Morgunblaðið - 07.11.2012, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.11.2012, Qupperneq 11
Endurnýting Afgreiðsluborðið er úr vörubrettum og kaffisekkjum og húsgögnin mörg notuð og hlýleg. um sem eru komnir á bragðið og líta við daglega.“ Pálmar lagði sig eftir því að skapa notalega stemningu inni á kaffihúsinu og segir gamla hornsóf- ann vera vinsælan hjá gestum. „Þessi sófi fylgdi húsnæðinu en ég vil endurnýta hluti og þess vegna er afgreiðsluborðið gert úr vörubrett- um og kaffisekkjum. Nafnið á kaffi- húsinu kemur einnig þaðan, en vörubretti er pallett á ensku. Við tölum líka um bragðpallettu í kaffi- heiminum. Sá sem er með „góða pallettu“ er næmur á bragð og áferð. Ég vildi hafa hús- næðið svolítið iðn- aðarlegt, gólfið er lakkað, loftið hrátt og bárujárn- ið hér inni minnir á gamla bæinn.“ Indversk temjólk Pálmar segir að innan nokkurra ára ætli hann að flytja sjálfur inn kaffibaunir og rista þær sjálfur. „Núna legg ég áherslu á að kaupa kaffi af þremur íslensk- um kaffibrennslum, Te & kaffi, Kaffitári og Kaffismiðju Íslands. Þetta geri ég markvisst til að geta boðið upp á fjölbreytni í kaffinu.“ En hann býður ekki aðeins upp á kaffi lagað af ástríðu heldur er hann líka með afar gómsætt heitt súkku- laði, annars vegar 64% bragðmikið súkkulaði frá Madagaskar og hins vegar ljóst 36% súkkulaði frá Srí Lanka, sem er sætara og rjóma- kenndara. Indverska temjólkin hans hefur einnig vakið mikla lukku, en í hana notar hann bragðmikinn te- grunn sem í er m.a kanill, negull, engifer og hunang. Að finna Guð í bollanum Pálmar segir að hráefnið skipti höfuðmáli þegar kemur að gæðum í kaffibolla. „Hráefnið þarf að vera vel unnið hjá bóndanum sem ræktar kaffið og það þarf að vera ferskt. Vélbúnaður verður að vera tand- urhreinn og baunirnar verða að vera malaðar skömmu áður en kaffið er lagað. Alúðin sem lögð er í lögun kaffisins skiptir líka miklu máli. Það er áríðandi að bera boll- ann fram með bros á vör og láta fólki líða vel á meðan það drekkur sitt kaffi. Hér eru allir kaffibollar sérlagaðir fyrir hvern og einn við- skiptavin,“ segir Pálmar og bætir við að bæði sé það bölvunin og blessunin að kaffiheimurinn sé botnlaus brunnur af þekkingu og nýjum uppgötvunum. „Við erum alltaf að leita að hinum fullkoman kaffibolla, að reyna að finna Guð í bollanum. Vissulega tekst einstaka sinnum að búa til kaffi sem er létt, tært, bragðflókið, í fullkomnu jafn- vægi, en samt með bjarta sýrni og mjúka fyllingu. Þá er eins og stjörn- urnar hafi verið í réttri röð á réttu augnabliki, því það tekst sjaldnast að endurtaka algjörlega sama boll- ann, þó að það sé alltaf markmiðið. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil lifa og hrærast í þessu, að einstaka sinnum býr maður til guð- dómlegt kaffi, og reglulega gott kaffi þess á milli. Maður þreytist aldrei á að reyna að gera betur.“  Facebook: Pallett Kaffikompaní. Sýrni (acidity): Þægilega skarpt bragð í munni, misgreinilegt eftir tegundum, brennslustigi og aldri hrábauna. Ætti ekki að rugla við súrleika og ofgerjun sem eru gallamerki. Beiskja (bitter): Allar kaffibaunir eru beiskar frá náttúrunnar hendi og er beiskja ákjósanleg upp að vissu marki. Ristun og lögun hefur áhrif á beiskju í bollanum. Jafnvægi (balance): Kaffi sem er hvorki of hvasst (sýrnishátt), of sætt né of beiskt er sagt í góðu jafnvægi. Kósíhorn Gamli sófinn sem fylgdi húsinu er vinsæll meðal gesta. Falleg er hún mjólk- urlistin sem hann Pálmar stundar. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 gleraugu á verði fyrir ALLA ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS Þar sem gæðagleraugu kosta minna SJÓNARHÓLL Gleraugnaverslunin Sjónarhóll býður þér ...frábæra þjónustu ...hágæða vöru ...hlýlegt viðmót og ...lágt vöruverð 4.900 9.900 14.900 19.900 24.900 Verð umgjarða Margverðlaunuð frönsk gæðagler líttu við!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.