Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Frumkvöðlarnir Sesselja Vilhjálms- dóttir og Valgerður Halldórsdóttir standa að baki Kinwins, nýjum snjallsímaleik fyrir iPhone sem hægt er að sækja frítt í App Store. Mark- mið leiksins er að hvetja fólk til að rækta sjálft sig og stuðla að heil- brigðu líferni – með vinum og vanda- mönnum. „Í Kinwin er því sem fólk tekur sér fyrir hendur í lífinu breytt í skemmti- legan leik; allt frá því að elda til þess að hitta vini og lestur bóka. Fólk fær til dæmis fleiri stig ef það eldar með öðrum því það er félagslegt athæfi,“ segir Sesselja í samtali við Morgun- blaðið. Leikurinn er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum, að hennar sögn en hún nefnir að hann minni um margt á tölvuleikina Sims, sem ganga út á að stýra fólki í hversdagsleik- anum. Unnið sjálfstætt frá 2009 Þær eru 27 ára gamlar og hafa unnið sjálfstætt frá árinu 2009. Þær gáfu út borðspilið Heilaspuna og gerðu alþjóðlega heimildamynd um frumkvöðla í nýsköpun, The Start Up Kids. Tóku til dæmis viðtöl við frum- kvöðla í San Francisco og Berlín. Myndin verður brátt sýnd erlendis en var nýlega frumsýnd á Íslandi á RIFF-hátíðinni. Entrepreneurship week verður haldin víða um heim í mánuðinum og verður myndin sýnd að því tilefni, þar á meðal í Víetnam, Mexíkó, London, San Fransico og Berlín. Auk þess sem samið hefur verið við bandarískt fyrirtæki um að dreifa henni á netinu og í sjónvarpi. Til að byrja með verður Kinwins aðeins í boði fyrir Íslendinga í App Store. Innan skamms fer leikurinn í sölu úti í hinum stóra heimi og verður markaðssettur á erlendri grundu. Í sumar bjuggu þær í San Francisco, þar sem fjölmargir frumkvöðlar í ný- sköpun hafa komið sér fyrir. Þar kynntu þær leikinn til að undirbúa jarðveginn fyrir Kinwins. Þær nýttu einnig tækifærið og kynntu fyrirtæk- ið fyrir fjárfestum. – Hvert er tekjumódel KinWins? „Þetta er fyrsta útgáfan. Nú mun- um við fylgjast með því hvernig fólk notar leikinn og bæta í samræmi við þær upplýsingar. Síðar munum við opna fyrir tekjuleiðir í leiknum. Þá getur fólk keypt hitt og þetta t.d. verðlaun þegar att er kappi við vini sína. Þegar fram líða stundir geta notendur keypt nokkurs konar árs- skýrslu um sjálft sig. Leikurinn verð- ur hins vegar alltaf frír, en það verður hægt að kaupa ýmislegt í leiknum til að bæta upplifunina,“ segir Sesselja. – Hvað var það erfiðasta við að búa til þennan leik? „Það var erfitt að fjármagna verk- efnið, meðal annars vegna þess að við höfðum ekki komið að svona tölvu- leikjaframleiðslu áður og við ákváðum að hafa enga fjárfesta með okkur í byrjun. En fyrsta útgáfa af Kinwins er fjármögnuð af Tækniþró- unarsjóði þar sem við fengum verk- efnastyrk til þriggja ára. Styrkurinn er samt ekki það hár að við getum ráðið marga forritara til okkar því þeir eru dýr vinnukraftur. Við vorum samt afar heppnar að fá þennan styrk enda lögðum við mikla vinnu í að búa til góða viðskiptaáætlun. Það tók líka nokkurn tíma að koma saman góðu teymi til að takast á við verkefnið, því það eru fáir iPhone- og Android-for- ritarar á Íslandi.“ Fjórir starfsmenn vinna fyrir Kinwins. Það leið eitt ár frá því að hugmyndin kviknaði þar til hægt var að nálgast leikinn í App Store. Ef við- tökurnar verða góðar verður útbúin Android-útgáfa. Sesselja og Valgerð- ur eru ekki forritarar, heldur sjá um viðskiptahliðina. Alþjóðlegur metnaður – Gaman að sjá þennan alþjóðlega metnað hjá ykkur. „Já, það þýðir ekkert annað ef maður er að vinna á netinu og far- símamarkaðnum. Þar sem það verður æ ódýrara að búa til svona leiki skipt- ir sköpum að sinna markaðsmálunum vel og koma upp góðum dreifileið- um.“ – Hvernig markaðssetjið þið leik- inn? „Við höfum tvinnað markaðssetn- inguna á Kinwins mikið við heimilda- myndina okkar. Það hefur gengið vel að fá umfjöllun um hana því hún er sú fyrsta sinnar tegundar. Þegar við ferðuðumst og tókum viðtöl fyrir hana lögðum við áherslu á að kynnast helstu tæknibloggurum. Auk þess byggist leikurinn mjög á samfélags- miðlum eins og Facebook, þar sem hægt er að deila árangrinum og fleira. Markaðssetning margra far- símaforrita sem gengið hafa vel hefur byggst mjög á samfélagsmiðlum þar sem þeir breiðast út eins og eldur í sinu.“ Mannbætandi símaleikur frá útgefendum Heilaspuna  Kinwins er íslenskur leikur sem hvetur fólk til að rækta sjálft sig og aðra Morgunblaðið/Ómar Frumkvöðlar Valgerður Halldórsdóttir og Sesselja Vilhjálmsdóttir bjuggu í San Francisco í sumar til að undirbúa jarðveginn fyrir Kinwins. Kinwins » Nýr tölvuleikur fyrir iPhone sem stuðlar að heilbrigðu líf- erni. » Ef vel gengur verður hann einnig fáanlegur á Android. » Framleiðendur leiksins bjuggu til alþjóðlega heimilda- mynd um frumkvöðla, The Start Up Kids. ● Eignir lífeyr- issjóðanna jukust um 30,1 milljarð í september og er það mesta aukning í einum mánuði síðan í mars. Á þessu ári hafa eignir sjóðanna aukist að meðaltali um 22 milljarða á mánuði og því er aukningin í mánuðinum mun meiri en verið hefur. Hrein eign sjóðanna í lok mánaðarins nam 2.294 milljörðum og hækkunin var því um 1%, segir í Morg- unkorni greiningardeildar Íslandsbanka. Aukningin er tilkomin vegna mikillar aukningar erlendra eigna sjóðanna en þær jukust um 4% í september en inn- lendar eignir drógust saman um 0,1%. Eignir jukust mikið ● Í Finnlandi er nú til skoðunar að setja hámarksvexti á smálán, en þar hafa meðalvextir náð allt að 920% á þess- um lánum. Einnig á að setja starfsem- inni nokkrar skorður, meðal annars með því að banna útlán á nóttunni og auka kröfur um lánamat og könnun á greiðsluhæfi lántakenda. Hugmyndir stjórnvalda eru að setja 50% hámarksvexti á smálán og banna að lán séu veitt eftir kl. 11 á kvöldin. Da- gens Industri greindi frá þessu í gær. Hámarksvextir á smálán Stuttar fréttir…                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./+ ,/,.01 +,-.-1 ,+.--1 ,,.+20 +3.022 +14.5- +.53+0 +04.+1 +2,.44 +,-.1+ ,/1.4, +,3.+ ,+.31- ,,.,14 +0./,, +14.05 +.5325 +04.-+ +2,.30 ,,5.5+/- +,-.2+ ,/1.0+ +,3.4- ,+.0/+ ,,.,00 +0./-3 +15.11 +.50++ +05.,0 +21.14 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur Sími: 564 4700 Opnunartími Dalvegi: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 VINSÆLASTA RJÓMATERTAN Í 45 ÁR fæst hjá Reyni bakara DV ehf., útgáfufélag DV, tapaði 83 milljónum króna í fyrra, samkvæmt óendurskoðuðum ársreikningi fé- lagsins. Árið áður var tapið 53 millj- ónir kr. og var tap síðustu tveggja ára því samtals 136 milljónir kr. Eigið fé var 10 milljónir kr. um síðustu áramót og var nánast óbreytt á milli ára. Eignir námu 142 millj- ónum kr. Fastafjármunir tvöfölduð- ust næstum því á milli ára sam- kvæmt ársreikningnum og námu 79 milljónum í árslok í fyrra. Óefnisleg- ar eignir voru endurmetnar til hækkunar. Virði þeirra var metið á 40 milljónir kr. í árslok 2010 en 70 milljónir kr. í árslok í fyrra. Skuldir upp á 131 milljón Skammtímakröfur jukust um 12 milljónir kr. á milli ára og námu 63 milljónum um síðustu áramót. Þar af var hlutafjárloforð upp á 6 milljónir kr. Skuldir jukust um 50 milljónir kr. og námu 131 milljón í árslok 2011. Handbært fé frá rekstri var nei- kvætt um 53 milljónir kr. en var nei- kvætt um 7 milljónir kr. árið 2010. Í árslok 2011 nam handbært fé 5.000 kr. Í fyrra nam innborgað hlutafé 37 milljónum króna og 64 milljónum króna árið áður, samtals 101 milljón króna. Samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskrár Ríkisskattstjóra í lok maí í ár var þá greitt inn hlutafé að fjárhæð 26 milljónir króna. Í októ- ber sl. greindi Morgunblaðið frá því að DV ehf. hefði verið veitt 15 millj- óna króna skammtímalán með það fyrir augum að því yrði breytt í hlutafé. Í sömu frétt var sagt frá því að stjórn félagsins áformaði að auka hlutafé um allt að 65 milljónir króna. Þar kom einnig fram að þessar 15 milljónir væru hluti af skattaupp- gjöri félagsins, en áður hafði verið greint frá því að um mitt ár skuldaði það samtals 76 milljónir króna í stað- greiðslu skatta og tryggingagjald. Starfsmönnum DV fækkaði úr 43 í 39 á milli áranna 2010 og 2011 en launakostnaður jókst úr 168 milljón- um kr. í 241 milljón kr., eða um 43%. DV tapaði 83 milljónum í fyrra  Óefnislegar eignir aukast verulega Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.