Morgunblaðið - 01.12.2012, Page 1
Stofnað 1913 282. tölublað 100. árgangur
L A U G A R D A G U R 1. D E S E M B E R 2 0 1 2
LÆRÐI FLUG
OG EKKI VARÐ
AFTUR SNÚIÐ
POSTULÍNS-
TÖNN
VERÐUR TIL
VEGLEGT JÓLA-
HLAÐBORÐ Í
ÞÓRSMÖRK
SUNNUDAGUR KOMU AÐVENTU FAGNAÐ 10LÖNGUM FERLI LOKIÐ 4
Morgunblaðið/Kristinn
Uppvöxtur Jón Gnarr segir frá unglings-
árum sínum í nýútkominni bók.
„Georg er að miklu leyti sam-
ansettur úr pabba mínum. Í Næt-
urvaktinni eru atriði sem eru orð
fyrir orð rétt – úr samskiptum mín-
um við pabba,“ segir Jón Gnarr
borgarstjóri í viðtali við Sunnu-
dagsblað Morgunblaðsins. Föður
sínum gerði Jón skil í karakternum
Georg Bjarnfreðarsyni í Vaktaserí-
unni. „Ég skildi hann aldrei. Fannst
hann skrýtinn alla ævi en hann var
líka mjög markeraður af lífinu og
því sem hann upplifði í starfi sínu
sem lögregluþjónn. Þá átti hann
erfiða æsku.“ Jón gerir æsku og
harðneskjulegu einelti sem hann
varð fyrir skil í nýrri bók sem ber
titilinn Sjóræninginn.
Faðir borgarstjóra
efniviður í Georg
Bjarnfreðarson
Veiðigjöld verða um tveimur millj-
örðum lægri vegna lækkunar sem
skuldsettar útgerðir fá, að sögn Ey-
þórs Björnssonar fiskistofustjóra.
Sérstök veiðigjöld að fjárhæð 1.300
milljónir eru á eindaga á mánudag.
Fiskistofa hefur undanfarið unnið
við afgreiðslu á beiðnum útgerðar-
manna um lækkun á sérstaka veiði-
gjaldinu. Á vef stofnunarinnar kem-
ur fram að um 130 slíkar umsóknir
hafi borist. Miðað við fyrirliggjandi
tölur má reikna með því að 1,3 millj-
arðar króna komi til greiðslu nú
vegna sérstöku veiðigjaldanna.
Þingflokkur
Samfylkingar
fundaði um fisk-
veiðistjórnunar-
frumvarpið í gær-
kvöldi án þess að
ljúka umfjöllun
og verður því að
leita afbrigða ef
afgreiða á það
fyrir jólahlé. Jón Bjarnason, þing-
maður VG, segir ofmælt að þing-
menn VG hafi samþykkt frumvarpið,
þótt þeir hafi samþykkt að það fari
inn í þingið. »6
1,3 milljarðar vegna
sérstakra veiðigjalda
Konur eru líklegri til þess en karlar
að vera við fátæktarmörk á efri ár-
um. Ástæðan er sú að konur vinna
sér inn minni lífeyri hjá lífeyris-
sjóðum og fá því lægri greiðslur á
eftirlaunaaldri. Konur reiða sig þar
af leiðandi meira á almannatrygg-
ingakerfið en karlar. Þetta kemur
fram í mastersverkefni Steinunnar
Rögnvaldsdóttur í kynjafræði við
Háskóla Íslands. Í því skoðar hún
lífeyrismál út frá kynjasjónarmiði.
Konur eru yfirleitt hálfdrættingar
á við karlmenn í greiðslum úr lífeyr-
issjóðum meðal annars vegna minni
þátttöku á vinnumarkaði, en þær
hafa meira sinnt heimilisstörfum, og
vegna launamunar kynjanna. »14
Konur fá minni lífeyri
Áhrif af launa-
mun kynjanna
Kona Konur á ellilífeyri lifa frekar
við fátæktarmörk en karlar.
Aukin umferð var um Laugaveginn í gær
enda stutt í jólin og á morgun gengur aðvent-
an með sinn hátíðleik í garð.
Miðað við fyrri reynslu má ætla að jóla-
verslunin taki kipp um helgina enda margir
sem hyggjast klára jólagjafainnkaup fyrir
mestu ösina. Rannsóknarsetur verslunarinnar
áætlar að jólaverslunin aukist um 7% frá síð-
asta ári.
Aðventan gengur í garð
Morgunblaðið/Kristinn
4G-farsíma-
kerfi mun kosta
Vodafone 3 millj-
arða króna.
Ómar Svav-
arsson, forstjóri
Vodafone, telur
heillavænlegast
að byggja kerfið
upp í samstarfi
við aðra aðila á
markaði. Upp-
bygging gæti tekið fáein ár og
myndi fjárhæðin dreifast yfir það
tímabil. »24
Þrír milljarðar í
uppbyggingu á 4G
4G Uppbygging
gæti tekið fáein ár.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á
Hvolsvelli, hefur boðað til fundar 6.
desember næstkomandi til að ræða
öryggismál í Landeyjahöfn. Fulltrú-
ar Siglingastofnunar, Vegagerðar-
innar, Eimskips, björgunarsveita og
almannavarnanefndar svæðisins auk
almannavarnadeildar ríkislögreglu-
stjóra eru boðaðir á fundinn.
Fyrirhuguð björgunaræfing
vegna mögulegs sjóslyss eða óhapps
varðandi Vestmannaeyjaferjuna
Herjólf, sem halda átti í dag, fellur
niður vegna þess að skipið er í við-
gerð eftir óhapp á laugardaginn var.
Þá rakst Herjólfur utan í annan
hafnargarð Landeyjahafnar svo
önnur skrúfan og stýri skemmdust.
Almannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra vinnur nú að gerð viðbragðs-
áætlunar vegna mögulegs sjóslyss í
eða við Landeyjahöfn. Vinna við við-
bragðsáætlunina er langt komin, að
sögn Víðis Reynissonar, deildar-
stjóra hjá almannavarnadeild ríkis-
lögreglustjóra.
Rannsóknarnefnd sjóslysa hefur
verið tilkynnt sérstaklega um þrjú
atvik sem urðu við siglingar Herjólfs
í Landeyjahöfn frá því að siglingar
þangað hófust árið 2010, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Öll alvarleg óhöpp varðandi Herj-
ólf eru tilkynnt til rannsóknarnefnd-
arinnar, sagði Eyþór Ólafsson, ör-
yggisstjóri Eimskips, þegar hann
var spurður út í tilkynningarnar.
Rannsóknarnefndin hefur ekki beðið
um sérstaka rannsókn vegna atviks-
ins á laugardaginn en það er alvar-
legasta óhappið sem skipið hefur
orðið fyrir í Landeyjahöfn, að sögn
Eyþórs.
Ræða öryggi í Landeyjahöfn
Herjólfur Miklar skemmdir urðu á
skrúfu skipsins í Landeyjahöfn.
Lögreglustjórinn á Hvolsvelli boðar til fundar Viðbragðsáætlun í smíðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MAðgerðaáætlun » 18
Spennandi leikur
á www.jolamjolk.is
dagar til jóla
23