Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 Í grein okkar í Morgunblaðinu 27. okt. sl. gagnrýndum við tillögu Hjalta Hugasonar prófessors um þjóðkirkjuákvæði í nýrri stjórnarskrá. Hann hefur nú brugð- ist við gagnrýni okkar í grein á trúarvef þjóðkirkjunnar og ljóst er að hann hefur á liðnum dögum nálgast sjónarmið okkar. En ástæða er til að ítreka að ekkert bendir til að þeir sem greiddu atkvæði með þjóðkirkju- ákvæði hafi með því viljað draga sem mest úr vægi þess í nýrri stjórnarskrá. Þannig er ekki hægt að fallast á að það sé „ásættanlegt lágmark“ fyrir meirihluta kjós- enda sem greiddi atkvæði með þjóðkirkjuákvæði að einungis sé minnst á nauðsyn þess að setja landslög um þjóðkirkju, lög sem gætu allt eins verið henni neikvæð og skert hlutverk hennar. Það er einfaldlega ekki nóg að setja stjórnarskrárákvæði um það eitt að í landinu starfi þjóðkirkja, að málefni hennar heyri undir op- inberan rétt og að staða hennar sem þjóðkirkja sé skilgreind í lög- um. Það sem þarf að koma fram í stjórnarskrá er gildi þjóðkirkju fyrir samfélagið og skylda rík- isvalds til að standa vörð um það gildi. Núverandi stjórnarskrár- ákvæði um þjóðkirkju snýst um þetta en engu að síður mætti skerpa á því frekar og útvíkka það til annarra félaga sem skilgreina sig sem trúfélög eða lífsskoð- unarfélög og myndað hafa formleg tengsl við ríksivaldið með skrán- ingu. Taka má undir þá ábendingu Hjalta að hugsanlega megi árétta menningarlegt vægi kristinnar trúarhefðar strax í inngangi nýrr- ar stjórnarskrár. Það er hins veg- ar misskilningur að við séum að halda því fram að núverandi þjóð- kirkjuákvæði sé beinlínis mæli- kvarði á trú þjóðarinnar. Þó má ekki vanmeta táknrænt gildi þess að þjóðkirkju sé getið á jákvæðan hátt í stjórnarskrá, einkum og sér í lagi þar sem hún er jafngömul trúfrelsisákvæðinu. Það sem árétta þarf er mikilvægi kristinnar trúar sem menningarhefðar sem samofin er íslensku samfélagi um leið og það er áréttað að hér ríki umburðarlyndi þar sem kristin og húmanísk sjónarmið þrífist hlið við hlið í góðri allsherjarreglu og séu jafnvel samofin. Hjalti virðist ganga út frá þeirri forsendu að ríkisvald geti verið trúarlega hlutlaust en færa má rök fyrir því að ekkert raunverulegt hlutleysi sé þar mögulegt. Enn- fremur má færa rök fyrir því að enginn raunverulegur aðskilnaður sé mögulegur milli ríkisvalds og trúarstofnana enda snúist málið þvert á móti um hvers konar tengsl sé þar um að ræða. Aðskiln- aðarorðræðan er oftar en ekki tæki þeirra sem ýmist vilja koma í veg fyrir eftirlit hins opinbera varðandi kenningu, skipulag eða fjármál trúarstofnana eða vilja þrengja sem mest að trúarstofn- unum í opinberu rými. Það hlýtur að vera skylda rík- isvalds að styðja og vernda þau trúfélög sem starfandi eru í land- inu, myndað hafa formleg tengsl við ríkið og varðveita umburð- arlynda trúarlega menningarhefð. Þetta hlutverk ríkisvalds er svo mikilvægt að það ber að festa það í stjórnarskrá. Hins vegar gæti verið ástæða til að skerpa betur á því hvað átt er við með stuðningi og vernd. Slíkt ákvæði snýr hvorki að fjárhagslegum skuldbindingum né vernd frá hvers kyns gagnrýni. Tilgangurinn með ákvæðinu er fyrst og fremst sá að tryggja að trúarhefðir séu metnar að verð- leikum í opinberu rými og þeim ekki vikið til hliðar á þeirri for- sendu að lítið sem ekkert sé um þær sagt í stjórnarskrá. Þetta er það sem Hjalti hefur greint sem jákvætt trúfrelsi en reynslan sýnir að þegar reynt er að gera hið op- inbera rými „veraldlegt“ getur það hæglega snúist upp í andúð gegn hvers kyns trúarhópum og trúar- hefðum. Hið svokallaða „neikvæða trúfrelsi“ þar sem ríkisvald beitir sér fyrir því að sem minnst fari fyrir öllu trúarlegu á þeim for- sendum að almenningur þurfi frelsi undan öllu slíku er ekki raunverulegt trúfrelsi heldur óþol. Tillöguna að nýju þjóðkirkju- ákvæði, sem við kynntum í grein okkar, má útfæra með ýmsum hætti svo framarlega sem það inn- tak hennar standi að stjórn- arskráin árétti að ríkisvaldi beri að vernda og styðja jafnt þjóð- kirkju sem önnur sambærileg fé- lög sem hlotið hafi skráningu og myndað formleg tengsl við ríkið. Ekkert er því til fyrirstöðu að hafa stjórnarskrárákvæði þess efnis að breyta megi því að þjóðkirkjan hafi stöðu þjóðkirkju gagnvart rík- inu. Með tillögu okkar var slíku ekki andmælt. Hins vegar má spyrja hvort eðlilegt sé að hafa ákvæði þess efnis að meirihluti kjósenda geti dregið til baka stuðning og vernd við skráð trú- félög. Sú tillaga sem Hjalti lagði fyrir stjórnlagaráð á sínum tíma er mjög í anda þeirra sjónarmiða sem við byggðum tillögu okkar á og tökum við undir með honum að draga megi hana fram á nýjan leik. Breytingartillögur okkar við hana eru færðar inn í hornklofa: „Ríkisvaldið [styður og] verndar öll skráð trú- og lífsskoðunarfélög. [Evangelísk-lúthersk kirkja] er þjóðkirkja á Íslandi. Breyta má [þjóðkirkjuákvæðinu] með lögum. Slíka breytingu skal bera undir þjóðaratkvæði til samþykktar eða synjunar í leynilegri atkvæða- greiðslu. Nánar skal kveðið á um stöðu þjóðkirkjunnar í lögum.“ Þessi tillaga er í anda tillögu okk- ar og í fullu samræmi við nið- urstöðu þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar. Gildi þjóðkirkjuákvæðis í stjórnarskrá Eftir Bjarna Rand- ver Sigurvinsson og Pétur Pétursson » Það sem þarf að koma fram í stjórn- arskrá er gildi þjóð- kirkju fyrir samfélagið og skylda ríkisvalds til að standa vörð um það gildi Bjarni Randver Sigurvinsson Bjarni er stundakennari við H.Í. og Pétur prófessor. Pétur Pétursson ...alveg með’etta Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.