Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 56
56 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012
Heill heimur af ævintýrum
Elsa Kristín Auðunsdóttir er 26 ára í dag. Hún starfar á leik-skóla og á sjö ára gamla dóttur sem heitir Laufey Líf Borg-arsdóttir. Elsa er Hafnfirðingur í húð og hár og styður
íþróttafélag Hauka. Hún stundaði bæði handbolta og frjálsar íþrótt-
ir á sínum yngri árum. Hún stundaði nám í Setbergsskóla og í Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ. „Mín helstu áhugamál eru dóttir mín,
útivera og hundar. Ég á að vísu ekki hunda eins og er en þeir eru
stórt áhugamál. Ég átti tvo hunda þar til fyrir tveimur mánuðum
þegar ég þurfti að láta þá frá mér,“ segir Elsa. Hún er jafnframt
mikill kokkur og hefur gaman af eldamennsku. Foreldrar Elsu eru
Laufey Baldvinsdóttir og Auðunn H. Herlufsen. „Ég hef mjög gam-
an af lífinu og elska lífið og tilveruna. Maður á ekki að taka lífið of
alvarlega. Svo er ég félagsvera sem þykir mjög vænt um vini og fjöl-
skyldu,“ segir Elsa.
Í dag ætlar hún að fara út að borða með vinkonum á Fridays. Á
eftir stefna vinkonurnar svo á Skemmtigarðinn í Smáralind.
Hún segist hafa gaman af að ferðast og hefur farið víða um Ís-
land. „Snæfellsnesið og Arnarstapi eru uppáhaldsstaðir mínir á Ís-
landi,“ segir Elsa. Hún stefnir að því að skoða heiminn í framtíðinni.
„Mig langar að fara til Taílands. Það er framandi land og ég sé fyrir
mér að það sé skemmtilegt að skoða öll þessi dýr sem þar eru,“ segir
Elsa Kristín að lokum.
Elsa Kristín Auðunsdóttir er 26 ára í dag
Elsa Kristín Auðunsdóttir Elsa er 26 ára í dag og ætlar að fara út að
borða og í Skemmtigarðinn í Smáralind með vinkonum sínum.
Ann dýrum og
elskar tilveruna
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjanesbær Adrían Máni fæddist 23. febrúar kl. 12.13. Hann vó 3.780 g og var
53 cm langur. Foreldrar hans eru Bjarndís Ýr Albertsdóttir og Pétur Karl Pét-
ursson.
Nýr borgari
S
igrún fæddist í Reykjavík
11. nóvember en ólst
upp á Hálsi í Fnjóska-
dal, í Reykjavík og á
Akureyri. Hún lauk
stúdentsprófi frá MA 1962, burt-
fararprófi frá Leiklistarskóla Þjóð-
leikhússins 1967, stundaði fram-
haldsnám við Schule des Theaters í
Köln í Þýskalandi í eitt ár, stundaði
söngnám hjá Engel Lund við Tón-
listarskólann í Reykjavík, hjá Sig-
urði Demetz við Nýja tónlistarskól-
ann og í einkatímum hjá Guðmundu
Elíasdóttur, og í söng og söng-
túlkun og leiklistarkennslu fyrir
söngvara hjá Torsten Föllinger og
Giesellu May í Svíþjóð. Þá stundaði
hún námskeið í listasögu og leikrit-
unarsögu við HÍ 1987-88 og hefur
auk þess sótt fjölda námskeiða fyrir
leikara og söngvara.
Sigrún var ritari landlæknis
1976-77, lausráðinn leikari við Þjóð-
leikhúsið 1967-83, leikari við Al-
þýðuleikhúsið, leikstjóri hjá BÍL og
Leikfélagi Akureyrar, var
leiklistarkennari á vegum BÍL og
fleiri aðila, fastráðinn kennari við
söngdeild Nýja tónlistarskólans frá
1980 og var skólastjóri Nýja tónlist-
arskólans 1998-2004.
Sigrún starfaði jafnframt við dag-
skrárgerð við Ríkisútvarpið 1968-97.
Sigrún Björnsdóttir, leikkona og fyrrv. skólastjóri – 70 ára
Stúdentar Sigrún, 50 ára stúdent, ásamt dóttursyni sínum, nýstúdent, Ragnari Bua Long Jónssyni, vorið 2012.
Hámenning í hávegum
Ung brúðhjón Sigrún, ásamt eiginmanni sínum Ragnari Björnssyni, dóm-
organista, skólastjóra Nýja tónlistarskólans og söngstjóra Karlakórsins
Fóstbræðra, en hann lést 1998. Þau giftu sig í desember 1961.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is