Morgunblaðið - 19.01.2013, Side 2

Morgunblaðið - 19.01.2013, Side 2
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Noregur og Evrópusambandið ákváðu á fundi sem lauk í gær að taka sér 90,38% af ráðlögðum mak- rílkvóta ársins. Steingrímur J. Sigfússon atvinnu- vegaráðherra lýsti í gær yfir vonbrigðum með þessa einhliða ákvörðun ESB og Noregs. Kvótinn er 542 þúsund tonn í samræmi við tillögur ráð- gjafanefndar Alþjóða hafrannsóknaráðsins og er um 15% samdrátt að ræða frá síðasta ári. Í yfirlýsingu ráðherra segir að það valdi miklum vonbrigðum að Evrópusambandið og Noregur hafi einhliða skammtað sér ríflega 90% af ráð- lagðri heildarveiði úr makrílstofninum. Sam- kvæmt þessu ætli þeir Íslandi, Færeyjum og Rússlandi innan við 10% veiðihlut. Makrílafli Ís- lendinga tvö síðustu ár hefur verið um og yfir 150 þúsund tonn. Ekki náðist í Steingrím sjálfan í gær en hann hefur ekki tilkynnt leyfilegan heildarafla Íslendinga á þessu ári. „Með þessu er horft framhjá breyttu göngu- mynstri makrílstofnsins, en á árinu 2012 er áætlað að um 1,5 milljónir tonna af makríl hafi verið í ís- lensku lögsögunni, hafi þyngst þar um allt að 50% og étið allt að 3 milljónum tonna af fæðu með til- heyrandi áhrifum á lífríkið. Lykillinn að lausn makríldeilunnar er að tekið verði fullt tillit til þessara miklu breytinga á göngu makrílsins, að allir aðilar fái sanngjarnan hlut og umfram allt að veiðarnar byggist á vísindalegu mati á ástandi stofnsins. Við vonum að Evrópusambandið og Noregur sjái að sér og verði tilbúin að setjast að samninga- borðinu til þess að finna varanlega lausn sem tryggi sjálfbæra nýtingu stofnsins. Það eru hags- munir allra hlutaðeigandi aðila að lausn finnist sem fyrst,“ segir í yfirlýsingu Steingríms. Skammta sér einhliða rúm 90% af makrílnum  Atvinnuvegaráðherra segir samkomulag ESB og Noregs mikil vonbrigði 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013 Við erum með húsin! Sumarið er að koma... Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Aðdáendur Mary Poppins fylktu liði við Borg- arleikhúsið í gær í tengslum við frumsýningu á samnefndum söngleik. Yfir tvö hundruð manns gengu um nágrennið með regnhlífar og stigu léttan dans í anda töfrumgæddu barnfóstrunnar með regnhlífina. „Okkur langaði að gera eitthvað óhefðbundið og skemmtilegt. Þetta voru allt sjálfboðaliðar sem þarna tóku þátt og við æfðum saman nokkr- ar hreyfingar með regnhlífar,“ sagði Hildur Harðardóttir, markaðsfulltrúi Borgarleikhúss- ins. Hildur bætti við að söngleikurinn um Mary Poppins væri sá stærsti og flóknasti sem þar hefði verið settur upp. Forsala á miðum hefst á miðvikudaginn 23. janúar. Söngleikurinn sjálfur verður frumsýndur 22. febrúar. Með hlutverk Mary Poppins fer Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Dansandi regnhlífar til dýrðar Mary Poppins Morgunblaðið/Kristinn Söngleikurinn Mary Poppins verður frumsýndur á næstunni í Borgarleikhúsinu Skúli Hansen skulih@mbl.is Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest þá afstöðu slitastjórnar Kaupþings banka að taka ekki kröfur Irish Bank Resolution Corporation Ltd. (IBRC) á kröfuskrá við slitameð- ferð bankans. Kröfur IBRC voru þær að felld yrði úr gildi ákvörðun slita- stjórnarinnar um að hafna kröfum vegna tveggja skuldabréfa, samtals að fjárhæð 15.558.733 evrur, og sömu- leiðis að kröfurnar tvær yrðu viður- kenndar sem almennar kröfur við slitameðferð Kaupþings. Eins og Morgunblaðið greindi frá í október sl. hafði héraðsdómur óskað eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstóls- ins á því hvort ákvæði 1. mgr. 86. gr. laga nr. 21/1991 samrýmdist efni til- skipunar 2001/24/EB. Niðurstaða EFTA-dómstólsins var sú að íslensk útgáfa 14. gr. fyrrnefndrar tilskipun- ar væri efnislega ólík öðrum tungu- málaútgáfum ákvæðisins. Var þekktur lánardrottinn Þá taldi EFTA-dómstóllinn að ákvæðið útilokaði landsreglur sem heimiluðu niðurfellingu á kröfum þekktra erlendra lánardrottna sem ekki hefur verið lýst þrátt fyrir að ekki hafi hver og einn þessara lán- ardrottna fengið sérstaka tilkynningu og landslög krefjist þess að kröfunni sé lýst til að hún fáist viðurkennd. Héraðsdómur féllst á þau rök IBRC að hann hefði verið þekktur er- lendur kröfuhafi við slitameðferð Kaupþings. Einnig taldi dómurinn að slitastjórn Kaupþings hefði ekki sýnt fram á að henni hefði verið ógerlegt að leita sérstaklega vitneskju um hvort sóknaraðili kynni að telja til kröfu á hendur varnaraðila. Þrátt fyr- ir þá staðreynd að slitastjórnin hafi við upphaf slitameðferðar ekki sent IBRC sérstaka tilkynningu í sam- ræmi við áðurgreind lagafyrirmæli, gat dómurinn ekki fallist á að það eitt ætti að leiða til þess að líta skyldi með öllu fram hjá ákvæðum gjaldþrota- skiptalaga um áhrif vanlýsingar. Kröfum Irish Bank í bú Kaupþings banka hafnað  Afstaða slitastjórnar bankans til krafnanna staðfest Sjálfstæðisflokkurinn fengi 41% at- kvæða ef gengið yrði til kosninga nú, samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var fyrir Fréttablaðið og Stöð 2. Frá þessu var greint í kvöld- fréttum Stöðvar 2 í gær. Þá fengi Samfylkingin næst flest atkvæði en hún mælist með 19% fylgi samkvæmt könnuninni. Þar á eftir kæmi síðan Björt framtíð með 13% atkvæða, Framsóknarflokk- urinn með 12% og Vinstri grænir með 7% atkvæða, en flokkurinn hlaut um 22% fylgi í síðustu þing- kosningum. Björt framtíð væri eina nýja framboðið sem næði manni inn á þing. Svarhlutfall í könnuninni var um 59% en úrtakið var 1.342 manns úr þjóðskrá. Sjálfstæðisflokk- urinn fengi 41% Ökumenn hafa tekið eftir því að farið er að blæða úr vegaklæðingu um norðvestanvert landið. Lög- reglan á Blönduósi segist kannast við málið og vita til þess að öku- menn hafi ekið á tjöruköggla sem myndast hafi á vegum. Magnús Valur Jóhannsson, svæð- isstjóri vestursvæðis hjá Vegagerð- inni, sagði í samtali við mbl.is í gær- kvöldi að þetta væri þekkt fyrirbrigði og hið versta mál fyrir umferðina. „Við höfum ekki fundið ráð við þessu,“ sagði Magnús Valur. Tjörukögglar á Norðvesturlandi „Það voru eng- in vandamál. Þeir voru kurt- eisir og höguðu sér vel,“ sagði Brevik, lög- reglumaður á Gardermoen flugvell- inum, við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Lögreglan meinaði sex Outlaws-meðlimum frá Íslandi inn- göngu í Noreg við komuna til Gar- dermoen-flugvallar í fyrradag. Out- laws-meðlimirnir fóru með flugi heim í gær. Þetta staðfesti Brevik. Hann sagði að þótt þeim hefði verið meinuð innganga í þetta skipti þýddi það ekki endilega að slíkt yrði gert aftur ef þeir kæmu aftur til Noregs. Hann vísaði til þess að handtakan byggðist á ákvæðum laga í Noregi um að heimilt væri að meina dæmd- um mönnum inngöngu í landið. Norska lögreglan skilgreinir Out- laws sem glæpasamtök. Samkvæmt frétt á norska miðl- inum rb.no voru íslensku Outlaws- liðarnir á leið í veislu á vegum norsku samtakanna. thorunn@mbl.is Outlaws-liðar farnir burt frá Noregi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.