Morgunblaðið - 07.11.2012, Síða 31
áform, lífið og tilveruna. Dilla var
afbragðs hlustandi og í samræð-
um okkar var hún fljót að átta sig
á kjarna málsins og var góð í að
hitta naglann á höfuðið, oftast
með einni góðri setningu.
Síðustu árin hittumst við
sjaldnar enda báðar bundnar af
krefjandi verkefnum. Ég þóttist
vita að við myndum hittast oftar
þegar um hægðist.
Það er erfitt að kveðja þessa
góðu konu og tilhugsunin um að
fá ekki að hitta hana aftur í þessu
lífi er óraunveruleg. Ég votta
Kristjáni og Hjördísi og börnum
þeirra mína innilegustu samúð
svo og Unni og systrunum Guð-
ríði og Kristínu og fjölskyldum
þeirra og Stefáni og fjölskyldu
hans.
Guð blessi minningu um stór-
kostlega konu.
Ásta Kristrún Ólafsdóttir.
Í dag er borin til grafar Guð-
rún Dýrleif Kristjánsdóttir, lög-
fræðingur og hjúkrunarfræðing-
ur, sem lést þann 24. október sl.,
allt of fljótt. Við Ágúst sonur
minn kölluðum hana jafnan Dýr-
leifu eða bara Dillu. Hún var ekki
einvörðungu traustur samstarfs-
maður og flinkur lögfræðingur;
hún var skemmtilegur fjöl-
skylduvinur, hafði mikla kímni-
gáfu og þörf til þess að aðstoða
aðra. Þótt ekki væri það á allra
vitorði brá skugga á líf Dillu og
þrek hennar til þess að takast á
við daglegt líf. Því miður hafði
skuggi betur að þessu sinni.
Við mæðginin sendum syni
hennar Kristjáni og hans fjöl-
skyldu, móður hennar Unni og
systkinum hennar, Stefáni, Guð-
ríði og Kristínu, okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur og biðjum
góðan Guð að styrkja þau í sorg
þeirra.
Aðalheiður Jóhanns-
dóttir og Ágúst Ingi
Aðalheiðarson.
Kveðja frá LEX
Við spyrjum drottin særð, hvers vegna
hann
hafi það dularfulla verkalag
að kalla svo vænan vinnumann
af velli heim á bæ um miðjan dag.
Og þó, með trega og sorg, skal á það
sæst,
að sá með rétti snemma hvílast megi
í friði, er hafði, fyrr en sól reis hæst,
fundið svo til, að nægði löngum degi.
(Jóhann S. Hannesson)
Dýrleif Kristjánsdóttir, eða
Dilla eins og við kölluðum hana
jafnan, gekk til liðs við okkur á
LEX haustið 2005. Hún hafði
vakið athygli mína nokkrum ár-
um fyrr, þá nemandi minn í
eignarétti við lagadeild Háskóla
Íslands. Hún var eldri en sam-
stúdentar hennar enda átti hún
þá þegar að baki farsælan feril
sem hjúkrunarfræðingur. Sem
laganema urðu mér hennar góðu
kostir ljósir. Skarpgreind og
fróðleiksfús, samfara takmarka-
lausri elju og trúmennsku gagn-
vart þeim verkefnum sem hún
tók að sér hverju sinni.
Að loknu embættisprófi í lög-
fræði starfaði Dilla í félagsmála-
ráðuneytinu við góðan orðstír
þangað til að hún hafði vistaskipti
og flutti sig yfir til okkar á LEX.
Hún reyndist frábær liðsmaður.
Góður lögfræðingur sem hneigð-
ist hvorki til ofmats né vanmats.
Þá var hún skemmtilegur og fé-
lagslyndur samstarfsmaður sem
átti ekki í neinum erfiðleikum
með að blanda geði við yngra
fólkið með sama áreynslulausa
hættinum og okkur sem eldri
vorum. Á þessum árum aflaði hún
sér málflutnings-réttinda fyrir
héraðsdómi og tók að sérhæfa sig
á vettvangi auðlinda- og um-
hverfisréttar sem átti hug henn-
ar allt þar til yfir lauk. Eftir á að
hyggja voru þetta hamingjudag-
ar Dillu þar sem hún fann sig vel í
leik og starfi. Okkur samferða-
mönnum hennar fannst henni
sannarlega allir vegir færir.
Fyrir fáum árum fór hinsvegar
að syrta í álinn. Þunglyndið og
kvíðinn sóttu að í algjöru mis-
kunnarleysi og smátt og smátt
glataði Dilla lífsgleðinni með öllu.
Að lokum varð myrkrið svo svart,
lífið sjálft svo óbærilegt, að öll
sund lokuðust og dauðinn varð
hennar eina líkn.
Eftir sitjum við samferðamenn
hennar í sorg og jafnvel reiði.
Spyrjandi endalausra spurninga
sem aldrei munu fást svör við.
Það er hinsvegar ekki ætlast til
þess að þeim sé svarað og síst
allra hefði Dilla ætlast til þess. Á
hinn bóginn getum við strengt
þess heit að ótímabær og hörmu-
legur dauði hennar hafi einhverja
jákvæða merkingu fyrir okkur.
Að við heitum því að þunglyndi
og andlegir sjúkdómar hætti end-
anlega að vera feimnismál og að
enginn þurfi að fyrirverða sig
fyrir þá, að við séum aðeins betri
og hlýrri hvert við annað og
gleymum því aldrei að líf og
heilsa er stórkostleg gjöf sem
okkur ber að rækta og hlúa að.
Samstarfsfólk Dillu hjá LEX
þakkar samfylgdina og vottar
ástvinum hennar dýpstu samúð.
Sjálfur kveð ég kæran vin sem ég
vil trúa að hafi nú náð ströndum
lands eilífs ljóss og heiðríkju,
hvar sorgir og sársauki þessa
heims eru að baki. Ég efa ekki að
hún hefur átt góða heimkomu.
Karl Axelsson.
Fyrir rúmum tveimur árum
tók ég til starfa á lögmannsstof-
unni LEX. Þar tók á móti mér
glaðbeitt og vingjarnleg kona
sem var teymisstjóri í því fag-
teymi sem ég starfaði með. Við
áttum eftir að vinna mikið saman
og um leið tókst með okkur ágæt-
ur vinskapur.
Ég þurfti ekki að vinna lengi
með Dýrleifu til að átta mig á því
að hún var afburðafær á sínu
fagsviði og vann sín verk óaðfinn-
anlega. Hún var líka góður yfir-
maður og reyndist mér um leið
góður vinur.
Samhliða fullu starfi við lög-
mennsku stundaði hún fram-
haldsnám í orku- og auðlinda-
rétti. Ef leið mín lá á skrifstofuna
um helgi til að grípa í verk mátti
yfirleitt ganga að Dillu vísri þar.
Þrátt fyrir að hún væri störfum
hlaðin gaf hún sér alltaf tíma fyr-
ir spjall. Gilti þá einu hvort það
var um daginn og veginn eða að
ég vildi sækja til hennar faglegan
eða almennan innblástur. Dilla
var næm á sitt fólk og gott var að
leita til hennar með hvaðeina sem
þurfti.
Um tveimur vikum fyrir and-
lát sitt sagði Dilla mér frá þeim
erfiðu veikindum sem hún hafði
svo lengi glímt við. Hún ræddi
ekki um þau við hvern sem var.
Því miður er það svo að fólk með
tiltekna sjúkdóma upplifir oft að
það þurfi að skammast sín fyrir
þá. Það getur aukið á vandann.
Ég sá að vanlíðan hennar var
mikil þó að ég hafi ekki getað séð
hvert stefndi. Ég hugsaði mikið
um samtal okkar eftir á og ein-
setti mér að ræða málin betur við
hana þegar færi gæfist. Vegna
minnar eigin reynslu fannst mér
að ég gæti skilið hana og vonaðist
til að geta eitthvað stutt og hjálp-
að. Af þessu samtali varð því mið-
ur aldrei. Kannski hefði falist í
því einhver stuðningur þó að það
hefði trúlega engu breytt um það
sem síðar varð.
Daginn áður en Dýrleif dó var
tilkynnt um að ég væri, að
minnsta kosti um sinn, að hverfa
til annarra starfa. Af því tilefni
sendi hún mér kveðju með fróm-
um óskum sem hún orðaði af
þeirri hlýju og einlægni sem ein-
kenndu hennar viðmót. Þetta
voru síðustu samskipti okkar.
Kveðjuna geymi ég með mér og
rifja upp þegar ég minnist Dýr-
leifar.
Hvíl í friði, elsku Dýrleif.
Þorsteinn Magnússon.
Það ríkir sorg á LEX, sorg
vegna ótímabærs andláts okkar
kæru Dýrleifar Kristjánsdóttur
eða Dillu eins og hún var alltaf
kölluð. Dilla með sitt stóra hjarta,
Dilla sem gerði allt 150% og rúm-
lega það, Dilla sem var svo skipu-
lögð, Dilla sem var svo gott að
leita til ef einhverjum spurning-
um þurfti að svara.
En hún Dilla okkar átti sín
óveðursský sem áttu það til að
hrannast upp í hennar stóra
hjarta og þangað áttu geislar sól-
ar ekki alltaf greiðan aðgang,
fannst okkur stundum eins og
þetta árið væri henni erfiðara en
oft áður. Dilla átti líka sínar frá-
bæru stundir hér með okkur á
LEX, hló og gantaðist og gerði
grín að sjálfri sér, þegar sá gáll-
inn var á henni, þessara stunda
munum við minnast með hlýju.
Við samstarfskonur hennar, sem
söknum hennar sárt, kveðjum
hana með Davíðssálminum:
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég langa ævi.
(23. Davíðssálmur)
Hvíl í friði, elsku Dilla, syni
hennar, tengdadóttur, barna-
börnum, móður, systkinum og
allri hennar góðu fjölskyldu,
sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Helga, Svava og Þórunn.
Haustið 2000 sótti Guðrún
Dýrleif Kristjánsdóttir hjúkrun-
arfræðingur og þá laganemi á 3.
ári við lagadeild Háskóla Íslands
námskeið sem ég kenndi í kröfu-
rétti. Dýrleif var áhugasöm og
hlífði ekki kennaranum. Spurði
gjarnan krefjandi spurninga og
var ófeimin við að tjá skoðanir
sínar. Hún var skemmtilegur
nemandi. Þegar háskólinn veitti
mér styrk til að ráða nemanda
sem aðstoðarmann réð ég hana til
starfa. Ég varð ekki svikin af því.
Hún bjó yfir gagnrýnni hugsun,
var vandvirk, skipulögð, ná-
kvæm, ósérhlífin og áreiðanleg
auk þess að búa yfir mjög mikilli
færni í íslensku. Þetta var upp-
hafið að vináttu okkar sem hefur
haldist óslitið síðan. Þá bað hún
mig að kalla sig Dillu, vinir mínir
kalla mig Dillu útskýrði hún. Mér
þótti vænt um það.
Dilla hafði mikla ánægju af
lögfræði og var ánægð með að
hafa tekið ákvörðun um að skapa
sér nýjan starfsvettvang. Hún
var mjög fær lögfræðingur og
hafði skapað sér sérstöðu sem
sérfræðingur á sviði umhverfis-
réttar. Dilla var góður félagi og
hugsa ég til þeirra stunda með
ánægju þegar við elduðum sam-
an, er hún heimsótti mig til Cam-
bridge og skemmtiferðar okkar
til Frankfurt. Einnig þegar við
gengum upp á Esjuna og síðar
Reynisfjall þegar hún fór með
mér í Mýrdalinn.
Þrátt fyrir að Dilla kæmi fyrir
bæði sem glaðlynd og félagslynd
átti hún við þunglyndi og kvíða að
stríða. Hún bjó við það eins og
margir aðrir að skilningur á sjúk-
dómnum er ekki mikill og í raun
mun minni en á öðrum alvarleg-
um sjúkdómum. Það er sorglegt
að þurfa að horfa á eftir henni að-
eins 54 ára. Ég mun leitast við að
heiðra minningu hennar með því
að reyna að skilja viðhorf hennar,
sjúkdóminn sem hún þjáðist af,
og virða.
Ég er þakklát fyrir þann tíma
sem ég átti með Dillu, skemmti-
legu samræðurnar þar sem orð-
heppni hennar, greind og fyndni
nutu sín en ekki síður að hafa átt
trúnað hennar um erfiðari hluti.
Ég er ríkari af því.
Móður hennar, syni, tengda-
dóttur, barnabörnum og systkin-
um og allri fjölskyldu vottum við
Ragnar okkar dýpstu samúð.
Áslaug Björgvinsdóttir.
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Sé óskað eftir
birtingu á útfarardegi þarf grein-
in að hafa borist á hádegi tveim-
ur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, jafnvel þótt
grein hafi borist innan skila-
frests.
Minningargreinar
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Rvk • s. 587 1960 • www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum við
fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu
og fría pökkun á legsteinum sem fara út á land
Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
✝
Við þökkum auðsýnda vináttu, samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
LAUFEYJAR GARÐARSDÓTTUR,
Brekkugötu 36,
Akureyri.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Umönnunar, heilbrigðisþjónustu, og í
Skógarhlíð fyrir þá alúð og virðingu, sem Laufey varð aðnjótandi
í veikindum sínum.
Sigurður Jóhannesson,
Sigríður Sigurðardóttir, Sveinn Helgi Sverrisson,
Laufey S. Sigurðardóttir,
Sigurður Árni Sigurðsson, Guðrún Hálfdánardóttir,
Elín S. Sigurðardóttir, Hallgrímur Magnússon,
ömmubörn og langömmubörn.
Vinningaskrá
11. FLOKKUR 2012
ÚTDRÁTTUR 6. NÓVEMBER 2012
Kr. 5.000.000
Aukavinningar kr. 100.000
4873 4875
Kr. 500.000
506 4923 5113 9160 11129 29048 29219 32568 33318 53625
860 6693 13675 19611 27738 34031 40173 46968 53996 59335 69137
972 6768 13744 19714 27803 34272 40672 47190 54617 59380 69565
1079 6883 14006 20050 27966 34528 40776 47518 54708 60638 70322
1703 7195 14112 20242 28171 35208 40782 47651 55594 60765 70731
1794 7582 14673 20353 28606 35212 41373 47955 55638 60777 71219
1907 7675 14758 20774 28973 35235 41465 48106 55737 61609 71682
2138 7775 14766 21080 29009 35492 41500 48197 55791 61849 71752
2204 9071 15168 21213 29681 35594 41866 48230 55975 61951 72388
2558 9096 15215 21377 30130 35673 42236 48530 56170 61987 72427
2593 9122 15546 21461 30796 35796 42298 48555 56190 62189 72453
2604 9217 15618 21683 30844 35865 42716 48844 56659 62486 72786
2842 9411 16211 21964 30912 35893 42736 48997 56730 62696 72986
3123 9422 16297 22521 31486 36237 42783 49210 56746 63185 73175
3687 9484 16430 22664 31490 36369 42951 49237 56896 63769 73457
3905 10077 16716 22673 31627 36706 43178 49283 57200 64101 73914
3906 10379 16810 22977 31748 37061 43335 49526 57441 64503 74053
4045 10489 16848 22988 31802 37136 43394 49654 57531 65177 74093
4061 10627 17002 23018 31950 37252 43660 49966 57639 65505 74222
4393 10805 17115 23479 32092 37566 44260 50435 57673 66261 74335
4441 10836 17285 24106 32458 37883 44356 50862 57812 66442 74663
4688 11293 17352 24125 32617 37913 45100 51402 57915 67364 74674
4708 11349 17559 24292 33016 38411 45235 51466 58136 67833
4768 11584 18014 24870 33204 38504 45273 51677 58349 67960
5511 11688 18391 25022 33212 38707 45867 51782 58761 68080
6039 12238 18575 25835 33463 38855 45878 52453 58796 68412
6227 12414 19115 26548 33472 39183 46142 52878 58814 68520
6242 12927 19137 27111 33588 39565 46696 53341 59043 68721
6533 13622 19355 27128 33811 40131 46842 53458 59210 69111
Vöruúttekt hjá Hagkaupum kr. 20.000
71 6643 13635 20279 26275 33025 38765 44736 49425 55587 61751 69155
289 6843 13715 20400 26365 33098 38883 44810 49455 55792 61783 69220
376 7119 13724 20410 26411 33101 39253 44896 49464 55839 61912 69331
388 7219 13830 20438 26413 33407 39279 44984 49557 55887 62079 69374
507 7332 13895 20474 26478 33442 39406 45039 49603 56004 62129 69506
544 7542 13979 20683 26683 33455 39553 45103 49659 56142 62138 69552
589 7674 14071 20729 26716 33567 39606 45208 49680 56192 62219 69633
4874
Kr. 50.000
594 7687 14307 20761 26853 33633 39624 45484 49829 56348 62444 69724
913 7697 14382 20793 27219 33697 39854 45568 49864 56524 62515 69771
922 7717 14394 20911 27230 33802 39882 45600 49985 56541 62527 69811
1072 8111 14405 20998 27394 33809 39900 45623 50264 56582 62538 69817
1164 8216 14471 21106 27436 33862 39943 45633 50405 56661 62556 70046
1169 8297 14474 21216 27531 33909 40002 45636 50556 56670 62598 70078
1190 8377 14475 21620 27617 33943 40015 45653 50615 56682 62709 70131
1221 8415 14720 21672 27641 34046 40147 45672 50763 56747 62924 70234
1578 8448 14914 21908 27796 34317 40271 45690 50787 56910 62946 70243
1610 8494 14956 22028 27818 34488 40282 45754 50913 57064 63222 70260
1677 8760 15074 22049 27898 34597 40447 46161 50939 57221 63532 70401
1724 8761 15249 22223 27963 34615 40589 46205 50980 57237 63554 70510
1753 8926 15277 22292 28028 34627 40738 46234 51072 57239 63794 70571
1765 8982 15290 22318 28056 34781 40985 46315 51193 57332 63804 70878
1865 9280 15335 22547 28278 34897 41011 46392 51306 57336 63902 70891
1882 9597 15359 22728 28534 34924 41044 46406 51376 57443 64075 70919
2099 9632 15374 22738 28545 34943 41148 46456 51439 57471 64279 70929
2158 9910 15488 22848 28619 34949 41209 46478 51476 57614 64598 71004
2273 9970 15756 23040 28715 35073 41342 46505 51554 57677 64652 71175
2368 10074 15860 23050 28753 35125 41433 46531 51575 57691 64692 71468
2434 10112 16020 23074 28852 35192 41806 46571 51876 57799 64827 71584
2487 10178 16196 23340 29002 35381 42091 46580 52169 57954 65084 71788
2579 10180 16361 23442 29307 35404 42191 46610 52233 58142 65157 71830
2703 10184 16433 23455 29325 35419 42234 46673 52312 58409 65250 71982
2864 10210 16540 23531 29866 35464 42302 46691 52454 58461 65331 71988
2987 10215 16920 23581 29927 35489 42352 46906 52525 58601 65501 71999
3014 10225 16922 23672 29929 35556 42363 47018 52601 58714 65503 72017
3198 10232 16971 23683 29996 35607 42401 47060 52800 58732 65582 72032
3240 10290 17233 23691 30077 35611 42484 47114 52919 58751 65812 72353
3306 10322 17263 23718 30138 35652 42525 47203 53043 58811 66072 72354
3336 10362 17447 23721 30174 35700 42620 47229 53170 59105 66272 72409
3438 10386 17464 23861 30316 35825 42758 47405 53191 59141 66326 72410
3693 10576 17517 23998 30400 36010 42826 47413 53306 59314 66372 72414
3709 10593 17519 24094 30554 36050 42870 47479 53364 59507 66537 72593
3817 10697 17578 24224 30758 36064 42892 47779 53368 59584 66568 72628
3925 10698 17620 24318 30801 36258 42920 47822 53369 59735 66601 72740
4031 10699 17734 24334 30989 36260 43009 47847 53494 59780 66682 72766
4200 10971 17813 24436 31305 36317 43050 48018 53528 59803 66832 72773
4249 10980 17965 24533 31347 36367 43102 48022 53620 59865 66871 72885
4337 10994 17979 24573 31365 36371 43146 48058 53660 59938 66905 72948
4734 11269 18020 24589 31400 36462 43214 48099 53742 59946 66944 73069
4990 11435 18090 24673 31431 36671 43257 48332 53811 60110 66960 73132
5015 11504 18155 24909 31451 36729 43268 48440 53856 60131 66989 73244
5130 11657 18209 24955 31589 36747 43433 48455 53995 60137 67022 73465
5134 11733 18239 25035 31597 36813 43456 48469 54097 60181 67240 73515
5199 11847 18395 25057 31732 36821 43653 48487 54193 60327 67312 73686
5363 11874 18477 25132 31775 36930 43684 48545 54257 60360 67457 73809
5425 12072 18514 25135 31793 37009 43746 48630 54287 60383 67524 73846
5463 12086 18592 25301 31820 37348 43784 48745 54395 60396 67731 73964
5556 12145 18645 25365 31943 37549 43978 48774 54468 60580 67798 74089
5617 12263 18863 25499 32200 37677 44031 48816 54501 60693 67883 74297
5675 12330 18880 25672 32248 37861 44060 48836 54504 60731 67949 74318
5765 12434 18895 25704 32518 37921 44118 48841 54563 60742 68276 74333
5773 12855 18906 25715 32548 38009 44169 48872 54623 60801 68441 74573
5900 12904 19029 25723 32614 38224 44224 48933 54866 60856 68665 74671
5964 12991 19109 25779 32657 38260 44244 48956 54975 60966 68772 74820
6005 13170 19292 25858 32867 38484 44583 48982 55161 61154 68917
6267 13181 20038 25944 32872 38513 44686 49057 55245 61235 68960
6316 13327 20076 26122 32912 38639 44709 49307 55508 61658 69009
6451 13372 20078 26202 33007 38745 44720 49342 55568 61706 69150
Afgreiðsla vinninga hefst þann 20. nóvember 2012
Birt án ábyrgðar um prentvillur
Elsku Tinna mín,
það fyrsta sem skaut upp í huga
mér þegar ég settist niður að
skrifa var minning um þig sem
lítið stelpuskott. Þú varla talandi
en byrjuð að syngja, þú söngst
hástöfum með lagi Sinéad ÓCon-
nor, Nothing compares to you,
eða „konan sem er að gráta“ eins
og Áslaug kallaði hana. Ég minn-
ist líka okkur stórfjölskylduna á
skíðum. Þú varst strax þá, ung að
aldri, mikil baráttukona og gafst
Stefáni Grétari ekkert eftir. Á
pínulitlum skíðum algjör orku-
bolti brosandi út að eyrum.
Margrét Tinna
Guðmannsdóttir
Petersson
✝ Margrét TinnaGuðmanns-
dóttir Petersson
fæddist í Reykjavík
9. maí 1991. Hún
lést á heimili sínu
16. október 2012.
Útför Margrétar
Tinnu fór fram frá
Akureyrarkirkju
29. október 2012.
Reyndar gafst þú
eldri krökkunum
aldrei neitt eftir, þú
lést það ekki stoppa
þig að þau væru
eldri heldur hélst
alltaf í við þau. Þetta
lýsir þér svo vel,
baráttukona fram í
fingurgóma. Þetta
lýsir því líka hvað
þunglyndi er skelfi-
legur sjúkdómur.
Þrátt fyrir alla þína hæfileika,
töfrandi persónuleika og gríðar-
öflugt stuðningsnet þá hafði sjúk-
dómurinn betur.
Elsku bjarta fallega Tinna
mín, minningin um þig lifir.
Minning um litla ljóshærða
hnátu, þú geislaðir af krafti, varst
alltaf til í sprell, svolítið stríðin en
umfram allt hláturmild, fyndin,
ljúf og geislandi falleg.
Fyrir hönd Röggu, Áslaugar
og Begga,
Kristjana Milla
Snorradóttir.