Morgunblaðið - 24.12.2012, Síða 24

Morgunblaðið - 24.12.2012, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012 Óskum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Í landi Úlfarsfells Kl. 14.30 Kjalarnes við Kléberg Kl. 20.30 Suðurfell Kl. 20.30 Í Gufunesi Kl. 20.30 Geirsnef Kl. 20.30 Í Suðurhlíðum Kl. 20.30 Við Ægisíðu Kl. 20.30 Fylkisbrenna við Rauðavatn Kl. 20.30 Við Valbjarnarvöll Kl. 20.30 Ullarnesbrekkur Kl. 20.30 Við Tjarnarvelli Kl. 20.30 Við Skildinganes Kl. 20.30 Á Valhúsahæð Kl. 20.30 Við Sjávargrund Kl. 21.00 Við Dalsmára í Smárahvammi Kl. 20.30 R E Y K J A V Í K MOSFELLSBÆR KÓPAVOGUR GARÐABÆR HAFNARFJÖRÐUR ÁLFTANES SELTJARNARNES Norðan við Gesthús Kl. 20.30 Áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu2012 Stór brenna Lítil brenna Munið að flugeldar eiga ekki erindi á brennurnar! Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Áramótabrennur eru með hefðbundnu sniði í Reykjavík en alls verða þær tíu talsins og verður eldur borinn að bálköstunum kl. 20:30 að kvöldi gamlársdags. Eina undantekningin er köst- urinn við Úlfarsfell sem kveikt verður í kl. 14:30. Borgarbúar eru hvattir til að fjölmenna á brennur í tilkynningu frá Reykja- víkurborg þar sem fólk er beðið að mæta frekar með góða skapið en það vonda og skilja skotelda eftir heima. Brennurnar verða á sömu slóðum og undanfarin ár, en í Laugardal verður brennustæðið fært vegna byggingar þjón- ustuhúss í nágrenninu og er það gert í samráði við Eldvarnaeft- irlitið. Byrjað verður að safna í borgarbrennurnar fimmtudaginn 27. desember og hætt að taka á móti efni þegar þær eru orðnar hæfilega stórar samkvæmt viðmiðunum Eldvarnaeftirlitsins, þó í síðasta lagi kl. 12:00 á gamlársdag. „Það er liðin tíð að fólk komi með drasl úr geymslum enda er þar margt sem ekki má fara á brennurnar,“ segir Þorgrímur Hallgrímsson, brennukóngur og rekstrarstjóri hjá Reykjavík- urborg. Hann segir að plast, gúmmí og unnið timbur eigi ekki erindi á köstinn. „Hérna áður fyrr var öllu hent á brennurnar,“ segir hann. „Þá gerðu bara krakkarnir í hverfinu brennur út um allt en nú þarf að sækja um leyfi fyrir þeim. Það er komin reglugerð um stærð bálkastanna og um fjarlægð frá húsum og þess háttar. Byggðin hefur þést svo mikið á undanförnum árum að það verður að gæta fyllsta öryggis. Það hafa annars ekki orðið nein alvarleg slys í nokkuð langan tíma. Ég held ég muni það rétt að það séu um tíu til fimmtán ár síðan síðast varð slys. Það var á þeim tíma sem brennurnar voru látnar brenna út, en núna slökkvum við í þeim,“ segir Þorgrímur. Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar standa brennu- vaktina. Þeir taka á móti efni í brennurnar og verða svo á vakt við þær fram eftir nýársnótt þar til slökkt hefur verið í glæð- unum. Árið brennt burt undir eftirliti  Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar standa brennuvaktina  Bálkestirnir orðnir minni Einstaklingar í félögum Þjóðrækn- isfélagsins í Vesturheimi söfnuðu fyrir jólin sem samsvarar um 625 þúsund krónum til styrktar Mæðra- styrksnefndunum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri og á Vesturlandi. Gail Einarson- McCleery, fráfarandi formaður IN- LofNA, afhenti fyrir helgi Mæðra- styrksnefndinni í Reykjavík gjöfina og tók Guðlaug Aðalsteinsdóttir, varaformaður nefndarinnar, við henni. Þetta er þriðja árið í röð sem framlög berast Mæðrastyrksnefnd frá félögum fyrir vestan og er framlagið á þessum tíma tæpar 2,3 milljónir króna. steinthor@mbl.is Ljósmynd/Ásta Sól Kristjánsdóttir Styrkur Gail Einarson-McCleery og Guð- laug Aðalsteinsdóttir hjá nefndinni. Tæpar 2,3 milljónir hafa safnast

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.