Morgunblaðið - 07.11.2012, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
KULDAGALLA
R
Á ALLA
FJÖLSKYLDU
NA
Dynjandi hefur úrval af
vönduðum kuldafatnaði
fyrir alla, börn og fullorðna.
Komdu og skoðaðu úrvalið.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
Nei, ég á nú ekki von á því. Ég hef alltaf lag á að koma mér íeinhver verkefni og ég þarf að sækja eina tvo, þrjá fundi.Meðal annars að drekka kaffi með skólasystkinum mínum
úr MR um 1959. Við hittumst einu sinni í mánuði og drekkum saman
kaffi og það hittist þannig á að það er á þessum degi en þetta er í
hundraðasta skipti sem við hittumst, þannig að þetta er miklu
merkilegri dagur að því leytinu til heldur en afmælið mitt,“ segir
Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra, ráðherra, alþingismaður
og sjónvarpsfréttamaður, en hann fagnar 73 ára afmæli sínu í dag.
Aðspurður hvort hann ætli að halda fjölskylduboð eða eitthvað
þvíumlíkt í tilefni dagsins segir Eiður slíkt ekki vera á dagskránni.
„Ég læt það ráðast. Það eru reyndar fleiri afmæli í fjölskyldunni
þennan dag en tengdadóttir mín á afmæli,“ segir hann.
Eiður á langan og færsælan starfsferil að baki en hann hefur m.a.
starfað sem blaðamaður, sjónvarpsfréttamaður, varafréttastjóri, al-
þingismaður, ráðherra og sendiherra. „Minn starfsferill skiptist
nokkurn veginn í þrjá jafna hluta í árum. Ég starfaði við blaða-
mennsku, fyrst á Alþýðublaðinu, og svo fréttamennsku og þáttagerð
í sjónvarpi í 15 til 16 ár. Svo var ég á þingi, sem þingmaður og ráð-
herra síðustu tvö árin, í álíka langan tíma og loks var ég sendiherra
í utanríkisþjónustunni álíka lengi,“ segir Eiður. skulih@mbl.is
Eiður Guðnason er 73 ára í dag
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Molaskrifari Eiður Guðnason hefur lengi skrifað mola um málfar og
miðla en þeir eru núna orðnir rúmlega eitt þúsund talsins.
Fær sér kaffi með
skólasystkinum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Drangsnes Friðgeir Logi fæddist 17.
febrúar kl. 23.56. Hann vó 4.140 g og
var 53 cm langur. Foreldrar hans eru
Aðalbjörg Óskarsdóttir og Halldór
Logi Friðgeirsson.
Nýr borgari
Aþena Sól Gautadóttir og Sunneva
Kjartansdóttir héldu tombólu við
verslun Samkaupa við Byggðaveg á
Akureyri og söfnuðu með því 3.500
krónum sem þær styrktu Rauða kross
Íslands með.
Hlutavelta
Ó
ðinn fæddist á Fá-
skrúðsfirði og ólst þar
upp til þrettán ára ald-
urs. Þá flutti hann með
fjölskyldu sinni á Akra-
nes. Hann var í Barnaskóla Fá-
skrúðsfjarðar og Gagnfræðaskól-
anum á Akranesi, stundaði hann
nám við Tónlistarskóla Akraness
1955-57 og síðar við Tónlistarskóla
Reykjavíkur 1978-79.
Óðinn var á síldveiðum sumrin
1947, 1948, 1949 og síðan 1957, 1960,
1964 og 1965, og á nótaskipi 1969-
70. Þá vann hann við múrverk á
Fáskrúðsfirði 1963-68.
Óðinn var búsettur á Akranesi til
1958, hefur síðan verið búsettur á
Fáskrúðsfirði og í Reykjavík og býr
nú á Akranesi.
Lék fyrir dansi aðeins 12 ára
Óðinn byrjaði að spila á harm-
onikku ellefu ára og ári síðar lék
Óðinn G. Þórarinsson, tónskáld og tónlistarkennari – 80 ára
Hjónin Óðinn með eiginkonu sinni, Jónínu. Hún er af Skaganum en hann er frá Fáskrúðsfirði.
Nýtur allrar tónlistar
Stór hópur Fjölskyldan öll saman komin. Óðinn og Jónína með börnunum.