Morgunblaðið - 19.01.2013, Síða 26

Morgunblaðið - 19.01.2013, Síða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013 Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Guðrún Jenný Jónsdóttir, lögfræð- ingur hjá Ríkisskattstjóra, gagn- rýndi nýjar reglur um hvernig skatt- leggja beri starfsfólk sem íslensk fyrirtæki sendi til starfa erlendis í sex mánuði eða lengur, og hafi áfram heimilisfesti hér á landi. „Til hvers að hafa reglurnar einfaldar þegar hægt er hafa þær flóknar? Þetta er atvinnuskapandi,“ sagði hún kald- hæðin á skattadegi Félags löggildra endurskoðenda í gær. Munu handreikna skattinn Helsta gagnrýni hennar á regl- urnar er hve mikið umstang þetta hafi í för með sér fyrir launþega, vinnuveitendur og Ríkisskattstjóra. Stofnunin muni handreikna hvert og eitt tilfelli, því það borgi sig ekki að smíða reikniforrit til verksins þar sem reglan sé tímabundin og henni hafi ekki fylgt aukafjárveiting. Auk þess sé óljóst hverjir muni njóta góðs af breytingunni. Það séu þá helst þeir sem greiða lága skatta í vinnuríkinu. Fyrir séu tvísköttunar- samningar við um 40 ríki og lög um hvað gera skuli þegar tvísköttunar- samningar eru ekki fyrir hendi. Skilja má á lögfræðingnum að nýja reglan bæti litlu við þau úrræði sem fyrir eru. Skattaafslátturinn er svo hljóð- andi: Heimilt er að lækka tekjuskatt manns sem ber fulla og ótakmarkaða skattskyldu. Lækkunin skuli nema þeim tekjuskatti sem reiknaður er af erlendu tekjunum. Jafnframt er heimilt að taka tillit til erlendra tekna þegar skattleggja á aðrar tekjur. „Það kemur ekkert fram í lögskýr- ingargögnum um reikniaðferðir,“ segir Guðrún Jenný. „Það er þó ljós í myrkrinu: Ráðherra mun gefa út reglur sem hafa að geyma frekari út- færslu og túlkun, þar á meðal varð- andi útreikninga.“ Rekja má tilurð ákvæðisins til yf- irlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 2011 þar sem þessu var lofað til að styðja við bakið á fyrirtækjum sem vildu sækja fram á erlenda markaði. Ákvæðið gildir þó ekki ef fyrirtækið rekur starfsstöð í viðkomandi landi. Það gildir heldur ekki um opinbera starfsmenn eða flugliða eða starfs- menn í íslenskum skipum. Það gildir heldur ekki ef starfskraftur ræður sig beint til starfa hjá erlendum vinnuveitanda eða ef viðkomandi ræður sig til starfa erlendis hjá ís- lensku fyrirtæki. Skatturinn mun þurfa að handreikna  Lögfræðingur Ríkisskattstjóra kvartar yfir skattareglu Morgunblaðið/Styrmir Flókið „Til hvers að hafa reglurnar einfaldar þegar hægt er að hafa þær flóknar?“ sagði Guðrún Jenný Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Ríkisskattstjóra. Fyrrverandi for- sætisráðherra Finnlands, Esko Aho, verður aðalræðumaður á Viðskiptaþingi 2013 sem fram fer 13. febrúar næstkomandi á Hilton Reykja- vík Nordica. Esko hefur áratuga langa reynslu af stjórnunarstörfum og er í dag fræðimaður (e. senior fellow) hjá Kennedy School of Government í Harvard og stjórn- unarráðgjafi hjá Nokia. Greint var frá þessu í fréttabréfi Við- skiptaráðs í gær. Þar kom fram að í erindi sínu muni Esko ræða þá þætti sem mikilvægir séu fyrir vöxt hag- kerfa og þar með lífskjara. Hann muni snerta á lærdómi Finna frá Norðurlandakrísunni ásamt því að fara yfir mikilvægi nýsköp- unar (e. innovational eco-system) fyrir lönd af stærðargráðu Ís- lands. „Honum er einnig hug- leikið mikilvægi samstarfs til að tryggja efnahagsstöðugleika og við úrlausn vandamála. Esko þekkir vel til mála í alþjóðlegu efnahagslífi og verður áhugavert að fá sýn hans á tækifæri Íslands næstu árin,“ segir orðrétt í fréttabréfi Viðskiptaráðs. Esko Aho aðalræðu- maður  Ræðir reynslu Finna af kreppu Esko Aho Hagar skiluðu rúmlega tvo milljarða hagnaði á fyrstu níu mánuðum rekstrarárs fyrirtækisins. Vörusala á tímabilinu nam um 52 milljörðum og hagnaður fyrir afskriftir, fjár- magnsliði og skatta (EBITDA) nam um 3,5 milljörðum. Eigið fé félagsins er um 7,8 milljarðar, eða 30,3%. Framlegð félagsins er 12,6 millj- arðar samanborið við 11,8 milljarða árið áður eða 24,1% samanborið við 23,6%. Launakostnaður stendur í stað milli tímabila en annar rekstr- arkostnaður hefur hækkað um 8,9%, að teknu tilliti til einskiptisliða í fyrra er hækkunin á milli ára um 5,8%. Þetta kemur fram í árshluta- reikningi félagsins. Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 25,9 milljörðum. Fastafjármunir voru 12,9 milljarðar og veltufjármunir tæplega 13 millj- arðar. Þar af eru birgðir um sex milljarðar, en birgðasöfnun félagsins nær hámarki í nóvember vegna jóla- vertíðarinnar. Á sama tíma í fyrra voru birgðir 5,7 milljarðar og er hækkun því um 4,6% milli ára. Í tilkynningunni er sagt að rekst- urinn hafi verið góður á tímabilinu og betri en á sama tímabili í fyrra. Þá hafi hann verið yfir þeim áætlunum sem gerðar hafi verið. Þegar fram- tíðarhorfur eru skoðaðar sé þó mesta óvissan vegna framvindu kjarasamninga, en félagið segir stöð- ugleika á vinnumarkaði mikilvægan fyrir reksturinn. Þá geti gengisþró- un og verðlagsþróun haft áhrif á fé- lagið. Hagnaður Haga tveir milljarðar  Vörusalan á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins nam 52 milljörðum Morgunblaðið/Ómar Hagar Telja mestu óvissuna vera vegna framvindu kjarasamninga. ● Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins í gær. Alls bárust 8 gild tilboð í fyrri flokk- inn að fjárhæð 4.310 m.kr. að nafnverði. 2 tilboðum var tekið fyrir 1.525 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,450 (3,42% ávöxtunarkröfu) og í þann síð- ari bárust alls 33 gild tilboð að fjárhæð 5.860 m.kr. að nafnverði. 31 tilboði var tekið fyrir 5.660 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 104,530 (6,60% ávöxt- unarkröfu). Óverðtryggð ríkisbréf fyrir rúma 7 milljarða ● Sérfræðingar Ís- landsbanka yfirfara nú niðurstöðu dóms Hæstaréttar í máli Umbúða- miðlunar en ljóst er að hann hefur áhrif á tæplega 1.000 lán hjá bankanum, að mestu fyrir- tækjalán, sam- kvæmt því sem segir í tilkynningu frá Íslandsbanka. „Öll þau lán sem dómurinn taki til verði endurreiknuð á ný ef aðstaða lán- taka er sambærileg þeirri sem um var fjallað í dómum Hæstaréttar frá 15. febrúar og 18. október á síðasta ári sem tóku til fullnaðarkvittana vegna ólög- mætra lána,“ segir orðrétt í tilkynningu. Hefur áhrif á 1.000 lán ● Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um 0,2% í janúar frá fyrri mánuði. Verð á innfluttu efni hækkaði um 0,3% (áhrif á vísitölu 0,1%) og verð á innlendu efni hækkaði um 0,3% (0,1%). Á síðustu tólf mánuðum hefur vísi- tala byggingarkostnaðar hækkað um 4,4%, samkvæmt því sem fram kom í frétt Hagstofu Íslands í gær. Byggingarvísitalan hækkaði um 0,2% Stuttar fréttir…                                         !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 ,10.2 +,2.-3 ,,.232 ,4.1// +2.-+, +43.54 +.04,+ +23.05 +3+.5, +,-.25 ,15.0 +41.,5 ,4.10/ ,4.+40 +2.-3 +43.2+ +.04/4 +2-.10 +3, ,44.2- +,2.,/ ,15.2 +41./4 ,4.++4 ,4.,1, +2.2,- +4-.,2 +.0015 +2-./4 +3,.0- Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Í rafhlöðum eru efni sem eru skaðleg náttúrunni. Þær mega því alls ekki fara í almennt sorp að notkun lokinni. Efnamóttakan leggur heimilum og fyrirtækjum til ókeypis kassa til að auðvelda söfnun á ónýtum rafhlöðum. Einnig má setja í hann ónýt smáraftæki. Kassinn er margnota og hann má nálgast á söfnunarstöðvum sveitarfélaga. Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is Rafhlöðukassi Það má losa úr kassanum á söfnunarstöðvum sveitarfélaga (endurvinnslustöðvum). Einnig er víða tekið á móti rafhlöðunum í sérstakar rafhlöðutunnar á bensínstöðvum N1 og Skeljungs. Hvert á að skila?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.