Morgunblaðið - 24.12.2012, Qupperneq 4
„Mývetningar eru ýmsu vanir og ég reikna með góðri
messusókn, jafnvel þótt kalt verði. Hér er yfirleitt
stillt og vindkælingin ekki mikil. Tuttugu stiga gaddur
kemur varla að sök eða hefur mikil áhrif á kristnihald-
ið hér,“ segir sr. Örnólfur Jóhannes Ólafsson, sóknar-
prestur í Mývatnssveit.
Hefðinni samkvæmt verður messað á Skútustöðum
á jóladag og hefur bekkurinn þar jafnan verið þétt set-
inn. „Sjálfsagt slær gufu frá vitum og kinnar verða
eplarjóðar þegar fólk gengur til kirkju, en mætingin
verður efalaust góð því hefðin hér í sveit fyrir að
mæta til jólamessu er afar sterk,“ segir Örnólfur, sem á öðrum degi jóla
messar á Þverá í Laxárdal.
Örnólfur hefur þjónað nyrðra í um það bil fimmtán ár. Er nú þegar bú-
inn að skrifa drög að jólaræðum sínum. Segir inntak þeirra liggja í augum
uppi; að atburðirnir á Betlehemsvöllum og fæðing frelsarans fyrir tvö
þúsund árum sé til vitnis um að lífið sé gott. Breyti þar engu þótt stund-
um sé kalt í veðri og frost bíti kinnar.
Lífið gott þótt stundum sé kalt
BÝST VIÐ GÓÐRI MESSUSÓKN ÞRÁTT FYRIR FROSTIÐ
Sr. Örnólfur
Jóhannes Ólafsson
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
•
5. janúar í 10 nætur
Verð frá 79.900,-
til Kanarí
Verð frá 79.900,-
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og eitt barn í búð á Roque Nublo.
Verð m.v. 2 fullorðna í íbúð kr. 98.200. Sértilboð 5. janúar í 10 nætur.
Sé
rti
lbo
ð
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér sæti í sólina í
byrjun janúar. Fleiri gistimöguleikar í boði á afar hagstæðu verði
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Frostið sem spáð er norðanlands
næstu daga verður ekki jafngrimmt
og gefið hefur verið til kynna,“ seg-
ir Einar Sveinbjörnsson, veð-
urfræðingur hjá Veðurvaktinni.
Spár Veðurstof-
unnar um kulda-
kast á Norður-
og Austurlandi
næstu daga eru
hressilegar. Skv.
útreikningum er
gert ráð fyrir því
að gaddurinn fari
í allt að 40 gráð-
ur. Þar er eink-
um átt við
þekkta kulda-
polla, svo sem Bárðardal, Mývatns-
sveit, Hólsfjöll, Möðrudalsöræfi og
Jökuldal.
Í veðurspám síðustu daga hefur
Mývatnssveit sérstaklega verið
nefnd. Sjálfvirkar spár og reikni-
líkön gefa til kynna að þar gæti
frostið farið í 40 gráður og 20 gráð-
ur á Möðrudal á Fjöllum.
Forritin fara á flug
„Það eru engar forsendur fyrir
þessu,“ segir Einar Sveinbjörnsson.
„Sjálfvirkar spár eiga til að ýkja
snöggar hitasveiflur. Þær byggjast
á ákveðnum grunnspám sem koma
frá reiknimiðstöð evrópskra veð-
urstofa í Reading á Englandi. Svo-
kölluð leiðréttingarforrit fara nán-
ast á flug þegar gert er ráð fyrir
kuldaskotum. Þetta er til dæmis
þekkt um spár við upphaf kuldat-
íðar í norðanverðri Skandinavíu.
Staðreyndin er sú að veðursaga síð-
ustu vikna á Norðurlandi er ekki
nema að takmörkuðu leyti inni í
forritunum, þótt hún sé stór áhrifa-
þáttur. Að gaddurinn fari í fjörutíu
gráður er alls ekki inni í myndinni.“
Um jólin er gert ráð fyrir norð-
lægum áttum. Í dag, aðfangadag,
verður éljagangur frá Vestfjörðum
og um landið réttsælis austur á
firði, einkum út til nesja og
stranda. Á jóladag gæti þó komið
þétt hríð. En síðan fer að kólna. Í
innsveitum norðanlands er á öðrum
og þriðja degi jóla 20 stiga frost
líklegt, en fimm til tíu stig við
ströndina.
Metið verður ekki slegið
Þess má geta að kuldamet í sögu
íslenskra veðurmælinga er 38 stig á
Grímsstöðum á Fjöllum og Möðru-
dal 21. janúar 1918, á þeim fræga
frostavetri. „Og ég get nánast full-
yrt að þótt frostköld jól séu fram-
undan verði þetta tæplega aldar-
gamla met ekki slegið,“ segir Einar
Sveinbjörnsson.
Ljósmynd/Einar Sveinbjörnsson
Kuldi Stillur í Mývatnssveit þar sem gufustrókur frá Kröfluvirkjun steig hátt til lofts í brunagaddi á dögunum.
Frostspá fyrir Norð-
urland sögð vera ýkt
20 stiga gaddur í innsveitum líklegur Met fellur ekki
Einar
Sveinbjörnsson
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Þingmenn Suðurkjördæmis fund-
uðu síðastliðinn föstudag ásamt
sveitarstjóra Skaftárhrepps, tveim-
ur sveitarstjórnarmönnum úr
hreppnum, umhverfisráðherra og
fulltrúa úr umhverfisráðuneytinu
um sorpbrennsluna í Skaftár-
hreppi.
Að sögn Ragnheiðar Elínar
Árnadóttur, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins, óskuðu þing-
menn kjördæmisins eftir þessum
fundi í ljósi synjunar umhverf-
isráðherra á undanþágu fyrir
starfsleyfi sorpbrennslunnar. „Það
var mjög fínt að ná þessum fundi og
ég er allavega sannfærðari um það
en áður að þetta er mál sem hægt
er að leysa ef viljinn er fyrir hendi,“
segir Ragnheiður Elín og bætir við:
„Umhverfisráðherra hefur það í
hendi sér og hreppurinn hefur and-
mælarétt til 11. janúar.“
Þá segir Ragnheiður Elín að
staða Skaftárhrepps í þessu máli sé
sérstök, einkum í fjárhagslegu til-
liti. „Þetta er svo sérstakt tilfelli,
jafnvel þó að þessi reglugerð hafi
gilt um fleiri stöðvar í Vest-
mannaeyjum og Ísafirði og þó að
þau sveitarfélög séu búin að grípa
til aðgerða þá er staða Skaftár-
hrepps einfaldlega svo sérstök og
þá ekki síst í fjárhagslegu tilliti,“
segir Ragnheiður Elín og bætir við:
„Þarna er pínulítið sveitarfélag
sem berst í rauninni í bökkum með
afar fáa íbúa og er undir hand-
leiðslu eftirlitsnefndar um fjármál
sveitarfélaga og er þar í góðu sam-
starfi við innanríkisráðuneytið og
fulltrúa þess um að koma fjár-
málum sveitarfélagsins í gott horf.“
Of stór baggi
Að sögn Ragnheiðar Elínar er
þetta hreinlega of stór baggi fyrir
sveitarfélagið. Bendir hún þannig á
að það muni reynast sveitar-
félaginu mjög kostnaðarsamt að
loka sorpbrennslustöðinni og slíkt
verði til þess að sveitarfélagið geti
ekki kynt sundlaugina, íþróttahúsið
og skólahúsin á svæðinu nema með
rafmagni, sem þau fái ekki niður-
greitt.
Funduðu um
sorpbrennslustöð
Skaftárhrepps
Ragnheiður Elín segist sannfærðari
en áður um að hægt sé að leysa málið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sorp Ráðherra hefur synjað um und-
anþágu fyrir sorpbrennslustöðina.
Aðfaranætur
laugardags og
sunnudags heim-
sóttu lög-
reglumenn flest
veitingahús í
miðbænum. Í
kjölfarið lokaði
lögreglan fjórum
veitingahúsum
en 10-20 veitingastaðir verða
kærðir fyrir ýmis brot er varða
rekstur veitingahúsa, að því er
kemur fram í tilkynningu sem lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu
sendi frá sér í gær. Nánari upplýs-
ingar liggja ekki fyrir að svo
stöddu.
Lögreglan lokaði
fjórum veitinga-
stöðum um helgina
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Fæðingar- og foreldraorlof mun
lengjast og greiðslur munu hækka,
frumvarp þess efnis var samþykkt frá
Alþingi á síðasta þingdegi fyrir jól.
Þakið, hámarksgreiðslur til for-
eldra, mun hækka úr 300 í 350 þúsund
krónur. Þá verður fæðingarorlofið
lengt úr 9 mánuðum í 12. Það verður
gert í skrefum og tekur fullt gildi árið
2016.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar og for-
maður velferðarnefndar segir að
meirihluti nefndarinnar sé samþykk-
ur frumvarpinu en vill breyta fyrir-
komulagi lengingarinnar. „Þannig að
sjálfstæður réttur foreldra sé fimm
mánuðir og sameiginlegur réttur
tveir, þegar lögin hafa tekið gildi að
fullu,“ segir Sigríður. Hún segir það
mæta betur jafnréttishugsjón lag-
anna en jafnframt veita fjölskyldum
sveigjanleika í því hvernig þær taka
fæðingarorlofið.
Frumvarpið gerir ráð fyrir fjórum
mánuðum fyrir foreldri, hvort um sig
og fjórum sameiginlegum mánuðum.
Velferðarnefnd leggur einnig til að
einhleypar mæður sem fara í tækni-
frjóvgun, og einhleypir einstaklingar
sem ættleiða börn eða taka barn í var-
anlegt fóstur fái fullt fæðingarorlof.
„Við viljum að þau börn njóti sömu
tækifæra til samvista við foreldra og
önnur börn,“ segir Sigríður og áréttar
að þessi breyting hafi verið lögð fram
í frumvarpi sem Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir lagði fram á síðustu þingum.
Þá bendir nefndin einnig á að erfitt
sé fyrir foreldra að brúa bilið frá því
barn nær 18 mánaða aldri og þar til
það kemst inn á leikskóla, oftast við
tveggja ára aldur. Hún telur því æski-
legt að foreldrar geti tekið orlof með
barninu til 24 mánaða aldurs í stað
fyrstu 18 mánaða.
Fært til fyrra horfs
Gripið var til sparnaðaraðgerða í
kjölfar efnahagshrunsins en með
þessu frumvarpi er stigið skref í átt
að því að færa reglur um fæðingaror-
lof aftur til fyrra horfs. Frumvarpið
bíður nú undirskriftar ríkisstjórnar
svo það verði að lögum. 31 þingmaður
samþykkti frumvarpið en 19 greiddu
ekki atkvæði, 13 voru fjarstaddir.
Fæðingarorlof verður lengt
Fer úr 9 mánuðum í tólf Fjórir mánuðir fyrir hvort foreldri og fjórir
sameiginlegir mánuðir Hámarksgreiðslur hækka úr 300 í 350 þúsund krónur