Morgunblaðið - 19.01.2013, Page 23
23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands.
Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust
og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur
heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Óvísindalegt slembiúrtak á meðal
formanna aðildarfélaga Samfylking-
ar bendir til að Árni Páll Árnason
hafi yfirhöndina í formannskjöri
flokksins. Leitað var til 22 félaga og
náðist að leita álits 20 formanna.
Ekki náðist í tvo formenn ungliða og
urðu framkvæmdastjóri annars veg-
ar og varaformaður hins vegar því til
svara. Þá var rætt við bæði formann
og varaformann Samfylkingar-
félagsins á Akureyri og eru svörin
því alls 23.
Af þessum 23 trúnaðarmönnum
Samfylkingar lýsa sjö yfir stuðningi
við Árna Pál auk þess sem sá áttundi
er þekktur stuðningsmaður hans. Þá
sagðist sá níundi líta svo á að Árni
Páll væri að sækja í sig veðrið. Tals-
vert færri, eða tveir, segjast styðja
Guðbjart. Meirihlutinn, eða 12, er
ekki búinn að gera upp hug sinn eða
vildi ekki tjá sig opinberlega um af-
stöðu sína til formannskjörsins.
Fulltrúar um 19.000 félaga
Leitað var álits hjá formönnum fé-
laganna í gær og í fyrradag en þeir
fara fyrir 22 af 43 aðildarfélögum
Samfylkingar og eru fulltrúar fyrir
um 18.500-19.400 flokksfélaga, af alls
rúmlega 20.000, ef marka má upp-
gefnar tölur þeirra um félagafjölda.
Niðurstöðurnar eru birtar í graf-
inu á síðunni hér til vinstri en eins og
sjá má eru félögin sem formennirnir
fara fyrir í öllum landshlutum. Skal
ítrekað að hér er á ferð slembiúrtak
og að könnunin er óvísindaleg.
Spurt var hvaða mál yrðu efst á
baugi í kosningabaráttunni og var
niðurstaðan afgerandi. Allir nema
tveir nefndu ESB en gátu þó um
gjaldmiðilsmál, málaflokk sem er
tengdur ESB-aðild órofa böndum í
hugum samfylkingarfólks. Er þetta í
takt við það stöðumat nokkurra
þingmanna Samfylkingar í Morgun-
blaðinu fyrir helgi að kosningabar-
átta flokksins muni snúast um ESB.
Formenn félaganna eru almennt
bjartsýnir á gengi flokksins í kom-
andi þingkosningum og eru margir
andvígir því að mynda ríkisstjórn
með Sjálfstæðisflokki. Þá horfa
margir til Bjartrar framtíðar.
Samfylkingin kaus sér síðast for-
mann á landsfundi árið 2009, þegar
Jóhanna Sigurðardóttur var kjörin
með nær öllum greiddum atkvæðum
af um 1.700 gestum landsfundar.
Til þess að allsherjaratkvæða-
greiðsla fari fram þarf að óska eftir
því innan tiltekins tíma. Árni Páll og
Guðbjartur óskuðu eftir því í sam-
einingu í byrjun desember að slík at-
kvæðagreiðsla færi fram.
Árni Páll virðist hafa yfirhöndina
Morgunblaðið/Golli
Formannsefni Samfylkingarinnar Guðbjartur Hannesson og Árni Páll Árnason fyrir framboðsfund á Seltjarnarnesi.
Sjö formenn aðildarfélaga Samfylkingarinnar segjast vilja Árna Pál Árnason sem næsta formann
Sá áttundi er sama sinnis Tveir vilja Guðbjart Hannesson 12 af 23 aðspurðum tjá sig ekki
Afstaða þingmanna
» Samfylkingin er nú með 19
þingmenn, að Árna Páli og
Guðbjarti meðtöldum.
» Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra tjáir sig ekki um
það hvorn hún styður.
» Jónína Rós Guðmundsdóttir,
Oddný Harðardóttir, Ólína Þor-
varðardóttir, Lúðvík Geirsson
og Sigríður Ingibjörg Ingadótt-
ir styðja Guðbjart.
» Sigmundur Ernir Rúnarsson
og Valgerður Bjarnadóttir
styðja Árna Pál.
» Mörður Árnason, Magnús
Orri Schram og Helgi Hjörvar
vildu ekki tjá sig í gær, né held-
ur Skúli Helgason, Katrín Júl-
íusdóttir og Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, en ekki náðist
í Björgvin G. Sigurðsson eða
Össur Skarphéðinsson.
» Kristján Möller er í veik-
indaleyfi.