Morgunblaðið - 19.01.2013, Side 24
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra hefur haft minni tíma en
hann kysi til að sinna framboði sínu
til embættis formanns Samfylking-
arinnar. Hann notast því mikið við
netið til að ná til sem flestra. Keppi-
nautur hans, Árni Páll Árnason, hef-
ur haft rýmri tíma, auk þess að hafa
greint frá framboði sínu fyrr, en
reiðir sig engu að síður mikið á net-
ið.
Ólafía B. Rafnsdóttir er kosninga-
stjóri Árna Páls. Hún var kosninga-
stjóri Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur þegar hún bar sigurorð af
Össuri Skarphéðinssyni í formanns-
kjörinu 2005, með 7.997 atkvæðum
gegn 3.970. Rúmlega 20.000 voru þá
á kjörskrá hjá Samfylkingunni og
greiddu um 60% þeirra atkvæði.
Sex framboð, sex sigrar
Hún var einnig kosningastjóri
Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta
Íslands, 1996, auk þeirra skipta sem
hann endurnýjaði umboð sitt 2000,
2004, 2008 og 2012 og hefur því
gengið í gegnum sex sigra og aldrei
beðið ósigur sem kosningastjóri.
„Sjö er happatalan,“ segir Ólafía
spurð um þetta.
Spurð hvaða aðferðum framboð
Árna Páls beiti í formannskjörinu
segir Ólafía að reynt sé að ná til
fólks á samskiptamiðlum og í símtöl-
um. „Fólk er jafnvel líklegra til að
svara ef það er haft samband við það
í gegnum Fésbókina. Það er oftar en
ekki þannig enda nota svo margir
orðið Fésbókina og svörunin verður
betri. Svo er alltaf ákveðinn hópur
sem þarf að hringja í og það gerum
við líka. Þá hringjum við í fólk sem
við þekkjum til.“
Alltaf að verða tölvuvæddari
– Hvað hefur breyst í aðferða-
fræðinni síðan í formannsslag Ingi-
bjargar Sólrúnar og Össurar?
„Við erum alltaf að verða tölvu-
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
Skrifstofa borg-
arstjóra og
borgarritara
mun flytja starf-
semi sína tíma-
bundið í Breið-
holt. Markmiðið
er að borgar-
stjóri og emb-
ættismenn kynn-
ist víðtækri
starfsemi borgarinnar í Breiðholti
frá fyrstu hendi, segir í frétt frá
borginni.
Skrifstofan borgarstjóra og
borgarritara mun hefja starfsemi í
Gerðubergi frá og með mánudeg-
inum 21. janúar og vera staðsett
þar í þrjár vikur eða til 7. febrúar
og halda fundi sína þar. Borgar-
ráð mun einnig funda í Breiðholti.
Þá mun borgarstjóri gera víðreist
í öllum hverfum Breiðholts til að
kynna sér starfsemi borgarinnar í
þessu fjölmennasta hverfi borg-
arinnar. Í Breiðholti búa 20.600
íbúar, en þar af er hlutfall inn-
flytjenda 10,2%. Í öðrum hverfum
er hlutfall innflytjenda um 8% að
meðaltali.
Borgarstjóri fundar þessar vik-
urnar með íbúum í hverfum borg-
arinnar og er fundur áætlaður
með íbúum Breiðholts þriðjudag-
inn 23. janúar í Gerðubergi.
Borgarstjóri til
starfa í Breiðholti
Jón Gnarr
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur
hefur samþykkt að ganga til sam-
starfs við Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn um fræðslu- og þróun-
arstarf. Markmiðið er að styrkja
fræðslu í starfsemi garðsins, s.s. á
sviði náttúrufræði, og þar með
þann grunnþátt menntunar í aðal-
námskrá leik- og grunnskóla sem
snýr að sjálfbærni. Þá samþykkti
ráðið að leita leiða til að nýta Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinn meira
yfir veturinn til leiks og upplifunar
og verður stofnað teymi til að
skipuleggja slíka starfsemi. Skóla-
og frístundaráð vill jafnframt að
leitað verði leiða til að nýta Naut-
hólsvíkina og Ylströndina betur í
útinámi.
Leita samstarfs um
aukið fræðslustarf
Raddir fólksins boða til útifundar
um stjórnarskrármálið í dag, laug-
ardaginn 19. janúar, klukkan 15.00
á Austurvelli.
Ræðumenn eru Illugi Jökulsson,
rithöfundur og blaðamaður, og Sig-
ríður Ólafsdóttir lífefnafræðingur.
Á undan fundinum flytur Svavar
Knútur nokkra söngva.
Fundarstjóri verður Hörður
Torfason tónlistarmaður.
Raddir fólksins
halda útifund
STUTT
TIL KYNNIS- OG NÁMSFERÐA
Um er að ræða ferðastyrki til þeirra sem vinna að sam-
starfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið
minnsta. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1.000
danskar krónur vegna ferða milli Íslands og Grænlands
annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar. Ekki eru
veittir styrkir vegna gistingar og uppihalds.
Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:
Skóla
Íþróttahópa
Tónlistarhópa
Annars menningarsamstarfs
TIL VERKEFNA Í FERÐAÞJÓNUSTU
Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu á milli
landanna þriggja geta sótt um styrki til samstarfs-
verkefna á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu:
Til sameiginlegra markaðssetningarverkefna
Til nýsköpunar- og vöruþróunarverkefna
Til þekkingarheimsókna og miðlunar
gagnkvæmrar reynslu milli ferðaþjónustuaðila
Til gæða- og umhverfismála innan
ferðaþjónustunnar
Hámarksstyrkur til verkefnis er 100 þúsund danskar
krónur, eða að hámarki 50% kostnaðaráætlunar.
Styrkir frá NATA
NATA er samstarfssamningur ferðamálaráðuneyta í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi.Markmið samningsins er að auka skilvirkni í samstarfi aðila er sinna ferðamálum
í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi með því að styrkja, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga
einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta.
Samstarf Íslands, Grænlands og Færeyja á sviði ferðamála
Ítarlegar upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum er að finna á vef Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is.
Umsóknir skulu vera á ensku eða dönsku.
Lokafrestur til að skila umsókn er 27. febrúar 2013
og mun niðurstaða stjórnar NATA liggja fyrir í fyrri hluta apríl.
væddari og þekkingin á því sviði er
alltaf að aukast. Aðferðirnar eru
svipaðar en með tilkomu vefmiðla
breytist margt. Fólk getur fylgst
betur með fyrir framan tölvurnar.
Árið 2005 var Fésbókin ekki komin
til sögunnar og miðlarnir voru not-
aðir á annan máta en í dag. Það er
hægt að ná til fleiri og með minni til-
kostnaði en 2005.“
– Hversu margir starfa við fram-
boð Árna Páls?
„Ég er sú eina sem er starfsmað-
ur framboðsins og svo eru vinir,
vandamenn og sjálboðaliðar sem
kíkja inn, en með tilkomu tækninnar
þá þarf fólk ekki að sitja á kosn-
ingaskrifstofunni.“
Tölvan fram yfir fundina
– Er framboðsfundaformið að
víkja fyrir nýjum aðferðum til að ná
til fólks?
„Já, að vissu marki, vegna þess að
fólk vill frekar fylgjast með í gegn-
um samfélagsmiðla og sjónvarp. Það
mæta orðið færri á framboðsfundi
en áður.“
– Hvenær hófst kosningabarátta
Árna Páls?
„Þegar hann tilkynnti formanns-
framboðið með því að senda tölvu-
póst á flokksmenn 3. október 2012.“
– Hver er kostnaður við framboð-
ið?
„Samkvæmt lögboðuðu hámarki
Ríkisendurskoðunar þá má kosn-
ingabaráttan kosta 3,5 til 4 milljónir
en það miðast við fjölda á kjörskrá.
Við munum að sjálfsögðu verða inn-
an þeirra marka.“
Fyrsta framboðið var með
Össuri Skarphéðinssyni
Handan víglínunnar er Bryndís
Ísfold Hlöðversdóttir, kosninga-
stjóri Guðbjarts Hannessonar, en
svo vill til að hún vann með Ólafíu
Björk á sínum tíma í kosningabar-
áttu Ingibjargar Sólrúnar árið 2005.
Líkt og Ólafía Björk er Bryndís Ís-
fold með langa reynslu af framboðs-
málum.
Hún hóf afskipti af stjórnmálum í
prófkjöri Samfylkingarinnar árið
1999 þar sem hún starfaði fyrir
framboð Össurar Skarphéðinssonar.
Hún hefur síðan starfað fyrir fram-
boð margra samfylkingarmanna,
þar með talin Ágúst Ólafur Ágústs-
son, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
og Oddný Sturludóttir. Þá hefur hún
unnið að kosningabaráttu fráfarandi
varaformanns, Dags B. Eggertsson-
ar, í öll skiptin sem Samfylkingin
hefur verið í framboði í Reykjavík.
„Ég hef tekið þátt í mörgum kosn-
ingabaráttum og herráðum fyrir
Samfylkinguna og það er alltaf jafn
skemmtilegt,“ segir Bryndís Ísfold
og lítur um öxl. En hvað skyldi ein-
kenna kosningabaráttu Guðbjarts?
„Það gamla góða gildir. Það er
maður á mann. Fólk talar við fólk og
segir því af hverju það treystir Guð-
bjarti best til þess að verða formað-
ur. En það hjálpar að hafa sam-
félagsmiðla. Það gerir baráttuna
sýnilegri, án mikils tilkostnaðar.
Þetta er gagnvirkt samband við
kjósendur. Frambjóðendur geta
svarað fyrirspurnum og verið í meiri
tengslum við fólk, marga í einu.
Það skiptir máli að fólk tali sam-
an. Fólk er að tala saman þvert á
landið, hringja í vini og kunningja
inni í flokknum, gamla félaga, og svo
er það að spjalla á Fésbókinni. Það
þýðir að maður nær í fleiri í einu,“
segir Bryndís Ísfold en framboðið
hefur opnað vefsetrið gudbjartur.is
gagngert vegna formannsslagsins.
Er þar meðal annars boðið upp á að
fylgjast með færslum frambjóðand-
ans á Fésbókinni og að nálgast tíma-
setningu framboðsfunda.
Fundirnir mjög mikilvægir
Bryndís Ísfold telur að gildi fram-
boðsfunda hafi ekki minnkað, þrátt
fyrir framrás tækninnar.
„Ég myndi ekki segja það. Fundir
skipta gríðarlega miklu máli. Þetta
er enda framboð innan flokks og þá
vill fólk heyra í frambjóðendunum
saman og spyrja þá spurninga, sjá
þá saman. Þetta skiptir máli þótt
meirihluti kjósenda sæki ekki slíka
fundi. Það eru það margir í flokkn-
um.“
– Guðbjartur lýsti yfir framboði í
desember. Skipta framboðsfundirn-
ir síðan tugum?
„Já, ég myndi ætla það. Guðbjart-
ur er ráðherra og því fylgir auðvitað
mikil ábyrgð. Hann hefur því ekki
haft eins mikinn tíma og hann hefði
kosið til að fara um landið.“
– Hversu margir starfa fyrir
framboðið?
„Fjöldi manns er að hringja í
stuðningsmenn. Það eru einhverjir
tugir eða hundruð sem styðja Guð-
bjart og taka þátt í framboðinu með
einum eða öðrum hætti. Ég er hins
vegar sú eina sem er í fullu starfi.“
– Hver er kostnaður við framboð-
ið til þessa?
„Hann er ríflega tvær milljónir
króna,“ segir Bryndís Ísfold.
Hundruð leggja formanns-
efnum Samfylkingarinnar lið
Tvær konur stjórna kosningabaráttu Árna Páls og Guðbjarts Samskiptamiðlar breyta aðferðum
Morgunblaðið/Golli
Formaðurinn Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á landsfundi Sam-
fylkingarinnar haustið 2011. Hún var kjörin formaður í mars 2009.
Formannskjör í Samfylkingunni
Árni Páll
Ánrason
Ólafía B.
Rafnsdóttir
Guðbjartur
Hannesson
Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir