Morgunblaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulif
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
Munið að slökkva
á kertunum
Athugið hversu langur brennslu-
tími er gefinn upp á umbúðum kerta
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Bandaríski jólasveinninn stendur í stórræðum
í kvöld þegar hann sendist með ógrynni af
gjöfum til góðu barnanna. Gjafirnar á jóladag
eru þó aðeins endirinn á löngu rekstrarári og
hefur bandaríska endurskoðendafyrirtækið
ParenteBeard tekið saman lykiltölurnar í
starfsemi Sveinka, frænda íslensku jólasvein-
anna.
Fyrst ber að nefna að fyrirtæki jólasveins-
ins á norðurpólnum er stærsta góðgerðarfélag
heims en reksturinn kostar heila 42,3 milljarða
dala árlega eða ríflega 5.300 milljarða króna.
90-95% af kostnaðinum fara í að búa til gjafir
fyrir samtals um 39,5 milljarða dala. Er sú tala
fengin með því að áætla að um 526 milljón börn
14 ára og yngri fagni jólum og hvert barn fái
gjöf sem kostar 75 dali.
Vel gert við starfsfólkið
Starfsmannahaldið kostar líka sitt. Viðskipta-
fréttadeild Yahoo hefur eftir talsmanni Par-
enteBeard að jólasveinnin sé sennilega með
um 50.000 álfa að störfum en miðað við með-
altekjur og launatengd gjöld í bandaríska leik-
fangageiranum má ætla að kosti 2,7 milljarða
dala árlega að manna fyrirtækið.
Meira að segja rafmagnsreikningurinn er
svimandi hár. Verksmiðjurými jólasveinsins er
sennilega rétt tæpir 800.000 fermetrar, sem er
tvöfalt stærra en stærsta verksmiðja heims í
dag. Verksmiðja af þeirri stærð notar líklega
95.1 kWst árlega, sem myndi kosta 98 milljónir
dala miðað við orkuverðið á norðlægustu slóð-
um Bandaríkjanna.
Ekki má gleyma hreindýrunum, níu talsins,
sem draga sleðann góða. Ætla má að það kosti
jafnmikið að halda Rúdólf ánægðum og
hraustum og það kostar að reka hest, sem í
Bandaríkjunum gerir um 6.000 dali yfir árið.
Hreindýrahjörðin kostar því 54.000 dali árlega
eða um 6,8 milljónir króna. ai@mbl.is
Endurskoðendur rýna í jólasveininn
AFP
Duglegur Jólasveinninn kemur víða við. Á myndinni sést hvar hann hefur komið sér fyrir á markaði í Búkarest m.a. til að gleðja börnin sem búa á
götum borgarinnar. Endurskoðendur gátu reiknað út kostnaðinn af starfsemi Sveinka sem gleður saklausar sálir vítt og breitt um heiminn.
Rekur umsvifamesta góðgerðarfyrirtæki heims með 42,3 milljarða dollara rekstur 50.000 álfar
vinna í stærstu verksmiðju sem til er Bara það að hugsa um hreindýrin kostar 6,8 milljónir króna
Framleiðandi BlackBerry snjallsím-
ans átti heldur betur slæman dag á
markaði á föstudag en þá féllu hlutir
í Research In Motion (RIM) um
23%.
Verðhrunið stafar af því að RIM
birti slæmar sölutölur á þriðja árs-
fjórðungi. Dróst salan saman um
47% og nam samtals 2,7 milljörðum
dala. Er það í samræmi við skoðana-
könnun Thomson Reuters um vænt-
ingar markaðsgreinenda.
Notendum BlackBerry sima hefur
fækkað um milljón úr 80 milljónum á
2. fjórðungi niður í 79 milljónir á
þriðja fjórðungi. Ljósi punkturinn er
að sala á PlayBook spjaldtölvunni
hefur aukist, nam um 255.000 eintök-
um á fjórðunginum sem er ekki há
tala en þó tvöfalt hærri en á sama
tímabili í fyrra.
Á fundi með markaðsgreinendum
sagði framkvæmdastjóri RIM, Thor-
stein Heins, að fyrirtækið hygðist
reyna að snúa óheillaþróuninni við
með því að lækka verðið á Black-
Berry 7 símanum og lækka einnig
það þjónustugjald sem símafyrir-
tækin þurfa að greiða fyrir hvert
símtæki.
Skattaívilnanir bjarga
Hagnaður RIM nam 9 milljónum
dala á fjórðunginum sem er mikill
viðsnúningur frá sama tímabili í
fyrra þegar tapið nam 235 milljónum
dala. Viðsnúningurinn skýrist þó
einkum af skattaívilnunum en án
þeirra hefði tapið numið 114 millj-
ónum dala.
Nýr snjallsími BlackBerry 10 er
væntanlegur á markað í janúar, ári
seinna en upphaflega hafði verið
gert ráð fyrir. CNN greinir frá að
vonir séu bundnar við að nýja sím-
tækið hressi upp á reksturinn en
tæknin í símanum á að geta keppt við
aðra risa á markaðinum eins og iP-
hone og Android.
ai@mbl.is
AFP
Brattur Thorstein Heins, framkvæmdastjóri Research In Motion, á blaða-
mannafundi fyrr á árinu. BlackBerry 10 síminn fer á markað í janúar.
Hlutir í Research
In Motion hrynja
Salan heldur áfram að dragast sam-
an milli fjórðunga og tapið eykst