Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012
Diesel.is | Klettháls 15 | 110 Reykjavík | Sími 578 5252 | diesel@diesel.is
www.fiat500.is
SKANNAÐU KÓÐANN OG
SKOÐAÐU MÁLIÐ BETUR
G
R
A
F
IK
E
R
.IS
2.670 ÞÚS. KR.*
NÝR FIAT 500 LOUNGE 2013 VERÐ KR.
Eyðir aðeins 4.8L á hundraði í blönduðum akstri.
*Miðað við gengi á euro 159
KYNNA&
laugardaginn 24.nóvember.
Í jólablaðinu í ár komum við víða við, heim-
sækjum fjölda fólks og verðum með fullt af
spennandi efni fyrir alla aldurshópa.
Jólablaðið er flottasta sérblaðið
sem Mogginn gefur út og er eitt
af vinsælustu blöðum lesenda.
SÉRBLAÐ
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
19.nóvember
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569-1105
kata@mbl.is
Uppáhalds jólauppskriftirnar.•
Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að•
borða á aðventu og jólum.
Villibráð.•
Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur.•
Smákökur.•
Eftirréttir.•
Jólakonfekt og sælgæti.•
Grænmetisréttir og einnig réttir fyrir•
þá sem hafa hollustuna í huga þegar
jólin ganga í garð.
Vínin með veislumatnum í ár•
Gjafapakkningar.•
Tónlistarviðburðir, söfn, kirkjur á aðventu•
og í kringum jólahátíðina.
Kerti og aðventukransar.•
Jólagjafir•
Heimagerð jólakort.•
Jólaföndur.•
Jólabækur og jólatónlist.•
Jólaundirbúningur með börnunum.•
Margar skemmtilegar greinar sem•
tengjast þessari hátíð ljóss og friðar.
MEÐAL EFNIS:
– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið gefur út
stórglæsilegt jólablað
JÓLABLAÐ
Breski kaupsýslumaðurinn Neil
Heywood hafði veitt bresku leyni-
þjónustunni MI6 upplýsingar áður
en hann var myrtur í Kína fyrir
ári, að sögn bandaríska dagblaðs-
ins The Wall Street Journal í gær.
Blaðið kveðst hafa heimildir fyr-
ir því að Heywood hafi verið í
sambandi við njósnara MI6 í að
minnsta kosti ár og veitt honum
upplýsingar um Bo Xilai sem var
leiðtogi kommúnistaflokksins í
stórborginni Chongqing þar til
hann var sviptur öllum embættum
sínum fyrr á árinu. Eiginkona Bo
Xilai var þá sökuð um morðið á
Neil Heywood sem fannst látinn í
hótelherbergi í Chongqing. Eigin-
konan var síðar dæmd til dauða
fyrir morðið en búist er við að
dómnum verði breytt í lífstíðar-
fangelsi. Bo Xilai hefur verið svipt-
ur þingsæti og þar með friðhelgi
frá ákæru og búist er við að hann
verði sóttur til saka fyrir að hafa
misnotað völd sín og þegið mútur.
Hvorki játar né neitar
William Hague, utanríkis-
ráðherra Bretlands, sagði í apríl
þegar hann svaraði fyrirspurn
þingmanns um meint tengsl
Heywoods við leyniþjónustuna að
það hefði lengi verið stefna
breskra stjórnvalda að „hvorki játa
né neita vangaveltum af þessu
tagi“. Hann gæti þó staðfest að
Heywood hefði ekki „verið starfs-
maður bresku stjórnarinnar“ með
nokkrum hætti.
The Wall Street Journal hefur
eftir heimildarmönnum sínum, m.a.
breskum embættismönnum, að
þetta sé „tæknilega rétt“ vegna
þess að Heywood hafi ekki fengið
greitt fyrir upplýsingarnar sem
hann veitti bresku leyniþjónust-
unni.
Fréttaritari breska ríkisútvarps-
ins segir að ef breska stjórnin hafi
vitað um tengsl Heywoods við
leyniþjónustuna vakni spurningar
um hvers vegna hún hafi ekki beitt
sér fyrir rannsókn á morðinu um
leið og hún frétti af dauða hans. Í
fyrstu var því haldið fram að
Heywood hefði dáið vegna áfengis-
eitrunar. bogi@mbl.is
Sagður hafa veitt
MI6 upplýsingar
Heywood tengdur njósnum um Bo?
AFP
Fallinn í ónáð Bo Xilai var valda-
mikill í kommúnistaflokki Kína.
Karl Bretaprins og eiginkona hans, Camilla hertogaynja, fylgjast spennt
með kappreiðum sem fram fóru í Melbourne í Ástralíu í gær. Þau eru í sex
daga opinberri heimsókn í landinu í tilefni af því að sex áratugir eru liðnir
frá því að móðir Karls, Elísabet, varð drottning Bretlands. Karl ríkisarfi og
Camilla voru áður í Papúa Nýju-Gíneu, þar sem þau fengu mjög hlýjar við-
tökur, og ætla að heimsækja Nýja-Sjáland eftir Ástralíuferðina.
AFP
Andfætlingar heimsóttir
Yfirvöld í indverska ríkinu Rajast-
han hafa blásið til herferðar gegn
þeim ósið margra íbúanna að
skvetta úr skinnsokknum eða tefla
við páfann utandyra.
Yfirvöldin hafa fengið til liðs við
sig sjálfboðaliða sem eiga að
„hrópa, berja trumbur og blása í
flautur“ ef þeir standa einhvern að
því að gera þarfir sínar á almanna-
færi, að því er fréttavefur breska
ríkisútvarpsins hefur eftir ind-
verskum embættismanni.
Að sögn fréttaritara BBC er al-
gengt að sjá menn kasta af sér vatni
eða ganga örna sinna utandyra víða
á Indlandi, enda býr um helmingur
landsmanna í íbúðum án salerna. Í
bæjum og þorpum í dreifbýlinu sé
algengt að íbúarnir haldi þessu
áfram þótt þeir séu komnir með sal-
erni í húsin sín. Yfirvöld í Jhunjh-
unu-héraði í Rajasthan vilja nú upp-
ræta þennan ósóma. „Tæp 80% íbúa
héraðsins eru með salerni á heim-
ilum sínum og við erum að reyna að
fá hin 20% til að setja salerni í hús-
in,“ hefur BBC formanni héraðs-
ráðs Jhunjhunu.
Berja trumbur og blása í flautur til
að fá þorpsbúana til að nota salerni
INDLAND
Bannað Það verður ekki liðið að menn
kasti af sér vatni utan dyra.
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/