Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012
Bandaríska flugfélagið Delta Air-
lines staðfesti í gær að sumar-
áætlun félagsins á flugleiðinni milli
John F. Kennedy flugvallar í New
York og Keflavíkurflugvallar muni
hefjast að nýju 3. júní á næsta ári.
Flogið verður allt að sex sinnum í
viku yfir hásumarið á Boeing 757-
200 vél sem tekur 170 manns í sæti.
Samstarfsaðili Delta á flugleiðinni
er Air France KLM. Í tilkynningu
er haft eftir Perry Cantarutti, að-
stoðarforstjóra Delta, að Reykjavík
njóti síaukinna vinsælda sem
áfangastaður meðal bandarískra
ferðamanna og það liggi beinast við
að bjóða þessa þjónustu yfir
sumarmánuðina.
Farþegar í vélum Delta munu
m.a. geta tengst netinu allan tím-
ann sem flugferðin stendur yfir.
APF
Innskráning Við innskráningarborð Delta.
Fljúga allt að 6 sinn-
um í viku til Íslands
Fimm umsóknir
bárust um dóm-
araembætti við
Hæstarétt.
Umsækjendur
eru: Aðalheiður
Jóhannsdóttir,
prófessor við
lagadeild Há-
skóla Íslands,
Arnfríður Einarsdóttir, dómari við
Héraðsdóm Reykjavíkur, Ása
Ólafsdóttir, lektor við lagadeild Há-
skóla Íslands, Ingveldur Einars-
dóttir, dómari við Héraðsdóm
Reykjavíkur, og Þorgeir Ingi Njáls-
son, dómstjóri Héraðsdóms Reykja-
ness.
Umsóknirnar hafa verið sendar
dómnefnd sem metur hæfni um-
sækjenda.
Fimm sækja um
dómaraembætti
Fyrsti fundur í fundaröð um fyrir-
hugaðar breytingar á stjórnarskrá
Íslands verður haldinn á föstudag í
Hátíðarsal Háskóla Íslands klukkan
12-14.
Fundaröðin er skipulögð af
Lagadeild, Stjórnmálafræðideild
og Stofnun stjórnsýslufræða og
stjórnmála við Háskóla Íslands í
samvinnu við Háskólann í Reykja-
vík, Háskólann á Bifröst og Háskól-
ann á Akureyri.
Fundaröð um
stjórnarskrána
STUTT
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Nemendur, bæði í 4. og 7. bekk,
bæta sig í stærðfræði milli ára,
samkvæmt niðurstöðu samræmdra
könnunarprófa, 4. og 7. bekkja í ís-
lensku og stærðfræði. Nemendur í
nágrenni Reykjavíkur, komu best
út í stærðfræði og íslensku í sjö-
unda bekk.
Meðaleinkunn nemenda í ís-
lensku í fjórða bekk var 6,1 sem er
aðeins lakari en í fyrra. Nemendur
í nágrenni Reykjavíkur fengu að
meðaltali 6,3 og Norðvesturkjör-
dæmi 5,7. Þá fengu fimm einstak-
lingar 10 í einkunn.
Í sjöunda bekk var meðalein-
kunnin í íslensku 6,6 sem er hærri
en í fyrra. Nemendur í nágrenni
Reykjavíkur fengu að meðaltali 6,7
og í Suðurkjördæmi 6,2. Fjórtán tí-
ur voru gefnar í íslensku.
Í stærðfræði fjórða bekkjar var
meðaleinkunnin 6,9 sem er talsverð
hækkun frá því í fyrra. Nemendur í
nágrenni Reykjavíkur og í Suður-
kjördæmi fengu 7 og í Norðvest-
urkjördæmi 6,5.
Stærðfræðiprófið í ár kemur bet-
ur út en í fyrra, meðaleinkunnin
var 6,9. Nemendur í nágrenni
Reykjavíkur hlutu 7,2.
Gefa góða mynd af stöðunni
„Prófin eru mjög góð til að gefa
mynd af stöðu einstaklinga. Við
horfum fyrst og fremst á að ein-
staklingsniðurstöðurnar séu stöðug-
ar. Þetta eru góðar viðbótarupplýs-
ingar við það námsmat sem fer
fram í skólunum,“ segir Sigurgrím-
ur Skúlason, sviðsstjóri hjá Náms-
matsstofnun.
Skiptingin milli svæða er líkt og
tíðkast í kjördæmaskiptingu nema
Reykjavík er eitt kjördæmi. Ná-
grenni Reykjavík nær frá Hafn-
arfirði og norður í Mosfellsbæ.
Stærðfræðin
sækir í sig veðrið
Nemendur í nágrenni Reykjavíkur standa sig vel
Samræmd könnunarpróf í 4. bekk
Re
yk
ja
vík
Ná
gr
. R
ey
kj
av
ík
ur
No
rð
ve
st
ur
kj
ör
d.
No
rð
au
st
ur
kj
ör
d.
Su
ðu
rk
jö
rd
æ
m
i
La
nd
ið
al
lt
Re
yk
ja
vík
Ná
gr
. R
ey
kj
av
ík
ur
No
rð
ve
st
ur
kj
ör
d.
No
rð
au
st
ur
kj
ör
d.
Su
ðu
rk
jö
rd
æ
m
i
La
nd
ið
al
lt
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
6,2 6,3
5,7
6,1 6,0 6,1
6,4 6,3 6,2 6,4 6,1 6,3
6,9 7,0
6,5 6,8
7,0 6,9
6,5 6,6 6,6 6,5 6,6 6,5
Íslenska 2011 Íslenska 2012 Stærðfræði 2011 Stærðfræði 2012
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Það liggja mikil tækifæri í matvæla-
iðnaðinum á Íslandi, segir Sigrún
Elsa Smáradóttir, fagstjóri hjá Mat-
ís, en hún hélt erindi um grósku í
smáframleiðslu matvæla á ráðstefnu
um matvælaframleiðslu á Íslandi á
Hótel Sögu í gær, sem haldin var af
Bændasamtökum Íslands, Íslands-
stofu, Matís, Samtökum ferðaþjón-
ustunnar, Samtökum fiskvinnslu-
stöðva, Samtökum iðnaðarins og
Þróunarvettvangs á sviði matvæla.
„Það eru alls staðar tækifæri,“
segir Sigrún, „til að bæta vöru, búa
til nýja vöru eða verðmætari vöru,“
segir hún en tækifærin felist t.d. í
aukaafurðum, nýjum hráefnum og
breyttum vinnsluaðferðum.
Sigrún segir að með smáfram-
leiðslu eigi hún við framleiðslu sem
sé lítil í sniðum. Hún sé oft uppruna-
tengd og nefnir Sigrún sem dæmi
bændur sem vinni úr eigin afurðum
og auki þannig verðmæti þeirra.
„Svo eru líka framleiðendur sem
eru að taka til sín aukaafurðir frá
öðrum og vinna þær og búa til afurð-
ir úr þeim,“ segir Sigrún. „Í dag eru
t.d. tæpir 8 milljarðar sem skapast í
gjaldeyristekjur vegna ýmissa af-
urða úr þorskhausum,“ segir hún en
hausunum hafi meira og minna verið
hent ekki alls fyrir löngu.
Sigrún segir Matís hafa komið að
fjöldamörgum verkefnum í nýsköp-
un í matvælaiðnaði og hafi frá 2008
m.a. rekið svokallaðar matarsmiðjur,
þar sem einstaklingar og lítil fyrir-
tæki hafi átt kost á því að þróa vörur
sínar í vottaðri aðstöðu.
Fæðubótarefni úr þangi
Eitt af verkefnunum sem vistað er
hjá Matís er Vöruþróunarsetur sjáv-
artúvegsins. „Í gegnum það verkefni
erum við að vinna með einstakling-
um og fyrirtækjum, og í sumum til-
fellum þessum matarsmiðjum, en á
þessu ári eru þetta alls 40 verkefni.
Dæmi um þau eru t.d. umbúðir til að
flytja lifandi humar út, ný aðferð við
að reykja fisk, byggþarapasta, fæðu-
bótarefni úr þangi og majónes sem
inniheldur omega 3,“ segir Sigrún.
Hún segir að vitundarvakning hafi
orðið hér á landi um að nýta það sem
vex í garðinum heima en á sama tíma
hafi vaxandi fólksfjöldi í heiminum
gert það að verkum að nýta þurfi líf-
massa til matvælaframleiðslu til hins
ýtrasta. Þá kalli loftslagsbreytingar
á að land sé ræktað þar sem það er
hægt.
„Það eru t.d. gríðarlegir ræktun-
armöguleikar fyrir hendi á Íslandi
og þeir fara bara vaxandi. M.a.
vegna möguleika sem tengjast líf-
tækni og eins með hlýnandi lofts-
lagi,“ segir Sigrún en fiskeldi sé önn-
ur búgrein sem Íslendingar ættu að
líta til í auknum mæli.
Gríðarlegir
möguleikar í
matvælaiðnaði
Reka matarsmiðjur fyrir frumkvöðla
Morgunblaðið/Golli
Matur Sigrún segir að rækta þurfi
land hvar sem það er hægt.
„Sjöundabekkjar prófið í stærð-
fræði er þannig staðsett gagn-
vart námskrá að það er erfitt að
leggja fram krefjandi efni, án
þess að vera ósanngjarn.
Stærðfræðiprófið er yfirleitt
létt fyrir góða nemendur. Það
eru ákveðin vatnaskil í stærð-
fræði við áttunda og níunda
bekk,“ segir Sigurgrímur Skúla-
son.
59 einstaklingar fengu tíu í
einkunn í stærðfræði í ár, á móti
fimm einstaklingum sem hlutu
tíu í einkunn í fyrra.
Létt fyrir
góða krakka
STÆRÐFRÆÐI Í 7. BEKK