Morgunblaðið - 07.11.2012, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 312. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Loftmyndir frá Íslandi vekja …
2. Linda Pé og dóttir í myndatöku
3. Cruise hefur ekki gleymt Íslandi
4. Vinkonan týndi fíkniefnunum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ljáðu okkur
eyra er yfirskrift
hádegistónleika
sem fram fara í
Fríkirkjunni við
Reykjavíkurtjörn í
dag kl. 12.15. Ger-
rit Schuil píanó-
leikari er listrænn
stjórnandi, en
hvorki er kynnt dagskrá né flytjendur
fyrr en að tónleikum kemur. Má því
segja að um tónlistarlega óvissuferð
sé að ræða fyrir tónleikagesti.
Tónlistarleg óvissu-
ferð í Fríkirkjunni
Rútubílasöngvar verða sungnir á
uppákomu Vonarstrætisleikhússins,
sem Sveinn Einarsson og Vigdís Finn-
bogadóttir standa fyrir, í Iðnó í
kvöld kl. 20. Felix Bergs-
son leiðir sönginn með
aðstoð Sigurðar
Jónssonar, tann-
læknis og píanó-
leikara.
Sveinn Ein-
arsson held-
ur utan um
dagskrána.
Rútubílasöngvar
í Iðnó með Felix
Á fimmtudag Vaxandi SA-átt, 10-18 m/s með rigningu eða slyddu
S- og V-lands síðdegis, en hægari og úrkomulítið NA-til fram á
kvöld. Hiti 0 til 5 stig, en í kringum frostmark um landið NA-vert.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG N og NA 5-13 og víða él en styttir upp suð-
vestan- og vestanlands. Hægari í kvöld og úrkomuminna. Hiti 0 til
4 stig SV-til, en frost 0 til 7 stig norðan- og austanlands.
VEÐUR
Allt bendir til þess að
stjörnum prýtt lið Man-
chester City komist ekki
áfram úr sínum riðli í Meist-
aradeild Evrópu eftir að það
gerði aðeins jafntefli við
Ajax á heimavelli í gær-
kvöld. Real Madrid slapp
fyrir horn gegn Dortmund,
Arsenal missti niður tveggja
marka forskot í Þýskalandi
og Porto og Málaga urðu
fyrstu liðin til að komast í
16 liða úrslit. »3
Stjörnur City eiga
litla möguleika
KR-ingurinn Óskar Örn Hauksson á
eftir þrjá leiki með norska liðinu
Sandnes Ulf, sem berst fyrir lífi sínu í
úrvalsdeildinni þar í landi. Hann er
ekki sáttur við þau tækifæri sem
hann hefur fengið með
liðinu og ætlar ekki að
leika með því áfram ef
það fellur. „Ég er
með einhver járn í
eldinum
ennþá,“
segir Ósk-
ar. »1
Óskar ekki sáttur við
tækifærin hjá Sandnes
Þótt efnilegt lið FH gæfist aldrei upp
átti það enga sigurmöguleika gegn
Val í N1-deild kvenna í handknattleik í
gærkvöld. Valur vann þrettán marka
sigur og ljóst er að enn eitt einvígi
Vals og Fram um Íslandsmeistaratit-
ilinn er í uppsiglingu. Efniviðurinn er
hinsvegar mikill hjá FH sem getur
nálgast bestu liðin á næstu árum. »2
Enn eitt einvígi Vals og
Fram í uppsiglingu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þegar ég hætti að vinna fyrir átta
árum fór ég að læra að mála og hef
málað síðan,“ segir Lilja Hallgríms-
dóttir, 75 ára frístundamálari, sem
opnar fyrstu einkasýningu sína á
morgun.
Gróskusalurinn á Garðatorgi í
Garðabæ iðaði af lífi í gær. Lilja og
Þóra Einarsdóttir sýningarstjóri
hengdu upp myndir eftir að Árni
Norðfjörð, eiginmaður Lilju, var bú-
inn að ganga frá römmunum. „Bless-
aður vertu, ég er bara sendisveinn,“
sagði hann og hélt áfram að negla en
lét konurnar um skipulagninguna.
Á sýningunni eru hátt í 30 myndir.
Lilja málar aðallega abstrakt og
landslag. „Mér finnst skemmtilegast
að mála á striga og langskemmtileg-
ast að mála á hör. Hann dúar svo
skemmtilega,“ segir hún um leið og
hún handleikur mynd sem hún mál-
aði á endurunninn pappír. „Margar
þessara mynda eru tilraunir og yf-
irleitt vinn ég með eina í einu. Ég er
mikið fyrir að skoða himingeiminn,
heillast af myndum sem teknar eru
úti í geimnum.“
Góðir kennarar
Lilja segir að hún hafi fengið
bakteríuna í Austurbæjarskólanum
og Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
„Ég var með svo frábæra kennara,“
rifjar hún upp. „Valgerður Briem
kenndi mér teikningu í barnaskól-
anum og hún fór í litina. Því gleymi
ég aldrei. Þegar við vorum sjö,
átta ára kenndi hún
okkur hvað voru
heitir litir og hvað
voru kaldir litir.
Hún var einstök.
Skarphéðinn Har-
aldsson kenndi
mér í gagnfræða-
skólanum en hann
var einn af bestu
vatnslitamálurum landsins. Hann
var mjög flinkur og þau létu mann
gera allt mögulegt, meðal annars
dúkristu.“
Lilja var dansari í leikhúsi, skrif-
aði um ballett, lét til sín taka í
stjórnmálum og vann sem djákni í
kirkju. „Þetta tvinnast allt saman, er
allt saman nákvæmlega sami hlut-
urinn, sem nýtist mér í myndlist-
inni,“ segir hún og bætir við að mörg
myndlistarnámskeið hafi líka gert
sér gott. „Ég tek mig ekkert hátíð-
lega en held að ég sé ekkert verri
heldur en margur annar,“ segir hún.
Vegna bakveiki segist hún ekki geta
verið í golfi og myndlistin eigi vel við
sig. „Maður þarf líka að gera eitt-
hvað en ég hugsa myndlistina ekki
sem lifibrauð,“ segir hún.
Lilja í kaldri og heitri litadýrð
75 ára málari
með fyrstu einka-
sýninguna
Morgunblaðið/RAX
Sýning Þóra Einarsdóttir og Lilja Hallgrímsdóttir hengja upp myndir í Gróskusalnum í gær.
Lilja Hallgrímsdóttir hefur komið
víða við, er m.a. með BA-menntun í
guðfræði og djáknafræði frá HÍ og
er vígður djákni. Eftir að
hún fór á eftirlaun 2004
hefur hún sótt mörg nám-
skeið í hand- og mynd-
mennt. Hún hefur m.a.
sótt námskeið í myndlist
hjá Félagsstofnun aldraðra
í Garðabæ, hjá Sigtryggi B.
Bjarnasyni í Myndlistaskól-
anum í Reykjavík 2009 til 2011, hjá
Bjarna Sigurbjörnssyni í Myndlist-
arskóla Kópavogs 2011 til 2012 og
master class námskeið hjá honum
núna í haust.
Hún hefur tekið þátt í fjölmörg-
um samsýningum í Reykjavík og
Garðabæ en heldur nú sína fyrstu
einkasýningu, í Gróskusalnum,
Garðatorgi 8. til 11. nóvember. Á
morgun verður opið kl. 17-19 og kl.
14-18 föstudag til sunnudags.
Undirbúningur í átta ár
LILJA HALLGRÍMSDÓTTIR MEÐ MÖRG JÁRN Í ELDINUM
Júpiter
Margrét Marteinsdóttir hefur verið
ráðin dagskrárstjóri útvarps og
Skarphéðinn Guðmundsson dag-
skrárstjóri sjónvarps RÚV. Margrét
hefur starfað við útvarp og sjónvarp í
fimmtán ár og Skarphéðinn hefur
undanfarin fimm ár gegnt stöðu dag-
skrárstjóra Stöðvar 2.
Nýir dagskrárstjórar
til starfa hjá RÚV
Skarphéðinn
Guðmundsson
Margrét
Marteinsdóttir