Morgunblaðið - 07.11.2012, Side 40

Morgunblaðið - 07.11.2012, Side 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 Bernd haft í nógu að snúast síðustu mánuði. Hann hefur m.a. frumsýnt í Kanada brúðusýninguna sína Pétur og úlfinn á ensku og nýverið sýndi hann sömu sýningu í sam- vinnu við Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborgarsal Hörpu fyrir fullu húsi. „Bernd hefur einnig hafið samstarf við Óperuna í Van- couver í Kanada, en þar er unnið að uppsetningu Töfra- flautunnar eftir Mozart á vormánuðum og mun Bernd vinna brúður fyrir óperuuppfærsluna,“ segir m.a. í til- kynningu, en þess má geta að Bernd smíðaði einnig brúð- urnar sem voru notaðar í uppfærslu Íslensku óperunnar á Töfraflautunni sem sýnd var í Hörpu á síðasta ári. Sýningar hefjast á ný á Gamla manninum og hafinu í Kúl- unni í Þjóðleikhúsinu í dag. Sýninguna vann Bernd Ogrodnik brúðulistamaður upp úr sögu Ernest Hem- ingway og var hún frumsýnd á Listahátíð í vor sem leið við góðar viðtökur, en sýningum var hætt fyrir fullu húsi í sumarbyrjun. Samhliða sýningunni verður ljósmyndasýningin Gamli maðurinn, frá upphafi til enda sett upp í forsal Kúlunnar. Myndirnar tók Þorkell Þorkelsson ljósmyndari, allt frá því að hugmyndin kviknaði hjá Bernd um að setja upp þessa sýningu og þar til hún var frumsýnd. Samkvæmt upplýsingum frá Brúðuheimum hefur Gamli maðurinn fer aftur á svið  Samhliða sýningunni verður ljósmyndasýning eftir Þorkel Þorkelsson ljósmyndara sýnd í forsal Kúlunnar Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Bátur Bernd Ogrodnik smíðar og stýrir öllum brúðum sýningarinnar. Ótrúleg saga um risastóra peru bbbbn Jakob Martin Strid Íslensk þýðing: Jón St. Kristjánsson JPV útgáfa Sagan hefst þeg- ar kettinum Mítsó og fílnum Bastían berst flöskuskeyti frá Jerónímusi Berg- manni Sigurvini Ól- sen, ástsælum borg- arstjóra Sólbæjar, sem verið hefur týndur í ár. Á meðan hefur Kvistur vara- borgarstjóri tekið við stjórn borg- arinnar með miður góðum árangri. Je- rónímus upplýsir að hann dvelji á dularfullri eyju og fljótlega leggja Mítsó og Bastían ásamt pró- fessor Glúkósa upp í heilmikinn leiðangur til að finna sinn ástsæla borgarstjóra, en sem farartæki nota þeir risastóra peru. Ferðin er ekki hættulaus því þremenningarnir þurfa að komast framhjá sjó- ræningjunum voðalegu, sædrekanum ægilega og yfir Svartamyrkurshafið. Þetta er safarík saga, með skemmtilegum per- sónum, sem höfðar vel til lesenda allt frá tveggja ára aldri og upp úr. Höfundur leikur sér að því að sýna lesendum fram á að ýmislegt sem við fyrstu sýn gæti virst ógnvænlegt þarf í reynd ekki að óttast. Litagleðin í myndunum sem uppfullar eru af yndislegum smáatriðum skapar óneitanlega ákveðin hugrenningartengsl við ekki ómerkari höfund en Ole Lund Kirkegaard. Líkt og samlandi hans beitir Strid þeirri þakklátu aðferð að ávarpa lesendur beint til að draga þá inn í söguna. Bókin hefði hiklaust fengið fullt hús stiga ef ekki væri á henni einn stór galli og það er hinn óskiljanlegi kynjahalli. Þannig eru allar fjórar aðal- persónur bókarinnar karlkyns sem og átta af nafngreindum aukapersónum. Aðeins eru tvær konur nafngreindar í bókinni, en þær eiga enga hlutdeild í framvindunni því það eina sem þær gera er að vökva blóm og hengja út þvott. Ekki batnar ástandið þegar hópmyndir úr Sólbæ eru skoðaðar því 80% íbúanna eru karlar. Hvergi fæst þó nein skýring í bókinni á þessum karlaheimi. Lesendur eru af báðum kynjum og eiga því heimt- ingu á sterkum fyrirmyndir af báðum kynjum. Því er hins vegar ekki að skipta hér og er það miður. Nanna norn bbbbn Texti eftir Valerie Thomas og myndir eftir Korky Paul Íslensk þýðing: Hallgrímur Helgi Helgason Mál og menning Nanna norn er fyrsta bókin í seríu sem hóf göngu sína fyrir ald- arfjórðungi eða ár- ið 1987 og spannar nú hátt í tuttugu bækur. Í þessari fyrstu bók er Nanna norn kynnt til sögunnar sem og kötturinn henn- ar, Njörður, en þau búa saman í svörtu húsi. Þar sem kötturinn er líka svartur getur Nanna ekki aðgreint hann frá um- hverfinu og er endalaust ýmist að setjast á eða hrasa um hann. Nanna fær þá snilldarhugmynd að breyta litnum á Nirði, en það skapar hins veg- ar önnur ófyrirséð vandamál. Þetta er falleg saga um vinskapinn sem minnir okkur á að það boðar yfirleitt ekki gott að reyna að umbreyta öðrum. Flæðið í textanum er gott og myndirnar æv- intýralega skemmtilegar. Nanna norn og miðnæturdrekinn bbbnn Texti eftir Valerie Thomas og myndir eftir Korky Paul Íslensk þýðing: Hallgrímur Helgi Helgason Mál og menning Þær umfangsmiklu breytingar sem urðu á húsi Nönnu í fyrstu bókinni eru horfnar nú þegar kem- ur að næstu bók án nokkurrar útskýringar. Þar sem bækurnar virðast ekki gefnar út í réttri röð á íslensku má vera að breytingarnar séu útskýrðar í annarri bók seríunnar. Í þessari bók truflar lítið dreka- barn nætursvefninn hjá Nönnu og Nirði. Drekabarnið langar aðeins að leika sér og gerir það með miklum bægsla- gangi. Nanna og Njörður átta sig á því að eina leiðin til að endurheimta næturfriðinn er að finna mömmu drekabarnsins. Sem fyrr standa myndirnar fyrir sínu, en sagan sjálf er ekki jafn grípandi og heil- steypt og í fyrstu bókinni. Engu að síður af- bragðslesning og vonandi eiga fleiri bækur úr seríunni eftir að koma út á íslensku. Félagar Kötturinn Mítsó og fíllinn Bastían eru heillandi persónur og skemmtilegar. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Barnabækur Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar og þýddar barnabækur T.V. - KVIKMYNDIR.ISJ. A. Ó. - MBL SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS PITCH PERFECT KL. 8 - 10.10 12 SKYFALL KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 DJÚPIÐ KL. 6 10 PITCH PERFECT KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 3.40 - 5.50 - 8 7 SKYFALL KL. 5 - 8 - 10.10 12 SKYFALL LÚXUS KL. 5 - 8 12 TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 3.40 L FUGLABORGIN 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 L TAKEN 2 KL. 10.10 16 DJÚPIÐ KL. 5.50 - 8 10 PITCH PERFECT KL. 8 - 10.30 12 HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 5.50 7 SKYFALL KL. 6 - 9 12 / TAKEN 2 KL. 10.30 16 LOVE IS ALL YOU NEED KL. 8 L THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10 FLYING SWORDS KL. 5.40 14/ LOVE IS NOT BLIND KL. 8 10 MY MONGOLIAN MOTHER KL. 10 12 SKYFALL Sýnd kl. 7 - 9 - 10 (Power) PITCH PERFECT Sýnd kl. 8 - 10:15 HOTEL TRANSILVANIA 2D Sýnd kl. 6 TEDDI 2D Sýnd kl. 6 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! SÝNINGAR Í 4K - KL: 7 OG 10 POWE RSÝN ING KL. 10 Í 4K Þriðjudagstilboð VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG ÍSL TEXTI -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is 7 12 12 L ,,Sú besta í allri seríunni” T.V - Kvikmyndir.is ,,Fyrsta flokks 007” J.A.Ó - MBL ,,Þrælspennandi og skemmtileg frá upphafi til enda” H.V.A - FBL Þ.Þ - FBL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.