Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 Tri ehf. Suðurlandsbraut 32 104 Reykjavík www.tri.is Verslunin er opin: Alla virka daga kl. 09:00-18:00 Laugardaga kl. 10:00-16:00 CUBE CROSS RACE Árgerð 2013 Verð: 259,990 kr. Gunnar Rögnvaldsson skrifar:    Þýska lyfjafyrir-tækið Merck KGaA vill ekki leng- ur afhenda krabba- meinslyfið Erbitux til sjúkrahúsa í op- inberum rekstri í Grikklandi. Þetta segir talsmaður fyr- irtækisins úr aðalstöðvum þess í Darmstadt í dag.    Sjálfur yfirmaður fjármála hjáMerck KGaA, Matthias Zachert, segir enn fremur í samtali við Kaup- hallartíðindi Þýskalands, að sjúkra- hús í opinberum rekstri í Suður- Evrópu-Evrópusambandsins séu þau sjúkrahús sem verst fara út úr evru- upptöku Evrópusambandsins.    Hann segir að Grikkland sé ennsem komið er eina landið í heiminum sem fyrirtækið neitar að afhenda lyfið til. Spánn sleppur enn sem komið er, en naumlega, fyrir horn forstjórnar Merck KGaA í sam- einuðu Þýskalandi.    Grikkland gekk í Evrópusam-bandið árið 1981 – fyrir 31 ári síðan – og hefur á því tímabili þegið 97 milljarða evra af styrkjasukki frá aðalstöðvum Evrópusovétsambands- ins í Brussel. Þeir áttu að byggja samfélag Grikkja upp. Þann 1. janúar 1999 var evru- sogrörs-mynt Evrópusambandsins hleypt af stokkunum úr skipa- smíðastöð ECB-aukaseðlabanka Þýskalands, eftir misheppnuðustu ríkjasameiningu veraldarsögunnar.    Tilgangur myntarinnar af Þýska-lands hálfu frá upphafi, var að bjarga rústuðum efnahag sameinaðs Þýskalands sem þá hét hinn sjúki maður Evrópu, á kostnað annarra ríkja heimsálfunnar.“ Gunnar Rögnvaldsson Hinn nýsjúki maður Evrópu fær ekki lyf STAKSTEINAR Veður víða um heim 6.11., kl. 18.00 Reykjavík 3 rigning Bolungarvík -1 skýjað Akureyri -3 alskýjað Kirkjubæjarkl. 0 snjókoma Vestmannaeyjar 3 rigning Nuuk 0 skýjað Þórshöfn 2 skýjað Ósló 0 skýjað Kaupmannahöfn 7 skýjað Stokkhólmur 1 léttskýjað Helsinki 1 skýjað Lúxemborg 6 heiðskírt Brussel 8 léttskýjað Dublin 8 skýjað Glasgow 11 skýjað London 8 skúrir París 8 léttskýjað Amsterdam 8 léttskýjað Hamborg 7 skýjað Berlín 6 heiðskírt Vín 7 skýjað Moskva 7 skúrir Algarve 17 heiðskírt Madríd 12 heiðskírt Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 15 skúrir Róm 15 léttskýjað Aþena 23 skýjað Winnipeg 1 slydda Montreal 0 skýjað New York 2 heiðskírt Chicago 5 alskýjað Orlando 20 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:33 16:51 ÍSAFJÖRÐUR 9:53 16:41 SIGLUFJÖRÐUR 9:36 16:23 DJÚPIVOGUR 9:06 16:17 Engar umræður áttu sér stað um umsögn atvinnu- veganefndar Alþingis um rammáætlun á fundi nefndarinnar í gær að sögn Sigurðar Inga Jó- hannssonar, þingmanns Framsóknarflokksins og fulltrúa í nefndinni, en nefndin átti upphaflega að skila af sér umsögn- inni fyrir fyrsta nóv- ember. „Henni var gefinn einhver frestur í nokkra daga í viðbót en það hefur ekki farið nein umræða fram í atvinnuvega- nefnd um þá umsögn,“ segir Sigurður Ingi. Aðspurður hvenær hann eigi von á að nefndin taki umsögnina til umræðu seg- ir Sigurður Ingi að nefndin muni funda næstkomandi fimmtudag og að málið hljóti að vera til umfjöllunar þá. Sigurður segist sjálfur ætla að taka mál- ið upp í nefndinni á fimmtudaginn ef aðrir nefndarmenn gera það ekki. Atvinnuveganefnd á enn eftir að skila umsögn sinni Sigurður Ingi Jóhannsson „Við áttum alveg von á því að það gætu orðið tafir. Til skamms tíma hefur þetta lítil áhrif á starfsemi okkar,“ segir Reynir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Strætó bs. um hvaða áhrif það hefur á fyrirtækið að kærunefnd útboðsmála hafi stöðvað útboð þess á meðan farið er yfir kæru sem barst henni. Það voru fyrirtækin Kynnisferðir og VDL Bus & Coach B V sem lögðu fram kæru en umsóknir þeirra voru taldar ófullnægjandi að mati valnefndar. Strætó hafði aug- lýst eftir aðilum sem væru áhuga- samir um að ganga til samkeppn- isviðræðna vegna endurnýjunar á strætisvögnum. Samningskaupin voru auglýst á EES-svæðinu og átti innkaupaferlinu að ljúka með rammasamningi við einn til þrjá aðila til allt að sex ára með möguleika á framlengingu til allt að þriggja ára, til eins árs í senn. Heildarárafjöldi ramma- samningsins getur því orðið níu ár. Innkaupaskrifstofa Reykjavík- urborgar tilkynnti Kynnisferðum og VDL í byrjun október sl. að um- sókn þeirra uppfyllti ekki kröfur sem gerðar voru í samnings- kaupalýsingu. Borgin setti fyrir sig að gögnin hefðu ýmist verið óund- irrituð eða sett fram einhliða af Kynnisferðum án þess að frekari aðkoma VDL yrði ráðin af gögn- unum. Þessu mótmæltu fyr- irtækin. Í niðurstöðu kærunefndar segir: „Var það mat nefndarinnar í því máli að miðað við fyrirliggjandi gögn væru verulegar líkur á því að brotið hefði verið gegn ákvæðum laga nr. 84/2007 eða reglum settum samkvæmt þeim og stöðvaði því innkaupaferlið þar til endanlega hefur verið leyst úr ágreiningi aðila.“ Útboð Strætó stöðvað eftir kæru tveggja fyrirtækja  Hefur ekki áhrif á starfsemi Strætó, segir framkvæmdastjóri Strætó Endurnýja þarf 90 vagna á næstu tíu árum. Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.