Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012
ÓPERUFERÐ TIL NEW YORK
20.–25. FEBRÚAR 2013
í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Verdis og Wagners
Farið verður á eftirfarandi sýningar í Metropolitan-óperunni:
Parsifal eftir Richard Wagner. Stjórnandi er Daniele Gatti og í
aðalhlutverkum eru Jonas Kaufmann, Katarina Dalayman, Peter
Mattei, Evgeny Nikitin og René Pape.
Don Carlo eftir Giuseppe Verdi. Stjórnandi er Lorin Maazel og í
aðalhlutverkum eru Ramón Vargas, Barbara Frittoli, Anna Smirnova,
Dmitri Hvorostovsky, Ferruccio Furlanetto og Eric Halfvarson.
Carmen eftir Georges Bizet. Stjórnandi er Michele Mariotti og í
aðalhlutverkum eru Anita Rachvelishvili, Nikolai Schukoff, Ekaterina
Scherbachenko og Teddy Tahu Rhodes.
Enn fremur verður boðið upp á aðra menningartengda viðburði.
Fararstjórar eru Tómas H. Heiðar, formaður Vinafélags Íslensku
óperunnar og Edda Jónasdóttir, leiðsögumaður.
Skráning hefst mánudaginn 12. nóvember en einungis 40
sæti eru í boði. Edda Jónasdóttir veitir nánari upplýsingar og
annast skráningu. Vinsamlegast sendið tölvupóst á edda@eric.is
eða hringið í síma 848-3890.
Vinafélag Íslensku óperunnar stendur fyrir
Menntaskólinn
við Hamrahlíð
www.mh.is
STÖÐUPRÓF
Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin í
Menntaskólanum við Hamrahlíð í eftirfarandi tungumálum:
Danska/Danish (6 einingar/10 fein*), mán. 3. des. kl. 16:00.
Enska/English (9 einingar/15 fein*), fim. 29. nóv. kl. 16:00.
Franska/French (12 einingar/20 fein*) mið. 28. nóv. kl. 16:00.
Ítalska/Italian (12 einingar/20 fein*), mið. 28. nóv. kl. 16:00.
Norsk/Norwegian (6 einingar/10 fein*), lau. 8. des. kl. 10:00.
Spænska/Spanish (12 einingar/20 fein*), mið. 28. nóv. kl. 16:00.
Stærðfræði/Mathematics (stæ103/5 fein, stæ203/5 fein, stæ263/5 fein) þri. 4. des. kl. 16:00.
Sænska(Swedish (6 einingar/10 fein*), lau. 8. des. kl. 10:00.
Þýska/German (12 einingar/20 fein*), mið. 28. nóv. kl. 16:00.
*hámarks einingafjöldi sem hægt er að ná, frá og með fyrsta áfanga á framhaldsskólastigi.
Rafræn skráning í stöðupróf fer fram á heimasíðu skólans http://www.mh.is/skolinn/exam/. Frekari
upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 595-5200. Sýna þarf persónuskilríki með mynd í prófinu.
Prófgjald, kr. 8000 fyrir hvert próf, ber að greiða inn á reikning Menntaskólans við Hamrahlíð í banka 323
hb 26 nr 106, kt. 460269-3509. Greiðslufrestur er til hádegis á prófdegi, nauðsynlegt er að fram komi nafn
og kennitala próftaka. Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt.
PLACEMENT TESTS
Placement tests (for Secondary School credit) will be held at Menntaskólinn við Hamrahlíð in the subjects
listed above.
On-line registration takes place on the school website http://www.mh.is/skolinn/exam/. For more information
call the school office tel. 595-5200. Everyone sitting the test must show an ID with a picture.
The fee, kr. 8000 per test, should be paid to the account of the Menntaskólinn við Hamrahlíð bank 323 – 26
– account no. 106, id. 460269-3509 before noon on the day of the test, except for Norwegian and Swedish
should be before noon on the day before the test. Please provide the name and identification number of the
examinee when paying. Only those that have paid can sit the exam.
Rektor.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Titillinn Hylur fangar vel það
streymi og kyrrð sem í tónlistinni er.
Í ám er hylurinn staður þar sem
dýpið er meira, straumurinn minnk-
ar og tíminn stendur nánast í stað. Í
tónlistinni minni dvel ég við ákveðna
hugmynd, en hún fær samtímis að
streyma áfram í ýmsar áttir,“ segir
Agnar Már Magnússon djasspíanisti
um samnefnda tveggja diska útgáfu
sem Dimma gaf nýverið út. Hylur er
fjórða sólódjassplatan sem Agnar
Már sendir frá sér. Aðspurður segist
Agnar Már í mörg ár hafa haft á
stefnuskránni að gera einleiks-
upptökur. „Ég samdi við útgefanda
minn, Aðalstein Ásberg, hjá Dimmu
um að ég færi í tvo daga inn í Von-
arsalinn hjá SÁÁ, en þeir eru með
frábæran flygil þar, og tæki upp alls
konar músík. Það skilaði níu klukku-
stundum af efni, jafnt erlendu sem
íslensku auk þess sem þarna var
frumsamið efni eftir mig í bland við
spunamúsík sem ég samdi á staðn-
um. Þegar við fórum að hlusta á upp-
tökurnar fannst okkur spunarnir
skemmtilegastir og ákváðum þá að
gefa þá út á tvöföldum geisladiski,“
segir Agnar Már, en alls eru 22 lög á
diskunum tveimur. „Ég valdi þetta
þannig að lögin væru í svipuðum stíl,
en samt fjölbreytt.“
Áskorun að stöðva ekki flæðið
Agnar Már bendir á að spuninn er
fyrirferðarmikill í djassinum. „Ég er
yfirleitt að spinna í kringum fyrir-
fram samin lög. Á diskunum er hins
vegar enginn slíkur grunnur. Það
veitir mér frelsi til þess að nálgast
hljóðfærið eins og leikfangakassa
þar sem maður getur leyft sér að
prufa ýmislegt.“ Aðspurður segir
Agnar Már ákveðin líkindi milli þess
að semja tónlist og spinna. „Ég hef
samið talsvert af tónlist í gegnum
tíðina og þekki það ferli vel. Þá er
maður að setja saman hluti sem
maður veit ekki hvernig koma út, en
gerir það hægt og rólega. Í spuna er
ég í reynd að gera sama hlutinn, en
hraða öllu ferlinu í tónsköpuninni,“
segir Agnar Már og tekur fram að
ein helsta áskorunin þegar komi að
spuna sé að leyfa hugmyndum að
streyma án þess að byrja sjálfkrafa
að reyna að ritskoða sjálfan sig.
Myndirnar sem prýða umslagið á
diskunum og bæklinginn eru úr
smiðju Högna Sigurþórssonar.
„Högni hefur alla tíð léð verkum
mínum myndrænan búning og því lá
beint við að hann ynni sitt eigið lista-
verk, sem er spunaverk af sama toga
og tónlistin.“
Spunatónleikar
Þess má að lokum geta að Agnar
Már fagnar útkomu Hyls með út-
gáfutónleikum í Vonarsal SÁÁ í dag
kl. 15. Aðspurður segist hann eðli
málsins samkvæmt ekki geta leikið
efni af diskunum tveimur þar sem
um sé að ræða spuna. „Á tónleik-
unum mun ég því spinna nýtt efni.
Ekki er samt ólíklegt að hljóðheim-
urinn verði í samhljóðan við lögin á
diskunum, enda er ég að spila í sama
sal og á sama hljóðfæri og á disk-
unum. Ég er sannfærður um að
hljóðfærið hafi átt stóran þátt í því
hvaða stefnu tónlistin tók. Hljóðfær-
inu líður best í ákveðnu mengi,“ seg-
ir Agnar Már að lokum.
Tónlistin streymir kyrrlát áfram
Djasspíanistinn Agnar Már Magn-
ússon með útgáfutónleika í dag
Spunar „Þegar við fórum að hlusta á upptökurnar fannst okkur spunarnir
skemmtilegastir og ákváðum þá að gefa þá út,“ segir Agnar Már.
Hlynur Helgason opnar sýninguna
Patagónía í Mjólkurbúðinni Listagili
á Akureyri kl. 15. Sýningin sam-
anstendur af gvassakvarellum, ljós-
myndum, ljósmyndaskyggnum og
myndbandsverki. Myndefni sýning-
arinnar var unnið árið 2010 í Argent-
ínu, bæði í Buenos Aires en einnig á
ferð þvert yfir suðurhluta landsins,
Patagóníu. „Hugmyndin er að birta
á Akureyri vissan fjarska sem von-
ast er til að tóni þó við ímynd Ak-
ureyringa og þátttöku í heiminum.
Viss vakning á bak við þrána sem
fylgir sýningunni er fengin úr kafla
Atómstöðvar Halldórs Laxness, en
þar er Patagónía kynnt til sögunnar
sem einskonar draumaland þar sem
jafnrétti og réttlæti getur átt sér
stað,“ segir m.a. í fréttatilkynningu.
Hlynur Helgason á að baki rúm-
lega 25 ára feril sem myndlistar-
maður. Hann útskrifaðist frá mál-
aradeild Mynd og Handíðaskóla
Íslands 1986 og lauk M.A. prófi frá
Goldsmith́s Collage, Un. Of London
1994. Á síðasta ári lauk Hlynur
Ph.D. prófi í Media Philosophy frá
European Gratuate School.
Sýningin stendur til 25. nóv-
ember, en opnunartími er laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17 og
eftir frekara samkomulagi.
Patagónía opnuð
Fjarski Eitt verkanna á sýningunni.
Hlynur Helga-
son sýnir í Mjólk-
urbúðinni
Lifandi vatn er yfirskrift tónleika
Kvennakórs Háskóla Íslands sem
fram fara í Háteigskirkju á morgun
kl. 16. Stjórnandi kórsins er Mar-
grét Bóasdóttir, en kórinn stofnaði
hún árið 2005. Á tónleikunum verður
m.a. frumflutt ný útsetning Ragn-
heiðar Gröndal á sálminum „Lifandi
vatnið“ við ljóð Sigurðar Pálssonar,
um 900 ára gömul miskunnarbæn,
Hallelúja frá Gana, Haustvísur til
Máríu í nýrri útsetningu Smára Óla-
sonar, lög við Passíusálma Hall-
gríms Péturssonar eftir Hjálmar H.
Ragnarsson, tónlist kanadískra tón-
skálda sem ekki hefur heyrst hér-
lendis áður, kór nunnanna úr kvik-
myndinni Sound of Music og
kórverk eftir F. Schubert.
Raddir Margrét ásamt kórnum.
Lifandi
vatnið
Tónleikar Kvenna-
kórs Háskóla Íslands