Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 er saga sem lætur engan ósnortinn Hetjuleg barátta salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík Borghildur Guðmundsdóttir er kornung þegar hún giftist hermanni af vellinum og flyst með honum til Bandaríkjanna. Allt leikur í lyndi þar til hann kemur heim breyttur maður úr Íraksstríðinu og martröð hennar hefst. Fólk sem stendur henni nærri svíkur hana og dómskerfið bregst. En Borghildur eflist við hverja raun og gefst aldrei upp. Ógleymanleg reynslusaga ungrar konu sem berst fyrir forræði drengjanna sinna í Bandaríkjunum og hér heima „ég gefst aldrei upp“ Gjafir sem gleðja LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660 Verð 24.000 kr. Myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson opnar í dag kl. 14 sýn- ingu sem nefnist Ilmvatnsáin has minni í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Á sýningunni mun Davíð skreyta menningarmiðstöð- ina og í því ferli koma fram vanga- veltur um Gerðuberg en Davíð hef- ur, að sögn sýningarhaldara, þekkt stofnunina frá blautu barnsbeini. „Davíð Örn Halldórsson hefur vakið athygli fyrir málverk sem einkennast af kraftmikilli notkun lita og spennandi samruna forma og frásagnarkennds fantasíuheims. Hann hefur unnið bæði málverk og rýmisverk sem hafa sterka skír- skotun til grafítíverka en falla á einstæða hátt að myndlistarhefð- inni um leið og þau vísa sterkt í götulistina. Davíð Örn notar fundið efni; málar með skipalakki, spreyj- ar með úðabrúsalakki og teiknar með tússi á fundnar tréplötur, pappa eða beint á veggi, auk þess að nota litrík límbönd og efnis- búta,“ segir m.a. í tilkynningu frá miðstöðinni. Sýningin stendur til 13. janúar 2013. Gjörkunnugur Davíð Örn hefur þekkt Gerðuberg frá blautu barnsbeini. Skreytir miðstöðina  Davíð Örn sýnir í Gerðubergi Grafík og bókverk nefnist sýning á verkum Rögnu Hermannsdóttur sem Listasafnið á Akureyri opnar í Sjón- listamiðstöðinni í dag laugardaginn kl. 15. „Verkin á sýningunni eru valin úr rausnarlegri dánargjöf Rögnu til Safnahússins á Húsavík,“ segir m.a. í tilkynningu, en Ragna var 87 ára að aldri er hún lést á síðasta ári. „Ragna var fjölhæf listakona og vann í marga miðla en á þessari sýningu er lögð áhersla á grafíkverk hennar, eink- anlega tréristur og bókverk en á því sviði náði hún sérstökum árangri. Sköpun hennar er dularfull og óræð í senn en samt er eins og að baki búi óþreyjufull löngun til að miðla, segja frá og koma ákveðnum boðskap á framfæri,“ segir í tilkynningu frá safninu. Eftir nám í ljósmyndun á árunum 1972-1975 hóf Ragna, 55 ára að aldri, listnám sitt við Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands. Leið hennar lá síðan til Hollands, í Rijks-Akademie í Amsterdam og til Rochester, New York, í áframhaldandi nám. Þegar heim var komið hóf hún heim- spekinám við Háskóla Íslands þar sem hún lauk BA námi 1997, þá 73 ára að aldri. Á tímabilinu 1976-2003 hélt Ragna 22 einkasýningar á Ís- landi og í Hollandi, og tók einnig þátt í fjölda samsýninga. Ljósmynd/Reynir Albert Þórólfsson Hjartahlý Eitt þeirra verka sem getur að líta á sýningunni. Grafík og bókverk  Sýning á verkum Rögnu Hermanns- dóttur í Listasafninu á Akureyri Ragna Hermannsdóttir Dimmbjartir staðir nefnist sýning á ljóðum Ísaks Harð- arsonar, mál- verkum Jóns Stefánssonar og hljóðverki Sig- rúnar Jónsdóttur sem sýnd er í Listasafni ASÍ um þessar mundir. Sýningarstjórar eru Steinunn G. Helgadóttir og Kristín G. Guðnadóttir. Á morgun koma Gerður Kristný, Kristín Ómarsdóttir, Bjarni Gunn- arsson og Dagur Hjartarson og lesa úr verkum sínum í safninu. Kynnir er Þröstur Leó Gunnarsson. Sýningin stendur til 16. desem- ber og er í öllu húsinu. Safnið er opið alla daga frá kl. 13 til 17 og aðgangur er ókeypis. Ljóðskáld lesa upp í Listasafni ASÍ Ísak Harðarson Sýning á verkum Þóru Bríetar Pétursdóttur stendur nú yfir í kaffihúsinu Energia í Smára- lind og ber hún yfirskriftina Í móðu. Þóra er lærður textílhönnuður, sérhæfði sig í námi í fatasaum og útsaum. Á sýningunni má sjá verk sem eru blanda textíls og myndlistar. Þóra notast við garn, íslenska ull, hraunkúlur o.fl. í listsköpun sinni og sækir innblástur sinn í umhverfi sitt, veðurbarða hluti í umhverfi sínu. Þóra segist heilluð af þeirri áferð og litum sem verði til fyrir tilstilli vatns, frosts og vinds. Í móðu í kaffihús- inu Energia Þóra Bríet Pétursdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.