þess. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það gætu komið upp erfiðleikar í sam- bandi sem reyna á krafta þína og þú mátt hafa þig allan við að hafa yfirsýn yfir þetta allt saman. Hringdu í konurnar í ættinni og láttu þær eiga stund saman. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Á næstu vikum fer best á því að þú sinnir ókláruðum málum. Mundu að góð vinátta er gulli betri. Haltu þig utan við alla flokkadrætti. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu að hafa þitt á hreinu hvað sem fyrir kann að koma. Reyndu að deila völdunum. Fjölskylduleyndarmál munu hugsanlega setja svip á daginn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér gengur allt í haginn, ef þú bara gætir þess að velta málunum vand- lega fyrir þér, áður en þú lætur til skarar skríða. Mat þitt er hugsanlega óraunsætt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Maður lærir vissulega að vera sjálfum sér nógur með því að útiloka aðra, en það er ekki besta leiðin. Ekki fara allir þannig að. Þú ættir að hitta fólk oftar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt sumum þyki nóg um þá ábyrgð, sem þér er falin, þarftu hvergi að óttast, því þú ert maður fyrir þinn hatt. Hugsaðu á jákvæðum nótum. Sigurður Sigurðarson rifjar uppskemmtilega sögu: „Andrés Valberg var á leið til hvílu sinnar eftir landsmót hagyrðinga. Þangað höfðu menn komið með teppi og dýnur og lágu þar í skála hlið við hlið karlar og konur. Andrés lýsti svo því sem fyrir augu hans bar: Liggja tóku í langri röð, létti móki gaman, fjarri brókum frjáls og glöð flækt og krókuð saman. Davíð Hjálmar Haraldsson skýt- ur í glettni á Pétur Stefánsson: Nyrðra þykir kalt á köflum, kempur sligast undir snjó. Upp úr margra metra sköflum myndi Pétri standa þó. Svo bætir hann við: „Afsakið, er þetta ekki málfræðivilla? „Pétur“ hlýtur að eiga að vera í nefnifalli.“ Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía á Sandi, er fljót til svars: Að demba vísu á djarfa karla í dag er eina skemmtun mín. Davíð gerði villu, en varla virðist hann þó skammast sín. Ágúst Marinósson leitaði líka fanga í veðrinu með ó-i fyrir fram- an: Af fólki hríðin tekur toll, menn tepptir inni dúsa. Og skakklappast með skjálftahroll í sköflum milli húsa. Enn stenst Davíð Hjálmar ekki mátið: Napur strengur norðanbáls nú er Gústa sendur. Fannir veður hann í háls, hausinn upp úr stendur. Að lokum yrkir Pétur Stefánsson og færir í stuðla og rím það sem all- ir hugsa: „Vil minna fólk á að kaupa „Neyðarkallinn“. Oft var þörf, en nú er nauðsyn. Björgunarsveit- armenn standa í ströngu þessa dag- ana við björgunarstörf um land allt. Hendast út í hríðarbylinn, hetjudáðir sýna enn. Allan heiður eiga skilinn okkar björgunarsveitarmenn. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af veðri með ó-i fyrir framan og ferð kvæðamanna eftir Jim Unger „TAKIÐ TVÆR ÍBÚFEN HVOR OG HRINGIÐ SVO Á MORGUN EF ÞIÐ VERÐIÐ EKKI SKÁRRI.“ HermannÍ klípu „EKKI ALSLÆMT, EN DÁLÍTIÐ SÓÐA- LEGT. VIÐ GETUM KENNT ÞÉR AÐ RAÐA PENINGUM Í VESKI, TIL DÆMIS.“ eftir Mike Baldwin Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... Lukkudýrið sem hún gaf þér. VESSOGÚ! SJÓÐHEITT, BEINT AF GRILLINU! ÞETTA ER EKKI HUNDI BJÓÐANDI! JÚJÚ. ÞÚ ÞARFT AÐ ENDURNÝJA AÐEINS FATASKÁPINN, VINA ... ... MÁLMAR ERU EKKI Í TÍSKU Í VETUR. FJÁRMÁLA- RÁÐGJÖF Víkverji hefur alltaf haft nokkurtdálæti á myndunum um James Bond og leitt hjá sér þunnan sögu- þráð og ólíkindalegar hetjudáðir útsendara hennar hátignar, Bretadrottningar. x x x Á sunnudagskvöld ákvað Víkverjiað skella sér á nýjustu afurðina, Skyfall, þar sem Daniel Craig bregð- ur sér í hlutverk njósnarans. Craig er mikið hörkutól að sjá. Einhver benti Víkverja á að hann liti út alveg eins og Vladimír Pútín Rússlands- keisari – afsakið, Rússlandsforseti. Eftir það getur Víkverji ekki séð Craig án þess að sjá fyrir sér Pútín beran að ofan. Fleiri höfðu fengið sömu hugmynd þetta kvöld og reyndist uppselt á myndina um allan bæ nema í Háskólabíói þar sem enn voru til sæti. x x x Skyfall er prýðisskemmtun. Einsog venjulega tekur Bond sér ýmislegt fyrir hendur, sem ekki er óhætt að reyna í stofunni heima hjá sér. x x x Craig er að mörgu leyti ólíkur öðr-um, sem farið hafa með hlutverk Bonds, leikurum á borð við Sean Connery og Roger Moore, sem gátu farið í gegnum ótrúlegar þrekraunir án þess að hár haggaðist á höfði þeirra. Hár Craigs er reyndar svo snöggt að því verður vart haggað, en hann verður rauður og þrútinn, aug- un blóðhlaupin og hendurnar skjálfa. Hann brynnir meira að segja mús- um. Víkverji var til í að leiða þetta allt saman hjá sér, enda leiðist hon- um fátt meira en stöðnun. x x x Honum var hins vegar nóg boðiðþegar þessi hrái Bond birtist fyrir utan spilavíti með rammskakka og illa hnýtta svarta slaufu. Ekki var nóg með að slaufan væri ekki jöfn, heldur lafði annar endinn niður. Vík- verja myndi kannski ekki takast bet- ur að hnýta á sig slaufu, en þetta hefðu fyrri Bondar ekki látið henda sig. Þá var greinilegt að spilavítis- atriðið var ekki allt tekið í einni lotu því að þegar inn í spilavítið var komið var slaufan skyndilega orðin hnökra- laus og óaðfinnanleg. víkverji@mbl.is Víkverji Eins og hindin þráir vatnslindir þráir sál mín þig, ó Guð. (Sálmarnir 42:2) ...alveg með’etta Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.