Morgunblaðið - 18.01.2013, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2013
✝ Magnús Hauk-ur Guðlaugsson
fæddist á Guðrún-
argötu 2 í Reykja-
vík hinn 20. desem-
ber 1943. Foreldrar
hans voru María
Hermannsdóttir
húsmóðir, frá Ket-
ilseyri við Dýra-
fjörð, f. 4. sept-
ember 1905, d. 15.
maí 2001, og Guð-
laugur Ásberg Magnússon, gull-
smiður og hljómlistarmaður í
Reykjavík, f. 16. desember 1902,
d. 13. nóvember 1952. Magnús
var yngstur af fjórum systkinum.
Elstur var Reynir gullsmiður, f.
3. apríl 1930, d. 24. desember
2001. Óttar H. verkstjóri, f. 8.
október 1931, d. 3. september
1991. Jónína E. húsmóðir, f. 15.
nóvember 1933.
Magnús ólst upp á Fjölnisvegi
Magnús stundaði versl-
unarnám í London og árið 1963
tók hann við rekstri verslunar
föður síns, Guðlaugs A. Magn-
ússonar, af móðurbróður sínum
Hermanni Hermannssyni sem
hafði rekið fyrirtækið frá fráfalli
Guðlaugs. Á fjöldamörgum heim-
ilum á Íslandi eru til jólaskeiðar
sem Magnús hafði veg og vanda
af framleiðslu á frá árinu 1963.
Hanna Sigríður tók við rekstri
verslunar Guðlaugs A. Magn-
ússonar af föður sínum Magnúsi
árið 2005. Magnús hafði starfað
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í fjöl-
mörg ár og lengi í Lionsfélagi
Reykjavíkur og sat þar í stjórn
um árabil sem formaður og
gjaldkeri. Hann hafði mikinn
áhuga á flugi og tók einkaflug-
mannspróf og rak flugskóla með
flugkennara sínum í einhver ár
samhliða verslunarrekstri sínum.
Magnús barðist hetjulega við
sjúkdóm sinn, Alzheimer, en
varð að lokum að lúta í lægra
haldi alltof fljótt.
Útför hans fer fram frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í dag, 18.
janúar 2013, og hefst athöfnin kl.
11.
10 í Reykjavík.
Magnús kvæntist
hinn 29. ágúst 1964
Kornelíu Óskars-
dóttur hárgreiðslu-
meistara, f. 16. des-
ember 1943, d. 20.
desember 1994.
Kornelía var dóttir
Óskars Axels Sig-
urðssonar, bak-
arameistara og
stofnanda Myll-
unnar, og Guðbjargar Sigríðar
Kornelíusdóttur húsmóður. Dæt-
ur Magnúsar og Kornelíu eru: 1)
Hanna Sigríður, f. 17. júlí 1963,
viðskiptafræðingur frá Banda-
ríkjunum, gift Bjarna Róbert
Blöndal, f. 21. nóvember 1973,
ráðgjafa. 2) María Hrönn, f. 11.
júlí 1967, lagerstjóri á skurð-
stofum kvenna á Landspít-
alanum, gift Guðna Má Kárasyni
sjúkraliða, f. 6. febrúar 1961.
Elsku pabbi minn, nú er stríði
þínu við illvíga sjúkdóminn Alz-
heimer lokið. Þú varst svo dugleg-
ur að vinna gegn áhrifum hans.
Gekkst fleiri kílómetra á dag,
syntir, hugsaðir um hvað þú borð-
aðir og leystir krossgátur. Þú
varst bjartsýnn og ætlaðir ekki að
gefast upp. Þú gekkst úr þér syk-
ursýkina og losaðir þig við insúl-
ínið. Maður stendur máttvana og
horfir á þig hverfa á braut en
svona er nú lífið eins og þú sagðir
alltaf. Minningarnar eru margar
og góðar. Þú varst alltaf hress og
kátur og til í eitthvað skemmti-
legt, hvort sem það var að þeytast
Þingvallahringinn á sunnudags-
morgni eða sigla með okkur afa á
Faxaflóa, horfa á kvöldsólina og
hnísurnar leika sér rétt við trill-
una.
Ég er þakklát og stolt að hafa
fengið tækifæri til að vinna með
þér og geta tekið við keflinu af þér
og hanna og smíða jólaskeiðarnar.
Ég handleik oft skeiðarnar eftir
þig og dáist að því hvað þú varst
mikill hugmyndasmiður og lista-
maður og aldrei skorti þig hug-
mynd að myndefni. Frá því ég var
lítil var ég svo spennt að fá að sjá
hugmynd að nýrri skeið fæðast
sem gerðist á ýmsan máta. Lista-
gyðjan blés þér í brjóst, hugmynd
kom, stundum í draumi, stundum
eftir dvöl einn inni í herbergi eða á
þeytingi um landið er þú sást litla
sveitakirkju eða burstabæ sem
varð síðar að undurfögrum smíð-
isgrip.
Þú varst fróðleiksfús og víðles-
inn og hvattir mig til mennta. Ég
var ellefu ára þegar þú réttir mér
bókina Mýs og menn á ensku eftir
John Steinbeck og sagðir gott að
byrja að lesa ensku snemma til að
ná tökum á málinu. Þær voru ófá-
ar ferðirnar milli hæða í Hjalla-
landinu til að spyrja út í þýðingu
orða. Ég las allar bækur Stein-
becks og svo skoðuðum við saman
slóðir hans í Kaliforníu.
Mér er minnisstætt þegar þið
mamma komuð út til New York
eftir að við systur vorum búnar að
eyða sumrinu í enskunám. Við fór-
um öll fjölskyldan ásamt Konna
frænda, Ingu og Önnu Margréti í
stórt ferðalag. Við keyrðum
Bandaríkin þver og endilöng.
Þetta er ógleymanleg ferð og þar
kenndirðu mér á vegaskilti, lesa á
vegakort og var ég aðstoðaröku-
maður þinn, mömmu til sérstakr-
ar ánægju því hún var ekki alltaf í
takt við þig. Sú reynsla kom sér
vel og Bjarni varð svo hissa þegar
við fórum til Ítalíu 2004 og ég tók
strax kortið og byrjaði að lesa
leiðina og þylja upp vegaskilti og
hallagráður beygja.
Þú réttir mér snemma til lest-
urs uppáhaldsbók þína, Góða dát-
ann Svejk eftir Jaroslav Hasek.
Ævintýrin hans voru hreint ótrú-
leg og alveg í þínum anda. Þú
kenndir mér snemma að vera
fróðleiksfús og ef ég var með
spurningu á vörunum sendir þú
mig eftir alfræðiorðabókum og
þannig urðum við fróðari um
margt saman. Þið mamma vilduð
alltaf að við systurnar lærðum á
lífið af lífinu sjálfu en voruð aldrei
langt undan. Eftir að mamma dó
alltof snemma urðum við svo ótrú-
lega góðir vinir. Við hlustuðum
saman á djass og þú sagðir mér
margar skemmtilegar sögur, m.a.
af þér frá því þú varst strákur.
Elsku pabbi, takk fyrir allt og
allt. Ég er svo stolt að vera dóttir
þín. Megi Guð og góðir englar
vaka yfir þér elsku pabbi minn.
Ó pabbi minn, ég dáði þína léttu lund.
Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt.
Ó pabbi minn, hve undursamleg ást þín
var.
Æskunnar ómar ylja mér í dag.
(Þorsteinn Sveinsson)
Þín dóttir
Hanna Sigríður.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku pabbi minn, nú ertu laus
úr viðjum þessa líkama og orðinn
þú sjálfur. Þú barðist hetjulega
við erfiðan sjúkdóm, Alzheimer.
Ég efa ekki að það hefur verið heil
móttökusveit sem tók á móti þér á
þeim stað sem þú ert á núna.
Pabba var mikið í mun að
kenna okkur systrum vel á lífið og
allt sem því fylgir. Honum fannst
að börn ættu að læra á lífið af
veruleikanum og mamma og
pabbi ferðuðust með okkur milli
landa til að kenna okkur á heim-
inn. Mamma og pabbi hugsuðu vel
um okkur systur og veittu okkur
það sem okkur vantaði og vildum.
Lét pabbi t.d. mjög fljótt undan
suði mínu um að eignast hest og
síðar hundinn Kolla sem pabbi
elskaði mikið. Pabbi var mikill
dýravinur og auðsótt mál fyrir
mig að fá hann til að passa dýrin.
Hann elskaði að fá að passa Lappa
og Blíðu á daginn og labbaði með
þau um alla Reykjavík, hitti fólk
og spjallaði. Pabbi gat verið mjög
skemmtilegur og mikill stríðnis-
púki og voru ófá skiptin sem hann
sendi mig að stríða Hönnu Siggu
og stóð sjálfur í fjarlægð og hló
mikið. Ein af uppáhaldsbókum
pabba var „Þegar við Kalli vorum
strákar“. Bók full af prakkara-
strikum. Ég elska þessa bók. Við
pabbi höfðum mjög ólíkan tónlist-
arsmekk; hann alltaf að kenna
mér að hlusta á djass og ég að
kenna honum að hlusta á Bubba.
Það gekk ekki vel. Síðar er pabbi
var í heimsókn af Eir setti ég
Bubba og Stórsveitina á og pabbi
varð mjög hrifinn, glotti hann
mikið þegar ég sagði að loks hefði
ég fengið hann til að hlusta á
Bubba. Ég lærði hins vegar á
djass núna seinni árin í bíltúrum
okkar saman, svo það er jafntefli.
Pabbi var mikill göngugarpur og
gekk úr sér sykursýkina. Hann
var staðráðinn í að ganga líka úr
sér Alzheimerinn og náði að halda
sér góðum lengi en því miður náði
sjúkdómurinn yfirhöndinni allt of
snemma. Eftir að hann greindist
gekk pabbi á sunnudögum frá
miðbæ upp í Grafarvog til okkar.
Hann var búinn að koma sér upp
kennileitum á leiðinni svo hann
rataði alltaf þótt minnið dvínaði.
Pabbi var mjög glaður og fé-
lagslyndur maður og elskaði að
fara með okkur Guðna í dagsferð-
ir út á land með jeppahópnum
okkar. Í einni slíkri ferð um Snæ-
fellsnes var ákveðið að reyna við
jökulinn. Færið var þungt og
áhyggjur af okkur á minnsta jepp-
anum, hvort við kæmumst upp.
Ég sagði hópnum að fara á undan
og við kæmum á eftir. Pabba leist
ekki vel á það svo skyndilega
stökk hann út úr bílnum, gekk að
næsta stóra jeppa og settist inn.
Hann ætlaði á toppinn. Pabbi var
mikill útivistarmaður, náttúru-
unnandi og veðurglöggur. Fórum
við fjölskyldan í margar útilegur
og Hanna Sigga kom oft með
pabba í heimsókn til okkar. Pabbi
bar mikla virðingu fyrir nátt-
úrunni og var oft hræddur er við
Guðni fórum í Þórsmörk. Varð ég
alltaf að hringja í hann um leið og
við vorum komin yfir Krossána.
Pabbi leit lífið alltaf björtum aug-
um og það voru yndisleg orð sem
hann sagði er hann var orðinn
veikur: „Það sem er jákvætt við
Alzheimer er að ég er alltaf að
kynnast nýju fólki.“ Elsku pabbi
minn, gakk þú í friði og takk fyrir
allar æðislegu stundirnar. Bið að
heilsa mömmu.
Þín dóttir,
María Hrönn.
Meira: mbl.is/minningar
Kæri tengdapabbi, Maggi
minn. Ég hitti þig fyrst árið 2002
þegar ég var að kynnast konunni
minni og dóttur þinni, henni
Hönnu Siggu. Það tókust strax
með okkur ágæt kynni enda stutt í
gleðina og prakkarann í þér líkt
og hjá mér sjálfum. Við fórum í
ófáar ökuferðirnar ég, þú og
Hanna Sigga með Satchmo, Fats,
Ellu, Duke Ellington, Dave Bru-
beck og aðra snillinga í græjunum
og það er að stærstum hluta þér
og Hönnu að þakka að ég kynntist
djassi af einhverju viti. Mér
fannst mikið til koma hvað þú
barst gott skynbragð á flugvélar
og bifreiðir og gnægtabrunnur
vitneskju um hvort tveggja. Ekki
kom maður heldur að tómum kof-
unum hjá þér er veður barst í tal,
vitneskja um skýjafar og veður-
fræði var þér í blóð borin og nöfn á
borð við nimbusa, klósiga og stra-
tusa heyrði ég fyrst bera á góma í
samræðum ykkar Hönnu og vissi
fyrst ekki hvort væru heiti á blóm-
um eða bjórtegundum. Ég man
eftir stórskemmtilegum ferðum
sem við fórum í með Carlsberg-
bátnum og báðum Eldingunum, I
og II, á stórfiskeríi í Faxaflóanum
á þeim árum er við vorum í veit-
ingabransanum, þar varstu á
heimavelli enda elskur jafnt að
hafinu sem himninum. Þú varst
áberandi ötull við að sinna heils-
unni megnið af tímanum sem hún
entist, þú gekkst mikið, syntir og
stundaðir hugarleikfimi til að slást
við skæðan óvin. Því miður fór
skepnan sú ekki mildum höndum
um þig og tók þig alltof snemma á
lífsleiðinni. En nú er komið að því
að þú fáir aftur að sjá alla þá sem á
undan þér eru gengnir og ég veit
að það eru nú miklir fagnaðar-
fundir með þér og Konný, Nonna
og aragrúa ættingja og vina,
berðu þeim kæra kveðju mína og
sjáumst aftur þegar almættinu
þóknast.
Þinn tengdasonur
Bjarni Blöndal.
Elsku Maggi minn. Nú ert þú
kominn á nýjar slóðir, sem þýðir
nýjar sögur, ný fjöll, ný tónlist,
nýtt veðurfar og örugglega öðru-
vísi flugvélar. Nokkuð sem þú átt
eftir að háma í þig. Maggi var
mikill unnandi allra þessara hluta
og var eiginlega sérfræðingur í
því öllu. Það var yndislegt að eiga
góða stund með honum segjandi
skemmtilegar sögur og hlustandi
á góðan djass, blús eða „gargandi“
Hammondorgel. Við áttum líka
frábærar stundir í útivist og ef
einhver hefði sagt mér að Maggi
hefði sofið með Ferðafélagsbók-
ina undir koddanum sínum hefði
ég trúað því.
Ég þakka þessum yndislega
tengdaföður fyrir 14 yndisleg ár
og einhvern tímann munum við
gera þetta allt aftur. Takk fyrir
allt og hafðu það alltaf sem allra
best á nýjum slóðum.
Þinn tengdasonur,
Guðni Már.
Magnús Haukur Guðlaugsson
var í blóma lífs síns tvítugur þegar
hann beið eftir pabba mínum fyrir
utan húsið okkar við Rauðalæk.
Þeir bræður voru að fara að gera
við Kollann, sem var Lincoln Zep-
hyr ’37. Á meðan hann beið kenndi
hann mér sposkur að búa til snjó-
bolta, þá var ég þriggja ára. Eftir
kennsluna héldu þeir, á Borgward
Isabella ’55, áleiðis í bílaviðgerð-
irnar.
Magnús ólst upp við gott atlæti
á miklu menningarheimili. Þegar
hann hafði lokið námi frá enskum
verslunarskóla gerðist hann fram-
kvæmdastjóri fjölskyldufyrirtæk-
isins 1963, tók þar við góðu búi eft-
ir Hermann Hermannsson,
móðurbróður sinn. Áfram sinnti
hann áhugamálum sínum: bílum,
flugi og djassi. Við sem deildum
áhugamálum hans fengum auð-
fúslega að njóta þekkingar hans.
Smíði á silfurbúnaði var blóm-
leg frá miðjum fjórða áratug síð-
ustu aldar er faðir hans, Guðlaug-
ur A. Magnússon, hóf framleiðslu
á borðbúnaði og stærri silfurmun-
um eftir að hafa starfað á eigin
vegum frá 1924 aðallega við skart-
gripasmíði og smíði á búninga-
silfri. Fyrirtækið undir stjórn
Magnúsar var því í miklum blóma
allt fram til 1980. Það ár gerðu
Hunt-bræður í Texas tilraun til að
ná stjórn á silfurmörkuðum. Verð-
hækkun á silfri olli hruni í fram-
leiðslu silfurmuna og varð sam-
drátturinn á Norðurlöndum 80%
og náði framleiðslan aldrei að
rétta sig af. Auk þess lögðu ís-
lensk stjórnvöld 30% vörugjald á
einu smiðjuna sem þá var eftir í
greininni. Kom það í hlut Magn-
úsar að sigla gegnum öldurótið en
framleiðsla dróst saman á stuttum
tíma enda ekki lengur á allra færi
að fjárfesta í silfurmunum. Inn-
flutt vara úr ódýru efni og án
vörugjalds fyllti því skjótt tóma-
rúmið sem myndaðist. Íslenskur
silfurborðbúnaður hélt þó velli
þótt framleiðslan sé ekki sú stór-
iðja sem hún var.
Í seinni tíð, eftir að hann settist
í helgan stein, kom hann um skeið
vikulega til okkar sem störfum á
gamla verkstæði fjölskyldunnar í
kaffi. Gönguleið hans lá framhjá
verkstæðinu þegar hann kom úr
félagsstarfi aldraðra og var á
heimleið. Þá var umræðuefnið
jafnan farartæki og djass. Í einni
af síðustu heimsóknunum, eftir
kaffisopann og kökusneið, var
hann leystur út með mynd af Koll-
anum og var brosandi þegar hann
kvaddi.
Fyrir hönd starfsfólks Ernu
ehf. þakka ég Magnúsi að leiðar-
lokum þær stundir sem við kætt-
umst öll saman við gamlar minn-
ingar og sameiginleg áhugamál.
Kæru systur, Hanna Sigga og
María Hrönn, Bjarni Róbert
Blöndal og Guðni Már Kárason,
megið þið finna huggun, styrk og
frið.
Ásgeir Reynisson.
Elsku Maggi minn, núna er
stundin runnin upp sem við öll
þurfum að horfast í augu við; að
yfirgefa hið jarðneska líf og hitta
okkar nánustu aftur. Ég kynntist
þér árið 1983 þegar mér hlotnað-
ist sá heiður að vera tekinn inn í
fjölskyldu þína í Hjallalandi 13.
Þú varst alltaf skemmtilegur og
með góðan húmor. Helst fannst
þér gaman að tala um flug og
gamla bíla. Þú varst mikill bíla- og
flugáhugamaður.
Maggi var gull af manni og góð-
ur við sína nánustu. Hann var
mikill tónlistarunnandi og var
djassinn þar í mestu uppáhaldi.
Elsku Maggi minn, nú ert þú á
leiðinni að hitta Korneliu konuna
þína og besta vin.
Elsku fjölskylda.
Ég votta ykkur mína innileg-
ustu samúð og megi guð blessa
ykkur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Bárður Jósef Ágústsson
og fjölskylda.
Fljótlega eftir að ég kynntist
mannsefninu mínu kynntist ég
líka frænku hans Kornelíu Ósk-
arsdóttur og manni hennar Magn-
úsi Guðlaugssyni, sem við kveðj-
um frá Dómkirkjunni í dag. Þau
hjónin urðu síðan miklir vinir okk-
ar enda voru þau góð heim að
sækja og frábærlega skemmtileg.
Nöfnin þeirra voru svo samtengd
eins og þau voru sjálf. Hann var
Maggi Konnýjar í okkar huga.
Þau gerðu allt saman og ráku til
margra ára saman verslunina sem
faðir hans, Guðlaugur A. Magn-
ússon, hafði stofnað.
Við vorum svo heppin að
ferðast margoft með þeim bæði
hérlendis og erlendis og alltaf var
Maggi hress og kátur og síbros-
andi. Og við hin auðvitað líka kát.
Þetta voru svo skemmtilegar ferð-
ir á áhugaverða staði.
Maggi var mikill tónlistarunn-
andi og aðallega var það djassinn
sem átti hug hans. Hann las líka
mikið og áhugi hans á John Stein-
beck varð til þess að ég dreif mig í
að lesa bækurnar hans fyrir
margt löngu og sá ekki eftir því.
Hann hafði áhuga á öllum málefn-
um og alltaf tilbúinn í rökræður.
Þurfti að kryfja allt til mergjar.
Magnús rak áratugum saman
verslunina Guðlaugur A. Magnús-
son en dóttir hans tók við rekstri
hennar fyrir allmörgum árum.
Verslunin var lengst af við Lauga-
veg rétt fyrir ofan Klapparstíg en
fluttist fyrir nokkrum árum á
Skólavörðustíg. Þessi verslun hef-
ur í árafjölda selt landsmönnum
silfurborðbúnað og jólaskeiðar
sem prýða borð landsmanna við
hátíðleg tækifæri auk margra
annarra fallegra muna.
Með Magnúsi sjáum við á eftir
einstaklega góðum og merkum
manni og góðum vini til áratuga.
Hans verður sárt saknað.
Ég votta dætrum hans og mök-
um þeirra innilega samúð mína og
minna nánustu.
Inga Hersteinsdóttir.
Hann flutti 10 ára gamall úr
Norðurmýri á Fjölnisveginn
ásamt móður sinni og systkinum
um miðjan sjötta áratuginn og við
urðum leikfélagar; ég á 20 og
bræðurnir úr sama húsi; hann
kunni fæsta af leikjum okkar, fín-
legur og fríður og hrærðist mest-
megnis í djasstónlist eldri bræðra
sinna og þaðan af fjarstæðu-
kenndari hugmyndaheimi sem
þeir höfðu allir haft að heiman frá
sér á Guðrúnargötu frá því áður
en faðirinn yfirgaf fjölskylduna.
Mannsaldri seinna, að mér finnst,
sagði kona hans um okkur þrjú,
eftir svallsama nótt: Ég veit hvers
vegna við erum svona. Hvers
vegna? spurði ég. Hún svaraði af
mikilli alvöru: Vegna þess að við
erum öll skilnaðarbörn. Tilfinn-
ingalega rétt, þótt ekki sé alveg
samkvæmt bókstafnum. Maggi
lifði tímann fram á hjúskaparárin í
furðulegri samhræru hugmynda
frá því á stríðsárunum; ég náði
best okkar leikfélaganna að finna
Magnús Haukur
Guðlaugsson
Góður drengur er
fallinn frá langt fyr-
ir aldur fram. Okk-
ur í Breiðabliki
langar að minnast hans í örfáum
orðum. Hilmar var alltaf hress,
skemmtilegur, innilegur, hjálp-
samur og einstaklega duglegur
drengur. Hann vann á Kópavogs-
velli þar sem við hittum hann
næstum daglega. Það var eitt
sem var sérstakt við Hilmar og
maður tók vel eftir, en það var að
hann heilsaði manni alltaf á svo
jákvæðum nótum og manni leið
alltaf vel eftir að hann hafði kast-
að á mann kveðju. Þetta var ein-
stakur hæfileiki.
Hilmar var einnig einstaklega
duglegur við vinnu og vildi helst
alltaf hafa eitthvað við að vera,
nennti ekki að hanga, vildi frekar
fá að taka til hendinni ef hann gat
Hilmar Ævar
Jóhannesson
✝ Hilmar Ævarfæddist í
Reykjavík 30. sept-
ember 1978.
Útför Hilmars
fór fram frá Foss-
vogskirkju 4.
janúar 2013.
með einhverju móti
hjálpað. Hilmar var
einnig einstaklega
stoltur af börnunum
sínum og ræddi þau
gjarnan þegar hann
var að hjálpa við ein-
hver verk.
Það er ljóst að
Hilmari hefur verið
ætlað stærra hlut-
verk á betri stað en
hér á jörð og von-
andi finnur hann þar þann frið
sem hann leitaði að.
Guð leiði þig, hans eilíf ást,
sem aldrei góðum manni brást.
Gakk, gakk, mitt barn, og forlög fyll,
og finnumst þegar Drottinn vill.
Guð leiði þig.
(Matth. Joch.)
Ljóst er að Hilmars verður
sárt saknað af vellinum sem og
annars staðar og sendum við fjöl-
skyldu hans og vinum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
F.h. meistaraflokka karla og
kvenna í knattpyrnu hjá Breiða-
bliki,
Borghildur Sigurðardóttir
og Bjarni Bergsson.