Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 44
44 UMRÆÐAN Messur á morgun | Kristniboðsdagurinn MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 Ný ríkisstjórn undir forystu Sjálf- stæðisflokksins í vor þarf að eyða óvissu og skapa eitthvað sem börnin okkar og barnabörn geta not- ið góðs af til fram- tíðar. Þjóðin er lík- leg til að gefa flokknum aftur tæki- færi en Sjálfstæð- isflokkurinn fær hinsvegar ekki langan tíma til að sanna sig fyrir þjóðinni. Fyrstu hundrað dagarnir verða engir hveitibrauðsdagar. Það þýða eng- in vettlingatök og eins gott að forystan sé sjóklár. Það þarf strax að koma í veg fyrir frekari landflótta fyrirtækja og fjölskyldna. Skapa hvata í stað þess að skattleggja hag- kerfið í þrot. Nýrrar rík- isstjórnar bíður það verkefni að færa hagkerfi landsins upp virð- iskeðjuna. Úr láglaunageirum yf- ir í þekkingageira – úr opinbera geiranum yfir í einkageirann. Leggja áherslu á frekari iðn- og tækniþróun og styðja við nýsköp- un og fjölbreytni í hagkerfinu. Við þurfum fyrirtæki af öllum stærðum, í ólíkum geirum, alls- staðar á landinu sem fjárfesta og ráða fólk. Það á að virkja frumkvöðla og skapa áhugavert umhverfi fyrir fyrirtæki til að þróast og verða til í. Skattaívilanir og um- hverfi sem laðar hingað erlend tækni- fyrirtæki eins og Go- ogle, Intel eða Apple. Ríkisstjórnin verður að horfa á viðskiptalífið sem við- skiptavin og kappkosta að fjölga þeim. Setja hagkerfinu og þróun þess markmið og gera hagsæld- arsáttmála við þjóðina. Stuðla að skilvirku og gagnkvæmu sam- skiptahagkerfi. Setja mælanleg markmið og láta aðila vinnu- markaðarins gefa sér mán- aðarlega einkunn fyrir frammi- stöðu. Jafnvel árangurstengja laun æðstu embættismanna rík- issins. Erlend fjárfesting er nauðsyn- leg. Erlend fjárfesting skapar tækifæri til að fjölga störfum, auka tækniþekkingu og fjárfest- ingabúnað í landinu. Stjórnvöld- um á að vera meira umhugað um störf og tekjuskatta sem þeim fylgja en skattlagningu á fjár- magnstekjur og fyrirtæki. Ísland er hvorki fátækt af auð- lindum né tækifærum. Það hefur verið lögð áhersla á að byggja grunn í mannaflsfrekum iðn- greinum undanfarna áratugi. Það er kominn tími til að byggja upp þekkingu í nýjum iðn- og tækni- greinum. Við eigum orku og tækifæri til að búa til og selja meiri orku. Þessa orku og kraft- inn í samfélaginu þarf ný rík- isstjórn undir forystu Sjálfstæð- isflokksins að beisla. Stuðla að innlendri eftirspurn eftir orkunni áður en við seljum hana í streng yfir hafið til Evrópu. Virkjum land og þjóð Eftir Kjartan Örn Sigurðsson Kjartan Örn Sigurðsson » Stjórnvöldum á að vera meira umhugað um störf og tekjuskatta sem þeim fylgja en skattlagningu á fjár- magnstekjur og fyr- irtæki. Höfundur er bæjarfulltrúi og fram- bjóðandi í 5. sæti í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Kraganum. AKUREYRARKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur, organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Umsjón með sunnudagaskóla hafa sr. Sunna Dóra Möller og Hjalti Jónsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Ingunn, Valli og sr. Þór leiða stundina. Rebbi refur og fleiri gestir. Söngur, bibl- íusögur og leikir. Ávextir og meðlæti á eftir. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Viðari Stefánssyni guðfræðinema og Ásdísi Pétursdóttur Blöndal djákna, sem annast samveru sunnudagaskól- ans. Félagar úr Kór Áskirkju syngja, organisti Magnús Ragnarsson. Á eftir er köku- og nytja- basar Safnaðarfélagsins í safnaðarheimilinu, einnig verða seldar veitingar til styrktar félag- inu. Sjá www.askirkja.is. ÁSTJARNARKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Kristniboðarnir Helga Vilborg Sigurjóns- dóttir og Kristján Þór Sverrisson segja frá kristniboðsstarfi sínu í Afríku í máli, myndum og söng ásamt börnum sínum. Helga Þórdís Guðmundsdóttir leiðir söng og sr. Kjartan Jónsson stjórnar stundinni. Tekið verður við framlögum til kristniboðsstarfsins. Hressing á eftir. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Karen Ösp, Finnur Sigurjón og Agnes María. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa og sunn- dagaskóli kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, Skúli Svavarsson kristniboði prédik- ar. Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Örn Magnússon. Tekið við gjöfum til kristni- boðsins og kynning á starfinu í máli og mynd- um. Umsjón með sunnudagaskóla hefur Þór- eyjar Daggar Jónsdóttur djákna. Kaffi og djús á eftir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Umsjón hafa Bára Elíasdóttir og Daníel Ágúst ásamt organista Jónasi Þórir og sóknarpresti. Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukór Bústaðakirkju syngur, organisti kantor Jónas Þórir. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir héraðsprestur. Kaffi á eftir. DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Zbigniew Zuchowicz, kór Digra- neskirkju B hópur. Gideonfélagar koma í heimsókn. Veitingar á eftir. Sjá www.digra- neskirkja.is DÓMKIRKJAN | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Karl V. Matthíasson prédikar, sr. Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari. Dómkór- inn syngur, organisti er Kári Þormar. Kaffi á eftir. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Prestur sr. Jóhanna I. Sig- marsdóttir. Jón Fjölnir Albertsson, kristniboði prédikar. Unglingakór „gospelkór“ Egilsstaða- kirkju syngur og leiðir söng, stjórnandi er Margrét Lára Þórarinsdóttir. Organisti Torvald Gjerde. Kristniboðsfélagið „Fljótið“ verður með kaffisölu og fjáröflun í safnaðarheimilinu á eftir. FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Pétur Ragnhildarson og Hreinn Pálsson leiða stundina. Stúlkur úr listasmiðj- unni Litróf syngja og leiða almennan safn- aðarsöng, undirleik annast Íris Andrésdóttir og Ragnhildur Ásgeirsdóttir. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 13. Hrafnistukórinn í Hafn- arfirði syngur undir stjórn Böðvars Magn- ússonar. Kór Fríkirkjunnar leiðir almennan söng undir stjórn Arnar Arnarsonar. Orgel Skarphéðinn Þór Hjartarson og prestur er Sig- ríður Kristín Helgadóttir. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Kaffi á eftir. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og þjónar fyrir altari. Fermingarbörn taka þátt. Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tón- listina undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, organista. Kynnt verður saga og starf Gideon- félagsins á heimsvísu og á Íslandi. Fjöl- skyldur fermingarbarna og aðrir ættingjar eru hvattir til að mæta. GLERÁRKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Ragnar Gunnarsson kristniboði pré- dikar og sr. Guðmundur Guðmundsson þjón- ar. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Val- mars Väljaots. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árnason pré- dikar og þjónar fyrir altari. Stúlknakór Reykja- víkur í Grafarvogskirkju syngur, stjórnandi er Margrét Pálmadóttir. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Umsjón með sunnudagaskóla hefur Þóra Björg Sigurðardóttir, undirleikari er Stefán Birkisson. Borgarholtsskóli Guðsþjónusta og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kammerkór kirkjunnar syngur, organisti er Hákon Leifs- son. Umsjón með sunnudagaskóla hefur Gunnfríður Tómasdóttir. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11, um- sjón hafa Helga og Nanda María. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til SÍK. Messu- hópur þjónar. Nemendur úr söngskólanum Domus Vox syngja undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Organisti er Ásta Haraldsdóttir. Prestur sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Molasopi á eftir. Hversdagsmessa með Þorvaldi Hall- dórssyni á fimmtudag kl. 18.10. GUÐRÍÐARKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð- arkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Guð- mundar Brynjólfssonar og Ægis Arnars Sveinssonar. Meðhjálpari Aðalsteinn D. Ok- tósson, kirkjuvörður Hugrún Ragnarsdóttir. Kaffi á eftir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjöl- skyldumessa kl. 11. Barnakórinn syngur, stjórnandi er Helga Loftsdóttir og píanóleikari er Anna Magnúsdóttir. Organisti Guðmundur Sigurðsson, djákni Nína Björg Vilhelmsdóttir umsjónarmaður barnastarfs. Prestur sr. Þór- hildur Ólafs. Kaffi og djús á eftir. Messa á miðvikudag kl. 8.15. Organisti er Guðmundur Sigurðsson, prestur sr. Þórhildur Ólafs. Morg- unverður í Odda Strandbergs. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt rev. Leonard F. Ashford. Hópur messuþjóna aðsoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja, org- anisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfi hefur Rósa Árnadóttir. Salóme Jórunn Bernharðsdóttir segir frá Kenýu kl. 10. HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnaguðs- þjónusta kl. 11. Páll Ágúst, Arnar og Sólveig Ásta annast barnastarfið. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Kára Allanssonar, organista. Prestur er Tómas Sveinsson. HEILSUSTOFNUN NLFÍ | Guðsþjónusta kl. 11. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Gísli Jónasson prófastur setur presta kirkj- unnar í embætti með formlegum hætti. Sr. Sigfús Kristjánsson verður settur í embætti sóknarprests og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir verður sett í embætti prests. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og Kór Hjallakirkju leiðir safnaðarsöng og messus- vör. Boðið upp á veitingar á eftir. Sunnudaga- skóli kl. 13. Sjá nánar á hjallakirkja.is HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam- koma kl. 17. Trond Are Schelander talar. HVALSNESKIRKJA | Messa kl. 14. Kynning á Hallgrími Péturssyni. Legsteinn Steinunnar Hallgrímsdóttur skoðaður. Fermingarbörn og foreldrar sérstaklega boðuð til kirkju. Prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðsson. HVERAGERÐISKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. KAÞÓLSKA Kirkjan: Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18. Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11. Virka daga er messa kl. 18. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema föstu- daga). Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13.00 á pólsku og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugardaga messa á ensku kl. 18.30. Stykkishólmur | Messa kl. 10. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16. KÁLFATJARNARKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 14. Kristján Þór Sverrisson kristniboði segir frá kristniboðsstarfi sínu í Afríku og pré- dika. Börn og unglingar úr æskulýðsstarfi kirkjunnar syngja. Kór Kálfatjarnarkirkju syng- ur undir stjórn Franks Herlufsens organista. Sr. Kjartan Jónsson þjónar fyrir altari. Hress- ing á eftir. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Messuþjónar taka þátt. Arnór Vilbergsson er við hljóðfærið og félagar úr kór kirkjunnar syngja. Prestar eru sr. Erla Guðmundsdóttir og sr. Sigfús B. Ingvason. Veitingar á eftir. KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjöl- skyldumessa kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson og Þóra Marteinsdóttir hafa umsjón með mess- unni. Sunnudagaskólinn tekur þátt. Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Þórunnar Björns- dóttur. KVENNAKIRKJAN | Messa í Fríkirkjunni í ORÐ DAGSINS: Skattpeningurinn. (Matt. 22) Móttaka að- sendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfu- daga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morg- unblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felli- gluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ mbl.is alltaf - allstaðar Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali ÁRSALIR FASTEIGNAMIÐLUN 533 4200 FASTEIGNASALA FYRIRTÆKJASALA - LEIGUMIÐLUN .... Hafðu samband FYRIRTÆKI ÓSKAST TIL KAUPS Fyrir viðskiptavin leitum við eftir fyrirtæki í rekstri til kaups, gjarnan í skiptum fyrir gott einbýlishús með einkasundlaug á Spáni sem er í eigu íslensks hlutafélags. Upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, GSM 893 2495. Til sölu snyrtileg 96,7 m² 4ra herbergja íbúð við Skólavörðustíg 3. Eignin skiptist í 3 svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Verð 33,5 m. Frábær staðsetning í hjarta miðbæjarins. Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson sölumaður í síma 897-1401. Guðbjarni Eggertsson Hdl löggiltur fasteignasali.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.