Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 33
FRÉTTIR 33Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012
Öflugan mann
á Alþingi!
Jón Gunnarsson alþingismaður býður sig fram í 2. sæti prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Kosið verður í dag, laugardaginn 10. nóvember og eru allir hvattir
til þess að kjósa. Upplýsingar um kjörstaði er að finna á www.xd.is
www.jongunnarsson.is
Suðurafrísk kona reynir að stöðva
stóra gröfu sem notuð var til að rífa
niður hús hennar í bænum Lenesíu,
nálægt Jóhannesarborg, í gær. Íbú-
ar bæjarins kveiktu í hjólbörðum
og lokuðu götum til að reyna að
stöðva gröfur og önnur vinnutæki
sem notuð voru til að rífa niður hús
á lóðum sem höfðu verið seldar
ólöglega. Yfirvöld sögðu að tekist
hefði að rífa niður 37 af 113 húsum
sem reist voru á lóðunum.
Mikill húsnæðisskortur er í
Suður-Afríku og um tvær milljónir
manna búa í hreysum sem hafa ekki
verið heimiluð til búsetu.
Reyndi að
verja húsið
Norðmaðurinn Anders Behring
Breivik, sem fyrr á þessu ári var
dæmdur til að minnsta kosti 21 árs
fangelsisvistar fyrir að myrða 77
manns í Ósló og Útey á síðasta ári,
segist búa við ómannúðlegar að-
stæður í fangelsinu þar sem hann af-
plánar dóm sinn.
Breivik hefur sent norsku fang-
elsismálastofnuninni 27 síðna bréf
þar sem hann kvartar meðal annars
yfir köldu kaffi og að fá ekki nógu
mikið smjör á brauðið.
Norska blaðið VG fjallaði um bréf-
ið í gær en norsk stjórnvöld hafa
ekki viljað tjá sig um málið.
Breivik segist í bréfinu vera nán-
ast haldið í einangrun í 23 stundir á
sólarhring í Ila-fangelsinu skammt
frá Ósló. Hann segir að fangaklefinn
sé illa skreyttur, gluggalaus og kald-
ur. Handjárn, sem sett eru á hann
þegar hann er fluttur milli her-
bergja, séu of hvöss og skerist inn í
úlnliðina. Fylgst sé með honum þeg-
ar hann raki sig og bursti tennurnar.
Einnig kvartar Breivik yfir því að
hann þurfi að afklæðast daglega svo
fangaverðir geti leitað á honum.
Segist hann upplifa þessa líkamsleit
sem stöðugar líkamsárásir.
Tölva, sem Breivik hafði aðgang
að á meðan hann var í gæslu-
varðhaldi, hefur nú verið tekin af
honum og hann verður að nota
gúmmípenna til að skrifa. Breivik
segir illmögulegt að skrifa með þess-
um pennum sem minni á pynt-
ingatæki.
AFP
Prísundin Fangaklefi Breiviks.
Breivik
kvartar yfir
klefanum
Segir aðstæðurnar
ómannúðlegar
Slitnað hefur upp
úr viðræðum milli
ríkisstjórna Evr-
ópusambands-
ríkjanna og Evr-
ópuþingsins um
fjárlög Evrópu-
sambandisns fyr-
ir næsta ár.
Alain Lamas-
soure, formaður
fjárlaganefndar
Evrópuþingsins, skýrði frá þessu í
gær. Hann sagði að ráðherraráð
ESB hefði ekki náð samkomulagi
um fjárlögin og því hefði viðræðun-
um verið hætt í bili.
Lamassoure sagði að fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
yrði nú að leggja fram nýtt fjárlaga-
frumvarp áður en viðræður hæfust
að nýju.
Það flækir málin að ekki hefur
enn tekist að stoppa upp í níu millj-
arða evra gat á fjárlögum yfirstand-
andi árs.
Boðað hefur verið til leiðtoga-
fundar ESB síðar í nóvember til að
ræða um fjárhagsáætlun sambands-
ins fyrir árin 2014-2020.
Slitnar upp úr
viðræðum um
fjárlög ESB
Enn deilt um fram-
lög vegna þessa árs
Höfuðstöðvar ESB
í Brussel.