Morgunblaðið - 07.11.2012, Side 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
ÁRSALIR
FASTEIGNAMIÐLUN
533 4200
FASTEIGNASALA
FYRIRTÆKJASALA - LEIGUMIÐLUN
.... Hafðu samband
Skuldavandi heimila
er mikill en það er
mikilvægt að koma
fram með hugmyndir
til að leysa þann
vanda. Ég legg hér
fram fimm hugmyndir.
1. Sparnaðarleiðin
2. Sparnaðarleiðin
fyrir fyrstu íbúðakaup
3. Vísitöluleiðin
4. Hættum að nota
3,5% uppgjörsreglu
hjá lífeyrissjóðunum
5. Leiðrétting í gegnum skatt-
kerfið
Sparnaðarleiðin
Það má ekki gleymast að fjárfest-
ing í húsnæði er hluti af sparnaði
heimila. Sá sparnaður ásamt lífeyr-
isréttindum og frjálsri séreign er án
nokkurs vafa algengasti sparnaður
Íslendinga. Það er rökrétt að leyfa
fólki að nýta séreignarsparnaðinn til
að greiða niður húsnæðisskuldir sín-
ar. Það er ólíklegt að ávöxtun á líf-
eyrissparnaðinum nái að vera jöfn
vaxtakostnaði húsnæðislána til
lengri tíma. Íslendingar hafa líka
lært það af biturri reynslu að sama
hvert árferðið er hverfa skuldirnar
ekki. Eignir geta bólgnað út eða
horfið en skuldirnar eru alltaf til
staðar. Ég legg því til að fólki verði
gert heimilt að nýta séreignarsparn-
aðinn sinn til að lækka húsnæð-
isskuldir. Bæði með því að nýta þá
inneign sem það á og einnig með því
að greiða inn á höfuðstól lánanna
næstu fimm árin í gegnum séreign-
arsparnaðar-fyrirkomulagið, þ.e.
nýta bæði eigin framlag og framlag
launagreiðanda, ásamt skattspörun
til þess að lækka höfuðstól lána og
þannig vaxtakostnað á komandi ár-
um.
Þessi leið myndi því líka nýtast
þeim sem eiga ekki inneign. Einnig
myndi hún nýtast þeim sem eru að
kaupa sér fyrstu íbúð. Hverjir eru
kostirnir?
1. Þetta léttir líf þeirra fjöl-
skyldna sem skulda og eiga inneign í
séreign eða eru að borga í séreign.
2. Fjárfestingaþörf lífeyrissjóð-
anna minnkar þar sem „eignir“
þeirra eru nýttar til að greiða niður
skuldir viðkomandi sjóðfélaga. Fjár-
festingaþörf lífeyrissjóðanna er mik-
ið vandamál þegar þeir geta ekki
fjárfest í útlöndum og það býður
heim hættunni á eignabólumyndun.
3. Þetta minnkar bankakerfið. Út-
lánasafnið minnkar sem og eignir
þeirra. Að sama skapi fækkar við-
skiptavinum í fjárhagsvanda.
4. Hér er leið ráðdeildar og sparn-
aðar nýtt til að greiða úr skulda-
vandanum.
5. Leiðin felur ekki í sér mis-
munun á milli einstaklinga, nema í
henni sé skattahvati það er að segja
að tekjuskattsprósentan sem tekin
væri af „útgreiðslunni“ væri lægri
en almennu skattprósenturnar. Ég
tel það vera réttlætanlegt að hafa
lága prósentu til að hjálpa fólki að
greiða niður skuldir sínar.
6. Þessi leið myndi styrkja lífeyr-
issjóðakerfið þar sem fleiri myndu
nýta sér viðbótarlífeyrissparn-
aðarkerfið. Árið 2008 var þátttakan í
viðbótarlífeyrissjóðakerfinu 81,3%
en er núna 58,2%.
7. Enginn kostnaður
lendir á skattgreið-
endum.
Sparnaðarleiðin
fyrir fyrstu íbúða-
kaup
Nákvæmlega sama
hugmynd. Það er að
segja: fólki verði gert
mögulegt að nota við-
bótarlífeyrissparn-
aðarkerfið til að borga
inn á fyrstu íbúðar-
kaup.
Vísitöluleiðin
Verðtrygging er ekki séríslenskt
fyrirbæri en það er afar sjaldgæft
að verðtrygging sé á húsnæð-
islánum. Reyndar þarf að fara til
Suður-Ameríku til að finna slík
dæmi ef marka má nýútkomna
skýrslu samtaka fjármálafyrirtækja
um efnið.
Verðtryggingin gerir það að verk-
um að við getum ekki nýtt hóflega
verðbólgu til að lækka skuldir eins
og gert er í nágrannalöndunum.
Þvert á móti mun verðbólga hækka
lánin og tel ég að það gæti haft mjög
alvarlegar afleiðingar í för með sér
fyrir lántakendur verðtryggðra
lána.
Því fylgir áhætta að ríkisvaldið
fari inn í samninga, eins og t.d. með
því að banna verðtryggingu á gerð-
um samningum, en ekkert mælir
gegn því að eigendur skulda og
greiðendur geri með sér sam-
komulag. Þannig getum við t.d.
skipt um vísitölu ef aðilar eru sam-
mála um það. T.d. var fólki gert
kleift að skipta yfir í greiðslujöfn-
unarvísitölu árið 2009 og sumar
lánastofnanir heimila það ennþá.
Flest bendir til þess að vísitala
neysluverðs muni verða sú vísitala
sem hækkar mest á næstu miss-
erum. Sú vísitala er mjög háð geng-
issveiflum. Þrýstingurinn á krónuna
er mikill og flestir telja að hann
muni aukast. Ef það gengur eftir þá
munu lánin hækka verulega. Mik-
ilvægt er að gefa fólki tækifæri til að
velja aðrar vísitölur á lánin sín sem
eru ekki jafn háðar gengissveiflum.
Það gæti verið áhugavert að skoða
fasteignavísitölu í því sambandi.
Koma þarf í veg fyrir að bygginga-
reglugerðir og önnur stjórnmála-
mannaverk hækki fasteignaverð að
óþörfu. Einnig er skynsamlegt að
ræða við lífeyrissjóðina um mögu-
leika á að skipta lánum Íbúðalána-
sjóðs yfir í óverðtryggð lán fyrir þá
sem það kjósa. Aðrar leiðir sem
miða að því að setja þak á verð-
tryggingu húsnæðislána á að skoða
með eigendum lánanna sem eru að
stærstum hluta lífeyrissjóðirnir.
Hugmyndir um lengingu lána og
lækkun vaxta eru sömuleiðis nokkuð
sem vert er að skoða. Þá sérstaklega
fyrir þá sem eru í mestu skuldaerf-
iðleikunum.
Ég trúi því að það sé hagur allra,
ekki síst lífeyrissjóðanna, að við
sjáum ekki aðra stökkbreytingu á
verðtryggðum lánum.
Hættum að nota 3,5% uppgjörs-
reglu hjá lífeyrissjóðunum
Uppgjörsregla lífeyrissjóðanna,
3,5% raunávöxtun, er óraunhæf til
langs tíma. Hún gerir það að verk-
um að vaxtagólf myndast fyrir hús-
næðislán og býr til óraunhæfar
væntingar til lífeyrisréttinda. Málið
er einfalt, hættum að miða við hana.
Hún er barn síns tíma og á ekki við í
nútíð eða framtíð og skapar vand-
ræði.
Leiðrétting
í gegnum skattkerfið
Vandamálið er þekkt. Þau heimili
sem keyptu húsnæði á árunum 2006
til 2008 hafa orðið fyrir mestum
skakkaföllum. Til að auðvelda þess-
um heimilum og öðrum lífið þá hafa
stjórnvöld farið þá leið að hækka
vaxtabætur. Vaxtabætur eru nið-
urgreiðslur á vöxtum og nýtast
heimilunum að sjálfsögðu en það er
áhrifaríkara að nýta þessa fjármuni
til að greiða niður höfuðstól húsnæð-
islána. Þannig má nýta skattkerfið
til að leiðrétta lán þeirra sem urðu
fyrir mestu höggi vegna gengisfalls
krónunnar. Þessi leið mun kosta en
kemur að hluta til í stað vaxtabóta í
nútíð og framtíð.
Margir kannast við þessa hug-
mynd en Pétur Blöndal alþing-
ismaður hefur reifað hana á lands-
fundi sjálfstæðismanna.
Aðalatriðið er að við verðum að
gera fólki mögulegt að lækka skuld-
ir sínar. Við gerum það með breytt-
um áherslum í efnahagsstjórninni
þar sem við hvetjum til verðmæta-
sköpunar og þar af leiðandi til auk-
ins kaupmáttar. Það er grundvall-
aratriði en við verðum líka að snúa
af braut skuldahvetjandi húsnæð-
isstefnu og leggja áherslu á að fólk
geti eignast sitt húsnæði. Ekki ein-
ungis vegna núverandi stöðu heldur
ekki síst vegna þeirra sem eru að
fara að kaupa sér húsnæði.
Við verðum að hugsa í lausnum.
Þetta er mitt framlag. Ég tek öðrum
hugmyndum fagnandi og vonast til
að hugmyndir að lausnum muni fá
málefnalega umræðu. Ég tel að
þessar hugmyndir séu í anda sjálf-
stæðisstefnunnar og þá sérstaklega
í anda ályktana síðasta landsfundar.
Lausnir á skulda-
vanda heimilanna
Eftir Guðlaug Þór
Þórðarson » Það má ekki gleym-
ast að fjárfesting í
húsnæði er hluti af
sparnaði heimila.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Höfundur er alþingismaður.
Ein af aðaláherslu-
málum ríkisstjórn-
arinnar eru jafnrétt-
ismál. Svo mikil
áhersla var lögð á þau
að ástæða þótti að
færa þau undir forsæt-
isráðuneytið svo vel
skyldi nú gera. Rík-
isstjórnin sem telur sig
krossbera jafnréttis
hefur keppst við að út-
tala sig um afrek sín.
Staðreyndin er sú að það er algjör
uppskerubrestur.
Norræna velferðarstjórnin
hefur haft neikvæð áhrif
á laun kvenna
Kynbundinn launamunur hefur
vaxið í tíð ríkisstjórnarinnar. Hann
hafði áður minnkað frá árinu 2000 en
hefur nú aukist á ný og mest innan
stjórnsýslunnar. Fram hefur komið
að opinberir starfsmenn eru lang-
þreyttir á aðgerðarleysi stjórnvalda
og vilja aðgerðir en ekki fleiri fundi.
Ríkisstjórnin hefur
ekki getað framfylgt
sínum eigin jafnrétt-
islögum
Samþykkt voru jafn-
réttislög. Því miður
hafa tveir ráðherrar nú-
verandi ríkisstjórnar
gerst sekir um að hafa
brotið þessi lög. Í álykt-
un Femínistafélags Ís-
lands sagði meðal ann-
ars „Úrskurðurinn
hlýtur að teljast áfall
fyrir ríkisstjórn sem
hefur talað djarflega og af metnaði í
jafnréttismálum“.
Jafnrétti í fæðingarorlofi
í stórhættu
Sjálfstæðisflokkurinn leiddi í
gegn gífurlega miklar jafnrétt-
isumbætur, og jafnvel þær mestu
sem orðið hafa hérlendis á síðustu
áratugum með fæðingarorlofslög-
unum sem samþykkt voru 2000.
Lögin voru sett á til að koma til móts
við breytt viðhorf til hlutverka og
verkaskiptingar kvenna og karla.
Markmið var að konur geti tekið
jafnan þátt í launavinnu sem og öðr-
um störfum utan heimilis til jafns við
karla og forsenda þess er að for-
eldrar skipti með sér umönnun
barna sinna. Megintilgangur var
einnig að færa feðrum rétt á meiri
samvistum við börn sín. Í tíð núver-
andi ríkisstjórnar hefur fæðing-
arorlofið verið skert fjórum sinnum.
Körlum sem taka fæðingarorlof
fækkar. Forgangsröðun þessa verk-
efnis er ekki meiri en svo.
Sjálfstæðisflokkurinn mun sinna
jafnréttismálum komist hann að til
þess. Hins vegar mun hann ekki
nota þau sem skrautfjaðrir eins og
núverandi ríkisstjórn hefur gert.
Uppskerubrestur
í jafnréttismálum
Áslaug María
Friðriksdóttir
Áslaug María
Friðriksdóttir
» Í tíð núverandi rík-
isstjórnar hefur
fæðingarorlofið verið
skert fjórum sinnum.
Höfundur er borgarfulltrúi og býður
sig fram í 4. sæti í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík 24. nóv-
ember.
Skip sem siglir um
ólgusjó þarf sam-
henta áhöfn og
traustan mann við
stýrið sem lætur ekki
hrekjast af leið. Sama
gildir um þjóðarskút-
una. Stjórnmála-
mönnum okkar hefur
verið trúað fyrir að
stýra henni. Þeir eru
valdir til þess í lýð-
ræðislegum kosn-
ingum sem fulltrúar stjórn-
málaafla og þeir bjóða fram krafta
sína í þágu þjóðarinnar allrar. Í
samræmi við lýðræðishefð okkar
takast menn á við þetta verkefni
ýmist sem stjórnarsinnar eða
stjórnarandstæðingar og er
ábyrgðin síst minni í stjórnarand-
stöðu.
Á vettvangi stjórnmálanna
skiptir miklu að þeir sem valdir
eru til forustu hafi sem víðtæk-
asta reynslu. Leiðtogar verða að
vera hertir í eldi þeirra vanda-
sömu verkefna sem þeir hafa
þurft að takast á við og verið trú-
að fyrir hvort sem það hefur verið
í atvinnulífinu eða á opinberum
vettvangi. Þar gildir vissulega að
enginn verður óbarinn biskup.
Forystumenn í stjórnmálum, sem
nokkur dugur er í, sæta óvæginni
gagnrýni vegna verka sinna, orða
og gerða eins og þekkt er. Því
mæta sannir leiðtogar og takast á
við viðfangsefni stjórnmálanna án
þess að láta deilur smækka sig
eða buga.
Þeir sem hafa unnið með
Bjarna Benediktssyni, formanni
Sjálfstæðisflokksins, og kynnst
hafa honum í leik og í starfi vita
hversu mikill mannkostamaður
hann er.
Undirritaður átti þess kost,
fyrst sem ráðherra og síðan sem
forseti Alþingis, að vinna með
Bjarna Benediktssyni á Alþingi.
Það sem einkenndi öll störf
Bjarna Benediktssonar í þinginu
var heiðarleiki, vandvirkni og yf-
irveguð fumlaus framganga í hví-
vetna. Þegar mest gekk á haustið
2008 sá ég best kosti hans og leið-
togahæfileika. Hvað sem á gekk
haggaðist hann ekki.
Hann tók afstöðu að
vel athuguðu máli og
lét þar ekki hrekja sig
af leið vegna ut-
anaðkomandi þrýst-
ings sem var nóg af
þegar mest gekk á í
þinginu. Hann var öfl-
ugur þátttakandi í öll-
um þeim vandasömu
verkefnum sem þingið
stóð frammi fyrir og
vann innan þing-
flokksins að flóknum
lausnum svo sem
setningu neyðarlaganna og
ákvörðun um að leita til Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins vegna hruns ís-
lensku bankanna. Sem betur fer
gaf Bjarni Benediktsson kost á
sér til þess að gegna formennsku í
Sjálfstæðisflokknum þegar til
hans var leitað á ögurstundu árið
2009. Að honum hefur verið sótt
sem formanni flokksins bæði inn-
an flokks og utan. Þann atgang
allan hefur hann staðið af sér og
styrkst við hverja raun.
Þjóðin þarf á slíkum leiðtoga að
halda til þess að takast á við upp-
byggingu sem verður að hefja
strax á vettvangi nýrrar rík-
isstjórnar sem lætur jákvæðni og
trú á landið ráða för í stað þess að
efnt sé til ófriðar. Því skora ég á
sjálfstæðismenn í Suðvest-
urkjördæmi að fylkja sér að baki
formanni Sjálfstæðisflokksins og
tryggja honum glæsilega kosningu
í prófkjöri og skapa honum þannig
öfluga stöðu sem leiðtoga. Við
þurfum á því að halda að fá mann
til æðstu verka sem kann að leiða
saman gott fólk úr öllum lands-
hlutum óháð stétt og stöðu. Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, er slíkur maður.
Bjarni Benedikts-
son er leiðtoginn
sem við þurfum
Eftir Sturlu
Böðvarsson
» Þegar mest gekk á
haustið 2008 sá ég
best kosti hans og leið-
togahæfileika. Hvað
sem á gekk haggaðist
hann ekki.
Sturla
Böðvarsson
Höfundur er fyrrverandi ráðherra
og forseti Alþingis.