Morgunblaðið - 19.01.2013, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
Kostnaður vegna hreinsunar eftir
strand Goðafoss á Óslóarfirði 17.
febrúar fyrir tæpum tveimur árum
er í norskum fjölmiðli sagður
nema 88 milljónum norskra króna
eða rúmum tveimur milljörðum ís-
lenskra króna.
Fylkisstjórnir við Óslóarfjörð
komu saman til fundar í gær til
þess að ræða um fyrirkomulag ör-
yggis- og umhverfismála í firð-
inum.
Fram kom á fundinum, að sögn
fréttavefjarins Tb.no, að kostn-
aður vegna hreinsunar eftir strand
Goðafoss, gámaflutningaskips
Eimskips, á Óslóarfirði 17. febrúar
árið 2011 næmi 88 milljónum
norskra króna eða rúmum tveimur
milljörðum íslenskra króna. Norsk
yfirvöld hafa nú sent reikninginn
til tryggingafélags Eimskips sam-
kvæmt fréttinni.
Ólafur Hand, upplýsingafulltrúi
Eimskips, segist ekki geta staðfest
þessa tölu enda hafi hún ekki kom-
ið inn á borð hjá fyrirtækinu. Um
sé að ræða tryggingamál og sé
leyst á milli tryggingafélags Eim-
skips og norskra yfirvalda.
Hreinsunin
sögð kosta
2 milljarða
Goðafoss Á strandstað í Óslóarfirði.
Bæjarstjórinn í Norðurþingi treystir
því að stjórnvöld tryggi fjármagn til
reksturs flugvallarins í Aðaldal á
næsta ári. Sveitarfélagið hefur sam-
þykkt samstarfssamning við Flug-
félagið Erni um rekstur vallarins
næstu tólf mánuði. Sveitarfélagið
leggur til andvirðis hálfs stöðugildis.
Isavia hefur engar fjárheimildir til
að reka flugvöllinn við Húsavík á
þessu ári. Áður en Flugfélagið Ernir
hóf flug þangað í apríl voru mörg ár
liðin frá því Flugfélag Íslands hætti
flugi til Húsavíkur.
„Þetta er tímabundin ráðstöfun
sem gerð er í ljósi þeirrar góðu þjón-
ustu sem Ernir hefur veitt hér á
svæðinu,“ segir Bergur Elías
Ágústsson bæjarstjóri. Hann segir
að flugið hafi verið mikið notað enda
spari það íbúunum tíma og kostnað.
Þá fjölgi ferðafólki.
Bergur segir að þátttaka sveitar-
félagsins skapi flugfélaginu svigrúm
til að auka markaðsstarf á árinu og
sé liður í að tryggja að áfram verði
flogið á staðinn.
Hann segist treysta því að í fram-
haldinu verði Isavia tryggt fjármagn
til að reka flugvöllinn með sama
hætti og aðra flugvelli á sambæri-
legum stöðum. Þegar atvinnuupp-
bygging hefjist skapist mikil verk-
efni fyrir flugið sem tryggi
tilverugrundvöll þess til framtíðar.
helgi@mbl.is
Styrkja rekstur flugvallar
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Flugstöð Flug til Húsavíkur hefur gengið vel og áhugi er á að efla það frekar.
Norðurþing leggur fjármagn í rekstur flugvallarins í
Aðaldal til að hjálpa til við uppbyggingu flugleiðarinnar
Kristján Oddsson
hefur verið ráð-
inn yfirlæknir
Leitarstöðvar
Krabbameins-
félagsins og tekur
við starfinu 1.
apríl. Kristján er
sérfræðingur í
fæðingar- og
kvenlækningum,
heimilislækningum, heilbrigðis-
stjórnun og embættislækningum.
Kristján hefur starfað sem heim-
ilislæknir víða um land og rekið
stofu sem kvensjúkdómalæknir.
Hann vann hjá landlæknisembætt-
inu í rúm fjögur ár, meðal annars
sem aðstoðarlandlæknir.
Kristján Sigurðsson hefur gegnt
starfi yfirlæknis Leitarstöðvarinnar
síðan 1982. „Stjórn félagsins metur
starf hans mikils og þann mikla ár-
angur sem hefur náðst á starfstíma
hans,“ segir í tilkynningu.
Ráðinn
yfirlæknir
Leitarstöðvar
Kristján Oddsson
100%
ekta
ostur
rifnir ostar
auðvelda matseldina og gera matinn girnilegri.
Þú finnur frábærar uppskriftir á gottimatinn.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA