Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 9
Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 Guðjón Sigur- bjartsson, við- skiptafræðingur, býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík vegna komandi al- þingiskosninga. Guðjón er framkvæmdastjóri Tanna auglýsingavara. Hann hefur lengi skrifað greinar í blöð og tjáð sig á netmiðlum, meðal annars um mikilvægi þess að skapa góð skil- yrði fyrir vöxt nýrra útflutnings- atvinnugreina. Hann vill ekki láta draga til baka umsóknina um aðild að ESB og tel- ur þörf á að huga að upptöku evru. Stefnir á 5. sæti Þorsteinn Magnús- son, lögmaður, sækist eftir að skipa 2.-3. sæti á framboðslista Framsóknar- flokksins í Reykja- vík. Í tilkynningu segist Þorsteinn m.a. vilja leggja áherslu á að bæta skilyrði fyrir atvinnuuppbyggingu og nýfjárfestingu ásamt því að skapa fyrirtækjum hagstæðara rekstrarumhverfi. Þorsteinn hefur starfað í fjár- málaráðuneytinu, sem lögmaður á lögmannsstofunni LEX og var ný- verið ráðinn framkvæmdastjóri óbyggðanefndar. Sækist eftir 2.-3. sæti Una María Ósk- arsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1.-2. sæti á lista Framsókn- arflokksins í Suðvestur- kjördæmi fyrir al- þingiskosningar næsta vor. Una María er uppeldis- og menntunarfræðingur og lauk ný- lega meistaranámi í lýðheilsuvís- indum frá Háskóla Íslands. Una María er núverandi forseti Kvenfélagasambands Íslands. Hún hefur verið varabæjarfulltrúi fyrir Framsóknarflokkinn í Kópavogi frá 2002, er formaður íþróttaráðs Kópavogs og gegnir þar fleiri trún- aðarstörfum. Framboð í 1.-2. sæti Leiðrétt Flugfélagið Ernir Launakostnaður og innlendur kostnaður hjá Flugfélaginu Erni er í kringum 45% af brúttótekjum, en ekki af rekstrarkostnaði, eins og sagði í fréttaskýringu í gær. Kostn- aður sem ræðst af gengi erlendra gjaldmiðla er um 65% af brúttó- tekjum. Þetta gerir 110% en um 10% tap var á rekstrinum fyrstu átta mánuði ársins. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Vinsælu Gino stretchbuxurnar komnar, í tveimur síddum St. 38-52 Guerlain kynning 20% kynningar afsláttur dagana 7.-9. nóvember í Snyrtvöruverluninni Glæsibæ Sigrún Inga kynnir nýja farðann PARURE DE LUMIÉRE frá Guerlain Glæslegur kaupauki fylgir með tveimur keyptum vörum Verið velkomin Sími 568 5170 www.birkiaska.is Bodyflex Strong Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. Laugavegi 63 • S: 551 4422 TILBOÐ 7. - 10. NÓVEMBER Vertu vinur á SKOÐAÐU YFIRHAFNIR Á LAXDAL.IS NÝ ÚLPUSENDING FISLÉTTAR, MEÐ HETTU - STÆRÐIR 36 – 52 Aðhaldsföt Sundbolir Undirföt Sloppar Tankini Náttföt Bikini Mjóddin s. 774-7377 Frú Sigurlaug Erum flutt í stærr a húsnæði í Mjódd Félagsmiðstöðvadagurinn er í dag, 7. nóvember. Að honum standa fé- lagsmiðstöðvar á Íslandi og SAMFÉS. Markmið þessa dags er að gefa ung- um og öldnum tækifæri til að heimsækja fé- lagsmiðstöðina í sínu hverfi, kynnast því metn- aðarfulla fagstarfi sem þar fer fram, ungling- unum sjálfum og dag- legum viðfangsefnum þeirra. Allir eru velkomn- ir, sérstaklega foreldrar og „gamlir“ unglingar sem vilja rifja upp kynnin við gömlu félagsmiðstöðina sína. Félagsmiðstöðvar í Reykjavík taka af þessu tilefni vel á móti gestum frá klukkan 18.00 og fram á kvöld. Unglingarnir og unglingaráð félagsmið- stöðvanna bera hitann og þungann af undirbúningi dagsins í Reykjavík með fjölbreyttri dagskrá. Unglingamenningin blómstrar í dag Stuð Unglingar á balli í félagsmiðstöð. Morgunblaðið/Golli Sigmundur Ernir Rúnarsson, alþingismaður, býður sig fram í 1. til 3. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi sem fram fer um næstu helgi, 9. og 10. nóvember. Sigmundur Ernir hefur setið á Alþingi frá 2009 og einkum fengist við ríkisfjármál og fjárlagagerð, en hann er nú varaformaður fjárlaganefndar Alþingis. Í tilkynningu frá Sigmundi segir að helstu baráttamál hans varði aukinn jöfnuð, ekki síst byggðajöfnuð, en hann vill færa aukin völd frá ríki til sveitarfélaga. „Sigmundur Ernir hefur beitt sér rækilega í atvinnu- málum innan þings, svo sem uppbyggingu ferðaþjónustu úti á landi og þá ekki síður í samgöngumálum og upp- byggingu á sviði mennta- og heilbrigðismála,“ segir ennfremur í tilkynn- ingunni. Býður sig fram í 1. til 3. sæti Sigmundur Ernir Rúnarsson mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.