Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 11
Diskó-friskó Þessar glimrandi diskódísir eru með sporin og dansgallann á hreinu. standa upp frá sjón- varpinu og prófa að dansa jive í smá stund og eiga þannig nota- lega stund saman. Þá megi líka marsera á ættarmótum til að létta andrúmsloftið og mælt er með því að dansa um stofu- gólfið til að koma sér í gang fyrst á morgnana. Guðbjörg seg- ir gamlan draum vera að rætast með útkomu bók- arinnar og eftir því sem hún best viti sé þetta í fyrsta sinn sem dansbók sé gefin út hér á landi bæði prentuð og á rafrænu formi. Við gerð bókarinnar fékk Guðbjörg til liðs við sig fagfólk sem kennir ólíkar tegundir dansa og jók þannig fjölbreytnina en sjálf hef- ur hún aðallega kennt listdans. Í dag segir Guðbjörg salsa vera einnig vin- sælast og þá þyki fólki gaman að horfa á argentínskan tangó en nokk- uð erfitt sé að læra hann. Þá klikki diskó aldrei fyrir alla aldurshópa og þar hrífi tónlistin fólk með út á gólf. Hringurinn tákn sameiningar Meðal þjóðlegra dansa megi nefna skottís og vikivaka en Guðbjörg segir unglinga hafa lúmskt gaman af því að læra íslensku þjóð- dansana. „Það er hópefli í að dansa í hring enda segi ég að hring- urinn sé tákn sameiningar. Rétt eins og þegar við sitjum til borðs í hring nær maður augnsambandi við alla í einu. Í byrjun 20. aldar barðist dans- arinn og kennarinn Isadora Duncan fyrir rétti barna til að dansa og upp- lifa list. Hún taldi tilgangslaust að þvinga 12 ára börn til lesturs. Þau áttu að þroskast gegnum ljóð, dans og tónlist. Ég held það sé nokkuð mikið til í þessu þó að börn verði auð- vitað líka að læra hefðbundnar náms- greinar. En það mætti örugglega nýta dans enn meira til að brjóta upp skóladaginn, sérstaklega meðal yngri barna sem hafa það ekki í sér að sitja kyrr lengi,“ segir Guðbjörg. Dansinn er gleðigjafi og það má nú al- veg lyfta að- eins upp geð- heilsu landans. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 Það hefur mikið verið um aðvera síðastliðna viku íVerzló enda var hún til- einkuð listum,“ segir Elín Margrét Böðvarsdóttir kynningarfulltrúi. „Hér var hönnunar- og myndlist- arkeppni, dansbardagi, „rave“- partí, hraðteiknikeppni og einnig flott dans- og tískusýning. Lista- félagið lauk svo vikunni með frum- sýningu á leikritinu Kæra Jelena í gærkvöldi undir leikstjórn Bjart- mars Þórðarsonar. Þetta leikverk er dramatískt en líka mjög fyndið. Leikstjórinn er eini utanaðkom- andi aðilinn sem kemur að þessari sýningu, nemendur sjá sjálfir um allt annað, búninga, hár og förðun og smíðuðu sviðsmyndina, en með- al nemenda eru ótrúlegir snill- ingar sem gengu í það að smíða heila íbúð sovéskrar kennslu- konu.“ Söngleikur eftir áramót Fimm leikarar bregða sér í verkinu aftur í tímann til Rúss- lands árið 1980, en þá voru tæki- færi fyrir ungt fólk ekki á hverju strái og unga fólkið því tilbúið að ganga langt til að reyna að tryggja sér sæmilega framtíð. El- ín segir að Verzló sé í raun með tvær sýningar á árinu. „Lista- félagið setur upp þessa sýningu um Kæru Jelenu núna fyrir ára- mót en Nemendamótsnefnd setur svo upp söngleik eftir áramót.“ Sýningin um Kæru Jelenu er komin í almenna miðasölu á www.midi.is og verður sýnd næstu tvær vikurnar. khk@mbl.is Facebook: KaeraJelena Verzló sýnir Kæru Jelenu Jelena Hér eru þau Unnur Rún, Bára Lind, Ásgrímur, Aron Már og Jakob Daníel í hlutverkum sínum í Kæru Jelenu sem frumsýnt var í gærkvöldi. Myndlist, dans, hönnun o.fl. á listaviku Verzlunarskólans Nemendur Verzlunar- skólans luku listaviku í gær með því að frumsýna Kæru Jelenu og verður leikritið sýnt áfram næstu tvær vikur. Kúl Bjartmar leikstjóri og lista- félagsnefndin. Sýning á olíumálverkum Margrétar Zóphóníasdóttur verður opnuð í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi undir yfirskriftinni Vængjablak í dag, laugardaginn 10. nóv- ember. Verkin á sýningunni Vængjablak tengjast öll minn- ingum. Gestir eru teknir á flug í draumkenndum veruleika þar sem mynstur, ævintýri og dýr tvinnast saman í eina heild. Sumar minningar okkar byggjast á raunverulegum atburðum en þær sterkustu eru oft draumkenndar eða ævintýralegar og tengjast hughrifum, stemmningu, sög- um eða ævintýrum. Það er undir okkur sjálfum komið að skapa fallegar minningar. Sýningin verður opnuð klukkan 14 en mun standa til 13. janúar 2013 og er opin virka daga frá kl. 11-17 og kl. 13-16 um helgar, aðgangur er ókeypis. Vængjablak er fimmta einkasýning Margrétar en hún hef- ur auk þess tekið þátt í fjölda samsýninga. Nánari upplýs- ingar um listakonuna og verk hennar má nálgast á heima- síðu hennar www.mz.is. Listakona Margrét stundaði listnám hér heima og í Dan- mörku en hún hefur einnig kennt myndlist á sömu stöðum. Sýning Margrétar Zóphóníasdóttur Vængjablak draum- kenndra minninga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.