Morgunblaðið - 19.01.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16, sunnud. lokað
Listmunauppboð
Erum að taka á móti verkum á næsta uppboð
Vegna góðrar sölu á síðustu uppboðum leitum við að verkum eftir
frumherjana í íslenskri myndlist og þá sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson,
Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur,
Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna,
Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving.
Myndlistar-
uppboð
12. – 28. janúar
Áhugasamir geta haft
samband í síma 551-0400
Í könnun sem Fréttablaðið slærupp á forsíðu í gær segir: „Nærri
helmingur vill ljúka aðildarvið-
ræðum við ESB“. Fyrir aðildarsinna
var þetta jákvæðasta mögulega
framsetningin á frétt af þessari
könnun. Sömu sögu er að segja af
framhaldsfrétt inni í blaðinu þar sem
segir í fyrirsögn: „Fáir styðja tillögur
stjórnarandstöðunnar“.
Stóra fréttin í þessari könnunFréttablaðsins, sé mark á henni
takandi, fór af einhverjum ástæðum
framhjá blaðinu. Hún er að á rúmu
ári hefur afstaðan til þess hvort
halda eigi áfram viðræðum eða ekki
snúist alveg við.
Nú er meirihlutinn þeirrar skoð-unar að stöðva eigi viðræð-
urnar, ýmist varanlega eða að
minnsta kosti þar til þjóðin hefur tek-
ið afstöðu til þess hvort halda skuli
áfram.
Fyrir rúmu ári vildi meirihlutinnhalda viðræðunum áfram, þó að
þá eins og nú væri mikill meirihluti
andvígur inngöngu.
Annað sem vekur athygli er aðfleiri innan Samfylkingarinnar
eru að átta sig á að ekkert vit er í að
halda viðræðum áfram. Þrátt fyrir
þetta er Samfylkingin enn einangruð
í íslenskri pólitík með því að mikill
meirihluti stuðningsmanna allra ann-
arra flokka vill hætta viðræðum.
Nema að vísu ef Litla Samfylk-ingin er talin með. Hún er auð-
vitað sammála móðurflokknum þó að
hún muni fram að kosningum reyna
að láta líta svo út sem hún sé sjálf-
stæður stjórnmálaflokkur.
Fréttamat
Fréttablaðs
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.1., kl. 18.00
Reykjavík 4 léttskýjað
Bolungarvík 5 léttskýjað
Akureyri 5 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 4 rigning
Vestmannaeyjar 5 skýjað
Nuuk -8 léttskýjað
Þórshöfn 5 alskýjað
Ósló -11 skýjað
Kaupmannahöfn -2 skýjað
Stokkhólmur -12 heiðskírt
Helsinki -18 heiðskírt
Lúxemborg -2 skýjað
Brussel -1 léttskýjað
Dublin 0 snjókoma
Glasgow 1 léttskýjað
London -2 snjókoma
París -2 skýjað
Amsterdam -1 léttskýjað
Hamborg 0 skýjað
Berlín -2 skýjað
Vín -2 snjókoma
Moskva -12 snjókoma
Algarve 16 skýjað
Madríd 12 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 7 léttskýjað
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg -16 alskýjað
Montreal -16 léttskýjað
New York -3 skýjað
Chicago -2 alskýjað
Orlando 9 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:45 16:34
ÍSAFJÖRÐUR 11:13 16:15
SIGLUFJÖRÐUR 10:57 15:57
DJÚPIVOGUR 10:20 15:57
Ekki hefur verið
tekin ákvörðun
um það hvort
óskað verði eftir
að gæslu-
varðhald yfir
Karli Vigni Þor-
steinssyni verði
framlengt. Hann
var dæmdur í
tveggja vikna
gæsluvarðhald
en það rennur út á miðvikudag.
Björgvin Björgvinsson, yfirmað-
ur kynferðisbrotadeildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, segir
að nýjar kærur gegn Karli Vigni
hafi borist í kjölfar umfjöllunar um
kynferðisbrot hans, sumar þeirra í
þessari viku. Bæði sé um að ræða
nýleg brot og nokkurra ára gömul
sem lögregla telur að séu ekki
fyrnd. kjartan@mbl.is
Karl Vignir
Þorsteinsson
Gæsluvarðhaldið
yfir Karli Vigni renn-
ur út á miðvikudag
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Við höfum áhyggjur af því að þetta
muni stöðva uppbyggingu nútíma-
legs verslunarhúsnæðis í miðborg-
inni og sérstaklega við Laugaveg,
segir Björn Jón Bragason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka kaupmanna
og fasteignaeigenda við Laugaveg,
um ný lög um menningarminjar sem
tóku gildi um áramótin.
Samkvæmt lögunum eru öll hús
og mannvirki sjálfkrafa friðuð þegar
þau ná hundrað ára aldri en með
gildistöku laganna fjölgaði friðuðum
byggingum í landinu úr um 480 í allt
að 5.000. Björn segir miðborgina
hafa liðið fyrir ofstæki í húsafrið-
unarmálum og það sé áhyggjuefni
hversu víðtæk lögin séu.
„Við höfum ekki sett okkur upp á
móti því að hús séu friðuð en mér
finnst það lágmarkskrafa að það sé
þá rökstuðningur fyrir því. Þessi
aldursregla í lögunum er ekki rök-
studd að neinu marki. Það eitt og sér
að hús er gamalt gerir það ekki að
merkilegum minjum,“ segir hann.
Minjastofnun Íslands, sem varð til
með gildistöku laganna um áramót-
in, er heimilt að afnema aldurs-
tengda friðun húsa en óheimilt er að
breyta, rífa eða flytja friðuð hús
nema með leyfi stofnunarinnar.
Björn segir að velta megi því fyrir
sér hvort menningarminjalögin
stangist á við eignarréttarákvæði
stjórnarskrárinnar, þ.e.a.s. hvort
meðalhófs hafi verið gætt.
„Ég veit ekki hvort verið er að
vinna húsafriðun gagn með því að
setja öll gömul hús undir sama hatt
með þessum hætti, í stað þess að
hlúa þá betur að þeim sem sann-
arlega eru menningarminjar,“ segir
hann. „Megnið af þessum húsum var
byggt af miklum vanefnum og þjón-
ar ekki hlutverki sínu í nútímanum.“
Björn segir samtökin hafa bent á
leiðir til að standa að uppbyggingu
þannig að nýbyggingar falli vel að
umhverfi sínu. Hægt hafi hins vegar
gengið að fá leyfi til breytinga en
mörg gömlu timburhúsanna við
Laugaveg, sem flest falla undir
hundrað ára regluna, henti illa undir
þá starfsemi sem í þeim er starf-
rækt.
„Laugavegurinn er verslunargata
og það hlýtur að skipta máli að húsin
geti þjónað hlutverki sínu.“
Uggandi vegna
nýju laganna
Morgunblaðið/Ómar
Lög Björn segir flest timburhúsanna við Laugaveg falla undir hundrað ára
regluna en þau henti mörg illa undir starfsemina sem í þeim er starfrækt.
Segir ofstæki hafa hamlað uppbyggingu