Morgunblaðið - 19.01.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.01.2013, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013 S ystkinin sjö frá Kleppi ól- ust upp við óvenjulegar aðstæður sem næstum því ábyggilega mótuðu mjög framgöngu þeirra og lífsviðhorf. Faðir þeirra, Þórður geðlæknir, lagði jafnan á það áherslu við börn sín að þeim bæri að umgangast sjúklingana á Kleppi sem allt annað fólk – öllum bæri að sýna skilning og virðingu og engan mannamun gera. Þessi grunnregla yfirlæknisins virðist hafa sett mark sitt á börn hans. Þegar litið er yfir líf systk- inana á Kleppi, sést vel hve margt þau áttu sameiginlegt þótt að sönnu væru þau einnig ólík um margt. Þetta var fordómalaust og umburð- arlynt fólk sem jafnan var tilbúið að taka hverjum og einum – eins og hann eða hún var. Enda áttu systk- inin í engum erfiðleikum með það sem nú kallast „mannleg samskipti“ en hét áður „að tala við fólk“. Faðir minn vann sem blaðamaður sína löngu starfsævi – hann vann við það að tala við fólk, fyrst sem frétta- haukur í innlendu fréttunum á Mogganum og síðustu ár starfs- ævinnar sem lauk í árslok 1992 sem umsjónarmaður minningargreina blaðsins sem var þá – líkt og nú – gífurlega krefjandi þjónustustarf (og hafi lesendur vinsamlegast í huga að þetta var fyrir daga int- ernets og tölvuskeyta). Pabbi hafði unun af því að tala við fólk og var allt fram á síðasta dag sjarmerandi, skarpur og hnyttinn í tilsvörum – alla tíð laus við stæla og uppgerð, frjáls undan þörf fyrir sjálfs- upphafningu sem rænir svo marga frelsi og efa, fordómalaus, umburð- arlyndur – líberal – í gömlum skiln- ingi þess orðs – fann aldrei hjá sér þörf fyrir að hafa skoðanir á öðru fólki og hvernig það kaus að lifa lífi sínu – lífsháttastjórnun og reglu- gerðahyggja nútímans var honum alla tíð algjörlega framandi. En umburðarlyndið sem ein- kenndi minn gamla pabba átti sér einnig rætur í móðurættinni. ekki síður en glaðværðin. Ellen, móðir hans, var einstaklega léttlynd og mannblendin kona – sannkölluð „fé- lagsvera“ eins og það heitir á máli nútímans. Hún var Kaupmanna- hafnarstúlka, komin af frönskum húgenottum og dönskum góðborg- urum; afsprengi viðhorfa og menn- ingar sem voru flestum Íslendingum ókunn með öllu þegar hún kom kornung til Íslands – ein og um há- vetur – til að giftast Þórði Sveins- syni og hefja búskap á Kleppi. „Oppe over skyene er himlen altid blaa,“ var eitt af fjölmörgum dönsk- um orðtökum sem amma Ellen hafði jafnan á hraðbergi. Þessi orð lýsa Ellen vel – en ekki síður syni henn- ar. Faðir minn var eins og hún hneigður til þess að líta fremur á hinar jákvæðari hliðar tilverunnar. Ekki að hann neitaði hinum myrkari eða dapurlegri birtingarformum veruleikans en honum þótti ástæðu- laust að festa hugann við þau. Nýir dagar fólu í sér ný verkefni, ný fyr- irheit. Mestu skipti að halda áfram – alltaf að halda áfram. Faðir minn nam rafvirkjun hjá Eiríki Hjartarsyni en hikaði ekki við að hætta því námi þegar honum bauðst að gerast blaðamaður á Morgunblaðinu árið 1943. Í viðtali við Svein Guðjónsson, gamlan og góðan félaga af Mogganum, sem birtist í bókinni „Íslenskir blaða- menn“ sem út kom árið 2007, sagði pabbi: „Ég átti mér þann draum frá barnæsku að gerast blaðamaður. Hann átti eftir að rætast á stríðs- árunum. Haustið 1943 gaf Valtýr Stefánsson, ritstjóri Morgunblaðs- ins, mér tækifærið með stuðningi æskuvinar míns, Guðmundar Ás- mundssonar, sem þá var í laganámi og síðar lögfræðingur hjá SÍS.“ Í þessu sama viðtali lýsti faðir minn starfi sínu svo: „Á öllum mín- um árum á Morgunblaðinu voru sjálfstæð vinnubrögð og efnistök í fréttunum og þótt vinnudagur hafi yfirleitt byrjað með ritstjórnarfundi laust eftir hádegi voru ritstjórarnir ekki alltaf afskiptasamir. Ég var í innlendum fréttum, til dæmis „bæj- arfréttum“ og í gegnum blaðið kynntist ég mörgum góðum mönn- um og mörgum sem „tippuðu“ varð- andi ýmis mál sem gátu verið efni- viður í góða frétt. Stundum kom ég við í morgunkaffi hjá valinkunnum mönnum í bænum áður en ég mætti til vinnu til að ræða það sem var efst á baugi og forvitnast um stöðu mála. Ég átti þá heima í miðbænum þar sem ég bý enn og því hæg heimatök- in því þessir aðilar voru flestir stað- settir hér í miðbænum. Ég kom til dæmis oft við í lögreglustöðinni við Pósthússtræti ... og ég var líka í góðu sambandi við þá sem höfðu upplýsingar um aflabrögð og sjó- sókn svo sem Arnór í Fiskifélaginu.“ Þessi orð lýsa skemmtilegum en horfnum heimi. Ungt fólk sem vinn- ur við blaðamennsku nú um stundir gerir sér enga grein fyrir hvernig var að sinna þessu starfi fyrir daga internets og tölvubréfa, farsíma, og gervihnatta svo ekki sé minnst á prenttæknina. Breytingunum verð- ur tæpast með orðum lýst. Í fyrrnefndu viðtali í bókinni „Ís- lenskir blaðamenn“ var faðir minn spurður hverjir væru stærstu fréttaviðburðirnir sem hann upplifði á hálfrar aldar blaðamennskuferli sínum. Ekki stóð á svarinu: „Lok heimsstyrjaldarinnar. Það er að minnsta kosti stórkostlegasti frétta- viðburður sem ég upplifði.“ Hann upplifði lok heimsstyrjald- arinnar beint og milliliðalaust og varð fyrir lífsreynslu sem fylgdi honum alla ævi. Aðeins 24 ára gam- all, árið 1946, hélt hann á vegum Morgunblaðsins til Þýskalands þar sem hann var meðal annars við- staddur stríðsréttarhöldin í Nürn- berg yfir Herman Göring og öðrum helstu foringjum þriðja ríkisins. För föður míns til Þýskalands og fréttir hans frá réttarhöldunum vöktu mikla athygli hér á landi. Í viðtali við Freystein Jóhannsson, annan góðan vin af Mogganum, sem birtist árið 2007 sagði pabbi m.a: „Þetta var óskaplega þrúgandi lífsreynsla, sem situr einhvers staðar í manni ennþá. En eyðileggingin utan rétt- arsalarins stendur mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum.“ Vinnudagurinn á Mogganum var langur – þá sem nú. Gæfa föður míns var sú að vera einstaklega verkglaður, hraustur og drífandi maður. Gamlir starfsmenn Morg- unblaðsins muna vel eftir honum þar sem hann þeyttist – hvíthærður og tágrannur – eins og hvirfilbylur milli hæða í Aðalstrætinu með hand- rit í hendi. Hann var enda þá kall- aður „hvíti stormsveipurinn“ með vísan til Ajax-auglýsingar sem gekk í sjónvörpum landsmanna (og naut ekki aðeins athygli heldur beinlínis vinsælda – dásemdin var fólgin í salmíakinu – það lyktaði öðruvísi!). Síðan var hlaupið upp á sjöundu hæð í kaffi. Í hádeginu kom hann oftast heim á Þórsgötu og fór þá út með hund- inn sem hann hélt um 15 ára skeið. Um kvöldið lá leiðin aftur út í Öskjuhlíð með ferfætlinginn sem má eiga að aldrei kvartaði hann þótt álagið væri bæði stöðugt og mikið. Hugtakið „afslöppun“ átti aldrei vel við Sverri Þórðarson – en vitanlega gat hann slakað á – bara ekki lengi í einu! Þá naut hann þess að hlýða á tónlist enda mjög músíkalskur mað- ur. Faðir minn var um áratugaskeið fréttaritari norrænna fjölmiðla og fréttastofa hér á landi. Naut hann þess þá að bæði tala og skrifa dönsku sem innfæddur. Hann vann m.a. fyrir Ritzau, NTB og hina sænsku TT en ekki síður eru minni- stæð árin sem hann vann fyrir dag- blaðið Dimmalætting í Færeyjum og Útvarpið í Grænlandi. Þetta var gríðarlega bindandi starf – og hann var alltaf að. Á öllum tímum sólar- hringsins fór hann niður á Mogga til að senda fréttir frá Íslandi til grannþjóðanna. Í þá daga veitti tæknin mönnum ekki sömu hjálp og nú. Skrifa þurfti fréttirnar á telex-tæki, ægilegt og óþjált fjölmúlavíl, – búa til gata- strimil sem síðan var rennt í gegn- um gripinn þegar loks náðist sam- band við viðtökulandið. Enn fer hrollur um gamla blaðamenn þegar þeir rifja upp kynni sín af þessu skelfilega tæki. Það er í senn fyndið og undarlegt að svo óþolinmóður og kvikur maður sem faðir minn hafi þurft að nýta tækni sem átti svo illa við allt hans upplag og eðli. En hann lét þetta ekki slá sig út af laginu fremur en annað. Afköstin voru með ólíkindum. Allt fram yfir sjötugt bókstaflega dældi Í minningu blaðamanns Morgunblaðið/Ól.K.M. Á tali Sverrir var afkastamikill blaðamaður og er hér að taka niður frétt frá fréttaritara. Myndin er tekin árið 1953. Morgunblaðið/Ól.K.M. Blýið kvatt Myndin er tekin þegar hætt var að vinna blaðið í blý. Frá vinstri: Magnús Finnsson, Björn Vignir Sig- urpálsson, Árni Johnsen, Björn Jóhannsson, Ólafur K. Magnússon, Ingvi Hrafn Jónsson og Sverrir Þórðarson. Morgunblaðið/Emilía 99 ára reynsla Þorbjörn Guðmundsson fulltrúi ritstjóra og Sverrir á síðasta vinnudegi beggja, 30.12. 1992. Samanlagður starfsaldur þeirra er 99 ár. Í ár verður Morgunblaðið 100 ára. Helming þess tíma starfaði Sverrir Þórðarson á blaðinu við góðan orðstír og sagði frá mörgum af merkustu atburðum liðinnar aldar, jafnt innan lands sem utan. Sverrir lést hinn 7. janúar síðastliðinn. Hér að neðan minnist Ásgeir Sverrisson föður síns og bregður um leið upp nokkr- um svipmyndum úr sögu Morgunblaðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.