Morgunblaðið - 24.12.2012, Page 60
MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 359. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Má ekki giftast morðingja …
2. Ekkert útilokað nema Litla-Hraun
3. Lögreglan lokar veitingastöðum
4. Nýjar myndir af strokufanganum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Á þriðjudag (jóladagur) og miðvikudag (annar í jólum)
Norðaustanátt, víða 8-13 m/s og él N- og A-lands og einnig við S-
ströndina, en annars bjart með köflum. Frost víða 5 til 10 stig, en
allt að 20 stig í innsveitum NA-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG NA 8-13 m/s og dálítil él N- og A-lands, en
léttir til fyrir sunnan og vestan. Kólnandi veður og frost 0 til 6 stig.
VEÐUR
Englandsmeistarar Man-
chester City náðu að saxa
á forskot Manchester Unit-
ed á toppi ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu
og nú munar fjórum stig-
um á grannliðunum. Unit-
ed varð að sætta sig við
fyrsta jafnteflið á tíma-
bilinu í gær þegar liðið
sótti Wales heim til Car-
diff. City marði hins vegar
botnlið Reading með
marki í uppbótartíma. »3
Fyrsta jafnteflið
hjá United
Viðfangsefni hinnar vinsælu Sögu-
stundar íþróttablaðs Morgunblaðsins
er að þessu sinni ekki mjög langt frá
okkur í tíma en óhemju merkilegur
íþróttamaður engu að síður. Einn af
eftirminnilegri persónuleikum í
skíðabrekkunum á síðustu áratugum
er austurríski
múrarinn
Hermann
Maier.
»4
Múrarinn Hermann
Maier í sögustundinni
„Þetta ár hefur verið einstakt en það
byrjaði ekki vel. Ég var kominn á
endastöð í Belgíu og þurfti breyt-
ingu,“ sagði landsliðsmaðurinn Al-
freð Finnbogason, leikmaður Heeren-
veen í Hollandi, við Morgunblaðið en
hann skoraði enn eitt markið um
helgina og tryggði þar með liði sínu
dýrmæt þrjú stig. Alfreð skoraði 34
mörk á árinu fyrir þrjú félög. »1
Þetta ár hefur verið
einstakt segir Alfreð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Morgunblaðið kemur næst út
fimmtudaginn 27. desember nk.
Að venju verður fréttaþjónusta
á fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is, yfir jóladagana. Hægt er
að senda ábendingar um fréttir
á netfangið netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskrifenda verð-
ur opið í dag, aðfangadag frá kl.
7-13.
Þjónustuverið verður opnað
aftur fimmtudaginn 27. desem-
ber kl. 7.
Sími þjónustuvers er 569-
1100 og netfangið er askrift-
@mbl.is.
Blaðberaþjónustan verður
opin á aðfangadag frá 5-11. Hún
verður opnuð aftur 27. desem-
ber kl. 5. Netfang blaðberaþjón-
ustu er bladberi@mbl.is.
Skiptiborð Morgunblaðsins
verður lokað yfir jólin en opnað
að nýju á fimmtudag kl. 8. Síma-
númer Morgunblaðsins er 569-
1100. Netfang ritstjórnar er
ritstjorn@mbl.is.
Fréttaþjónusta
mbl.is um jólin
Jólafagnaður Hjálpræðishersins og
Verndar verður haldinn í dag, að-
fangadag, í Herkastalanum, Kirkju-
stræti 2 í Reykjavík.
Fagnaðurinn hefst að venju með
borðhaldi kl. 18.
Allir þeir sem ekki hafa tök á að
dveljast hjá vinum og vandamönnum
á aðfangadagskvöld eru hjartanlega
velkomnir í jólafagnaðinn.
Jólafagnaður
Verndar og
Hjálpræðishersins
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Margt fólk var í miðbænum á Þor-
láksmessu og verslunarmenn al-
mennt ánægðir með traffíkina.
Fæstir vildu fullyrða ennþá að salan
væri meiri en í fyrra en sumir voru
á því. Á Ingólfstorgi var jólamark-
aður þar sem Svanur Kristjánsson
hafði komið sér fyrir og seldi rist-
aðar möndlur. „Þetta rokselst,“
sagði Svanur. „Ég kynntist þessu í
Danmörku og fór síðan að selja
þetta hér eftir að ég flutti heim.“
Það eru fallegir sölubásar á torg-
inu og flestir hæstánægðir með söl-
una. „Þetta er búið að vera brjál-
æði,“ segir Hrönn Sigurðardóttir
sem selur eigin hönnun undir
merkjum Kusk. „Ég vinn til fjögur
á nóttinni við að sauma og sef til
átta en þá fer ég á fætur til að
sauma meira og svo er ég komin
hingað upp úr hádegi að selja. Þetta
hefur gengið ofsalega vel í ár.“
Á miðju torginu höfðu krakkar og
fullorðnir hópast í kringum jóla-
sveininn sem hrekkir börnin. Hann
segir þó í stuttu spjalli við Morg-
unblaðið að börnin séu óskaplega
þæg í ár og Grýla fái ekkert í pott-
inn sinn. „Lagerinn af kartöflunum
er því orðinn alltof stór hjá okkur
þar sem börnin eru svo þæg,“ segir
jólasveinninn. „Leppalúði skóflar
þeim í sig, en það er ekki nóg.“
Þótt börnin séu skríkjandi við
Ingólfstorgið eru þau andaktug við
Pósthússtræti þar sem lúðrasveitin
Svanur spilar svo hátíðlega tónlist
að allir horfa í lotningu á hljóm-
sveitina við tröppur Landsbankans.
Aðfangadagurinn lúmskur
Í bókabúð Eymundsson var troð-
ið af fólki þar sem margir voru á ell-
eftu stundu við að kaupa jólagjaf-
irnar. „Maður sér til eftir morgun-
daginn en það kæmi mér ekki á
óvart að það væri meiri sala núna í
ár en í fyrra,“ segir Svanborg Þór-
dís Sigurðardóttir bóksali.
„Aðfangadagurinn er eftir og hann
er oft lúmskur. Menn koma mikið
hérna milli klukkan 11 og 13 á að-
fangadag. En það hafa selst upp
margir titlar eins og Ævisaga ð og
bókin Skáld eftir Einar Kárason er
að klárast.“
Tóbías Ingvarsson, 10 ára, segist
aðspurður ekki vera búinn að kaupa
jólagjafirnar – sé búinn að kaupa
svona 87% af þeim.
„Helst Cheerios, annars Cocoa
Puffs með kampavíni eins og Abba
fékk sér í Brighton árið 1974,“ segir
Óttarr Proppé borgarfulltrúi í
óspurðum fréttum. „Er það ekki
rétta svarið við spurningunni sem
þú átt eftir að spyrja mig?“ segir
hann kankvís við blaðamann.
Hátíðleg stemning í bænum
Hljómsveitir og sönghópar spiluðu jólalög á hverju götuhorni Jólasveinn
sagði börnin óskaplega þæg í ár Sumir á elleftu stundu í gjafakaupunum
Morgunblaðið/Golli
Á Þorláksmessu Það var hátíðleg stemning í miðbæ Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærkvöldi þar sem fjöldi fólks var saman kominn.