Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Herskarar lögmanna á vegum demókrata og repúblikana hafa bú- ið sig undir hugsanleg málaferli vegna sögulegra forsetakosninga sem fram fóru í Bandaríkjunum í gær. David Beattie, sem vinnur úr niðurstöðum skoðanakannana fyrir demókrata, spáði málaferlum í Flórída og Ohio hver sem niður- staða kosninganna yrði. „Ég yrði sem þrumu lostinn ef ekki kæmi til málaferla,“ hefur Los Angeles Tim- es eftir Beattie. „Demókratar líta svo á þau geti haft fordæmisgildi fyrir framkvæmd kosninga í fram- tíðinni. Og repúblikanar fara í mál ef Obama nær kjöri vegna þess að þeir hafa engu að tapa.“ Flokkarnir deila meðal annars um þá ákvörðun ríkisþingsins í Flórída, þar sem repúblikanar eru í meirihluta, að stytta þann tíma sem fólk gat notað til að greiða atkvæði utan kjörfundar, m.a. með því að heimila ekki atkvæðagreiðslur á sunnudögum. Demókratar segja að markmiðið með þessu hafi verið að draga úr kjörsókn hópa sem eru lík- legir til að kjósa Obama, til að mynda blökkumanna. Ákvörðunin varð til þess að kjósendur þurftu að bíða tímunum saman í löngum röð- um sem mynduðust á kjörstöðum, einkum á þéttbýlustu stöðunum í Suður-Flórída þar sem fylgi demó- krata er yfirleitt mikið. Að sögn The New York Times gætu lagaþrætur demókrata og repúblikana leitt til málaferla í allt að sex ríkjum þar sem lítill munur er á fylgi frambjóðendanna. Söguleg niðurstaða Viðbúið er að það dragist að niðurstaða kosninganna verði til- kynnt endanlega í nokkrum ríkjum þar sem mjótt er á munum. Í nokkr- um ríkjum sem gætu ráðið úrslit- um, m.a. Flórída, Ohio og Pennsylv- aníu, ber yfirvöldum skylda til að láta endurtelja atkvæðin ef munur- inn er 0,5 prósentustig eða minni. Í nokkrum ríkjum verða utan- kjörfundaratkvæði talin síðar í mánuðinum. Hugsanlegt er til að mynda að lokaniðurstaðan í Ohio verði ekki tilkynnt fyrr en eftir þakkargjörðardaginn 29. nóvem- ber, að sögn The Wall Street Journ- al. Ástæðan er sú að í Ohio var hægt að póstleggja utankjörfundar- atkvæði þar til á mánudag en til að þau teljist gild þurfa þau að berast fyrir 16. nóvember. Hver sem niðurstaða kosning- anna verður er ljóst að hún verður söguleg. Fari Barack Obama með sigur af hólmi verður það í fyrsta skipti frá síðari heimsstyrjöldinni að forseti Bandaríkjanna nær endurkjöri þegar atvinnuleysið er yfir 7,4%. Það er núna 7,9%. Beri Mitt Romney sigur úr býtum í bar- áttunni um Hvíta húsið verður hann fyrsti mormóninn til að gegna for- setaembættinu. Kosningabarátta Romneys og Obama var einnig söguleg vegna þess að hún er sú dýrasta í sögu Bandaríkjanna, kostaði alls sex milljarða dollara, eða rúma 750 milljarða króna, að sögn fréttastof- unnar AFP. AFP „Obama sigrar“ Töfralæknir úr röðum indíána í Perú við athöfn í Líma þegar töfralæknar ákölluðu guðina og báðu þá að svara því hver yrði kjörinn forseti Bandaríkjanna. Svar guðanna var að Obama færi með sigur af hólmi. Málaferlum spáð eftir kosningarnar  Herskarar lögmanna búa sig undir lagaþrætur fyrir dóm- stólum eftir sögulegar forsetakosningar í Bandaríkjunum AFP Obama Forsetinn felldi tár á síðasta kosningafundinum í Iowa. Kosningafyrirkomulagið RepúblikaniDemókrati kjósa Þeir kjósa Barack Obama Mitt Romney 6. nóv. 2012 kjörmenn alls 538 forsetann kjörmannaráð Kjósendurnir Sigurvegarinn fær alla kjörmennina Sá frambjóðandi sem fær flest atkvæði í viðkomandi ríki fær alla kjörmenn þess Þetta fyrirkomu- lag er notað í öllum ríkjunum nema Nebraska og Maine Til að ná kjöri þarf frambjóðandi að fá að minnsta kosti 270 atkvæði í kjörmannaráðinu Fjöldi kjörmanna hvers ríkis fer eftir íbúatölunni AFP Romney Forsetaefni repúblikana á kosningafundi í New Hampshire. Í kosningunum í gær kusu Bandaríkjamenn kjörmannaráð sem velur forsetann endan- lega. Kjörmenn hvers ríkis eiga að koma sam- an fyrsta mánudag eftir annan miðvikudag desembermánaðar til að greiða atkvæði. Fjöldi kjörmanna hvers ríkis er í jöfnu hlutfalli við fjölda þingmanna þess í öldungadeildinni og fulltrúadeildinni og sá frambjóðandi sem fær flest atkvæði í ríkinu fær alla kjörmenn þess (nema í Nebraska og Maine). Flestir kjör- mannanna koma úr röðum forystumanna flokkanna í kjördæmunum. Þessu fyrir- komulagi mun hafa verið komið á til að auka pólitískt vægi Suðurríkjanna, sem voru með færri kjósendur en efna- hagslega öflug, auk þess sem kjörmannaráðið átti að vera nokkurs kon- ar öryggisventill ef yfirstéttinni hugnaðist ekki val kjósendanna. Forsetinn kosinn í desember KJÖRMANNARÁÐ VELUR ÞJÓÐHÖFÐINGJANN ENDANLEGA Kona úr röðum repúblik- ana á fundi með Romney.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.